Fréttablaðið - 31.05.2012, Page 60

Fréttablaðið - 31.05.2012, Page 60
48 31. maí 2012 FIMMTUDAGUR Tónlist ★★★ ★★ Asonat Love in Times of Repetition Silkimjúkt og sefandi Asonat er samstarfsverkefni tveggja vel þekktra íslenskra raftónlistarmanna, Jónasar Þórs Guðmundssonar og Fannars Ásgríms- sonar. Jónas hefur mest notast við aukasjálfið Ruxpin, en Fannar er annar helmingur dúós- ins Plastic Joy. Ruxpin hefur gefið út nokkrar fínar plötur bæði hjá hérlendum og erlendum plötufyrirtækjum, síðast kom Where Do We Float From Here? sem bandaríska útgáfan n5MD gaf út árið 2009. n5MD gefur líka út tónlist Asonat. Tónlistin á Love in Times of Repetition er að stærstum hluta hæggeng, mjúk og seiðandi raftónlist, þó að hún herðist aðeins í nokkrum lögum, t.d. We Have Come So Far Again, Dandelions For You og Last Song (Almost). Þeir félagar syngja báðir á plötunni, en auk þeirra syngja franska söngkonan Oléna Simon, japanska söngkonan Chihiro Dunn og Kjartan Ólafsson úr Ampop. Yfirbragð plötunnar minnir svolítið á listamenn í mjúku deildinni, eins og Thievery Corporation eða Kruder & Dorfmeister, en hljómur Asonat er samt kaldari, meira teknó. Love in Times of Repetition er ágætis plata. Lögin eru misgóð og hún nær aldrei að koma manni verulega á óvart, en hún stendur samt vel fyrir sínu. Bestu lögin eru mjög vel samin og oft ná Asonat-menn að skapa flotta stemningu með vönduðum hljóðheiminum. Trausti Júlíusson Niðurstaða: Ágætis plata frá nýrri rafpoppsveit Jónasar Ruxpin og Fannars úr Plastic Joy. Sjónvarpskokkurinn kjaftfori Gordon Ramsay var fluttur á sjúkrahús eftir að hafa tekið þátt í góðgerðaleik í fótbolta á leik- vangi Manchester United, Old Trafford. Ramsay lenti í samstuði við fót- boltakappann fyrrverandi Teddy Sheringham með þeim afleiðing- um að hann lá óvígur eftir í gras- inu vegna bakmeiðsla. Hann var fluttur beint á sjúkrahús en er núna á batavegi. Meðal annarra sem tóku þátt í leiknum voru leikararnir Gerard Butler, Mike Myers, Woody Har- relson og Will Ferrell. Fluttur á sjúkrahús Á BATAVEGI Gordon Ramsay er á batavegi eftir samstuðið við Sheringham. Vinkonunum Sigríði Ellu Jónsdóttur, Hrafnhildi Guð- rúnardóttur og Kristínu Kristjánsdóttur langaði að hrista upp verslunarflóru Kaupmannahafnar og opna verslunina Karrusel með íslenskri og erlendri hönn- un í bland. „Okkur langaði að hrista upp í vöruúrvalinu hérna en þó að mark- aðurinn sé stór finnst okkur hann vera frekar einsleitur,“ segja vin- konurnar og nú búðareigendurnir Sigríður Ella Jónsdóttir, Hrafn- hildur Guðrúnardóttir og Kristín Kristjánsdóttir sem opna verslun í Kaupmannahöfn á næstu dögum. Búðin nefnist Karrusel og hafa vinkonurnar tryggt sér verslun- arhúsnæði á besta stað í bænum, nánar tiltekið í hliðargötu frá Strikinu. „Við ákváðum að kýla á þetta þegar við vorum allar flutt- ar út til Kaupmannahafnar en þetta hefur lengi verið í umræðu í vinahópnum hérna úti. Við höfum allar mismunandi reynslu að baki og smellpössum saman sem við- skiptafélagar,“ segja stúlkurnar en búðaropnunin hefur verið í bígerð í eitt og hálft ár. „Hérna úti tekur allt lengri tíma en heima, það er miklu meiri skriffinnska og rammi utan um allt.