Fréttablaðið - 31.05.2012, Síða 66
31. maí 2012 FIMMTUDAGUR54
golfogveidi@frettabladid.is
Gústaf Gústafsson var for-
fallinn golfáhugamaður
áður en hann „frelsaðist“.
Það gerðist í fluguhnýting-
arkennslu hjá Sigurði Páls-
syni fyrir sex árum. Trausti
Hafliðason tók Gústaf tali.
„Ég var kominn niður fyrir sjö í
forgjöf í golfinu en nú á veiðin hug
minn allan,“ segir Gústaf. „Nú vil
ég ekki sjá neitt annað en flugu-
veiði en hana flokka ég sem list-
grein. Ég sé fyrir mér að flugu-
veiðin verði áhugamálið sem muni
fylgja mér á grafarbakkann. Þó ég
hafi ekki fengið veiðidelluna nema
fyrir nokkrum árum þá veiddi
ég nú eitthvað með pabba og afa
þegar ég var gutti.“
Vídeóblogg á netinu
Gústaf er 39 ára Patreksfirðingur
sem starfar sem forstöðu maður
á Markaðsstofu Vestfjarða á Ísa-
firði. Stofan hefur meðal annars
það hlutverk að markaðssetja
Vestfirði fyrir ferðamenn. Frá
árinu 2010 hefur Gústaf haldið
úti vídeó dagbók á netinu þar sem
hann segir frá öllum veiðiferðum
sínum. Veiðiáhugamenn hafa vafa-
laust margir rekist á dagbækurn-
ar á Youtube eða á bloggsíðunni:
http://gustig.blog.is/.
Það er augljóst að þegar það
kemur að veiði þá er Gústaf afar
metnaðarfullur maður. Það kemur
kannski ekki á óvart að markaðs-
fræðingur skuli setja sjálfum sér
markmið en það gerir Gústaf svo
sannarlega. Hann stefnir að því að
veiða í 50 daga í sumar.
„Ég set mér allavega skýr mark-
mið í vinnunni og áhugamálinu,“
segir Gústaf og hlær. „Ég hef
undanfarin ár stefnt að því að ná
50 veiðidögum á ári en hingað til
hefur það ekki tekist. Ég náði að
veiða í 45 daga árið 2010 en í fyrra
náði ég einungis 37 dögum. Í fyrra
eyðilagði veðrið svolítið fyrir mér
því eins og menn muna þá voraði
ekki fyrr en á miðju sumri. Ég hef
líka sett mér nokkur undirmark-
mið. Eitt af þeim er að veiða allar
tegundir fiska sem lifa í ferskvatni
á Íslandi; bleikju, sjóbleikju, urr-
iða, sjóbirting, lax en líka flundru
og ál. Ég verð alltaf mjög ánægð-
ur þegar ég fæ flundru því þá er
einni flundru færra á viðkomandi
vatnasvæði. Ég hef ekki enn náð að
veiða ál en ég myndi fagna honum
því reyktur er hann mikið lostæti.
Annað undirmarkmið er að veiða í
öllum landsfjórðungum og ég hef
alltaf náð því.“
Ræddi veiði á fundi ráðherra
Gústaf segir ánægjulegt ef veiði-
menn hafa gaman af vídeódagbók-
inni. Hún sé samt ekki síður hugs-
uð fyrir hann sjálfan.
„Með þessu móti get ég alltaf
skoðað hvað ég var að gera. Þegar
ég fer í á eða vatn í sumar get ég
skoðað hvað ég gerði þar síðasta
sumar. Það hjálpar mikið í veiðinni
enda lærir maður best af reynsl-
unni. Síðan er auðvitað gaman að
þetta skuli vekja athygli manna í
veiðiheiminum.
Ég hef undantekningalaust
fengið mjög jákvæð viðbrögð
við dagbókarfærslunum. Það
gekk til dæmis ókunnugur
maður að mér á flug-
vellinum á Ísafirði
fyrir nokkr-
um vikum og
spurði mig
hvort ég væri
ekki maður-
inn sem héldi
út i v íde ó - blogginu. Einn-
ig þótti mér skemmtilegt þegar
aðstoðarmaður iðnaðarráðherra
fór að spjalla við mig um dagbæk-
urnar þegar ég var á fundi með
ráðherranum fyrir nokkru síðan.
