Morgunblaðið - 10.09.2019, Qupperneq 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. SEPTEMBER 2019
Karlmaður á þrítugsaldri hefur ver-
ið ákærður fyrir brot gegn vald-
stjórninni með því að hafa í mars á
þessu ári stungið göt á hjólbarða
lögreglubifreiðar, hótað lögreglu-
mönnum líkamsmeiðingum og lífláti
og fyrir að hafa kveikt í teppum í
fangaklefa og valdið frekari
skemmdum í klefanum.
Samkvæmt ákæru embættis
héraðssaksóknara skar maðurinn
göt á öll fjögur dekk lögreglu-
bifreiðar sem stóð mannlaus í Vest-
mannaeyjum. Þá hótaði hann ítrek-
að sjö lögreglumönnum sem voru á
lögreglustöðinni í Vestmannaeyjum
og fjölskyldum þeirra líkamsmeið-
ingum og lífláti.
Maðurinn er einnig ákærður fyrir
eignaspjöll með því að hafa borið eld
og kveikt í tveimur teppum þegar
hann var í fangaklefa á lögreglustöð-
inni. Þá reif hann upp bólstraðan
kodda og tætti hann.
Auk þess að fara fram á að maður-
inn verði dæmdur fyrir brot gegn
valdstjórninni fer ríkislögreglustjóri
fram á að manninum verði gert að
greiða embættinu 119.000 krónur í
bætur vegna tjóns á hjólbörðum.
Gekk ber-
serksgang
í Eyjum
Ásgeir Karlsson, yfirmaður grein-
ingardeildar ríkislögreglustjóra,
hefur sagt sig úr Lögreglufélagi
Reykjavíkur, eftir 41 árs veru í því.
Hann greindi frá því í samtali við
mbl.is í gær að ástæðan væri um-
mæli formanns félagsins um kvart-
anir um ógnar og óttastjórnun inn-
an embættis ríkislögreglustjóra og
meðvirkni í efsta lagi stjórnenda.
Eins og Morgunblaðið hefur
greint frá ályktaði stjórn Lands-
sambands lögreglumanna að sú
ákvörðun dómsmálaráðuneytisins
að láta fara fram stjórnsýsluúttekt
á embætti ríkislögreglustjóra væri
löngu tímabær. Embætti ríkislög-
reglustjóra svaraði með yfirlýsingu
þar sem meðal annars sagði að sú
endurskoðun ætti að vera heildar-
endurskoðun lögreglumála í land-
inu. Hentugast væri að hafa einn
lögreglustjóra á landinu öllu.
Mbl.is greindi frá því í gær að
deildarstjórar við embætti ríkislög-
reglustjóra sendu um miðjan júní
yfirlýsingu til dómsmálaráðherra
þar sem lýst var yfir fullum stuðn-
ingi við Harald Johannessen ríkis-
lögreglustjóra. Segja þeir hann
hafa stýrt embættinu af fag-
mennsku og festu. „Haraldur Jo-
hannessen hefur stýrt umbótastarfi
innan embættis ríkislögreglustjóra
og lögreglunnar, og í krafti emb-
ættisins staðið fyrir breytingum,
framþróun og auknu jafnrétti,“
sagði meðal annars í yfirlýsingunni.
„Fjárhagsvandi lögreglunnar verð-
ur eingöngu leystur á vettvangi Al-
þingis og ríkisstjórnar. Opinberar
deilur innan lögreglunnar eru falln-
ar til þess eins að grafa undan
trausti til hennar. Við hvetjum
starfsmenn og stjórnendur lögreglu
til að setja niður deilur sínar og
snúa saman bökum samfélaginu til
heilla,“ sagði þar enn fremur.
Lögreglustjórafélag Íslands
sendi frá sér yfirlýsingu í gær þar
sem sagði að togstreita um fjár-
muni ætti sér ekki stað milli lög-
regluembætta í landinu. Nýlegar
breytingar á skipan lögreglumála
hefðu gefist vel.
Þá lýsa Lögreglufélag Austur-
lands, Lögreglufélag Norðurlands
vestra og Lögreglufélag Suður-
lands yfir stuðningi við ályktun
Landssambands lögreglumanna.
Hugmyndir um að lögreglan í
landinu verði ein stofnun séu til
þess fallnar að afvegaleiða um-
ræðuna.
Áfram styr um skipan lögreglumála
Deildarstjórar lýsa yfir stuðningi við ríkislögreglustjóra Lögreglufélög styðja landssamband sitt
Morgunblaðið/Eggert
Lögregla Ekki virðist samstaða
milli embætta um starfsaðferðir.
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Skipulags- og umferðarnefnd
Rangárþings ytra samþykkti á
fundi sínum í gær að skipulag við
jarðirnar Leyni 2 og 3 yrði auglýst
að nýju og kynningarferli hæfist á
ný.
