Fréttablaðið - 31.05.2012, Blaðsíða 62
31. maí 2012 FIMMTUDAGUR50
sport@frettabladid.is
PEPSI-DEILD KARLA heldur áfram í kvöld en þá fara fram tveir leikir. Sel-
foss tekur á móti Breiðablik og Keflavík sækir Val heim. Báðir leikir hefjast klukkan
19.15 og verða í beinni leiklýsingu á Boltavakt Vísis og Fréttablaðsins.
Undankeppni EM:
Ísland-Spánn 21-18 (8-10)
Mörk Íslands (skot): Rut Jónsdóttir 4 (5), Anna
Úrsúla Guðmundsdóttir 4 (6), Dagný Skúladóttir
4 (7), Karen Knútsdóttir 3/2 (6/2), Þórey Rósa
Stefánsdóttir 2 (2), Hrafnhildur Ósk Skúladóttir
2 (6), Jóna Margrét Ragnarsdóttir 1 (2), Stella
Sigurðardóttir 1 (8/1), Sunna Jónsdóttir (1),
Varin skot: Guðný Jenný Ásmundsdóttir 17 (34/1,
50%), Guðrún Ósk Maríasdóttir 1/1 (2/2, 50%).
Hraðaupphlaup: 5 (Dagný 3, Anna Úrsúla, Þórey
Rósa)
Fiskuð víti: 3 (Anna Úrsúla 2, Arna Sif Pálsdóttir)
Utan vallar: 8 mínútur.
Mörk Spánar (skot): Macarena Aguilar 5 (9),
Marta Mangue 4 (7), Nely Carla Alberto 3/1 (4/1),
Carmen Martin 3/1 (6/3), Begona Fernandez 2
(2), Elisabeth Pinedo 1 (4), Vanessa Amoros (1),
Veronica Cuadrado (1), Beatriz Fernandez (3),
Varin skot: Silvia Navarro 16 (37/2, 43%), Cristina
Gonzalez 1/1 (1/1, 100%),
Hraðaupphlaup: 4 (Aguilar 2, Martin, Pinedo)
Fiskuð víti: 4 (Aguilar 2, Fernandez, Cuadrado)
Utan vallar: 2 mínútur.
Dómarar: Øyvind Togstad, Noregi og Rune
Christiansen, Noregi
Vináttulandsleikur:
Svíþjóð-Ísland 3-2
1-0 Zlatan Ibrahimovic (2.), 2-0 Ola Toivonen
(14.), 2-1 Kolbeinn Sigþórsson (26.), 3-1 Christian
Wilhelmsson (77.), 3-2 Hallgrímur Jónasson
(90.+3).
Lið Íslands: Hannes Þór Halldórsson -
Hallgrímur Jónasson, Kári Árnason (83.,
Hólmar Örn Eyjólfsson), Ragnar Sigurðsson,
Ari Freyr Skúlason - Rúrik Gíslason, Aron
Einar Gunnarsson, Helgi Valur Daníelsson
(66., Eggert Gunnþór Jónsson), Gylfi Þór
Sigurðsson - Birkir Bjarnason (81., Jóhann
Berg Guðmundsson), Kolbeinn Sigþórsson
(58., Alfreð Finnbogason).
ÚRSLIT
HANDBOLTI Dagur Sigurðsson
stýrði sínum mönnum í Füchse
Berlin inn í Meistaradeildina
á næsta tímabili í gær þegar
Refirnir tryggðu sér 3. sætið í
þýsku úrvalsdeildinni í handbolta
með því að vinna tólf marka
stórsigur á TBV Lemgo, 36-24.
Alexander Petersson skoraði
þrjú mörk í fyrri hálfleik en
Dagur Sigurðsson gat leyft sér að
hvíla hann í seinni hálfleiknum
enda yfirburðirnir mjög miklir.
Þetta var síðasti heimaleikur
Alexanders með Füchse Berlin
en hann er á leiðinni til Rhein-
Neckar Löwen.
Füchse Berlin hefur þriggja
stiga forskot á HSV Hamburg en
aðeins ein umferð er eftir. - óój
Þýska úrvalsdeildin í handbolta:
Füchse tryggði
sér þriðja sætið
DAGUR SIGURÐSSON Er að gera frábæra
hluti í Þýskalandi. NORDICPHOTOS/BONGARTS
FÓTBOLTI Brendan Rodgers, stjóri
Swansea, verður næsti stjóri
Liverpool en enskir fjölmiðlar
sögðu frá því í gær að hann væri
búinn að samþykkja að gera
þriggja ára samning.
