Fréttablaðið - 31.05.2012, Page 54
31. maí 2012 FIMMTUDAGUR42
tonlist@frettabladid.is
TÓNNINN GEFINN
Trausti Júlíusson
Danmörk lumar á ýmsu góðu í tónlist. Ein af þeim dönsku sveitum sem
hefur verið að vekja athygli undanfarið í hinum alþjóðlega heimi indí-
poppsins er Giana Factory. Hún er skipuð þremur stelpum, Loui Foo
sem syngur og spilar á raftrommur, Sofie Johanne sem spilar á bassa
og hljóðgervla og Lisbet Fritze sem spilar á gítar. Þær hafa verið starf-
andi frá því 2008 og gáfu út sína fyrstu stóru plötu, Save the Youth, í
heimalandinu ári seinna. Fyrir nokkrum vikum kom platan svo út í
Bandaríkjunum og Evrópu í tvöfaldri útgáfu. Tónlist Giana Factory er
rafpopp, svolítið melankólískt á
köflum. Þær stöllur nota gamla
hljóðgervla sem gefur tónlist-
inni þægilegan retró-hljóm.
Giana Factory varð eigin-
lega til fyrir tilviljun. Stelp-
urnar þekktust og höfðu
spilað í ýmsum hljómsveit-
um. Þegar tvær þeirra voru
á tónleikaferðalagi í London
með samlöndum sínum í The
Raveonettes hittu þær James
Allan úr skosku hljómsveitinni
Glasvegas sem spurði þær hvort
þær væru ekki í hljómsveit og
hvort þær vildu ekki hita upp
fyrir Glasvegas í Kaupmanna-
höfn tveimur vikum síðar. Þær
sögðu já takk, æfðu nokkur lög
í snarhasti og spiluðu á tónleikunum í Kaupmannahöfn og á fleiri tón-
leikum með Skotunum. Síðan hafa þær spilað mjög víða, voru meðal
annars að klára stóran Evróputúr nú í vor.
Á nýju útgáfunni af Save the Youth eru, auk laganna sem voru á frum-
útgáfunni, lög af EP-plötunni Bloody Game, demóupptökur af sumum
laganna og endurgerðir af nokkrum þeirra, meðal annars eftir Trente-
möller, Autolux og Glasvegas. Fín poppplata.
Dönsk stelpuverksmiðja
Á UPPLEIÐ Danska kvennatríóið Giana
Factory hefur vakið verðskuldaða athygli.
> PLATA VIKUNNAR
Sigur Rós - Valtari
★★★★ ★
„Sigur Rós tekur stóra beygju
með rólegri og hrífandi plötu.“
- TJ
> Í SPILARANUM
Kira Kira - Feathermagnetik
Melchior - Matur fyrir tvo
Hafdís Huld - Vögguvísur
Diplo - Express Yourself
Margir aðdáendur Guns N‘ Roses
þurftu að fara heim af tónleikum
þeirra í Manchester áður en þeir
sáu hljómsveitina svo mikið sem
stíga á svið.
Axl Rose og félagar eru
þekktir fyrir óstundvísi sína
og héldu þeir uppteknum
hætti í M.E.N.-höllinni í
Manchester á þriðjudags-
kvöld. Þrátt fyrir að hafa
átt að hefja tónleikana tíu
um kvöldið létu rokkar-
arnir ekki sjá sig fyrr en
korter yfir ellefu. Við tóku
þriggja tíma maraþon tónleikar
og fór fólk ekki heim til sín fyrr
en tvö um nóttina. Samkvæmt
Gigwise.com er talið að um
fjörutíu prósent áhorfend-
anna hafi þurft að yfirgefa
tónleikahöllina fyrr til að
ná lestinni heim til sín.
Einn aðdáandinn sem hélt
út alla tónleikana skrif-
aði á Twitter að það hefði
verið vel þess virði að
komast ekki heim til sín
fyrr en sjö um morguninn.
Áhorfendur fóru heim
ÓSTUNDVÍS Axl Rose á tónleik-
unum í Manchester.
NORDICPHOTOS/GETTY
Erlendir dómar um Valtara
Sigur Rósar hafa verið að
hrúgast inn að undanförnu.
Gagnrýnendur eru flestir
jákvæðir en margir virðast
samt hafa búist við meira
frá hljómsveitinni.
Erlendir fjölmiðlar eru yfirhöfuð
jákvæðir í garð nýjustu plötu
Sigur Rósar, Valtara, sem kom út
fyrr í vikunni. Margir tala um að
tónlistin sé fallegt afturhvarf til
eldra efnis þó svo að einhverjir
kvarti yfir því að ekkert óvænt eða
nýtt sé að finna á plötunni.
Þegar litið er á vefsíðuna Meta-
critic, sem tekur saman einkunna-
gjöf helstu fjölmiðla, kemur í ljós
að Valtari fær mjög góða meðal-
einkunn, eða 76 af 100 mögulegum.
