Fréttablaðið


Fréttablaðið - 31.05.2012, Qupperneq 66

Fréttablaðið - 31.05.2012, Qupperneq 66
31. maí 2012 FIMMTUDAGUR54 golfogveidi@frettabladid.is Gústaf Gústafsson var for- fallinn golfáhugamaður áður en hann „frelsaðist“. Það gerðist í fluguhnýting- arkennslu hjá Sigurði Páls- syni fyrir sex árum. Trausti Hafliðason tók Gústaf tali. „Ég var kominn niður fyrir sjö í forgjöf í golfinu en nú á veiðin hug minn allan,“ segir Gústaf. „Nú vil ég ekki sjá neitt annað en flugu- veiði en hana flokka ég sem list- grein. Ég sé fyrir mér að flugu- veiðin verði áhugamálið sem muni fylgja mér á grafarbakkann. Þó ég hafi ekki fengið veiðidelluna nema fyrir nokkrum árum þá veiddi ég nú eitthvað með pabba og afa þegar ég var gutti.“ Vídeóblogg á netinu Gústaf er 39 ára Patreksfirðingur sem starfar sem forstöðu maður á Markaðsstofu Vestfjarða á Ísa- firði. Stofan hefur meðal annars það hlutverk að markaðssetja Vestfirði fyrir ferðamenn. Frá árinu 2010 hefur Gústaf haldið úti vídeó dagbók á netinu þar sem hann segir frá öllum veiðiferðum sínum. Veiðiáhugamenn hafa vafa- laust margir rekist á dagbækurn- ar á Youtube eða á bloggsíðunni: http://gustig.blog.is/. Það er augljóst að þegar það kemur að veiði þá er Gústaf afar metnaðarfullur maður. Það kemur kannski ekki á óvart að markaðs- fræðingur skuli setja sjálfum sér markmið en það gerir Gústaf svo sannarlega. Hann stefnir að því að veiða í 50 daga í sumar. „Ég set mér allavega skýr mark- mið í vinnunni og áhugamálinu,“ segir Gústaf og hlær. „Ég hef undanfarin ár stefnt að því að ná 50 veiðidögum á ári en hingað til hefur það ekki tekist. Ég náði að veiða í 45 daga árið 2010 en í fyrra náði ég einungis 37 dögum. Í fyrra eyðilagði veðrið svolítið fyrir mér því eins og menn muna þá voraði ekki fyrr en á miðju sumri. Ég hef líka sett mér nokkur undirmark- mið. Eitt af þeim er að veiða allar tegundir fiska sem lifa í ferskvatni á Íslandi; bleikju, sjóbleikju, urr- iða, sjóbirting, lax en líka flundru og ál. Ég verð alltaf mjög ánægð- ur þegar ég fæ flundru því þá er einni flundru færra á viðkomandi vatnasvæði. Ég hef ekki enn náð að veiða ál en ég myndi fagna honum því reyktur er hann mikið lostæti. Annað undirmarkmið er að veiða í öllum landsfjórðungum og ég hef alltaf náð því.“ Ræddi veiði á fundi ráðherra Gústaf segir ánægjulegt ef veiði- menn hafa gaman af vídeódagbók- inni. Hún sé samt ekki síður hugs- uð fyrir hann sjálfan. „Með þessu móti get ég alltaf skoðað hvað ég var að gera. Þegar ég fer í á eða vatn í sumar get ég skoðað hvað ég gerði þar síðasta sumar. Það hjálpar mikið í veiðinni enda lærir maður best af reynsl- unni. Síðan er auðvitað gaman að þetta skuli vekja athygli manna í veiðiheiminum. Ég hef undantekningalaust fengið mjög jákvæð viðbrögð við dagbókarfærslunum. Það gekk til dæmis ókunnugur maður að mér á flug- vellinum á Ísafirði fyrir nokkr- um vikum og spurði mig hvort ég væri ekki maður- inn sem héldi út i v íde ó - blogginu. Einn- ig þótti mér skemmtilegt þegar aðstoðarmaður iðnaðarráðherra fór að spjalla við mig um dagbæk- urnar þegar ég var á fundi með ráðherranum fyrir nokkru síðan. Þetta gerist reglulega og ég verð alltaf jafn hissa.