Fréttablaðið - 31.05.2012, Blaðsíða 53
FIMMTUDAGUR 31. maí 2012 41
„Ég var lengi að hugsa mig um
hvort það ætti að vera Eldborgin
eða Bar 11 og Bar 11 varð fyrir
valinu,“ segir forsprakkinn Seli.
Rokkabillísveitin Langi Seli og
Skuggarnir fagnar 25 ára starfs-
afmæli sínu á Bar 11 um helgina
með tvennum ókeypis tónleikum
á föstudags- og laugardagskvöld.
Þar verður farið yfir feril sveit-
arinnar, sem ætlar að spila bæði
gömul og ný lög. „Við ætlum að
fara yfir ferilinn á okkar hátt.
Við erum ekki duglegustu laga-
höfundar landsins en lögin okkar
fá að þróast og breytast á milli
ára,“ segir Seli.
Í tilefni af afmælinu ákvað
hljómsveitin að gefa sjálfri sér
veglega afmælisgjöf með því
að fá til liðs við sig gítarleikar-
ann Þorgils Björgvinsson. „Ég
er rosalega ánægður með hann.
Þetta léttir líka á gamla mann-
inum.“ Auk Þorgils og Sela eru í
bandinu þeir Jón Skuggi og Eric
Qvick.
Tónleikarnir verða teknir upp
og hugsanlega gefnir út síðar á
árinu. „Þetta er frekar sjálfhvert
en okkur langar svolítið að heyra
sjálfum hvernig við hljómum á
tónleikum.“
- fb
Fagna 25 ára starfsafmæli sínu
AFMÆLI Langi Seli og Skuggarnir fagna 25 ára starfsafmæli sínu um helgina.
FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
Opið laugard. kl. 10-14
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Fimmtudagur 31. maí
➜ Tónleikar
20.00 Vocal Project, Poppkór
Íslands, heldur vortónleika í Salnum
Kópavogi. Miðaverð er kr. 2.000.
20.00 Raggi Bjarna syngur sjómanna-
lögin í Salthúsinu, Grindavík. Tónleik-
arnir bera yfirskriftina Hafið bláa hafið,
sjómannalögin með Ragga Bjarna.
Seinni tónleikar verða klukkan 22.15.
Miðaverð er kr. 2.900.
20.30 Kór Neskirkju heldur tónleika
í kirkjunni undir yfirskriftinni Söngur og
sumarblóm. Aðgangur er ókeypis og
sumarblómasala til styrktar kórnum að
tónleikum loknum.
➜ Fræðsla
14.00 Fimmti opni fræðslufundurinn
af ellefu á þessu ári í tilefni af 30 ára
starfsafmæli Stoðar hf verður haldinn í
hjálpartækjasal Stoðar að Trönuhrauni 8.
➜ Sýningar
18.00 Bjarni Sigurðsson verður með
keramiksýningu hjá Fríðu Skartgripa-
hönnuði á Strandgötu 43 í Hafnarfirði.
Er sýningin hluti af Björtum Dögum í
Hafnarfirði.
➜ Hátíðir
17.00 Listahátíðin í Reykjavík stendur
nú yfir. Nánari upplýsingar á www.
listahatid.is.
➜ Umræður
15.00 Haldin verður málstofa í
fundarsal Seðlabankans, Sölvhóli.
Frummælandi er Ásgeir Daníelsson.
Efni málstofunnar er Lífeyrissjóðir,
einkasparnaður, húsnæðiseign og fjár-
málalegur stöðugleiki.
➜ Dans
20.00 Salsa Iceland býður í frían
prufutíma í salsa fyrir byrjendur á Thor-
valdsen Bar. SIST meðlimir bjóða fría
kennslu í Taxi dönsum strax þar á eftir
og er dansgólfið svo laust fyrir salsaóða
til kl. 00.30. Ýmis tilboð á barnum.
➜ Tónlist
20.00 Samsara heldur tónleika fyrir
framan verslunina Kailash við Strand-
götu 11 í Hafnarfirði. Trúbadorinn Leo
Gillespie mun einnig stíga á stokk.
21.00 Styrktartónleikar fyrir Kisukot
verða haldnir á Græna Hattinum, Akur-
eyri. Meðal þeirra sem fram koma eru
Ingó Hansen og hljómsveitin Berklarnir.
Aðgangseyrir er kr. 1.500 sem rennur
óskiptur í Kisukot.
22.00 Bítladrengirnir blíðu halda tón-
leika á Ob-La-Dí-Ob-La-Da, Frakkastíg
8. Aðgangseyrir er kr. 1.000.
➜ Fyrirlestrar
11.30 Bresk utanríkisstefna og Norð-
urlöndin eftir síðari heimsstyrjöld eru til
umræðu á ráðstefnu á vegum Alþjóða-
málastofnunar Háskóla Íslands, Sagn-
fræðistofnunar og English-Speaking
Union of Iceland. Fundurinn fer fram á
ensku í Norræna húsinu.
12.00 Hr. Yves Frenot, framkvæmda-
stjóri Frönsku pól-stofnunar Paul-Emile
Victor (IPEV) heldur fyrirlestur í tilefni af
komu skipsins Pourquoi Pas? til landsins.
Fyrirlesturinn er hluti af fyrirlestraröðinni
um Charcot sem Alliance française og
Háskóli Íslands skipuleggur ár hvert og
verður haldin í fyrirlestrarsal 132 í Öskju.
12.15 Arnar Eggert Thoroddsen tón-
listargagnrýnandi og Hjálmar Stefán
Brynjólfsson lögfræðingur flytja hádeg-
iserindi í Hafnarhúsinu. Fyrirlesturinn
er hluti af sýningu Hlyns Hallssonar og
Jónu Hlífar Halldórsdóttur, KERFI.
12.15 Háskóli Reykjavíkur býður til
fyrirlestraraðar undir yfirskriftinni Verkin
tala í stofu V102. Ólafur Wallevik talar
undir yfirskriftinni Er íslenskt best í
heimi? - Umhverfisvæn steinsteypa.
Aðgangur er ókeypis.
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is og einnig er
hægt að skrá þá inni á visir.is.