Morgunblaðið - 10.09.2019, Síða 13

Morgunblaðið - 10.09.2019, Síða 13
Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Þing Bretlands var sent heim í fimm vikur í gærkvöldi eftir að tillaga Boris Johnson forsætisráðherra um að efnt yrði til kosninga 15. október var felld í annað skipti. Bretadrottn- ing hafði samþykkt tillögu forsætis- ráðherrans um að þinginu yrði lokað til 14. október. Neðri deild þingsins samþykkti í gær ályktun þar sem hún krefst þess að stjórnin birti öll skjöl varð- andi áætlun hennar um undirbúning útgöngu Bretlands úr Evrópusam- bandinu án samnings. Einnig var mælst til þess að stjórnin birti upp- lýsingar, m.a. tölvupósta frá ráð- gjöfum, um þá ákvörðun Johnsons að senda þingið heim. Ályktunin var samþykkt með 311 atkvæðum gegn 302 en er ekki lagalega bindandi. Tveir þriðju allra þingmanna neðri deildarinnar, eða 434 þing- menn, þurftu að samþykkja tillögu forsætisráðherrans um að flýta kosningum en hún fékk einungis 293 atkvæði, en 46 þingmenn greiddu atkvæði á móti. Fyrr um daginn höfðu leiðtogar stjórnarandstöðu- flokkanna samþykkt að styðja hana ekki. Þeir sögðust ekki vilja kosn- ingar fyrr en eftir leiðtogafund ESB-ríkjanna 17. og 18 október. Samkvæmt brexit-lögum, sem þing- ið samþykkti í vikunni sem leið, ber forsætisráðherranum að óska eftir því á fundinum að útgöngu Bret- lands úr sambandinu verði frestað um þrjá mánuði, eða til 31. janúar, náist ekki nýtt samkomulag um hana. Johnson hefur sagt að hann myndi frekar vilja „liggja dauður í skurði“ en að óska eftir því að brexit verði frestað. Stjórnarandstaðan hefur varað forsætisráðherrann við því að hann geti átt fangelsisdóm yf- ir höfði sér brjóti hann lögin. Ekki víst að ESB bjóði frestun Breskir fjölmiðlar sögðu í gær að stjórn Johnsons væri að leita leiða til að tryggja brexit 31. október án þess að brjóta lögin. Breska ríkis- útvarpið kvaðst hafa heimildir fyrir því að stjórnin væri meðal annars að ræða þann möguleika að biðja eitt- hvert ESB-ríki um að beita neitunarvaldi sínu gegn frestun á brexit. Leiðtogar allra aðildarríkja Evrópusambandsins þurfa að sam- þykkja hana. Stjórn Johnsons er einnig sögð íhuga þann möguleika að senda leið- togum ESB-ríkjanna formlega beiðni um að útgöngunni verði frest- að, eins og kveðið er á um í nýju lög- unum, en senda síðan annað skjal þar sem fram komi að breska stjórn- in sé ekki hlynnt frestuninni. Sumption lávarður, fyrrverandi dómari í hæstarétti Bretlands, sagði í viðtali við breska ríkisútvarpið að ef stjórnin gerði þetta væri það brot á lögunum. „Það að senda bréfið og reyna síðan að vinna gegn því er aug- ljóst brot á lögunum að mínu mati,“ sagði hann. The Telegraph kvaðst hafa heim- ildir fyrir því að stjórnin væri að kanna þennan möguleika. „Fyrir liggur bréf sem þingið hefur mælt fyrir um og þarf að senda… Kemur það í veg fyrir að forsætisráð- herrann geti sent Evrópusamband- inu önnur skjöl? Ég tel svo ekki vera,“ hefur blaðið eftir heimildar- manni sínum. „Ef til vill væri hægt að senda pólitíska útlistun, útskýr- ingu á stefnu stjórnarinnar. Taka þarf skýrt fram að hún óski eftir frestun, en við megum ekki gleyma því hvaða skref kemur næst. Þegar þetta hefur verið gert spyrja Evr- ópuríkin hvers vegna Bretland vilji frestun. Hvað ef stjórnin segði að við hefðum ekki neina ástæðu til að fresta brexit?“ Blaðið benti á að Jean-Yves Le Drian, utanríkisráðherra Frakk- lands, sagði um helgina að eins og staðan væri núna myndu Frakkar ekki styðja frestun á brexit. „Við vilj- um ekki ganga í gegnum þetta á þriggja mánaða fresti,“ sagði hann. The Telegraph hafði eftir heimildar- manninum að breska stjórnin teldi líklegt að leiðtogar ESB-ríkjanna myndu ekki bjóða Bretum frestun á brexit. Telur að samkomulag náist Johnson átti í gær fund með Leo Varadkar, forsætisráðherra Írlands, í fyrsta skipti frá því að hann varð forsætisráðherra Bretlands 24. júlí í stað Theresu May sem sagði af sér eftir að breska þingið hafði þrívegis hafnað brexit-samningi hennar við ESB. Johnson er andvígur umdeildu ákvæði í samningnum, svonefndri „baktryggingu“, sem á að hindra að komið verði á landamæraeftirliti milli Írlands og Norður-Írlands. Hann vill að ákvæðið verði fellt niður. Stuðningsmenn ákvæðisins segja að það sé nauðsynlegt til að koma í veg fyrir að Brexit grafi und- an samningnum sem náðist árið 1998 til að koma á friði á Norður-Írlandi eftir átök sem kostuðu um 3.500 manns lífið. Andstæðingar samn- ingsins segja hins vegar að ákvæðið geti orðið til þess að Bretland þurfi að vera áfram í tollabandalagi ESB til frambúðar. Johnson kvaðst í gær telja að sam- komulag næðist við ESB-ríkin um aðra leið til að tryggja að landamæri Írlands og Norður-Írlands yrðu opin og án eftirlits. Varadkar kvaðst vera „opinn fyrir öðrum kostum“ en sagði að þeir þyrftu að vera „raunhæfir“. „Við höfum ekki enn fengið slíkar til- lögur,“ bætti hann við. Varadkar hefur léð máls á þeirri málamiðlunarlausn að „baktrygg- ingin“ nái aðeins til Norður-Írlands. Flokkur norðurírskra sambands- sinna, DUP, sem styður stjórn Íhaldsflokksins, er andvígur þeirri lausn og segir að ekki komi til greina að Norður-Írland lúti öðrum reglum en England, Skotland og Wales. Þingið sent heim í fimm vikur  Stjórnarandstaðan í Bretlandi felldi tillögu Johnsons um að gengið yrði til kosninga 15. október  Stjórnin leitar leiða til að tryggja útgöngu úr ESB 31. október án þess að brjóta ný brexit-lög AFP Írsku landamærin rædd Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, og Leo Varadkar, forsætisráðherra Írlands, á blaðamannafundi í Dublin fyrir fyrsta fund þeirra frá því að Johnson komst til valda fyrir tæpum sjö vikum. Bercow boðar afsögn » John Bercow, forseti neðri deildar breska þingsins, sagði í gær að hann hygðist láta af embætti 31. október. » Bercow hefur verið forseti þingdeildarinnar í tíu ár og var fyrst kjörinn á þing fyrir Íhalds- flokkinn árið 1997. » Brexit-sinnar hafa gagnrýnt Bercow harðlega og sakað hann um að hafa farið á svig við reglur þingsins til að tor- velda brexit. FRÉTTIR 13Erlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. SEPTEMBER 2019 SMÁRALIND www.skornirthinir.is Verð 14.995 Stærðir 36-41 Flex&Go Í Flex&Go skóna er notað hágæða leður sem og náttúruleg efni, sem gerir það að verkum að skórnir falla vel að fætinum og eru einstaklega þægilegir. Bandamenn Vladimírs Pútíns Rúss- landsforseta misstu mikið fylgi í borgarstjórnarkosningum í Moskvu á sunnudaginn var en héldu þó meirihluta sínum í borginni. Þeir misstu um þriðjung sæta sinna, fengu 25 sæti af 45 en voru með 38. Yfirvöld í Moskvu höfðu meinað mörgum stjórnarandstæðingum að bjóða sig fram og það varð til þess að tugir þúsunda manna tóku þátt í mótmælum í borginni fyrr á árinu. Stjórnarflokkurinn Sameinað Rússland er orðinn svo veikur í Moskvu að allir fulltrúar hans buðu sig fram sem óháðir frambjóðendur til að reyna að leyna tengslum sínum við hann. Stjórnarandstöðuleiðtog- inn Alexej Navalní og stuðnings- menn hans birtu nöfn fulltrúa stjórnarflokksins og hvöttu Moskvu- búa til að kjósa þann frambjóðanda sem væri líklegastur til að sigra bandamann stjórnvalda í Kreml. Kommúnistaflokkurinn jók fylgi sitt mest, fékk þrettán sæti, átta fleiri en í síðustu kosningum. Frjálslyndi flokkurinn Jabloko og vinstriflokk- urinn Réttlátt Rússland fengu þrjú sæti hvor. Á meðal þeirra sem náðu ekki endurkjöri var Andrej Met- elskí, forystumaður Sameinaðs Rússlands í höfuðborginni. Sameinað Rússland var stofnað árið 2001 til að styðja Pútín forseta en vinsældir flokksins hafa minnkað mjög í Moskvu síðustu ár vegna efnahagsstöðnunar og versnandi lífskjara. Flokkurinn hélt þó flestum sætum sínum í öðrum borgar- stjórnum, meðal annars Pétursborg, og sigraði í öllum sextán héraðs- stjórakosningum sem fóru fram á sunnudag. Talsmenn stjórnarflokks- ins sögðu niðurstöðu kosninganna almennt vera sigur fyrir hann en stjórnmálaskýrendur telja líklegt að stjórnvöld í Kreml hafi áhyggjur af fylgistapi bandamannanna í Moskvu. bogi@mbl.is AFP Andstæðingur Kremlverja Alexej Navalní greiðir atkvæði í Moskvu. Bandamenn Pútíns misstu mikið fylgi  Héldu meirihluta sínum í Moskvu

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.