Þetta gerist reglulega og ég verð
alltaf jafn hissa.“
Þefar uppi ódýr veiðileyfi
Gústaf veiðir ekki 50 daga sam-
fleytt enda er hann hvorki sestur
í helgan stein né moldríkur. Hann
veiðir heldur ekki endilega einn
því hann á nokkra góða veiðifélaga
sem skjótast oft með honum.
„Ég er að þessu allt árið og hef
jafnvel tekið með ísdorg á Lapp-
landi. Ég skrái hins vegar ekki
heilan veiðidag í bókhaldið nema
ég hafi veitt í að minnsta kosti sex
klukkustundir. Þetta er allt flokk-
að skipulega, þú sérð.“
En eitthvað hlýtur þetta að
kosta? „Öll áhugamál kosta eitt-
hvað en þetta er ekki svo dýrt.
Ég reyni að fara
mest á staði þar
sem veiðileyfin
eru í ódýrari kant-
inum. Í þessu sam-
hengi er Veiðikortið
frábær kostur, maður
kaupir það fyrir fimm til
sex þúsund kall og getur
veitt í vötnum úti
um allt land.
Ég nota líka
mikið Stang-
veiðihand-
bækur Eiríks
St. Eiríks-
sonar. Þær
eru mikil ger-
semi enda í
þeim hægt að
finna margar frábærar ár og mörg
vötn.“
Hrífst af hinu ókannaða
Gústaf reynir að þvælast sem víð-
ast í sínum veiðiferðum.
„Ég hef alveg sérstaklega
gaman að því að fara á svæði
sem lítið hefur verið fjallað um
og fáir þekkja. Dæmi um það er
Sléttuhlíðarlækur, sem er austan
megin í Skagafirðinum. Þetta er
svo lítill lækur að það er nánast
hægt að klofa yfir hann en samt
veiddi ég þar ágætan urriða. Það
er þetta ókannaða sem ég og svo
margir aðrir höfum áhuga á. Það
er ógrynni af svona veiðistöðum til
á Íslandi og á þessum stöðum er
yfirleitt hægt að kaupa mjög ódýr
veiðileyfi af bændum.“
Arnarvatnsheiðin er toppurinn
Toppurinn á veiðitímabilinu hjá
Gústaf er árleg ferð upp á Arnar-
vatnsheiði norðanverða.
„Í júlí á hverju sumri fer ég upp
á heiðina ásamt góðum vinum og
uppeldisfélögum frá Patró. Þessi
ferð er hápunktur sumarsins.
Ekki endilega vegna þess að við
séum að moka upp fiski heldur
er það náttúran og útiveran með
góðum vinum sem heillar. Mér
finnst margfalt skemmtilegra að
vera þarna með mínum vinum en
að vera í góðri laxveiðiá. Uppi á
Arnarvatnsheiði er ekkert stress.
Menn veiða bara þegar þeir nenna
og þurfa ekki að vera að hugsa um
svæðaskiptingu eða þeysast 40
kílómetra á milli veiðistaða fyrir
hádegi.“
Uppáhaldsá Gústafs er Austurá
á Arnarvatnsheiði sem rennur úr
Arnarvatni stóra.
„Það má segja að þarna hafi ég
byrjað mína fluguveiði í straum-
vatni fyrir alvöru. Þetta er lítil og
nett á og vatnið nær manni rétt
upp að hnjám þó þú finnir auð vitað
flotta hyli inn milli. Fiskarnir eru
samt ekki í samræmi við stærð
árinnar því þarna hef ég veitt
marga mjög væna urriða, meðal
annars einn sem vó um níu pund.“
Sá stærsti kom í Stóru-Laxá
Aðspurður segist Gústaf samt eiga
sér marga uppáhaldsveiðistaði.
„Langá er alltaf í uppáhaldi því
þar fetaði ég mín fyrstu skref í
fluguveiði með hjálp góðs félaga.
