Morgunblaðið - 10.09.2019, Síða 1

Morgunblaðið - 10.09.2019, Síða 1
Morgunblaðið/Árni Sæberg Ram Nath Kovind, forseti Indlands, og Savita eiginkona hans heilsa hér Ólafi Ragnari Gríms- syni, fyrrverandi forseta Íslands, á sérstakri móttökuathöfn sem haldin var á Hótel Nordica í gærkvöldi. Heimsókninni er ætlað að styrkja tengsl ríkjanna og mun Indlandsforseti halda erindi í hátíðarsal Háskóla Íslands í hádeginu í dag um samvinnu ríkjanna í umhverfismálum. Forsetahjónin heimsækja Þingvelli á morgun. Flytur erindi um græna samvinnu ríkjanna Forsetahjón Indlands í opinberri heimsókn til landsins Þ R I Ð J U D A G U R 1 0. S E P T E M B E R 2 0 1 9 Stofnað 1913  212. tölublað  107. árgangur  SJÓNRÆNT SPRELL OG SKEMMTUN DEILIHJÓLIN MÆTT DAGSKIPUNIN HJÁ HAMRÉN ER SIGUR VISTVÆNAR SAMGÖNGUR 6 ÍSLAND - ALBANÍA 25FÍGARÓ Á FLEYGIFERÐ 28 Baldur Arnarson baldur@mbl.is Sigurborg Ósk Haraldsdóttir, for- maður skipulags- og samgönguráðs Reykjavíkur, segir það skýrast næsta vor hvenær fyrsti áfangi borgarlínu verði tekinn í notkun. Hann verði annars vegar frá mið- borg til Ártúnshöfða og hins vegar frá miðborg og í gegnum Vatns- mýrina til Hamraborgar í Kópa- vogi. „Þegar þróunaráætlun borgarlínu kemur sjáum við nákvæmlega skref fyrir skref hvernig framkvæmdin verður. Hvað varðar fjármögnun er þetta einn og sami áfanginn.“ Samkeppni um Fossvogsbrú Fyrsti áfanginn kallar m.a. á brýr yfir Sæbraut og Fossvog. Áformað er að efna til samkeppni um Fossvogsbrú í haust en brúarsmíðin hefur ekki verið tímasett. Sigurborg Ósk segir mögulegt að fyrsti áfangi borgarlínu verði tekinn í notkun í nokkrum skref- um. Jafnframt séu breytingar á leiðakerfi Strætó í undirbúningi. Markmiðið sé að hlutfall íbúa á höfuðborgarsvæðinu, sem býr innan 400 metra frá strætóbiðstöð með 7-10 mínútna tíðni hækki úr 26% í 62%. Breytingarnar verði unnar sam- hliða innleiðingu borgarlínu. Hins vegar kunni tíðnin að vera komin á sumum leiðum á undan borgar- línunni. Áformað er að þétta byggð við borgarlínuna.  1. áfangi borgarlínu verður mögulega innleiddur í þrepum  Lækjartorg-Ártún verður fyrsta leiðin  Fleiri búi nálægt strætóbiðstöðvum með örari tíðni vagna Nýtt strætókerfi í áföngum MFyrsti áfanginn .... »10  Lögreglufélög Norðurlands vestra, Austur- lands og Suður- lands hafa öll lýst yfir stuðningi við ályktun Lands- sambands lög- reglumanna þar sem lagst er gegn hug- myndum ríkis- lögreglustjóra um eitt lögreglu- embætti. Þessu greindu lögreglufélögin frá í yfirlýsingum sem þau sendu frá sér í gær. Þar segir að félögin telji að með þessum hugmyndum sé ríkislögreglustjóri að reyna að af- vegaleiða umræðuna. »4 Lögreglufélögin styðja Landssam- band lögreglumanna Verði af sameiningu Fljótsdals- héraðs, Seyðisfjarðar, Borgar- fjarðar eystri og Djúpavogs mun sveitarstjórn nýs sveitarfélags fela svokölluðum heimastjórnum í gömlu sveitarfélögunum hluta af valdi sínu. Kveðið er á um þessa tilfærslu á valdi í tilraunaákvæði í sveitar- stjórnarlögunum og heimilt er að nýta það í tvö kjörtímabil. Komi til þessarar sameiningar verður því beitt í fyrsta sinn. Heimastjórnirnar myndu þá fara með ákvörðunarvald varðandi nær- þjónustu á viðkomandi svæðum, m.a. hvað varðar deiliskipulag, veita ýms- ar umsagnir og um friðlýsingar. Björn Ingimarsson, bæjarstjóri á Fljótsdalshéraði, segir að með þessu fyrirkomulagi sé leitast við að mæta gagnrýni sem komið hafi upp við sameiningar. Þá sé markmiðið að öll stjórnsýsla verði skilvirkari með þessu fyrirkomulagi. »14 Tilraunaákvæði hugsan- lega beitt í fyrsta sinn  Boris Johnson, forsætisráð- herra Bretlands, sagði í gær- kvöldi að hann hygðist ekki óska eftir því að útgöngu landsins yrði frestað þrátt fyrir ný lög sem kveða á um að hann geri það ef ekki næst nýtt brexit-sam- komulag við leiðtoga ESB-ríkja fyrir 19. október. Johnson sagði þetta á þinginu áður en það var sent heim í fimm vikur. Þingið verður sett 14. október og Breta- drottning flytur þá stefnuræðu stjórnar Johnsons. The Telegraph segir að forystumenn Verka- mannaflokksins ætli að leggja fram vantrauststillögu á hendur stjórninni 22. október, eftir að at- kvæði verða greidd um stefnu stjórnarinnar. » 13 AFP Fer frá John Bercow kvaðst í gær ætla að láta af embætti forseta neðri deildarinnar. Ætlar ekki að biðja um frestun á brexit Undanfarna tólf mánuði hafa Ís- lendingar tapað háum fjárhæðum í netsvikamálum. Mörg aðskilin mál eru að baki þessum brotum og í einstaka málum er um afar háar fjárhæðir að ræða. Þetta er mat G. Jökuls Gísla- sonar, rannsóknarlögreglumanns hjá LRH. Algeng svindlleið er að senda tölvupósta með fjárkröfum. Slíkir póstar eru flokkaðir í lágstig og hástig. Á lágstigi berst einföld beiðni um greiðslu en á hástigi hafa svikahrapparnir komist inn í tölvukerfi fyrirtækja eða stofnana og búið til reikninga og færslur á bak við þá sem virðast trúverðug. Þá er fyrirmælasvindl einn al- gengasti flokkurinn, en þar er sendur falsaður tölvupóstur með fyrirmælum til gjaldkera um að borga og látið líta út fyrir að tölvupósturinn komi frá forstjóra eða stjórnarformanni fyrirtækis. Greint var frá því í Fréttablað- inu í gær að erlendum tölvuþrjót- um hefði tekist að brjótast inn í tölvukerfi HS Orku og svíkja það- an út á fjórða hundrað milljóna króna. Jökull sagðist ekki vilja svara til um hvort það væri stærsta málið sinnar tegundar hér á landi, en sagðist vita um annað netsvikamál gagnvart ís- lenskum aðila af sömu stærðar- gráðu. » 4 Háar fjárhæðir sviknar út  Hrappar nota fjölbreyttar aðferðir  Mörg aðskilin mál

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.