Morgunblaðið - 10.09.2019, Síða 12
12 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. SEPTEMBER 2019
Rjóminnaf ísnum
10. september 2019
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 126.0 126.6 126.3
Sterlingspund 154.92 155.68 155.3
Kanadadalur 95.2 95.76 95.48
Dönsk króna 18.616 18.724 18.67
Norsk króna 13.969 14.051 14.01
Sænsk króna 13.029 13.105 13.067
Svissn. franki 127.13 127.85 127.49
Japanskt jen 1.1768 1.1836 1.1802
SDR 172.39 173.41 172.9
Evra 138.91 139.69 139.3
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 169.2882
Hrávöruverð
Gull 1504.95 ($/únsa)
Ál 1761.0 ($/tonn) LME
Hráolía 60.81 ($/fatið) Brent
● Flugfélagið Ice-
landair hækkaði
mest allra félaga í
Kauphöll Íslands í
gærdag. Hækkaði
félagið um 1,9% í
115 milljóna króna
viðskiptum og
nemur verð á
hverju hlutabréfi
félagsins 6,98
krónum. Bréf fé-
lagsins lækkuðu um 4,6% á föstudag í
kjölfar blaðamannafundar Michelle
Roosevelt Edwards, einnig þekktrar
sem Michelle Ballarin, um áform þess
efnis að WOW air muni fljúga að nýju í
október. Á þriggja mánaða tímabili hef-
ur gengi Icelandair farið úr 11 kr. og
lægst niður í 6,85 kr. á föstudaginn.
Nokkuð grænt var um að litast í
Kauphöll Íslands í gær. Fasteigna-
félögin Eik og Reitir hækkuðu um
1,25% og 1,31%, í þessari röð, og hluta-
bréf Regins um 0,24%. Arion banki
hækkaði um 0,25%, Brim um 0,39%,
Sjóvá um 0,6%, Festi um 0,8%, VÍS um
0,43% og Hagar um 1%. Mest lækkaði
gengi Símans, eða um 0,64% í 358
milljóna króna viðskiptum, á meðan
Eimskip lækkaði um 0,56% og Skelj-
ungur um 0,51%. Þá lækkaði Kvika um
0,14%.
Icelandair hækkaði um
2% í kauphöllinni
Gengi Icelandair
hækkaði um 2%.
STUTT
BAKSVIÐ
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Norsk-íslenska netvafrafyrirtækið
Vivaldi, sem smíðar samnefndan
vafra, hefur nú sent frá sér útgáfu af
vafranum fyrir Android-stýrikerfið í
fyrsta skipti, en hingað til hefur að-
eins verið hægt að nota Vivaldi-vafr-
ann á borðtölvum. Jón Von Tetzchn-
er, eigandi Vivaldi Invest sem á
Vivaldi að fullu, segir í samtali við
Morgunblaðið að það sé bæði
ánægjulegt og mikilvægt að geta nú
boðið upp á farsímaútgáfu.
Smíði Vivaldi-vafrans fer, eins og
áður hefur komið fram í Morgun-
blaðinu, fram á Íslandi, í Noregi og í
Bandaríkjunum, en hjá fyrirtækinu
starfa nú tugir manna á þessum
þremur starfsstöðvum.
„Við erum komin með 1,2 milljónir
notenda að vafranum, og árstekjurn-
ar eru um einn bandaríkjadalur á
hvern notanda,“ segir Jón, sem þýð-
ir þá að heildartekjur félagsins eru
um 1,2 milljónir dala, eða jafnvirði
150 milljóna íslenskra króna.
„Þessi farsímaútgáfa mun svo
hjálpa mikið til við að fjölga not-
endum enn frekar, enda nota menn
netið að stórum hluta í farsímum í
dag.“
Spurður hvort útgáfa fyrir iPhone
sé á leiðinni segir Jón að hún sé á
verkefnalista hjá fyrirtækinu. „Það
er meira mál að gera útgáfu fyrir
iPhone og við erum ekki komin langt
með hana. Áherslan var fyrst lögð á
að gera Android-útgáfu, enda er það
stýrikerfi með rúmlega 80% af
heimsmarkaðnum.“
Jón átti áður vafrafyrirtækið
Opera, en sá vafri náði er mest lét
350 milljónum notenda. Jón seldi
fyrirtækið með miklum hagnaði á
sínum tíma. En ætlar hann að ná
sama notendafjölda í Vivaldi?
