Fréttablaðið - 31.05.2012, Side 61
FIMMTUDAGUR 31. maí 2012 49
Leikkonan Charlize Theron seg-
ist vera orðin sérfróð um bleiu-
skipti eftir að hún eignaðist son
sinn Jackson.
„Ég elska bleiuskipti, ég lýg
því ekki. Og ég er orðin svo góð í
þeim að ég gæti gert það sofandi.
Ég hef þurft að kaupa bleiur í
ólíkum löndum, því Jackson er á
kynningarferðalagi með mér, og
nú kann ég að skipta á japönsk-
um bleium, spænskum, enskum
og þýskum bleium. Bleiur eru
svolítið ólíkar á milli landa og ég
er orðin sérfróð um þær allar,“
sagði leikkonan um hið nýja hlut-
verk sitt sem móðir.
Sérfræðingur í bleium
SÉRFRÓÐ Charlize Theron kveðst sérfróð
um bleiuskipti. NORDICPHOTOS/GETTY
Rapparinn Kanye West ku vera
kominn í náðina hjá Kardashian-
fjölskyldunni en hann hefur verið
í sambandi með raunveruleika-
stjörnunni Kim Kardashian í
nokkra mánuði. Parið er ekki feim-
ið við sviðsljósið en þau hertaka nú
rauðu dreglana á kvikmyndahátíð-
inni í Cannes.
West hefur nú miklar áhyggjur
af móður kærustu sinnar, Kris
Jenner, sem hefur aukið heimsókn-
ir sínar til lýtalækna Los Angeles
mikið. Móðir West lést árið 2007
eftir misheppnaða fitusogsaðgerð
og hefur West biðlað til Jenner að
fara varlega.
Það mun eflaust ekki draga úr
vinsældum raunveruleikaþáttanna
um Kardashian-fjölskylduna þegar
West fer að birtast á skjánum en
hann hefur samþykkt að vera með
í næstu seríu.
Með áhyggjur
af tengdó
PÓSA Hvorki Kanye West né Kim Kar-
dashian eru feimin við myndavélarnar
og eru dugleg að stilla sér upp saman á
rauða dreglinum í Cannes.
NORDICPHOTOS/GETTY
Fjölskylda og vinir leikarans
Jeremys Renner hafa áhyggjur af
því að ferill hans hljóti skaða af
ofdrykkju hans. Renner á að hafa
drukkið ótæpilega með máltíð á
Chateau Marmont hótelinu í Los
Angeles.
„Jeremy var of drukkinn, sull-
aði á sjálfan sig og röflaði,“ var
haft eftir sjónarvotti. Heimildar-
menn segja einnig að Renner hafi
drukkið mikið á meðan hann var
á kynningarferðalagi fyrir kvik-
myndina Avengers. „Hann drakk
heilu næturnar og vinum hans
þótti nóg um. Ef hann tekur sig
ekki á gæti þetta haft áhrif á feril
hans,“ sagði heimildarmaðurinn.
Talsmaður Renners neitar sögu-
sögnunum.
Óttast um
feril Renners
DREKKUR MIKIÐ Vinir Jeremy Renner
hafa áhyggjur af drykkju hans.
NORDICPHOTOS/GETTY
Joshua Jackson og Diane Kruger
voru á meðal gesta er sóttu góð-
gerðamáltíð í Monte Carlo í vik-
unni. Kruger, sem er þekkt fyrir
góðan fatasmekk, klæddist kjól
frá hönnuðinum Prabal Gurung
og bar hálsmen sem innanbúðar-
menn vilja meina að sé eins konar
trúlofunargjöf frá Jackson.
Kruger var áður gift franska
leikaranum Guillaume Canet og
hefur oft látið þau orð falla að hún
vilji ekki gifta sig aftur. „Ég trúi
ekki á hjónaband, ég trúi á skuld-
bindingu hjartans.
Það er ekki til sá pappír sem
mun halda fólki saman ef það vill
það ekki,“ sagði leikkonan sem
gæti þó hafa snúist hugur í milli-
tíðinni.
Gætu verið trúlofuð
TRÚLOFUÐ? Sögur eru
um að Diane Kruger
og Joshua Jackson hafi
trúlofað sig á laun.
NORDICPHOTOS/GETTY
NÝTT
www.facebook.com/Fronkex
Fáðu þér íslenskt gott kex
með chilli eða hvítlauksbragði.
Bættu við bragðgóðum íslenskum osti,
dreitil af sultu og njóttu þess.