Morgunblaðið - 10.09.2019, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 10.09.2019, Blaðsíða 10
Jóhannes Svavar Rúnarsson, fram- kvæmdastjóri Strætó, segir starfs- hóp hafa unnið að tillögum um nýtt leiðakerfi strætó í framtíð- inni. Skýrsla um málið verði lögð fyrir stjórn Strætó bs. í nóvember. „Síðan á eftir að taka alla um- ræðu um fjármögnun og slíkt. Það er ekki gert ráð fyrir miklum breytingum á leiðakerfinu á næsta ári. Þetta er langtímaverkefni og kemur inn í áföngum, samhliða borgarlínu,“ segir Jóhannes. Breytingarnar muni taka mið af rannsóknum á íbúaþéttleika og at- vinnuþátttöku. Ætlunin sé að hækka hlutfall þeirra sem hafa að- gang að Strætó með meiri tíðni úr 26% í 62%. Miðað sé við að tíðnin verði 7-10 mínútur. Jóhannes kveðst ekki eiga von á því að skipt verði yfir í tíðnidrifið kerfi í einu vetfangi. „Þá þyrftu sveitarfélögin að auka veru- lega við fjár- magnið. Hugs- unin er að samtvinna borgarlínu og strætó- kerfið. Aðgerðaáætlun fyrir innleið- ingu nýja kerfisins er í vinnslu og hefur ekki verið útfærð í smáat- riðum,“ segir Jóhannes, sem kveðst aðspurður ekki hafa fengið vilyrði frá sveitarfélögunum, eig- anda Strætó, um aukið fjármagn. Tíðni strætóferða verður 7-10 mínútur ÁFORMAÐ ER AÐ BREYTA LEIÐAKERFI STRÆTÓ Í ÁFÖNGUM Spurður hvar breytingar á leiða- kerfinu muni birtast fyrst segist hann gera ráð fyrir að fyrsta skrefið verði að breyta leiðakerf- inu innanbæjar í Hafnarfirði á næsta ári. Þegar 1. áfangi borgar- línu komi í gagnið 2023/2024 muni leiðakerfi Strætó smátt og smátt aðlagast innleiðingu borgar- línunnar. Það sé ekki einfalt mál að breyta leiðakerfinu. „Almennt eru breytingar erfiðar fyrir fólk, hvort sem það er leiða- kerfi eða eitthvað annað. Það þarf að vanda vel til verka og upplýsa fólk. Sýna þarf möguleikana sem nýtt kerfi býður upp miðað við nú- verandi kerfi. Það er mikið verk- efni,“ segir Jóhannes. Jóhannes Svavar Rúnarsson 10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. SEPTEMBER 2019 Seljavegur 2 | Sími: 511-3340 | Fax: 511-3341 | www.reyap.is | reyap@reyap.is Apótekið þitt í gamla Héðinshúsinu við Seljaveg 2 Afgreiðslutími: 9-18:30 virka daga 10-16:00 laugardaga Reykjavíkur Apótek býður upp á allar tegundir lyfja. Mikið og fjölbreytt úrval af heilsuvörum, bað- og ilmvörum, gjafavörum auk ýmissa annarra góðra kosta. Reykjavíkur Apótek er sjálfstætt starfandi apótek sem leggur áherslu á persónulega þjónustu og hagstætt verð. • Öryrkjar og eldri borgarar njóta sérkjara hjá okkur • Frí heimsendingarþjónusta Cherry Berry buxurnar komnar Bæjarlind 6 | sími 554 7030 Við erum á facebook Kr. 4.990 Str. 2-9 (38/40-52/54) 7 litir Baldur Arnarson baldura@mbl.is Sigurborg Ósk Haraldsdóttir, formað- ur skipulags- og samgönguráðs Reykjavíkur, segir stefnt að því að hefja uppbyggingu fyrsta áfanga borgarlínu árið 2021. Jafnframt verði nýtt leiða- kerfi Strætó, sem byggi á fyrirhug- uðu leiðakerfi borgarlínu, kynnt á næstu vikum. Fyrsti áfangi borgarlínu verði leiðin Lækjar- torg-Ártún ásamt leiðinni Lækjar- torg-Hamraborg. Á næstu dögum verði gengið frá samningum milli ríkis- ins og sveitarfélaganna á höfuðborgar- svæðinu um þátttöku í kostnaði við verkefnið. Áætlað hefur verið að fyrstu tveir áfangarnir muni kosta alls 16,3 milljarða króna og borgarlínan alls 42 milljarða til 2033. Ekki náðist í Sigurð Inga Jóhanns- son samgönguráðherra