Morgunblaðið - 10.09.2019, Side 15

Morgunblaðið - 10.09.2019, Side 15
15 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. SEPTEMBER 2019 Í makindum Gott er að finna sér notalegan stað til að slaka á. Þessi myndarlegi köttur kom sér fyrir á bílþaki í Hlíðunum í Reykjavík og virti mannlífið fyrir sér. Svo virtist sem vel færi um hann. Eggert Biblían er grund- vallarrit kristinnar trúar. Og gyðingdóms, gleymum því ekki. Margar sögur hennar er líka að finna í Kór- aninum, helsta trúar- riti múslíma. Og hún er víst mest útgefna bók í sögunni. Næst á eftir Ikea-bæklingnum sem rétt nýlega hefur slegið hana út sem metsölubók, eft- ir því er fréttir herma. Hún hefur verið þýdd á flest tungumál heims- ins. Hana er að finna á hótelum, í fangelsum og á sjúkrahúsum um allan hinn vestræna heim að minnsta kosti. Það má þakka svo- kölluðum Gídeonfélögum sem lengi voru vel þekktir hér á landi fyrir að heimsækja börn í skóla og gefa þeim Nýja testamenti Biblíunnar. Þangað til slíkt „óhæfi“ var bannað. Alla vega á Íslandi, en ekki þar sem ég starfa nú, í Svíþjóð, sem þó telst afhelgaðasta land á Vestur- löndum. En það er nú önnur saga og best að passa sig á því að villast ekki af leið. Sem sagt, Biblían er til á mörgum heimilum. Og var til á flestöllum hér á Ís- landi þar til fyrir ekki svo löngu. Hún er næstum örugglega líka til heima hjá þér, eða alla vega hluti hennar. Þessi sem Gídeon- menn gáfu einhverjum einhvern tímann í ein- hverjum skólanum. Hana. Þarna komu þeir aftur. Það virðist vera erfitt að tala um Biblíuna án þess að tala um þá. En þó Biblían sé svona þekkt og fræg og til á mörgum heimilum og tölfræðilega líka heima hjá þér eða foreldrum þínum eða afa og ömmu, – þá af einhverjum ástæðum finnst mörgum okkar erfitt að taka hana niður úr hillunni eða upp úr kass- anum eða skúffunni. Og lesa hana. Og ef við gerum það og opnum hana blöðum við mörg hratt í gegn- um hana og skiljum hvorki upp né niður. Finnst okkur alla vega. Enda erfitt að átta sig á hvernig best er að fletta upp í þessari undarlegu bók. Og átta sig á henni. Og skilja hana. Og er hún ekki bara hundleiðin- leg líka? Ekkert nema helgislepja og gömul hjátrú og boð og bönn? Ekkert sem kemur mér við? Eða þér? Eða hvað? Ég hef reyndar þá kenningu að það sé ekkert svo erfitt að lesa hana. Það er alla vega mín reynsla. Það er bara spurningin um að byrja og hafa gaman af. Ég held reyndar einmitt að af því að svo margir segja að þetta sé flókin og illskiljanleg bók, þá séu það margir sem leggi ekki í hana. Og allt of oft nálgumst við hana líka af for- dómum og gefum henni ekki tæki- færi. En Biblían er fyrir alla. Líka fyr- ir tossa eins og mig og þig. Og hvað er eiginlega tossi? Er það ekki ein- hver sem hefur ekki trú á sjálfum sér? En þarf bara að bretta upp ermarnar og byrja á verkefninu? Og þá kemur í ljós að það er auð- vitað ekkert mál? Það sem fékk mig til að opna augun fyrir Biblí- unni og gefa henni tækifæri var reyndar hvernig kennari minn í guðfræðideild Háskóla Íslands, pró- fessor Þórir Kr. Þórðarson, fékk mig til að sjá mína eigin fordóma gagnvart henni. Þannig var að þeg- ar ég hóf nám á sínum tíma var það með hálfum huga. Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á sögu og það var eiginlega þess vegna sem ég fór í guðfræðina, kirkjusagan og sagn- fræðin. Og saga trúarbragðanna. Biblían fannst mér aftur á móti frekar úrelt fyrirbæri, gamaldags og undarlegt. Svona eins og sannur biblíutossi. En fyrsta haustið mitt í náminu byrjaði ég á námskeiði um Gamla testamentið, fyrri hluta Bibl- íunnar, og það var prófessor Þórir sem hélt utan um það. Og það fyrsta sem hann sagði okkur nem- endunum að gera var að lesa Gen- esis, Fyrstu Mósebók, og skrifa svo ritgerð um hvað okkur þætti um hana. Ég gerði það af heilagri vandlætingu. Í Genesis segir frá sköpun heimsins á sjö dögum, Adam og Evu og Eden og Nóa sem varð mörg hundruð ára og Nóaflóð- inu og eiginkonu Abrahams sem eignaðist barn á gamals aldri og alls konar þannig stórfurðulegum hlutum. Svo ég tók mig til, settist niður og skrifaði, að því er mér fannst, leiftrandi gagnrýni á allt þetta rugl. Hvernig er hægt að taka mark á þessu, skrifaði ég? Ánægður með sjálfan mig kvitt- aði ég undir, sannfærður um að ég myndi fá núll og skít og skömm fyrir ritgerðina. Og með því ákvað ég að hætta í þessu námi, láta þetta vera mitt síðasta orð, og gera svo eitthvað skynsamlegra við mitt líf. En prófessor Þórir Kr. breytti öllum þessum áætlunum mínum. Hann gaf mér nefnilega 10 fyrir rit- gerðina og skrifaði svo undir: „Láttu ekki neinn taka frá þér þessa gagnrýnu hugsun þína og nýttu hana til að komast til botns í því sem þessir textar vilja segja í raun og veru.“ Ég man að ég var alveg orðlaus. Hvað var maðurinn að meina? Hvað hafa þessir textar að segja? Það sem eftir er ævinnar hefur svo farið í að leita að svarinu við þessari spurningu. En nóg um mig. Hvað með þig? Hefur þú gefið Biblíunni tækifæri? Auðvitað er þetta gamall texti. Og stundum undarlegur. En taktu áhættuna. Og ég lofa þér að þú munt ekki verða fyrir vonbrigðum. Eftir Þórhall Heimisson » Og er hún ekki bara hundleiðinleg líka? Ekkert nema helgi- slepja og gömul hjátrú og boð og bönn? Ekkert sem kemur mér við? Þórhallur Heimisson Höfundur er prestur og hefur haldið námskeið um Biblíuna um árabil. thorhallur33@gmail.com Biblían fyrir tossa

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.