Morgunblaðið - 10.09.2019, Síða 16

Morgunblaðið - 10.09.2019, Síða 16
16 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. SEPTEMBER 2019 Sími 555 2992 og 698 7999 Hátt hlutfall Omega 3 fitusýra Gott fyrir: • Maga- og þarmastarfsemi • Hjarta og æðar • Ónæmiskerfið • Kolesterol • Liðina Læknar mæla með selaolíunni Selaolían fæst í: Apótekum, Þín verslun Seljabraut, heilsuhúsum, Fjarðarkaupum, Fiskbúðinni Trönuhrauni, Hafrúnu og Melabúð Óblönduð – meiri virkni Selaolía Égheyrði fyrst um Selaolíuna í gegnum kunningja minn en konan hans hafði lengi glímt við það sama og ég, - stirðleika í öllum liðum og tilheyrandi verki. Reynsla hennar var það góð að ég ákvað að prufa. Fyrstu tvo mánuðina fann ég litlar breytingar, en eftir þrjá mánuði var ég farin að geta gengið niður stiga á vinnustað mínum sem ég hafði ekki getað áður. Ein góð „aukaverkun“ fylgdi í kjölfarið, ég var með frekar þurra húð um allan líkamann, en eftir að ég fór að nota Selaolíuna hvarf sá þurrkur og húð mín varð silkimjúk. Ég hef nú notað Selaolíuna í eitt og hálft ár og þakka henni bætta líðan og heilsu. Guðfinna Sigurgeirsdóttir. „Eftir þrjá mánuði var ég farin að geta gengið niður stiga á vinnustað mínum sem ég hafði ekki getað áður.“ Læknavísindin segja okkur að frumur mannslíkamans endur- nýi sig. Hverju líffæri er viðhaldið og stjórnað frá stjórnstöð heilans svo allur líkaminn sé heilbrigður, frískur, heill. Öll líffærin starfa svo öll heildin megi njóta heilbrigðis og vel- líðanar saman í sömu verund. Allt starf er innt af hendi til blessunar heildinni, í sömu tilveru, í sama heimi, sömu veru. Samfélag og þjóðfélag mannanna mætti sannarlega taka sér starf mannslíkamans til fyrirmyndar. Sú vitund og þroski, sem felst í því að starfa heildinni til blessunar myndi skapa hamingjusamt og sambúðar- hæft samfélag fólks. En hið ofanrit- aða þarf að nema og temja sér, ef slíkt samfélag á að ganga eins og reglu- verk líkamans, gangverk véla mann- anna og himinhnatta hönnuðar al- heimsins. Sértrúarflokkar hafa lagt áherslu á velferð allra meðlima sinna og beina meðlimum sínum á rétta braut ef eitthvað fer úrskeiðis, svo söfnuðurinn allur megi dafna. Mannkyn jarðarinnar er tengt sterkum böndum. Við erum ein teg- und þó að mislit séum á hörund, eins og tegundir blóma sem birtast í regn- bogans litum. Við erum eitt kyn, mannkyn í misjöfnum útgáfum, en skyld blóðböndum um alla heima og geima, því við erum ein fjölskylda, mennskar verur, sem ætlað er að vinna saman, sem frumur sama lík- ama og að skilja mikilvægi hvers og eins. Blóðið sem fer út í litlu tá er sama blóðið og berst til heilans. Blóðið sem fer um þarmana er sama blóðið og gefur vörunum sinn líflega lit og svo mætti lengi telja. Margir stórættaðir menn eiga sér sterkan bakhjarl, sem hefur eflst af vinnu verkamanna á lægstu launum í mannlegu samfélagi. Vér skulum því ekki líta niður á annað fólk. Vér erum allir sama tegund, sama blóðið í raun. Vér erum sama kyn, sama blóð, sömu ættar um aldir alda. Ef við mennirnir gæt- um komið á þessu vit- undarástandi um ein- ingu mannkynsins gæti margt breyst til batn- aðar. Þar sem við öll er- um í sama líkama eins og frumur ættum við að leggja okkar af mörkum til að vinna heildinni gagn og þar með sjálf- um okkur í leiðinni. Þjóðfélög eru ekki góð og heil, ef þjóðfélagshópar deila og eiga í erjum. Þegar samfélags- hópar líða órétt og þjáningar og eig- ingirndin ræður för er þjóðfélagið sjúkt og mein