Morgunblaðið - 10.09.2019, Side 10
Jóhannes Svavar Rúnarsson, fram-
kvæmdastjóri Strætó, segir starfs-
hóp hafa unnið að tillögum um
nýtt leiðakerfi strætó í framtíð-
inni. Skýrsla um málið verði lögð
fyrir stjórn Strætó bs. í nóvember.
„Síðan á eftir að taka alla um-
ræðu um fjármögnun og slíkt. Það
er ekki gert ráð fyrir miklum
breytingum á leiðakerfinu á næsta
ári. Þetta er langtímaverkefni og
kemur inn í áföngum, samhliða
borgarlínu,“ segir Jóhannes.
Breytingarnar muni taka mið af
rannsóknum á íbúaþéttleika og at-
vinnuþátttöku. Ætlunin sé að
hækka hlutfall þeirra sem hafa að-
gang að Strætó með meiri tíðni úr
26% í 62%. Miðað sé við að tíðnin
verði 7-10 mínútur.
Jóhannes
kveðst ekki eiga
von á því að
skipt verði yfir í
tíðnidrifið kerfi í
einu vetfangi.
„Þá þyrftu
sveitarfélögin
að auka veru-
lega við fjár-
magnið. Hugs-
unin er að
samtvinna borgarlínu og strætó-
kerfið. Aðgerðaáætlun fyrir innleið-
ingu nýja kerfisins er í vinnslu og
hefur ekki verið útfærð í smáat-
riðum,“ segir Jóhannes, sem
kveðst aðspurður ekki hafa fengið
vilyrði frá sveitarfélögunum, eig-
anda Strætó, um aukið fjármagn.
Tíðni strætóferða verður 7-10 mínútur
ÁFORMAÐ ER AÐ BREYTA LEIÐAKERFI STRÆTÓ Í ÁFÖNGUM
Spurður hvar breytingar á leiða-
kerfinu muni birtast fyrst segist
hann gera ráð fyrir að fyrsta
skrefið verði að breyta leiðakerf-
inu innanbæjar í Hafnarfirði á
næsta ári. Þegar 1. áfangi borgar-
línu komi í gagnið 2023/2024
muni leiðakerfi Strætó smátt og
smátt aðlagast innleiðingu borgar-
línunnar.
Það sé ekki einfalt mál að
breyta leiðakerfinu.
„Almennt eru breytingar erfiðar
fyrir fólk, hvort sem það er leiða-
kerfi eða eitthvað annað. Það þarf
að vanda vel til verka og upplýsa
fólk. Sýna þarf möguleikana sem
nýtt kerfi býður upp miðað við nú-
verandi kerfi. Það er mikið verk-
efni,“ segir Jóhannes.
Jóhannes Svavar
Rúnarsson
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. SEPTEMBER 2019
Seljavegur 2 | Sími: 511-3340 | Fax: 511-3341 | www.reyap.is | reyap@reyap.is
Apótekið þitt
í gamla Héðinshúsinu við Seljaveg 2
Afgreiðslutími:
9-18:30 virka daga
10-16:00 laugardaga
Reykjavíkur Apótek býður upp á allar tegundir lyfja. Mikið og fjölbreytt úrval af
heilsuvörum, bað- og ilmvörum, gjafavörum auk ýmissa annarra góðra kosta.
Reykjavíkur Apótek er sjálfstætt starfandi apótek sem leggur áherslu á
persónulega þjónustu og hagstætt verð.
• Öryrkjar og eldri borgarar njóta sérkjara hjá okkur
• Frí heimsendingarþjónusta
Cherry Berry
buxurnar komnar
Bæjarlind 6 | sími 554 7030
Við erum á facebook
Kr. 4.990
Str. 2-9 (38/40-52/54)
7 litir
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Sigurborg Ósk Haraldsdóttir, formað-
ur skipulags- og samgönguráðs
Reykjavíkur, segir stefnt að því að
hefja uppbyggingu fyrsta áfanga
borgarlínu árið
2021. Jafnframt
verði nýtt leiða-
kerfi Strætó, sem
byggi á fyrirhug-
uðu leiðakerfi
borgarlínu, kynnt
á næstu vikum.
Fyrsti áfangi
borgarlínu verði
leiðin Lækjar-
torg-Ártún ásamt
leiðinni Lækjar-
torg-Hamraborg. Á næstu dögum
verði gengið frá samningum milli ríkis-
ins og sveitarfélaganna á höfuðborgar-
svæðinu um þátttöku í kostnaði við
verkefnið. Áætlað hefur verið að fyrstu
tveir áfangarnir muni kosta alls 16,3
milljarða króna og borgarlínan alls 42
milljarða til 2033.
Ekki náðist í Sigurð Inga Jóhanns-
son samgönguráðherra í gær.
