Fréttablaðið - 31.05.2012, Síða 52
31. maí 2012 FIMMTUDAGUR40
Í Kúlunni, minnsta sviðssal Þjóð-
leikhússins, var á laugardaginn
frumsýnt íðilfallegt verk. Hinn
snjalli brúðulistamaður Bernd
Ogrodnik hefur enn og aftur dottið
niður á góða frásögn sem smellur
að aðferðum hans við sína listsköp-
un. Í agnarlitlu þorpi á suðrænum
slóðum hanga nokkur hvítkölkuð
hús á sjávarkambi, fyrir utan er
hafið endalaust, stórt og magnað.
Inni í einu þessara litlu húsa býr
hann, þessi maður sem leggst til
atlögu við stóra og kannski stærsta
fiskinn í sjónum.
Hemingway segir söguna og
flest höfum við lesið hana, heillast
af henni en kannski ekki alveg
botnað í mikilfengleik hennar. Ætli
það sé ekki einfaldlega baráttan,
drepur þú mig eða drep ég þig, eða
eins og tilvitnun úr bókinni hljóm-
ar: „Maðurinn er ekki gerður til að
bíða ósigur. Það er hægt að granda
manni en ekki sigra hann.“
Listamaðurinn Bernd Ogrodnik
kemur með töfratrommu sem flyt-
ur okkur inn í storm einhvers stað-
ar úti á hafi og með því að bregða
henni upp fáum við í ljósinu fyrst
að sjá gamla manninn í bátnum
sínum. Gamli maðurinn birtist
okkur í mismunandi stærðum. Sá
agnarlitli rær og er heillandi að
sjá hvernig þreytulegar hreyfing-
ar gamals manns skila sér í rykkj-
óttu togi og tini eins og gömlum
mönnum er tamt.
Lýsingin sem Lárus Björnsson
á heiðurinn af gerði nú heldur
ekki lítið til þess að lyfta áhorf-
endum inn í þetta ævintýri, sama
má segja um öll hljóð hvort sem
þau voru frá hvissandi öldum eða
gargandi máfum. Egill Ólafsson
sagði okkur söguna með djúpri
fullorðinslegri og rólegri röddu, og
sömuleiðis fór hann með hlutverk
Santiagos með rólyndi sem aðals-
merki. Ungur Valgeir Skagfjörð
léði drengum Manolin rödd sína,
sakleysislega og tæra, og skapaði
góða andstöðu við hina reynslu-
miklu rödd hins gamla.
Það er óhætt að segja að hvert
einasta atriði er unnið af alúð,
hæfileika og virðingu fyrir verk-
inu sem og áhorfendum. Bernd
Ogrodnik er einstakur á þessu
sviði á Íslandi. Það er nú varla
hægt að státa sig af því að þau
menningarmál er varða metn-
aðarfullt starf í þágu barna séu
mörg eða mikil. Því er það synd
og hreinlega skömm að svo góður
listamaður geti ekki fengið að
dafna hérlendis, en fram hefur
komið að Bernd Ogrodnik starf-
ar nú við listiðkun sína í Kanada.
Nær væri nú að rétta honum lista-
mannalaun og gera hann að Borg-
arlistamanni. Hér færir hann
okkur fullorðna fólkinu heillandi
sýningu á klassísku bókmennta-
verki, en það er víst alveg öruggt
að hún mun einnig heilla börn.
Elísabet Brekkan
Niðurstaða: Einkar hugljúft, fallegt og
heilsteypt sjónlistaverk.
Leikhús ★★★★★
Gamli maðurinn og hafið
Handrit og brúðugerð, sviðsmynd
og flutningur: Bernd Ogrodnik;
Sögumaður: Egill Ólafsson; Leik-
raddir: Egill Ólafsson og Valgeir
Skagfjörð; Sviðsmynd og leik-
munir: Frosti Friðriksson, Högni
Sigurþórsson og Bernd Ogrodnik;
Ljósahönnun: Lárus Björnsson;
Hjóðupptaka Halldór Bjarnason
Sýnt í Kúlunni í ÞjóðleikhúsinuHEILSTEYPT Sýningin Gamli maðurinn og hafið er afar vel heppnuð.
HUGLJÚFUR HEMINGWAY
Píanóleikararnir Anna Guðný
Guðmundsdóttir og Tinna Þor-
steinsdóttir leiða saman flygla
sína á Listahátíð og flytja verk-
ið Amen séð í hugsýnum eftir
Olivier Messiaen í fyrsta sinn
á Íslandi. Í ár eru tuttugu ár
liðin frá dauða hins framsækna
franska tónskálds.
Messiaen samdi verkið árið 1943
og var það með fyrstu verkunum
sem hann samdi eftir að hann var
látinn laus úr fangabúðum nasista.
Árni Heimir Ingólfsson tónlistar-
fræðingur flytur stuttan inngang
á undan tónleikunum og gefur tón-
leikagestum innsýn í litríkan tón-
heim Messiaen.
Tónleikarnir verða í Norður-
ljósasal Hörpu klukkan 11.30 á
sunnudaginn, 3. júní.
Flytja verk
Messiaen
MESSIAEN Anna Guðný Guðmunds-
dóttir og Tinna Þorsteinsdóttir koma
fram á hádegistónleikum í Hörpu á
sunnudag.