Fréttablaðið


Fréttablaðið - 31.05.2012, Qupperneq 70

Fréttablaðið - 31.05.2012, Qupperneq 70
31. maí 2012 FIMMTUDAGUR58 SUMARFRÍIÐ „Ég verð sennilega mest í 101 Reykjavík í sumar. Lakkalakk er að fara að flytja svo ég verð á fullu í að koma því í stand. Ég elska að vera í bænum á sumrin því þá iðar hann af lífi og mannfólki. Sundlaugarnar og pallurinn heima er alveg jafn gott og sólarströnd á Spáni.“ Ása Ottesen, eigandi vefverslunarinnar Lakkalakk.com. Dansarinn Linda Ósk Valdimars- dóttir var stödd í Svíþjóð fyrir helgi þar sem hún var við upptök- ur á sænska sjónvarpsþættinum Rampljuset. Þættirnir njóta mik- illa vinsælda meðal sænskra ung- menna og hafa töluvert áhorf. Linda Ósk er eigandi dans- skólans Rebel Dance Studio og dansar að auki með Rebel-dans- flokknum. Hún segir framleið- endur Rampljuset hafa séð dans- myndbönd hennar á Netinu og í kjölfarið fengið hana til að koma fram í þáttunum sem sýndir verða í ágúst. Þættirnir eru hæfileika- keppni fyrir börn og unglinga í anda X-Factor þáttanna og eru sýndir í sænska ríkissjónvarpinu. „Frænka mín benti konu að nafni Guðrún Hauksdóttir á mig, en hún sér einmitt um að fá fólk í þættina. Það eru fjögur atriði sem keppa í hverjum þætti og ég keppti á móti töframanni, beat- boxara og tvíburum sem sýndu listir á einhjóli,“ segir Linda Ósk sem hreppti annað sætið. Óvana- legt er að keppendur í Ramp ljuset komi utan Svíþjóðar enda er þátt- urinn ætlaður sænskum börnum og ungmennum. Þátturinn fer að sjálfsögðu fram á sænsku og þurfti Linda Ósk að gera sér upp sænskukunnáttu á meðan hún hlýddi á umsagnir dómaranna. „Ég brosti bara og kinkaði kolli á meðan dómararnir töluðu við mig enda skildi ég ekki orð. Þau þýddu allt svo fyrir mig eftir tök- urnar.“ Linda Ósk stundar helst street- dans en einnig djassdans, nútíma- dans og hiphop og hélt nokkur dansnámskeið í Malmö á meðan á dvöl hennar stóð. Aðsóknin á námskeiðin var svo góð að Linda hyggst fara aftur út í haust og halda fleiri. „Þetta verður von- andi ágætur stökkpallur fyrir mig inn í danssenuna úti og það var frábært að hafa getað nýtt tækifærið og komið Dance Rebel út fyrir landsteinana. Mér hafa einnig boðist nokkur starfstilboð í Svíþjóð sem ég er að íhuga og það er ekki útilokað að ég flytji þangað í haust,“ segir Linda Ósk að lokum. Rebel Dance Studio heldur námskeið hér á landi í næstu viku. Frekari upplýsingar má nálgast á heimasíðu dansskólans rebeldance studio.is. - sm Keppti í sænskum þætti Í SÆNSKA SJÓNVARPINU Linda Ósk Valdimarsdóttir, dansari, kom fram í hæfileikakeppninni Rampljuset sem sýnd er á SVT. Brynja Bjarnadóttir og Þorbjörg Ósk Eggertsdóttir, tvítugir trúba- dorar, eru nýkomnar heim til Íslands eftir sex vikna tónleika- ferðalag um Evrópu. Stúlkurn- ar ferðuðust á eigin vegum til tíu landa og komu meðal annars óvænt fram með hljómsveitinni Bombay Bicycle Club í Amsterdam. „Við vorum sjálfboðaliðar í Slóvakíu í fyrrasumar og spiluð- um svolítið þar. Það var maður sem heyrði í okkur í eitt skipt- ið og sendi okkur póst þar sem hann bauð okkur að koma út í vor og spila hér og þar um Slóvakíu. Hann sá alfarið um að skipuleggja alla tónleikana fyrir okkur og að auglýsa þá,“ segir Brynja, en þær stöllur héldu utan um miðjan apríl. Brynja og Þorbjörg fóru víða á þessum sex vikum og stoppuðu aðeins í þrjá daga á hverjum stað fyrir utan Slóvakíu, þar sem þær dvöldu í eina viku. „Við byrjuð- um