Mun nýtast við umferðarspár
Sigurborg Ósk segir Verkefnastofu
borgarlínu hafa boðið út gerð nýs um-
ferðarlíkans af höfuðborgarsvæðinu.
Með líkaninu verði afkastageta gatna-
kerfisins kortlögð og þær upplýsingar
notaðar til að spá um þróun umferðar-
innar í framtíðinni.
Næsta skref verði að vinna þróunar-
áætlun fyrir borgarlínu á grunni lík-
ansins. Áætlunin muni skýra útfærslu
borgarlínunnar, legu hennar í gatna-
kerfinu, umferð við gatnamót og stað-
setningu biðstöðva. Slíkar ákvarðanir
kalli á tölfræðigögn.
Síðan taki við skipulagsvinna hjá
Reykjavíkurborg og Kópavogi, en
síðarnefnda bæjarfélagið mun tengj-
ast borgarlínu í fyrsta áfanga.
Verkefnastofan hóf störf í júlí, en
hún starfar á grundvelli samkomulags
Vegagerðarinnar og sveitarfélaganna
á höfuðborgarsvæðinu.
Sigurborg Ósk segir fyrsta áfanga
borgarlínu munu annars vegar liggja
frá Lækjartorgi upp Hverfisgötu,
Laugaveg og Suðurlandsbraut og svo
yfir nýja brú yfir Sæbraut og yfir
Geirsnefið. „Brúin yfir Geirsnefið og
Elliðaár er tæknilega flóknasti hluti
leiðarinnar. Það þarf líka að þvera Sæ-
brautina,“ segir Sigurborg Ósk, en sú
þverun mun tengjast beint inn á
Suðurlandsbraut. Handan brúarinnar
yfir Elliðaána tekur við lokakaflinn að
fyrirhugaðri borgarlínustöð við Kross-
mýrartorg í nýja Ártúnshverfinu.
Sigurborg Ósk segir deiliskipulag í
vinnslu fyrir leiðirnar Lækjartorg-
Ártún og Lækjartorg-Hamraborg.
Síðarnefnda leiðin kalli á gerð brúar
yfir Fossvog. Deiliskipulag brúarinnar
sé tilbúið og áformað að efna til skipu-
lagssamkeppni í haust. Óvíst sé hve-
nær brúarsmíðin hefjist.
Fer í gegnum Vatnsmýrina
Hins vegar mun borgarlínan liggja
frá Lækjartorgi, að Háskóla Íslands, í
gegnum Vatnsmýrina og yfir brú yfir
Fossvog en Hamraborg er endastöð.
Áformað er að þétta byggð meðfram
borgarlínunni. Þar með taldar eru
hugmyndir um þéttingu byggðar í Há-
túni og á gatnamótum Kringlumýrar-
brautar og Suðurlandsbrautar.
Sem áður segir stendur til að kynna
nýtt leiðakerfi Strætó. „Strætó er að
fara að kynna glænýtt leiðakerfi fyrir
höfuðborgarsvæðið sem byggir á
heildarkerfi borgarlínu. Það fer í kynn-
ingarferli í september,“ segir hún.
Óvíst sé hvenær kerfið taki gildi.
Farið verði úr svonefndu þekjandi
kerfi, sem reyni að ná til allra gatna og
hverfa svo styttra sé á biðstöðvar, yfir í
svonefnt þátttökukerfi. Markmiðið sé
að fá mun fleiri farþega á hærri tíðni,
sem verði 7-10 mínútur við stofn-
brautir. „Samkvæmt fyrstu drögum
verður rekstur nýja kerfisins ekki
kostnaðarsamari en núverandi kerfis
og bind ég miklar vonir við að sveitar-
félögin á höfuðborgarsvæðinu verði
samstíga um innleiðingu þess.“
Fyrsti áfanginn
verður að Ártúni
Uppbygging borgarlínu hefst 2021
REY KJAV Í K
K ÓPAVOGUR
Fyrsti áfangi Borgarlínu
Leið Borgarlínu um
Arnarhlíð í Hlíðarenda
Fyrirhuguð brú yfi r
Fossvog yfi r í Kársnes
Við Heklureit við Laugaveg Krossmýrartorg í fyrirhugaðri
Vogabyggð við Ártúnshöfða
Möguleg leið Borgarlínu um Suðurlands-
braut við gatnamót Grensásvegar
B MIÐBÆR
B KROSSMÝRARTORG
Teikning: ARKÍS arkitektar
Yrki arkitektar
Teikning: Trípólí arkitektar
Í aðalskipulagi Reykjavíkur 2010-2030 er miðað við
að fyrsti áfangi Borgarlínu liggi frá Ártúnshöfða um
miðborgina og í Hamraborg í Kópavogi
B HAMRABORG
Teikning: ALARK arkitektar
Sigurborg Ósk
Haraldsdóttir