“ Þefar uppi ódýr veiðileyfi Gústaf veiðir ekki 50 daga sam- fleytt enda er hann hvorki sestur í helgan stein né moldríkur. Hann veiðir heldur ekki endilega einn því hann á nokkra góða veiðifélaga sem skjótast oft með honum. „Ég er að þessu allt árið og hef jafnvel tekið með ísdorg á Lapp- landi. Ég skrái hins vegar ekki heilan veiðidag í bókhaldið nema ég hafi veitt í að minnsta kosti sex klukkustundir. Þetta er allt flokk- að skipulega, þú sérð.“ En eitthvað hlýtur þetta að kosta? „Öll áhugamál kosta eitt- hvað en þetta er ekki svo dýrt. Ég reyni að fara mest á staði þar sem veiðileyfin eru í ódýrari kant- inum. Í þessu sam- hengi er Veiðikortið frábær kostur, maður kaupir það fyrir fimm til sex þúsund kall og getur veitt í vötnum úti um allt land. Ég nota líka mikið Stang- veiðihand- bækur Eiríks St. Eiríks- sonar. Þær eru mikil ger- semi enda í þeim hægt að finna margar frábærar ár og mörg vötn.“ Hrífst af hinu ókannaða Gústaf reynir að þvælast sem víð- ast í sínum veiðiferðum. „Ég hef alveg sérstaklega gaman að því að fara á svæði sem lítið hefur verið fjallað um og fáir þekkja. Dæmi um það er Sléttuhlíðarlækur, sem er austan megin í Skagafirðinum. Þetta er svo lítill lækur að það er nánast hægt að klofa yfir hann en samt veiddi ég þar ágætan urriða. Það er þetta ókannaða sem ég og svo margir aðrir höfum áhuga á. Það er ógrynni af svona veiðistöðum til á Íslandi og á þessum stöðum er yfirleitt hægt að kaupa mjög ódýr veiðileyfi af bændum.“ Arnarvatnsheiðin er toppurinn Toppurinn á veiðitímabilinu hjá Gústaf er árleg ferð upp á Arnar- vatnsheiði norðanverða. „Í júlí á hverju sumri fer ég upp á heiðina ásamt góðum vinum og uppeldisfélögum frá Patró. Þessi ferð er hápunktur sumarsins. Ekki endilega vegna þess að við séum að moka upp fiski heldur er það náttúran og útiveran með góðum vinum sem heillar. Mér finnst margfalt skemmtilegra að vera þarna með mínum vinum en að vera í góðri laxveiðiá. Uppi á Arnarvatnsheiði er ekkert stress. Menn veiða bara þegar þeir nenna og þurfa ekki að vera að hugsa um svæðaskiptingu eða þeysast 40 kílómetra á milli veiðistaða fyrir hádegi.“ Uppáhaldsá Gústafs er Austurá á Arnarvatnsheiði sem rennur úr Arnarvatni stóra. „Það má segja að þarna hafi ég byrjað mína fluguveiði í straum- vatni fyrir alvöru. Þetta er lítil og nett á og vatnið nær manni rétt upp að hnjám þó þú finnir auð vitað flotta hyli inn milli. Fiskarnir eru samt ekki í samræmi við stærð árinnar því þarna hef ég veitt marga mjög væna urriða, meðal annars einn sem vó um níu pund.