í Danmörku og fórum svo til London, Nantes, Rómar, Búdapest, Þrándheims, Slóvakíu, Amsterdam og enduðum loks í Berlín. Þetta var svolítið stressandi en alveg ótrúlega skemmtilegt ferðalag og við lentum í mörgum ævintýrum,“ segir Brynja og nefnir í því sam- hengi þegar vinkonurnar fengu óvænt að stíga á svið með hljóm- sveitinni Bombay Bicycle Club, en meðlimir sveitarinnar eru vinir Þorbjargar. „Við komumst að því að þeir yrðu í Brussel og Amsterdam á sama tíma og við og mæltum okkur mót. Þeir báðu okkur svo um að syngja með sér á tvennum tónleikum sem var mjög óvænt en skemmtilegt,“ útskýrir Þorbjörg. Aðspurð segir Brynja heim- sóknirnar til slóvenska bæjarins Danska Stiavnica og til Þránd- heims í Noregi hafa staðið upp úr ásamt því að hafa verið beðin um eiginhandaráritun af slóvenskum aðdáendum eftir eina tónleikana. „Við spiluðum sex sinnum í Slóvak- íu og eignuðumst nokkra aðdáend- ur í kjölfarið. Nokkrir vildu eigin- handaráritanirnar okkar og það var svolítið merkileg upplifun.“ Þorbjörg segir erfitt að nefna eitthvað eitt sem staðið hafi upp úr enda hafi ferðin verið mikið ævin- týri frá upphafi til enda. „Ætli fólkið sem við kynntumst standi ekki upp úr sem það skemmtileg- asta við ferðina. Og það að hafa fengið að syngja með Bombay Bicycle Club,“ segir hún. Brynja hefur dansnám við Listaháskóla Íslands í haust og því er óvíst um framtíð tónlistar- ferils hennar en Þorbjörg er stað- ráðin í því að halda áfram að sinna tónlistinni og stefnir á að gefa út geisladisk næsta haust. sara@frettabladid.is BRYNJA BJARNADÓTTIR: UPPLIFUN AÐ GEFA EIGINHANDARÁRITANIR STIGU ÓVÆNT Á SVIÐ MEÐ BOMBAY BICYCLE CLUB ÆVINTÝRALEG TÓNLEIKAFERÐ Brynja Bjarnadóttir og Þorbjörg Ósk Eggertsdóttir eru nýkomnar heim til Íslands eftir sex vikna tónleikaferðalag um Evrópu. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Fyndnasti maður Íslands, Daníel Geir Moritz, leikur í nýjum íslensk- um gamanþáttum sem verða sýndir í haust. „Þetta er ferli sem er að fara af stað hjá ákveðnum grínhópi sem ég tilheyri ekki,“ segir hann en er annars þögull sem gröfin um þætt- ina. Hálft ár er liðið síðan Daníel Geir var valinn fyndnasti maður Íslands og síðan þá hefur hann haft í nógu að snúast í uppistandi sínu. „Þessi vetur var alveg frábær og frá miðjum apríl og fram í miðjan maí var mikil ver- tíð.“ Grínmyndbönd hans á Face book hafa einnig vakið athygli, auk þess sem hann hefur reynt fyrir sér sem útvarpsmaður á Rás 2. Hann hefur mikinn áhuga á að starfa meira á þeim vettvangi í framtíðinni. Meðfram gríninu stundar Daníel Geir meistaranám í ritlist og er þessa dagana að semja dramatískt gamanleikrit. Aðalpersónan er maður á elliheimili sem fær barna- barn í heimsókn sem hann þolir ekki. „Það væri gaman að setja þetta upp einhvern tímann. Ég held að þetta sé mjög skemmtilegt, þótt ég segi sjálf- ur frá.“ Daníel byrjaði að vinna á auglýs- ingastofu í janúar en entist ekki lengi þar. „Ég er að kappkosta við hvað ég kemst lengi upp með að fá mér ekki fasta vinnu.“ Í sumar heldur hann fyrirlestra fyrir unglinga í vinnuskólum. „Ég er menntaður kennari, sem margir vita kannski ekki. Ég er að fara yfir hvað stend- ur vinnuskólakrökkum til boða og að þeir þurfi ekkert að óttast draumana sína.“ - fb NÓG AÐ GERA Fyndnasti maður Íslands er með mörg verkefni á sinni könnu. Leikur í nýjum gamanþáttum
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.