Morgunblaðið - 10.09.2019, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 10.09.2019, Qupperneq 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. SEPTEMBER 2019 Rósa Margrét Tryggvadóttir rosa@mbl.is Deilihjólaleigan Framúrskarandi deilihjólaleigan verður formlega opnuð í dag, en hún mun veita ein- staklingum tímabundinn aðgang í gegnum snjallsímaforrit að reið- hjóli fyrir ferðir sínar innan borgarmarkanna. Deilihjólaleigan býður upp á 100 hjól á 41 hjóla- standi í í Reykjavík: í Vest- urbænum og póstnúmerunum 101, 102 og 105 Reykjavík. Fulltrúar deilihjólaleigunnar sigruðu í samkeppni borgarinnar í sumar um rekstur deilihjólaleigu á höfuðborgarsvæðinu og verður starfsemin rekin með stuðningi frá borginni. Á deilihjólaleigan að styðja markmið Reykjavíkur- borgar um vistvænar samgöngur. „Markmið okkar er að auka ör- samgöngur í Reykjavík. Við sjáum fyrir okkur að lausnir eins og reið- hjól og rafmagnshlaupahjól verði framtíðin í almenningssamgöngum. Svolítið eins og er nú þegar farið að gerast í öðrum stórborgum. Við viljum vera forsprakkar í innleið- ingu þess kerfis í Reykjavík,“ segir Eyþór Máni Stefánsson, 21 árs gamall framkvæmdastjóri Framúrskarandi deilihjólaleig- unnar. Auk Eyþórs standa að deilihjóla- leigunni tveir aðrir ungir menn, Kormákur Atli Unnþórsson og Pétur Magnús Pétursson. Kramdi bílinn eftir útboðið Eyþór segir þjónustuna góða lausn fyrir fólk sem býr miðsvæðis og vill lifa án þess að þurfa að eiga bíl. „Það er náttúrlega bara orðið óhagstæðara. Það er hagstæðara að nota þetta. Það sem við erum að bjóða upp á fyrir heimamenn er reiðhjól fyrir 3.500 krónur á mán- uði sem ekki þarf að viðhalda. Þú þarft ekkert að spá í að því verði stolið og þarft ekki að læsa því nema á stöðvunum okkar,“ segir Eyþór. Hann segist finna fyrir mikilli vöntun á aðgengilegri þjónustu af þessu tagi og ætlar sjálfur að nýta sér þjónustuna. „Ég kramdi bílinn minn eftir að hafa fengið útboðið,“ segir hann og hlær. Kveðst hann þegar reyna að fara allra sinna ferða hjólandi og segir það ganga vel. Deilihjólaleigan verður að sögn Eyþórs aðgengileg allan ársins hring en reiðhjólin eru hönnuð til að gagnast á öllum árstíðum. Dekkjunum verður til að mynda skipt út fyrir nagladekk á veturna þegar ísing hefur myndast á veg- um. Eyþór segir sérstöðu deilihjóla- leigunnar vera meiri en þeirrar deilihjólaleigu sem Wow air hefur áður boðið upp á. Kerfið er að hans sögn danskt og í eigu fyrir- tækisins Donkey Republic, sem er starfrækt í yfir 50 borgum. Eyþór segir að ólíkt kerfi Wow air sé nýja kerfið hannað fyrir heima- menn en ekki ferðamenn sér- staklega. Jafnframt verða reið- hjólastandar nýja kerfisins minni, fleiri og dreifðari en þeir sem Wow air bauð upp á. Auk deilihjólanna verður hægt að læsa einkahjólum við deilihjólastandana sem mun að sögn Eyþórs byggja upp almenna reiðhjólabogakerfið í borginni, bæði fyrir deilihjól og einkahjól. Deilireiðhjól nú aðgengileg á 41 stað í Reykjavík  Hjólin verða aðgengileg allan ársins hring með hjálp snjallsímaforrits Morgunblaðið/Eggert Frumkvöðlar Eyþór, Kormákur og Pétur eru allir á því að reiðhjól séu framtíðin í samgöngum í borginni og ætla