Liverpool kaupir upp samning
Rodgers við Swansea og þarf að
borga velska félaginu á bilinu 4
til 5 milljónir punda. Liverpool
hefur verið stjóralaust síðan
Kenny Dalglish var rekinn 16.
maí síðastliðinn og fyrir aðeins
tólf dögum hafnaði Rodgers
viðræðum við Liverpool. - óój
Enska úrvalsdeildin:
Rodgers tekur
við Liverpool
FÓTBOLTI Íslenska karlalandsliðið í
fótbolta þurfti í gær að sætta sig
við annað 2-3 tapið í röð þegar liðið
tapaði á móti Svíum í Gautaborg
aðeins þremur dögum eftir að liðið
missti niður 2-0 forystu á móti
Frökkum. Íslenska liðið missti
frá sér leikinn á móti Frökkum á
lokasprettinum en að þessu sinni
var það slæm byrjun sem fór með
möguleika íslenska liðsins.
Svíarnir voru komnir í 2-0 eftir
fjórtán mínútur en Kolbeinn Sig-
þórsson minnkaði muninn á 26.
mínútu með flottu skallamarki.
Hallgrímur Jónasson minnkaði
síðan muninn í 3-2 með síðustu
spyrnu leiksins þegar hann skall-
aði inn horn Gylfa Þórs Sigurðs-
sonar eftir að Svíar höfðu komist í
3-1 á 77. mínútu.
„Við vorum alltof passívir í upp-
hafi leiksins og gáfum þeim allt-
of mikinn tíma og of stór svæði
til að vinna á. Þetta er samt að
verða betra og betra hjá okkur en
ég þarf bara að ýta aðeins á strák-
ana til að vera grimmari varnar-
lega,“ sagði Lars Lagerbäck og
bætti við:
„Liðið var að spila vel fram að
því að þeir skora þriðja markið.
Við gáfum það mark og megum
bara ekki gera svona mistök ef við
ætlum okkur að vinna einhverja
leiki. Eins og ég talaði um eftir
Frakkaleikinn þá hafa þetta verið
mjög góðir dagar fyrir okkur.
Strákarnir eru búnir að leggja sig
mikið fram og hafa rétta hugar-
farið. Ég var aðeins vonsvikinn
með fyrstu fimmtán mínúturnar,“
sagði Lars.
Íslenska liðið hefur tapað fjórum
fyrstu leikjum sínum undir stjórn
Lars Lagerbäck en liðið er að sýna
flotta spilakafla á stórum köflum
og er búið að skora í öllum leikj-
unum, þar af fjögur mörk í síðustu
tveimur leikjunum.
„Leikmennirnir eiga mikið hrós
skilið eftir þessa fjóra erfiðu vin-
áttulandsleiki og við munum nýta
okkur þá þegar við byrjum undan-
keppni HM í september. Við erum
að skora í öllum leikjum og við
erum að skora falleg mörk. Fyrsta
markið okkar kom eftir frábæra
sókn og mjög góða fyrirgjöf. Kol-
beinn var síðan réttur maður á
réttum stað eins og hann á að vera.
Við skorum síðan seinna markið
eftir horn sem við ætlum að nýta
okkur. Leikmenn eiga hrós skilið
fyrir að skora flott mörk,“ sagði
Lars sem sér liðið vera á réttri
leið.
„Við megum ekki líta framhjá
því að við vorum að spila við mjög
sterka andstæðinga og líka á úti-
velli. Ég get verið ánægður með
margt í þessum leikjum og við
erum búnir að taka fyrstu skrefin
í átt til þess að vera mun betra lið
en þegar ég tók við,“ sagði Lars.
- óój
Íslenska fótboltalandsliðið skoraði tvö mörk annan leikinn í röð en þurfti aftur að sætta sig við tap:
Þetta er að verða betra og betra hjá okkur
ZLATAN SÝNDI SNILLI SÍNA Zlatan Ibrahimovic bjó til tvö mörk fyrir Svía á fyrstu 14
mínútunum. Hér er hann í baráttunni við Hallgrím Jónasson. MYND/AFP
HANDBOLTI Ísland vann í gær einn
sinn stærsta sigur frá upphafi
þegar liðið lagði Spán í Vodafone-
höllinni, 21-18. Glæsilegur sigur hjá
stelpunum okkar sem skoruðu níu
af fyrstu tíu mörkum síðari hálf-
leiksins. Verður sá stundarfjórð-
ungur lengi í minnum hafður.