„Markmið okkar er einfaldlega að
fara eins langt og hægt er. Það tók
sinn tíma fyrir Opera að fara upp í
350 milljónir.“
Tapaði 400 milljónum króna
Eins og fram kom á norska frétta-
vefnum E24 um helgina nam tap
Vivaldi 29,2 milljónum norskra
króna á síðasta ári, jafnvirði rúmra
400 milljóna íslenskra króna. Þar
segir jafnframt að samanlagt hafi
fyrirtækið tapað jafnvirði tæpra
tveggja milljarða íslenskra króna
frá stofnun árið 2013.
Jón segir að Vivaldi sé sprota-
fyrirtæki og það taki tíma að ná því
að reka fyrirtækið réttum megin við
núllið. „Staðan er sú að ég er sá eini
sem kemur með pening inn í fyrir-
tækið og þannig vil ég hafa þetta.
Ég vil ekki hafa neina aðra með og
hef sagt nei við alla sem hafa sýnt
því áhuga. Þar á meðal eru mörg
flott fyrirtæki. Við höfum trú á
verkefninu og finnst mjög gaman að
því sem við erum að gera, en það er
augljóst að sem sprotafyrirtæki er-
um við að eyða miklum peningum.“
Aðspurður segir Jón að fyrir-
tækið muni ná því að reka sig rétt-
um megin við núllið þegar búið er
að ná notendafjöldanum upp í 3-5
milljónir.
Ný Android-útgáfa hjálpi
Vivaldi að fjölga notendum
Vafrað Jón segir að símaútgáfa Vivaldi-vafrans hafi allt sem þarf í daglega notkun. Flestir notendur eru í Japan.
Framþróun
» Notendur hafa nú möguleika
á að samstilla gögn á milli
tölva og Android-síma.
» Hægt er að taka skjáskot af
heilum vefsíðum eða völdum
hluta vefsíðna.
» Vivaldi safnar ekki upplýs-
ingum um notendur sína.
» Vill vera valkostur við
Google.
» Ókeypis auglýsingalaus
tölvupóstur í boði.
Notendafjöldi í dag er 1,2 milljónir Eigandinn gerði áður Opera-vafrann
Vel yfir 80% pantaðra Mercedes-
Benz-bíla sem seldir verða hjá bíla-
umboðinu Öskju á næsta ári verða
annaðhvort rafbílar eða tengiltvinn-
bílar að sögn Jóns Trausta Ólafsson-
ar, forstjóra fyrirtækisins. Sú tala
nam 24% í ár en 32% árið 2018. Ein
ástæðan fyrir þessari breytingu er
CAFE-stefna (e. Clean Air For Eur-
ope) Evrópusambandsins sem gerir
ríkar kröfur til bílaframleiðenda um
að minnka kolefnislosun bílaflotans í
álfunni. Markmiðið árið 2021 er að
meðaltalskolefnisútblástur ný-
skráðra bíla verði 95 grömm.
„Bílaframleiðendur eru almennt
að auka mjög hjá sér framboðið í
tengiltvinnbílum og rafmagnsbílum.
Framboðið er því að aukast mjög
hratt. Sérstaklega í haust,“ segir Jón
Trausti. Að hans sögn hafa fyrstu
tvær sendingarnar af nýjum Merce-
des-Benz ECQ-rafmagnsbílum selst
upp auk þess sem flest módel frá
fyrirtækinu verði einnig fáanleg í
tengiltvinnútgáfu.
„En það er greinilega aukin eftir-
spurn eftir tengiltvinnbílum. Ný
kynslóð þeirra býður upp á drægni
allt að 100 km á rafmagninu,“ segir
Jón Trausti.
Samkvæmt tölum Bílgreinasam-
bandsins varðandi nýskráða bíla í
ágúst kom í ljós að nýskráningar á
rafbílum hefðu aldrei verið fleiri en
þá og nam hlutfallið 14,2% miðað við
7,3% fyrstu sjö mánuðina á undan.
Enn fremur var hlutfall nýskráðra
raf-, tengiltvinn- og „hybrid“-bíla í
ágúst rúmlega 40%.
Bílasala Mercedes-Benz EQC-bíllinn
nýtur mikilla vinsælda hjá Öskju.
Grænni bílar í
afar mikilli sókn
CAFE-stefna
Evrópusambands-
ins áhrifamikil