sjálfir að nýta sér þjónustu deilihjólaleigunnar, sem mun bjóða upp á hjól á 41 stað í höfuðborginni. Smiðjuvegi 4C | 200 Kópavogur | Sími 587 2202 | hagblikk@hagblikk.is | hagblikk.is HAGBLIKK Álþakrennur & niðurföll Þakrennurnar eru frá GRÖVIK VERK í Noregi Þær eru einfaldar í uppsetningu HAGBLIKK Ryðga ekki Brotna ekki Litir á lager: Svart, hvítt, ólitað, rautt silfurgrátt og dökkgrátt Ágætur gangur er í framkvæmdum við nýja stólalyftu á skíðasvæðinu í Hlíðarfjalli á Akureyri. Unnið er í allt að rúmlega 1.000 metra hæð yf- ir sjávarmáli og eru aðstæður til að koma steypubílum upp að efstu möstrum erfiðar vegna þess hversu blautt er. Notuð er jarðýta til að draga bílana upp og halda í þá á leiðinni niður. Nýja stólalyftan liggur úr um 500 metra hæð yfir sjávarmáli og upp í rúmlega 1.000 metra. Reisa þarf 16 möstur og undirstöður. Er vinnan við að slá upp fyrir undirstöðum og steypa langt komin og verið er að reisa þriðja mastrið. Guðmundur Karl Jónsson, for- stöðumaður skíðasvæðisins, segir að aðstæður mættu vera betri. Hann telur þó að framkvæmdum ljúki fyrir veturinn en það fari eitt- hvað eftir veðri og vindum. Fyrir- hugað er að opna nýju lyftuna eftir áramót, áður en skíðavertíðin nær hámarki. helgi@mbl.is Málin leyst Steypubílarnir spóla sig niður í aurinn en starfsmenn Skúta- bergs leysa málið með því að láta ýtu kippa í þá á leiðinni upp. Draga steypubílana upp í Hlíðarfjall  Ný stólalyfta reist á skíðasvæðinu Lögreglan á Suðurlandi áformar í samvinnu við björgunarsveitir á Suðurlandi að gera eftir tvær til þrjár vikur aðra tilraun í leit að belgíska ferðamanninum Björn De- becker, sem hefur verið saknað frá 10. ágúst síðastliðnum. Talið er að Debecker hafi farist þegar hann reri á litlum plastbáti út á vatnið. Fylgst hefur verið með vatninu að undanförnu, en hlé var gert á leitinni 22. ágúst síðastliðinn. Þá hafði vatnið verið kembt, meðal annars með kafbát í eigu Teledyne Gavia sem skannaði botn Þingvalla- vatns og tók um 50 þúsund ljós- myndir af dýpstu hlutum þess. Yfir- ferð á myndunum hefur enn ekki leitt nýtt í ljós, segir Oddur Árna- son yfirlögregluþjónn. Lögregla hefur verið í góðu sam- bandi við fjölskyldu og aðstand- endur Björns Debeckers og þau verið upplýst um leitina og stöðu málsins almennt. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Þingvallavatn Björgunarmenn leita. Leit í biðstöðu Karlmaður á fertugsaldri hefur verið ákærður fyrir að hafa látið farast fyrir að koma konu undir læknishendur þegar hún veiktist lífshættulega og lést úr bilun á mið- taugakerfi vegna alvarlegrar kókaíneitrunar. Konan var barns- móðir mannsins, en hann á langan brotaferil að baki. Málið verður þingfest í Héraðs- dómi Reykjavíkur á fimmtudaginn. Samkvæmt íslenskum lögum varð- ar það fangelsi allt að tveimur ár- um eða sektum að koma ekki öðr- um til hjálpar sem er staddur í lífsháska, að því gefnu að viðkom- andi þurfi ekki að stofna eigin lífi eða annarra í háska. Maðurinn var á vettvangi þegar konan missti meðvitund, en fór af staðnum síðar. Fann lögregla manninn daginn eftir. Ákærður fyrir að að- stoða ekki í lífsháska

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.