“ Sá stærsti kom í Stóru-Laxá Aðspurður segist Gústaf samt eiga sér marga uppáhaldsveiðistaði. „Langá er alltaf í uppáhaldi því þar fetaði ég mín fyrstu skref í fluguveiði með hjálp góðs félaga. Sogið er líka í miklu uppáhaldi og þá sérstaklega Syðri-Brú en þar fékk ég minn fyrsta lax á flugu. Hann var tekinn á púpu sem ég hannaði og hnýtti sjálfur á krók númer 14 (sjá mynd). Laxá í Kjós er líka gríðarlega skemmtileg. Mig dreymir stundum miðsvæðið þar sem sjóbirtingurinn er. Þá er svæði númer fjögur í Stóru-Laxá stórbrotið. Þar er náttúrufegurð- in stórbrotin og ég hef aldrei farið þaðan án þess að hafa veitt lax. Það er líka gaman að segja frá því að þarna rétt fyrir neðan, á svæði þrjú, veiddi ég minn stærsta lax, hann var 93 sentímetrar og sá stærsti sem veiddist á því svæði sumarið 2010.“ Byrjar sumarið í Aðaldalnum En hvað er fram undan? „Sumar- ið byrjar fyrir alvöru í Aðaldaln- um núna í byrjun júní. Ég veit að sumarið verður verulega spenn- andi og ég vona að ég uppgötvi ný og skemmtileg svæði. Ég verð alltaf ánægður þegar ég fæ flundru því þá er einni flundru færra á viðkomandi vatnasvæði. GÚSTAF GÚSTAFSSON Gústaf Gústafsson er kvæntur Sigrúnu Bragadóttur og saman eiga þau fimm börn. Hvernig ætli gangi að sam- eina þetta tímafreka áhugamál fjölskyldulífinu? „Það gengur bara vel þó það gangi reyndar afar illa að fá konuna til að veiða. Ég er eiginlega búinn að gefast upp á því núna en ég hef lengi reynt. Reyndar hélt ég að mér hefði tekist þetta fyrir nokkrum árum. Þá tókst mér að draga hana í veiði í Fjarðarhorni í Kollafirði á Barðaströnd. Hún horfði á mig taka fisk og síðan einn af strákunum okkar landa maríulaxinum. Loksins tókst mér að fá hana til að kasta og viti menn, eftir sirka tvær mínútur, ég lýg því ekki, tók lax. Þetta var maríulaxinn. Hún var svona fimm mínútur að landa honum. Um leið og hann var kominn á land beit hún veiðiuggann af. Ég held þetta hafi tekið svona korter í heildina. Ég var að sjálfsögðu hoppandi í kringum hana allan tímann, þvílíkt spenntur en þegar hún var búin að landa laxinum lagði hún stöngina frá sér og fór í sólbað. Hún hefur ekki kastað flugu síðan.“ Veiddi maríulaxinn á mettíma og fór svo í sólbað MEÐ MARÍULAXINN Sigrún landaði laxinum á fimm mín- útum. Beit veiðiuggann af og hefur ekki veitt aftur. Úr sjö í forgjöf í fimmtíu daga veiði SÁ STÆRSTI Gústaf veiddi þennan glæsilega silfraða hæng í Stóru-Laxá, svæði III. Hann mældist 93 sentímetrar og var stærsti laxinn sem veiddist á svæði III sumarið 2010. Meiri Vísir. FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN Meira sjónvarp, meira útvarp, meiri fréttir, meiri upplýsingar, meiri umræða, meira líf, meiri íþróttir, meiri virkni, meira úrval. Þú færð meira af öllu á vísi. Á Veiðivísi, nýjum veiðivef Vísis, getur þú nálgast helstu fréttir, ítarlega umfjöllun og gagnlegar upplýsingar um veiði, hvort heldur sem er stangveiði eða skotveiði. Fylgstu með í sumar og nýttu þér allt sem Vísir hefur upp á að bjóða. MARÍA Gústaf fékk fyrsta flugulaxinn á þessa púpu, sem hann hannaði og hnýtti sjálfur. 2.134 2.032 LAXAR veiddust í Norðurá í fyrra en veiði hefst þar á þriðjudaginn. LAXAR veiddust í Blöndu í fyrra. Veiði hefst þar á þriðjudaginn.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.