ræna einstaklingana friði og ró, fjöri og lífsgleði í sjúku deyjandi umhverfi. Mannkynið er ein fjölskylda og þegar hluti af því líður þjáningar hef- ur það margvísleg áhrif á heildina. Þess vegna áreita lúxusvandamálin hina efnameiri eða svo lengi, sem fá- tækir líða óréttlátan skort í ómann- eskjulegum aðstæðum. Margan þarf því ekki að undra þótt margir efna- meiri sofi ekki á næturnar eða eigi við ýmsan vanda að stríða, þegar þján- ingar manna berast þeim eftir braut- um, sem tengja mannkynið órjúfan- legum „ósýnilegum“ böndum í tilverunni, því við erum sama veran, sem finnur til því hún er sjúk. Að elska náungann og líkna þeim sem eru sjúkir eru aðgerðir sem munu öllum að gagni koma. Báðir hóparnir, sá sem gefur og hinn sem veitir móttöku, munu báðir njóta blessana góðverkanna því við erum sama tegund í sama heimi, sömu veru. Heildinni til heilla Eftir Einar Ingva Magnússon » Við erum ein fjöl- skylda, mennskar verur, sem ætlað er að vinna saman, sem frum- ur sama líkama. Einar Ingvi Magnússon Höfundur er áhugamaður um samfélagsmál. einar_ingvi@hotmail.com Ég fylgdist með komu varaforseta Bandaríkjanna þegar hann kom í opinbera heimsókn til landsins á dögunum. Lífið í höfuðborginni tók á sig heldur ógeðfellda mynd, þar sem vopn- aðir varðmenn voru á hverju strái og um- ferðin var meira og minna sett í hnút þar sem þessi höfðingi fór um. Það sem vakti þó meiri athygli mína voru fánarnir sem alls staðar blöktu við hún. Ís- lenski fáninn var lítt áberandi heldur blasti við fáni hinsegin fólks þ.e. gulur, rauður, grænn, blár og fjólublár. Ég velti fyrir mér hvort búið sé að skipta okkar gamla fána út? Það hlýtur að vera sjálfsögð kurteisi þegar um opin- bera heimsókn er að ræða að þjóðfáni okkar sé hafður í öndvegi en ekki einhver marglit dula. Það má vel vera að þessi vara- forseti hafi einhverjar vafasamar skoðanir á hinum ýmsu kyn- hvötum manna, en er þetta ekki fulllangt gengið í galskapnum? Mér finnst að þessi karl megi bara hafa sínar skoðanir á mál- um og við Íslend- ingar, sem teljum okkur vera umburðar- lyndastir allra þjóða, verðum bara að una því að aðrir séu okkur ekki sammála. Hinsegin hvað? Ég átta mig raunar ekki á á hvaða veg- ferð við erum. Í nokkur ár hafa verið haldnir svo- kallaðir hinsegin dagar, þar sem allir fjölmiðlar keppast við að auglýsa göngu þeirra sem eru einverra hluta vegna öðruvísi en aðrir. Götur eru málaðar í regn- bogalitum og fólk fer í skrúð- göngur í alls konar skrautlegum fatnaði til að vekja athygli á mál- staðnum. Hvaða málstað? Að vera eitthvað öðruvísi en fjöldinn. Þarf þjóðfélagið virkilega að fara á annan endann þótt einhverjir séu öðruvísi en aðrir? Nú í ár þótti ekki nægilegt að hafa einn dag til að vekja athygli á þessu hinsegin heldur þurfti heila viku. Hvers eiga þeir að gjalda sem ekki eru hinsegin? Það virðist enginn áhugi á að vekja athygli á þeim. Verulega áhyggjufullur Ég er að verða verulega áhyggjufullur vegna orðræðu sem er í gangi varðandi þessi mál. Börn og unglingar eru mjög við- kvæm gagnvart þessum hlutum og þegar svo er komið að Siggi frændi er einn góðan veðurdag orðinn Anna frænka finnst mér mælirinn vera fullur. Maður fær það einhvern veginn á tilfinning- una að það sé orðið tískufyrirbæri hvort maður er karlkyns, kven- kyns eða jafnvel hvorugkyns. Við Íslendingar höfum miklar áhyggj- ur af því hve fjölgun þjóðarinnar er lítil og ekki er líklegt að þeir sem ekki vita hvers kyns þeir eru muni