í gær. Mun nýtast við umferðarspár Sigurborg Ósk segir Verkefnastofu borgarlínu hafa boðið út gerð nýs um- ferðarlíkans af höfuðborgarsvæðinu. Með líkaninu verði afkastageta gatna- kerfisins kortlögð og þær upplýsingar notaðar til að spá um þróun umferðar- innar í framtíðinni. Næsta skref verði að vinna þróunar- áætlun fyrir borgarlínu á grunni lík- ansins. Áætlunin muni skýra útfærslu borgarlínunnar, legu hennar í gatna- kerfinu, umferð við gatnamót og stað- setningu biðstöðva. Slíkar ákvarðanir kalli á tölfræðigögn. Síðan taki við skipulagsvinna hjá Reykjavíkurborg og Kópavogi, en síðarnefnda bæjarfélagið mun tengj- ast borgarlínu í fyrsta áfanga. Verkefnastofan hóf störf í júlí, en hún starfar á grundvelli samkomulags Vegagerðarinnar og sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu. Sigurborg Ósk segir fyrsta áfanga borgarlínu munu annars vegar liggja frá Lækjartorgi upp Hverfisgötu, Laugaveg og Suðurlandsbraut og svo yfir nýja brú yfir Sæbraut og yfir Geirsnefið. „Brúin yfir Geirsnefið og Elliðaár er tæknilega flóknasti hluti leiðarinnar. Það þarf líka að þvera Sæ- brautina,“ segir Sigurborg Ósk, en sú þverun mun tengjast beint inn á Suðurlandsbraut. Handan brúarinnar yfir Elliðaána tekur við lokakaflinn að fyrirhugaðri borgarlínustöð við Kross- mýrartorg í nýja Ártúnshverfinu. Sigurborg Ósk segir deiliskipulag í vinnslu fyrir leiðirnar Lækjartorg- Ártún og Lækjartorg-Hamraborg. Síðarnefnda leiðin kalli á gerð brúar yfir Fossvog. Deiliskipulag brúarinnar sé tilbúið og áformað að efna til skipu- lagssamkeppni í haust. Óvíst sé hve- nær brúarsmíðin hefjist. Fer í gegnum Vatnsmýrina Hins vegar mun borgarlínan liggja frá Lækjartorgi, að Háskóla Íslands, í gegnum Vatnsmýrina og yfir brú yfir Fossvog en Hamraborg er endastöð. Áformað er að þétta byggð meðfram borgarlínunni. Þar með taldar eru hugmyndir um þéttingu byggðar í Há- túni og á gatnamótum Kringlumýrar- brautar og Suðurlandsbrautar. Sem áður segir stendur til að kynna nýtt leiðakerfi Strætó. „Strætó er að fara að kynna glænýtt leiðakerfi fyrir höfuðborgarsvæðið sem byggir á heildarkerfi borgarlínu. Það fer í kynn- ingarferli í september,“ segir hún. Óvíst sé hvenær kerfið taki gildi. Farið verði úr svonefndu þekjandi kerfi, sem reyni að ná til allra gatna og hverfa svo styttra sé á biðstöðvar, yfir í svonefnt þátttökukerfi. Markmiðið sé að fá mun fleiri farþega á hærri tíðni, sem verði 7-10 mínútur við stofn- brautir. „Samkvæmt fyrstu drögum verður rekstur nýja kerfisins ekki kostnaðarsamari en núverandi kerfis og bind ég miklar vonir við að sveitar- félögin á höfuðborgarsvæðinu verði samstíga um innleiðingu þess.“ Fyrsti áfanginn verður að Ártúni  Uppbygging borgarlínu hefst 2021 REY KJAV Í K K ÓPAVOGUR Fyrsti áfangi Borgarlínu Leið Borgarlínu um Arnarhlíð í Hlíðarenda Fyrirhuguð brú yfi r Fossvog yfi r í Kársnes Við Heklureit við Laugaveg Krossmýrartorg í fyrirhugaðri Vogabyggð við Ártúnshöfða Möguleg leið Borgarlínu um Suðurlands- braut við gatnamót Grensásvegar B MIÐBÆR B KROSSMÝRARTORG Teikning: ARKÍS arkitektar Yrki arkitektar Teikning: Trípólí arkitektar Í aðalskipulagi Reykjavíkur 2010-2030 er miðað við að fyrsti áfangi Borgarlínu liggi frá Ártúnshöfða um miðborgina og í Hamraborg í Kópavogi B HAMRABORG Teikning: ALARK arkitektar Sigurborg Ósk Haraldsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.