Þrátt fyrir það er gripurinn með
næstlægstu einkunnina af þeim
sex hljóðversplötum sem hafa
komið út með Sigur Rós. Aðeins
frumburðurinn Von er neðar á list-
anum með 68 af 100, sem kemur
kannski ekki á óvart enda er hún
líkast til sú tilraunakenndasta og
innhverfasta af þeim öllum.
Tímaritið Rolling Stone gefur
Valtara þrjár og hálfa stjörnu af
fimm mögulegum. Þar segir að
upphafslagið Ég anda setji tón-
inn fyrir mýkstu og þægilegustu
plötu Sigur Rósar til þessa. Tíma-
ritið Clash giskar á að hafmeyjar
hlusti á Sigur Rós en gefur plöt-
unni aðeins sex í einkunn af tíu.
Dagblaðið The Guardian gefur
Valtara þrjár stjörnur af fimm.
Þar skrifar gagnrýnandinn að
tónlistin hverfi fullauðveldlega
í bakgrunninn. Það sé synd því
mikil fegurð sé til staðar í lög-
unum.
NME gefur Sigur Rós sjö af tíu
í einkunn og segir plötuna vera
afturhvarf til ( ), svigaplötunnar
frá árinu 2002. „Ef þú ert ekki
nú þegar dyggur aðdáandi Sigur
Rósar mun þessi plata örugglega
ekki breyta neinu þar um. En ef
þú ert það muntu alveg örugglega
heillast. Hefðbundið efni eins og
þetta hefur sjaldan hljómað jafn-
fallega.“
Allmusic splæsir fjórum stjörn-
um á Valtara. „Á yfirborðinu virð-
ist hljómsveitin hafa tekið skref
aftur á bak. En í staðinn fyrir að
endurtaka gamalt efni er þetta ein
besta platan hennar. Hún sýnir
tónlistargetu sveitarinnar á fág-
aðan og æðisgenginn hátt og þarna
eru nógu miklar tilfinningar til að
valda stórflóði.“
Vefsíðan Pitchfork er ekki eins
hrifin og gefur henni aðeins 6,1
af 10 í einkunn. „Sigur Rós hefur
sannað að hún getur búið til fal-
lega, ófyrirsjáanlega og melódíska
tónlist. Valtari vill vera falleg en
nær ekki lengra en það,“ skrifaði
gagnrýnandinn.
Hér heima hefur Valtari feng-
ið mjög góða dóma, þar á meðal
fjórar stjörnur hjá gagnrýnanda
Fréttablaðsins. „Hún krefst fullr-
ar athygli hlustandans. Gefi maður
henni séns uppsker maður hins
vegar ríkulega.“ freyr@frettabladid.is
Hefðbundið en fallegt
GÓÐIR DÓMAR Nýjasta plata Sigur Rósar, Valtari, hefur fengið jákvæða dóma hjá erlendum gagnrýnendum.
Þátttakendur í Lagalistanum: Bylgjan, FM957, Xið 977, Rás 2, Kaninn, tonlist.is. Verslanir í Tónlistanum: Skífan, Hagkaup, Penninn/Eymunds-
son, 12 tónar, Harpa, Smekkleysa plötubúð, Elkó, tonlist.is
Listarnir eru teknir saman fyrir Félag hljómplötuframleiðenda. Listarnir eru birtir í heild sinni á Vísir.is.
Stendur í stað síðan í síðustu viku Fellur um sæti síðan í síðustu viku Hækkar á lista síðan í síðustu viku Nýtt á lista
Skýringar:
TÓNLISTINN
Vikuna 24. - 30. maí 2012
LAGALISTINN
Vikuna 24. - 30. maí 2012
Sæti Flytjandi Lag
1 Loreen ..................................................................Euphoria
2 Jason Mraz .............................................. I Won’t Give Up
3 KK ................................................................................ Frelsið
4 Valdimar ............................................................ Þú ert mín
5 Greta Salóme / Jónsi.................................Never Forget
6 Carly Rae Jepsen ...................................Call Me Maybe
7 Tilbury ................................................................Tenderloin
8 Michael Teló ..........................................Ai se eu te pego
9 Train ........................................................................Drive By
10 Magnús Þór / Jónas Sigurðsson .....................................
..............................................Ef ég gæti hugsana minna
Sæti Flytjandi Plata
1 Ýmsir .................Eurovision Song Contest 2012: Baku
2 Of Monsters And Men ...........My Head Is An Animal
3 Sigur Rós ...................................................................Valtari
4 Ýmsir ................................................................. Pottþétt 57
5 Bubbi Morthens......................................................Þorpið
6 Ýmsir .........................Gleðibankinn: 25 ár í Eurovision
7 Tilbury .....................................................................Exorcise
8 Adele .................................................................................. 21
9 Ýmsir ...........................Hot Spring: Landmannalaugar
10 Mugison ....................................................................Haglél
Ótrúlegt
úrval íbúða til sölu
eða leigu!
STÆRSTI
HÚSNÆÐISVEFUR
LANDSINS