“ Sigríður, Hrafnhildur og Krist- ín eru búnar að tryggja sér vörur eftir 25 unga og efnilega hönn- uði, bæði íslenska og erlenda, sem verða til sölu í búðinni. „Við höfum trú á að íslensku hönnun- inni verði vel tekið hérna en hún er bæði litríkari og kannski ekki eins klassísk og hin danska. Nú vonum við bara að Danirnir bíti á öngulinn.“ Karrusel þýðir hringekja á dönsku en stöllurnar vilja að við- skiptavinir búðarinnar upplifi ákveðna veröld þegar þeir koma inn í verslunina. „Að fara inn í Karrusel á að vera skemmtileg upplifun og gefa kitl í magann þar sem þú finnur einstaka og fagra hluti allt í kring. Upplif- unin á að skilja eftir sig ákveð- in hughrif sem fólk tekur með sér úr versluninni.“ Karrusel opnar þann 8. júní á Knabro- stræde 1a en hægt er að fylgj- ast með búðinni á vefsíðunni Karruselboutique.com. - áp Opna Karrusel í Danmörku VILJA GEFA KITL Í MAGANN Vinkonurnar Sigríður Ella Jónsdóttir, Kristín Kristjánsdóttir og Hrafnhildur Guðrúnardóttir opna verslun með íslenskri hönnun í hliðargötu frá Strikinu í Kaupmannahöfn. MYND/ÍRIS DÖGG EINARSDÓTTIR MEÐ STUÐNINGI REYKJAVÍKURBORGAR OG KVIKMYNDAMIÐSTÖÐVAR ÍSLANDS Miðasala: 412 7711 www.bioparadis.is / midi.is Hluti af Europa Cinemas FIMMTUDAGUR: TYRANNOSAUR 18:00, 20:00, 22:00 I AM SLAVE 18:00, 22:00 CORIOLANUS 20:00, 22:30 JANE EYRE 17:30 IRON SKY 20:00, 22:00 SVARTUR Á LEIK (ENG. SUBS) 17:40, 22:00 SKÓLANEMAR: 25% AFSLÁTTUR GEGN FRAMVÍSUN SKÍRTEINIS! SAMI AFSLÁTTUR FYRIR ÖRYRKJA OG ELDRI BORGARA.TYRANNOSAUR ****-The Guardian ****-Roger Ebert 6. JÚNÍ: SUMARTÍÐ (L’Heure d’été) eftir OLIVIER ASSAYS!SKEMMD EPLI ****-Morgunblaðið MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTABLAÐIÐ SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ 5%NÁNAR Á MIÐI I. S GLERAUGU SELD SÉR 5% BORGARBÍÓ NÁNAR Á MIÐI.IS SNOW WHITE AND THE... KL. 5.20 - 8 - 10.40 12 SNOW WHITE AND THE... LÚXUS KL. 5.20 - 8 - 10.40 12 MIB 3 3D KL. 3.30 - 5.30 - 8 - 10.30 10 MIB 3 2D KL. 5.30 - 8 - 10.30 10 THE DICTATOR KL. 3.30 - 6 - 8 - 10 12 LORAX - ÍSLENSKT TAL 2D KL. 3.30 L SNOW WHITE AND THE... KL. 5.45 - 8 - 10.15 12 MIB 3 3D KL. 8 - 10 10 THE DICTATOR KL. 6 12 SNOW WHITE AND THE HUNTSMAN KL. 6 - 9 12 MIB 3 3D KL. 6 - 9 10 SALMON FISHING IN THE YEMEN KL. 8 10 THE DICTATOR KL. 6 - 8 - 10.30 12 GRIMMD: SÖGUR AF EINELTI KL. 5.45 10 SVARTUR Á LEIK KL. 10 16 SNOW WHITE 4, 7, 10(P) MEN IN BLACK 3 3D 5.45, 8, 10.15 THE FIVE-YEAR ENGAGEMENT 5, 8, 10.25 LORAX 3D - ISL TAL 4 LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar POWERSÝNI NG KL. 10 www.laugarasbio.is -bara lúxus sími 553 2075Miðasala og nánari upplýsingar 5% EGILSHÖLL 16 16 V I P 1212 12 12 12 L 10 10 10 12 12 ÁLFABAKKA GG U ÞÉ I ÁTRY Ð R M ÐA 12 L 10 AKUREYRI 16 16 16 YFIR 50 ÞÚS. BÍÓGESTIR ! Total film Variety 16 16 KRINGLUNNI 12 12 10 MÖGNUÐ SPENNUMYND FRÁ LEIKSTJÓRA V FOR VENDETTA KEFLAVÍK 16 12 JOHN CUSACK ER EDGAR ALLAN POE EMPIRE EMPIRE JOHNNY DEPP FRÁ MEISTARA TIM BURTON

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.