Nokkur umræða hefur verið að
undanförnu vegna fyrirhugaðra
framkvæmda á jörðunum, en
nokkrir íbúar og sumarhúsa-
eigendur í nágrenninu hafa haft
áhyggjur af umfangi fyrirhugaðs
ferðamannaþorps sem eigandi
jarðarinnar, Loo Eng Wah, hefur
áformað að reisa þar.
Segja fréttir ónákvæmar
Haraldur Eiríksson, formaður
skipulags- og umferðarnefndar,
segir að um fimm athugasemdir
hafi borist vegna skipulagsins á
Leyni 2 og 3, sem sé svipað og
gengur og gerist í þessum málum.
Hann segir að áform landeiganda
þar hafi breyst. „Það hefur eitt-
hvað dottið út og því er ástæða til
að kynna þetta bara allt að nýju,“
segir Haraldur. Hann bætir við að
sveitarstjórnin íhugi að álykta um
þann fréttaflutning sem verið hef-
ur af málinu síðustu daga.
„Okkur hefur þótt bera á óná-
kvæmni í umfjöllun fjölmiðla af
málinu, án þess þó að við viljum
ásaka einn né neinn,“ segir Har-
aldur, en búast má við ályktun
sveitarfélagsins á fimmtudaginn.
Skipulag verði
auglýst að nýju
Fimm athugasemdir bárust nefndinni
Yt
ri-
Ra
ng
á
1
Hella
H o l t a - o
g L a n d s
v e i t
Leynir ■
MiðfellÞjórs
á
Þjórs
á
Leynir í Landsveit
K
o
rt
ag
ru
n
n
u
r:
O
p
en
S
tr
ee
tM
ap
Netsvik á annan milljarð
Íslendingar hafa tapað háum fjárhæðum í netsvikamálum síðustu tólf mánuði
Óprúttnir erlendir aðilar brutust inn í tölvu HS Orku og sviku út háar fjárhæðir
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Íslendingar hafa sennilega tapað
meira en einum milljarði króna í
netsvikamálum á síðustu tólf mán-
uðum, að mati G. Jökuls Gísla-
sonar, rannsóknarlögreglumanns
hjá LRH. Hann sagði að mörg að-
skilin mál væru að baki heildar-
upphæðinni, flest lítil en í einstaka
málum væri um háar fjárhæðir að
ræða.
Fréttablaðið greindi frá því í
gær að erlendum tölvuþrjótum
hefði tekist að brjótast inn í tölvu-
kerfi HS Orku og svíkja út á fjórða
hundrað milljóna króna. Ásgeir
Margeirsson, forstjóri HS Orku,
vildi ekki staðfesta þá upphæð í
samtali við mbl.is. Hann sagði mál-
ið snúast um greiðslur til aðila sem
hefði komist inn í samskipti félags-
ins við aðra aðila. Starfsfólk HS
Orku komst að innbrotinu fyrir
nokkru og lögreglan var strax látin
vita. Í tilkynningu HS Orku sagði
að félagið hefði ástæðu til að ætla
að hægt yrði að endurheimta stór-
an hluta fjárhæðarinnar. Efna-
hagsbrotadeild héraðssaksóknara
stýrir rannsókn málsins hér á
landi. Auk þess koma erlend lög-
regluyfirvöld að málinu.
Jökull sagði algenga svindlleið
að senda tölvupósta með fjárkröf-
um af einhverju tagi. Póstarnir eru
flokkaðir í lágstig og hástig. Á lág-
stigi berst einföld beiðni um
greiðslu en á hástigi hafa svika-
hrapparnir komist inn í tölvukerfi
fyrirtækis og búa til trúverðuga
reikninga og allar færslur á bak við
þá. „En það er ekki nóg að komast
inn í tölvu, það þarf alltaf einhver í
fyrirtækinu að gefa greiðslufyrir-
mæli,“ sagði Jökull.
Hann vildi ekki svara því hvort
fyrrgreint mál HS Orku væri það
stærsta sinnar tegundar. Ef rétt
væri að upphæðin væri á fjórða
hundrað milljóna kvaðst Jökull vita
um annað netsvikamál gagnvart ís-
lenskum aðila af svipaðri stærðar-
gráðu. Hann vann samantekt um
netglæpi á Íslandi og helstu brota-
flokka.
Fyrirmælasvindl (BCE) er einn
algengasti og varasamasti flokkur-
inn. Þá er sendur falsaður tölvu-
póstur með fyrirmælum til gjald-
kera um að borga. Látið er líta út
fyrir að sendandi sé forstjóri eða
stjórnarformaður fyrirtækisins.
Góð venja er að hafa samband
við sendandann eftir annarri leið
en að svara tölvupóstinum beint og
fá staðfestingu á greiðslufyrirmæl-
unum. Einnig þarf að hafa varann
á þegar reglulegur viðskiptavinur
erlendis vill breyta greiðslufyrir-
komulagi.
Morgunblaðið/Golli
Netsvik G. Jökull Gíslason, rannsóknarlögreglumaður hjá LRH, telur að
meira en milljarður hafi verið svikinn út úr Íslendingum undanfarið ár.