Sogið er líka í miklu uppáhaldi og
þá sérstaklega Syðri-Brú en þar
fékk ég minn fyrsta lax á flugu.
Hann var tekinn á púpu sem ég
hannaði og hnýtti sjálfur á krók
númer 14 (sjá mynd). Laxá í Kjós
er líka gríðarlega skemmtileg.
Mig dreymir stundum miðsvæðið
þar sem sjóbirtingurinn er. Þá er
svæði númer fjögur í Stóru-Laxá
stórbrotið. Þar er náttúrufegurð-
in stórbrotin og ég hef aldrei farið
þaðan án þess að hafa veitt lax.
Það er líka gaman að segja frá því
að þarna rétt fyrir neðan, á svæði
þrjú, veiddi ég minn stærsta lax,
hann var 93 sentímetrar og sá
stærsti sem veiddist á því svæði
sumarið 2010.“
Byrjar sumarið í Aðaldalnum
En hvað er fram undan? „Sumar-
ið byrjar fyrir alvöru í Aðaldaln-
um núna í byrjun júní. Ég veit að
sumarið verður verulega spenn-
andi og ég vona að ég uppgötvi ný
og skemmtileg svæði.
Ég verð alltaf
ánægður þegar ég
fæ flundru því þá er einni
flundru færra á viðkomandi
vatnasvæði.
GÚSTAF GÚSTAFSSON
Gústaf Gústafsson er kvæntur Sigrúnu Bragadóttur og
saman eiga þau fimm börn. Hvernig ætli gangi að sam-
eina þetta tímafreka áhugamál fjölskyldulífinu?
„Það gengur bara vel þó það gangi reyndar afar illa
að fá konuna til að veiða. Ég er eiginlega búinn að
gefast upp á því núna en ég hef lengi reynt. Reyndar
hélt ég að mér hefði tekist þetta fyrir nokkrum árum. Þá
tókst mér að draga hana í veiði í Fjarðarhorni í Kollafirði
á Barðaströnd. Hún horfði á mig taka fisk og síðan einn
af strákunum okkar landa maríulaxinum. Loksins tókst
mér að fá hana til að kasta og viti menn, eftir sirka tvær
mínútur, ég lýg því ekki, tók lax. Þetta var maríulaxinn.
Hún var svona fimm mínútur að landa honum. Um
leið og hann var kominn á land beit hún veiðiuggann
af. Ég held þetta hafi tekið svona korter í heildina.
Ég var að sjálfsögðu hoppandi í kringum hana allan
tímann, þvílíkt spenntur en þegar hún var búin að landa
laxinum lagði hún stöngina frá sér og fór í sólbað. Hún
hefur ekki kastað flugu síðan.“
Veiddi maríulaxinn á mettíma og fór svo í sólbað
MEÐ MARÍULAXINN Sigrún landaði laxinum á fimm mín-
útum. Beit veiðiuggann af og hefur ekki veitt aftur.
Úr sjö í forgjöf í fimmtíu daga veiði
SÁ STÆRSTI Gústaf veiddi þennan glæsilega silfraða hæng í Stóru-Laxá, svæði III. Hann mældist 93 sentímetrar og var stærsti
laxinn sem veiddist á svæði III sumarið 2010.
Meiri Vísir.
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
Meira sjónvarp, meira útvarp, meiri fréttir,
meiri upplýsingar, meiri umræða, meira líf,
meiri íþróttir, meiri virkni, meira úrval.
Þú færð meira af öllu á vísi.
Á Veiðivísi, nýjum veiðivef Vísis, getur þú nálgast helstu fréttir,
ítarlega umfjöllun og gagnlegar upplýsingar um veiði, hvort heldur
sem er stangveiði eða skotveiði. Fylgstu með í sumar og nýttu þér
allt sem Vísir hefur upp á að bjóða.
MARÍA Gústaf fékk fyrsta
flugulaxinn á þessa púpu,
sem hann hannaði og hnýtti
sjálfur.
2.134 2.032 LAXAR veiddust í Norðurá í fyrra en veiði hefst þar á þriðjudaginn. LAXAR veiddust í Blöndu í fyrra. Veiði hefst þar á þriðjudaginn.