bæta mörgum við. Er búið að skipta um þjóðfána? Eftir Guðmund Oddsson » Þegar Siggi frændi er einn góðan veður- dag orðinn Anna frænka finnst mér mælirinn vera fullur. Guðmundur Oddsson Höfundur er fyrrverandi skólastjóri. gumodd@gmail.com Flestir álíta svo að hér búi friðelskandi þjóð. Á Íslandi er enginn her, ekki hafa verið stríðsátök og almennir lög- regluþjónar ganga ennþá um götur án þess að vera gráir fyrir járnum. Hér láta ráðamenn sjá sig án þess að vera með lífverði og blanda geði við fólk án þess að óttast um líf sitt. Þannig að það vakti furðu þeg- ar varaforseti Bandaríkjanna kom í örstutta heimsókn hve mikinn viðbúnað hann þóttist þurfa að hafa til að tryggja ör- yggi sitt. Þvílíkur farsi! Það hefði verið betur að hann hefði haldið sig heima í Bandaríkjunum þar sem vopnaburður almennings er frekar regla en undantekning og fréttir af skotárásum eru tíðar. Þar hefði hann getað setið í skot- heldu rými og haft þennan fund á Skype. Hugsið ykkur: Þetta umstang fyrir fund og dvöl sem varði ekki einu sinni sólahring! Tvær flug- vélar, herflugvélar, þyrlur og sérútbúnir bílar sem þurfti að flytja sérlega til landsins fyrir utan allt hávopnaða fylgdarliðið. Sumir þykjast vera mikil- vægari en aðrir. Okkar ráðamenn fljúga með áætl- unarvél á fundi til útlanda og sumir jafnvel í almannafar- rými. Dagur B. Eggertsson borgar- stjóri fær hrós hjá mér. Hann mætti eldhress á hjóli í Höfða og átti erfitt með að komast inn því yfiröryggisstjóri vildi ekki trúa að hann væri „ekta borgarstjór- inn“ því hann væri á slíku farar- tæki. Nú efast ég um að menn eins og Pence, sem afneita ennþá loftslagsbreytingum, skilji þessi skilaboð. Hér gat maður borið saman ótrúlega sóun og sótsvört kolefnisspor hjá Bandaríkja- manninum og vistvæna hegðun borgarstjórans. Katrín Jakobs- dóttir gerði líka rétt að fara á annan fund sem var fyrir löngu ákveðinn þann dag og gat því hitt Pence einungis örstutt. Og hún lagði áherslu á að ræða lofts- lagsmálin. Ég vona svo sannar- lega að okkar litla land gefi ekki færi á því að verða leiksoppur stórveldanna í auknu vígbún- aðarkapphlaupi. Við eigum ekki að taka þátt í slíku og hugsa okk- ur vandlega um hvort við viljum umsvif Bandaríkjahersins í aukn- um mæli í okkar friðsæla landi. Eða hvort við viljum láta draga okkur inn í deilur Kínverja og Bandaríkjamanna. Og við viljum ekki frekjugang ráðamanna frá stórum og vold- ugum löndum heldur ráða sjálf hverja við bjóðum velkomna og hvernig og hvenær við erum tilbúin að taka á móti þeim. Friðelskandi þjóð Eftir Úrsúlu Jünemann »Ég vona svo sannar- lega að okkar litla land gefi ekki færi á því að verða leiksoppur stórveldanna í auknu vígbúnaðarkapphlaupi. Úrsúla Jünemann Höfundur er kennari á eftirlaunum og leiðsögumaður. ursula@visir.is Jóhannes Nordal telur, að Ólafur Thors hafi haft áhyggjur af því, þegar hann þurfti að láta sverfa til stáls gegn öðru fólki í stjórnmálum. Þá hafi hann „farið með áhyggjurnar heim“. Viðbrögð hans hafi ekki alltaf blasað við á yfirborðinu. „Hann tók allt, sem hann fjallaði um, föstum tökum. Ég tel hann mesta stjórnmálamann sem ég hef átt samstarf við,“ segir dr. Jó- hannes, „og þann stjórnmálamann- inn, sem mér þótti vænst um sem manneskju.“ (Sjá Matthías Johannessen: Ólafur Thors 1. og 2.) Auðun vestfirski Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12. Afmæli Sjálfstæðisflokksins: Enn af Ólafi Thors

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.