Sigurinn þýðir að Ísland á enn
möguleika á að komast í úrslita-
keppni EM sem haldin verður í
Hollandi í desember. Ísland væri
þá að komast á sitt þriðja stórmót í
röð en ljóst er að með frammistöðu
sinni undanfarna mánuði er Ísland
heldur betur að koma sér á kortið í
kvennahandboltaheiminum.
Nú er fram undan hreinn úrslita-
leikur við Úkraínu ytra um hvort
liðið fylgir Spánverjum upp úr riðl-
inum og til Hollands. Úkraína býr
þó að því að mega tapa með tveggja
marka mun og því ljóst að verk-
efnið verður erfitt fyrir íslensku
landsliðskonurnar.
En þær sýndu í gær að þær eru
vísar til að yfirstíga hvaða hindr-
un sem er. Eftir slakan fyrri hálf-
leik sýndu þær mögnuð tilþrif í
þeim síðari. Munaði ekki síst um
markvörslu Guðnýjar Jennýjar
Ásmundsdóttur sem var frábær í
seinni hálfleiknum.
„Við vinnum þetta saman. Það
er liðsheildin sem skiptir máli,“
sagði Jenný, eins og hún er kölluð,
af mikilli hógværð eftir leikinn.
„Sem betur fer gekk allt upp á rétt-
um tíma í seinni hálfleik eftir slen
í þeim fyrri. Gústi [Ágúst Jóhanns-
son þjálfari] hamraði á því í hálf-
leik að við gætum miklu betur sem
og við gerðum.“
Ísland var tveimur mörkum
undir í hálfleik en Spánverjar
hefðu með réttu átt að vera með
miklu meiri forystu. Aðeins þeirra
eigin klaufagangur og kæruleysi
kom í veg fyrir það.
Þær virtust svo algjörlega gátt-
aðar þegar Ísland mætti til leiks í
síðari hálfleik með miklum krafti.
Stelpurnar voru fljótar að nýta sér
meðbyrinn sem hófst með frábærri
vörn og markvörslu.
„Við skerptum á ákveðnum þátt-
um og gáfum í. Við vorum passívar
í fyrri hálfleik en mun grimmari
í þeim síðari. Fyrir vikið uppskár-
um við þriggja marka sigur á einu
besta landsliði heims,“ sagði Ágúst.
Spánn vaknaði til lífsins þegar
stundarfjórðungur var eftir og
stillti í gríðarsterka 5-1 vörn sem
stelpurnar lentu í basli með. „Við
lentum í vandræðum. En það er
reynsla og þolinmæði komin í liðið
sem var ekki áður. Við höfðum trú
á okkur og kláruðum leikinn,“
sagði þjálfarinn.
Karen Knútsdóttir segir að það
sé mikill munur á liðinu nú og
þegar það tapaði fyrir Úkraínu í
október síðastliðnum. „Við æfðum
svo vel í nóvember og áttum svo
gott mót á HM í desember. Við
sýndum ákveðinn stöðugleika
þar sem einkennir liðið enn í dag.
Á HM sýndum við að við getum
unnið bestu lið heims og að við
erum að nálgast þau,“ sagði Karen
en ítrekaði:
„Það er bara hálfleikur í þessari
baráttu. Nú er erfitt ferðalag fram
undan til Úkraínu. Við höfum áður
unnið þær með nítján marka mun
en líka tapað fyrir þeim. En það
er alveg víst að við ætlum ekki að
sóa þessum sigri í kvöld. Við erum
ekki hættar.“ eirikur@frettabladid.is
Við ætlum ekki að sóa þessum sigri
Ísland vann glæsilegan þriggja marka sigur á Spáni, sem vann brons á HM í desember, í undankeppni EM í
gær. Sigurinn gefur Íslandi von um að komast á EM í Hollandi en til þess þarf sigur í Úkraínu um helgina.
EM-DRAUMURINN LIFIR HJÁ STELPUNUM Hálfleiksræðan hjá Ágústi Jóhannssyni þjálfari kveikti í íslenska liðinu og stelpurnar
lönduðu sigri eftir frábæran seinni hállfeik. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN