Morgunblaðið - 10.09.2019, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 10.09.2019, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. SEPTEMBER 2019 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ LögmálMurphyser um þau álög sem menn upplifa stundum að allt það sem getur hugsanlega farið úrskeiðis í einhverri atburðarás geri það. Dæmi um slíkt óstuð eru mörg, sum gömul og sum ný og standa mislengi. Sum eru úr heimi ævintýranna og knúin áfram af ímyndunaraflinu. Eða eru falin í ræmum kvikmynd- anna, eins og Naked Gun 2½ þar sem allt fer öfugt frá fyrsta ramma til hins síðasta. Stundum verða aðeins örfáir vitni að því þegar lögmálið kvíðvænlega tekur völdin, en stundum eru það full 50 þús- und sem verða vitni að mætti þess á staðnum og milljónir fastar við sjónvarpsskerminn. Dæmi um þetta síðasta var landsleikur Frakklands og Albaníu, andstæðinga okkar í riðli knattspyrnunnar. Við upphaf leiks Frakkands og Albaníu stóðu liðin í heiðurs- stellingum ásamt dómgæslu- mönnum, fyrirfólki og fimmtíu þúsund öðrum. Þjóðsöngur Andorra var leikinn. Lang- flestir áheyrenda gátu ekki vitað að neitt væri að. En skyndilega var minnihluti við- staddra orðinn algjörlega æfur og lét það ekki fara framhjá neinum. Það tók samtals yfirgengi- lega langar 10 mínútur til að komast að því hvað hefði farið úrskeiðis. Eftir að ró komst á og mann- skapurinn hafði stillt sér upp á ný gerði þulur gestgjafanna vart sig. Hann bað leikmenn og áheyrendur Armena! afsök- unar, en nú mættu þeir treysta því að hinn rétti þjóðsöngur þeirra yrði leikinn. Kveikju- þráðurinn var orðinn mjög stuttur þegar þarna var komið og dugði ekkert minna en að Macron forseti Frakklands talaði beint við starfsbróður sinn í Albaníu án millilend- ingar í Andorra og Armeníu og bæði hann og þjóðina fyrir- gefningar frá innstu hjartans rótum. Fyrirrennari Macron var grátt leikinn af lögmáli Murphys, svo eftirminnilegt varð. Fyrst bárust fréttir af ástarbralli Hollande forseta og töldu sumir fréttaskýrenda að fréttunum hefði verið lekið til að styrkja veika stöðu forseta Frakklands, því að afstaða Frakka til slíkra mála sé allt önnur en gengur og gerist hjá gegnköldum þjóðum Skandin- avíu. En svo ágerðust lekarnir og ljóst orðið að Murphy sjálf- ur hélt um spottana. Kannanir sýndu að Rómeó í forsetahöll- inni væri ekki að hafa neitt upp úr krafsinu. Þá lak ljósmynd af for- seta Frakklands þar sem hann sat hokinn á böggla- bera vespuhjóls aftan við hnarreistan leyni- þjónustumann, sem stýrði. Þarna þóttu endaskipti hafa verið höfð á hátigninni sem leika á um franskan forseta. En fylgið minnkaði ekki mikið þrátt fyrir það. En daginn eftir birtist sama myndin aftur og hafði verið stækkuð og þá kom í ljós að vespan var ekki einu sinni frönsk heldur ítölsk og eftir það voru Hollande allar bjargir bannaðar og veikar vonir hans um endurkjör guf- aðar upp. Íhaldsmönnum í Bretlandi þykir Murphy hafa límt sig óþægilega fast á foringjann í forsætisráðherrabústaðnum fræga þessa 40-50 daga sem hann hefur búið þar leigulaust. Hin lánlausa frú May náði að bæta sex prósentustigum við fylgi Íhaldsflokksins í skyndi- kosningum sem hún efndi til 8. júní 2017. Það var ekki svo lítið afrek. En hún stefndi í þær kosn- ingar með fremur nauman meirihluta, bætti við sig sex prósentustigum en missti þó meirihlutann og varð í kjölfar- ið að kaupa sér stuðning frá systurflokki á Norður-Írlandi til að geta sagst hafa starf- hæfan meirihluta. Á hann gekk í hennar tíð og hélt svo áfram að hrökkva af honum eftir að Boris Johnsons axlaði ábyrgð og nú er hann kominn í veru- legan mínus. Að stórum hluta til er það vegna þess að honum var nauðugur sá kostur að reka fimmtu herdeild flokksins í einu lagi úr flokkshúsum eftir að hún lagðist á sveif með Verkamannaflokknum. Slíkt er pólitísk dauðasök. Af hverju var sá brottrekstur óhjá- kvæmilegur? Vegna þess for- dæmis sem ella hefði verið gefið. En einkum og sér í lagi þó vegna þess að þótt forsætis- ráðherranum tækist fljótlega að merja í gegn nýjar kosn- ingar yrði hann að byrja á að vinna 21 auka þingmann til að jafna við fimmtu herdeildina, sem situr á svikráðum, áður en hann reyndi að vinna viðbótar þingmenn til að komast aftur í meirihluta og svo enn allmarga til að vera kominn með sæmi- lega öflugt bakland. Það þyrfti mjög mikla heppni til að ná öll- um þeim markmiðum. Og það yrði óhugsandi nema ljóst væri að lögmáli Murphys hefði ver- ið ýtt algjörlega til hliðar um nægilega langt skeið. Það eru óneitanlega spennandi tímar fram undan, að minnsta kosti fyrir okkur áhorfendur} Slegist við Murphy Í dag verður 150. löggjafarþing Alþingis sett. Í framhaldi af því mun fjármála- ráðherra leggja fram frumvarp til fjárlaga 2020 sem kynnt var í síðustu viku. Núna höfum við tækifæri til þess að forgangsraða í þágu framtíðarinnar og þeirra sem minnst mega sín. Það er margt fróðlegt í þessu frumvarpi, ýmislegt auðvitað til bóta en því miður margt sem er það síður. Í frumvarpinu er það enn og aftur staðfest að þetta er ríkisstjórn þeirra ríku og eigna- miklu, en ekkert er gert til þess að jafna leikinn og ekkert kemur meira inn í ríkiskassann frá auðmönnum og enn stendur til að lækka bankaskattinn á næstu árum. Sannarlega er jákvætt að lækka eigi lægsta skattþrepið og fæðingarorlof verði lengt en flestar koma þess- ar aðgerðir inn vegna lífskjarasamningsins. Hins vegar er staðreyndin sú að persónu- afslátturinn er lækkaður, milliþrepið hins vegar hækkað en fólk með ofurlaun borgar áfram jafn mikið til sam- félagins. Á sama tíma er áhugavert að skoða framlög til stofnana ríkisins, en framlög til málefnasviðs háskólanna, fram- haldsskóla og þróunarsamvinnu lækka á milli ára. Þá er sömuleiðis áhugavert að skoða þær stofnanir sem mikið var rætt um að styrkja á síðasta þingi vegna vanmáttar þeirra að sinna lögbundnum verkefnum sínum vegna van- fjármögnunar, en framlög til að mynda til Matvælastofn- unar lækka töluvert á milli ára. Þar þarf að gera mun betur, en það er fátt mikilvægara fyrir at- vinnulífið í landinu en að eftirlitsstofnanir landins séu í stakk búnar til að sinna verk- efnum sínum hratt og örugglega, sem því miður hefur verið nokkur misbrestur á. Við umræðu um fjárlög á síðasta þingi lagði þingflokkur Samfylkingarinnar fram skýrar breytingartillögur og það munum við einnig gera við þessi fjárlög. Við viljum verja vel- ferðina. Við viljum leggja meira til skólanna, bæta kjör aldraðra, öryrkja og barnafólks. Við viljum þó ekki síður styðja við atvinnulífið og leggja til að mynda meira í nýsköpun og rannsóknir, lækka tryggingagjaldið og styðja sérstaklega við lítil og meðalstór fyrirtæki. Það eru fjölmörg stór mál fram undan, en eins og reynslan hefur sýnt okkur er oft erfitt að segja til um hvert stóra málið verður. Oft eru það litlu málin sem koma á óvart. Það er þó eitt mál sem ég held að við séum í það minnsta flest sammála um að skiptir meira máli en nokkurt annað næstu árin, en það eru viðbrögð okkar við hamfarahlýn- uninni. Ríkisstjórnin hefur sett af stað ýmis verkefni en við þurfum að gera miklu betur. Þar ætlum við í þing- flokki Samfylkingarinnar að leggja okkar af mörkum í vetur líkt og áður. Gleðilegt nýtt löggjafarþing, kæru lesendur, vonandi farnast okkur betur en á því síðasta. Pistill Tækifæri til að gera betur Höfundur er þingmaður Samfylkingarinnar. Albertína Friðbjörg Elíasdóttir STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen BAKSVIÐ Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Sveitarstjórn nýs sameinaðssveitarfélags á Austurlandimun, verði sameining sam-þykkt, fela heimastjórnum í gömlu sveitarfélögunum hluta af valdi sínu. Heimastjórnirnar munu fara með ákvörðunarvald varðandi nær- þjónustu á viðkomandi svæðum, með- al annars um deili- skipulag og til að veita umsagnir um veitinga- og versl- unarleyfi og um friðlýsingar, svo dæmi séu tekin. Þessi til- færsla á valdi grundvallast á til- raunaákvæði í nú- gildandi sveitar- stjórnarlögum. Komi til sameiningar á Austurlandi verður þessu ákvæði beitt í fyrsta skipti. Mega vísa til bæjarstjórnar Þrír menn verða í hverri heima- stjórn, tveir sem kosnir eru beinni kosningu af íbúum á hverju svæði og einn fulltrúi sem sæti á í bæjarstjórn. Björn Ingimarsson, bæjarstjóri á Fljótsdalshéraði og formaður sam- starfsnefndar, segir að verði ágrein- ingur um mál í heimastjórn geti hvaða fulltrúi sem er vísað málinu til bæjar- stjórnar til úrlausnar. Hann bendir á að kveðið sé á um það í lögunum. Heimilt er að nýta þetta tilrauna- ákvæði í tvö kjörtímabil, samkvæmt lögunum. Björn segir mikilvægt að horfa til lengri tíma og segir að það kæmi ekki á óvart að ákvæðið yrði fest í sessi í sveitarstjórnarlögum ef það gengur vel í nýja sveitarfélaginu. Seg- ir hann að það sé einnig skilningur ráðuneytisins. Samstarfsnefndin vinnur að undirbúningi sameiningar Fljótsdals- héraðs, Seyðisfjarðar, Borgarfjarðar eystri og Djúpavogs. Endanlegar til- lögur nefndarinnar verða kynntar á íbúafundum í byrjun október og kosið verður um sameiningu 26. október. Björn segir að heimastjórnum sé ætlað að mæta þeim sjónarmiðum sem oft hafi komið upp við samein- ingar að fólkið á jaðrinum kvarti yfir því að það hafi lítil áhrif. Einnig sé tal- ið að stjórnsýslan verði skilvirkari með því að hafa ákveðna þætti á valdi nærsamfélagsins í stað þess að ákveða allt á miðlægum fundum. Stjórnskipulagið verður einnig einfaldað á þann hátt að aðeins verða þrjú fagráð starfandi, þ.e. byggðaráð, fjölskylduráð og umhverfisráð. Þar fyrir utan verða ýmsar nefndir, svo- kölluð notendaráð. Hlutverk og ábyrgð fagráðanna verður veigameira en áður. Þau funda vikulega, á dag- vinnutíma. Björn segir að með því skapist möguleiki fyrir fulltrúa að sinna sveitarstjórnarmálum í hluta- starfi. Þurfa að sameinast Nú eru 26 fulltrúar í sveitar- stjórnunum fjórum en verða 11 í nýrri bæjarstjórn. Ef litið er til alls stjórn- kerfisins sitja þar nú 113 fulltrúar í stjórnum, ráðum og nefndum en þeim fækkar í 42. Borgarfjarðarhreppur er með rúmlega 100 íbúa og þarf að sameinast öðru sveitarfélagi í síðasta lagi fyrir kosningar 2022. Sama er að segja um Fljótsdalshrepp, sem ekki er í þessum sameiningarviðræðum, en er með lið- lega 70 íbúa. Djúpavogshreppur og Seyðisfjarðarkaupstaður eru með færri en 1.000 íbúa og þurfa að sam- einast öðrum fyrir kosningar árið 2026. Eina sveitarfélagið í þessum potti sem ekki verður knúið til að- gerða er Fljótsdalshérað með 3.600 íbúa. Heimastjórnir ráði ákveðnum málum Morgunblaðið/Eggert Jaðar Djúpivogur liggur lengst frá kjarnanum, Egilsstöðum, en þar verð- ur sett á fót heimastjórn sem fær völd yfir málum í nærsamfélaginu. Björn Ingimarsson Sérstakt landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga sam- þykkti á föstudag að mæla með því að Alþingi samþykki þingsályktunartillögu ráðherra sveitarstjórnarmála um stefnumótandi áætlun í mál- efnum sveitarfélaga til 2033 og aðgerðaáætlun. Verði lög- um breytt í þessa veru mun sveitarfélögum, sem nú eru 72, fækka um 14 við kosn- ingar 2022 þegar lágmarks- fjöldi íbúa verður 250 og enn meira fjórum árum síðar þeg- ar íbúafjöldi sveitarfélags þarf að vera yfir 1.000. Eftir það gætu sveitarfélögin orðið um 30 talsins. Nokkur sveitar- félög mótmæltu áformum um lögþvingun við sameiningu sveitarfélaga í umsögnum í samráðsgátt sveitarfélaga og hvöttu ríkisstjórn og Alþingi til að virða sjálfsákvörðunar- rétt íbúa. Mælt með lögþvingun SÉRSTAKT LANDSÞING

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.