Morgunblaðið - 10.09.2019, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 10.09.2019, Qupperneq 19
✝ Jón BjarniJónsson (Dengsi í Ársól) fæddist á Akranesi 24. janúar 1933. Hann lést á Heil- brigðisstofnun Vesturlands 18. ágúst 2019. Dengsi var yngstur sjö barna hjónanna Lovísu Vilhelmínu Guð- mundsdóttur, f. 8. apríl 1899, d. 25. desember 1966, og Jóns Ágústs Þórðarsonar, f. 15. ágúst 1896, d. 9. júlí 1977, og kveður nú síðastur sinna systkina. Systkini hans voru: 1. Sólmund- ur Gísli, f. 21. nóvember 1920. 2. Egill, f. 13. febrúar 1922. 3. Friðmey, f. 21. mars 1923. 4. Helga, f. 28. janúar 1926. 5. Lúð- vík Friðrik. f. 9. október 1927. 6. Sólmundur, f. 18. janúar 1929. Dengsi gekk í hjónaband með Sigurlínu Erlu Kristinsdóttur, f. 8. júlí 1935, d. 3. ágúst 1999, þau eignuðust 4 börn: 1. Sigurbjörg Kristín, f. 21.október 1958, hennar maður Daniel Friðrik Haraldsson. Börn a) Erla Björk Gunnarsdóttir, maki Arthur Karlsson, börn: andvana fædd, móðir þeirra Ey- rún Gunnarsdóttir; e) Þóra Sig- ríður Guðmundsdóttir; f) Erla Sólbjört Jónsdóttir; g) Perla Sólbrá Jónsdóttir. 4. Erlingur Jónsson, f. 10. október 1969. Börn a) Arnar Haukur Erlings- son, kærasta Emma Larsen; b) Viktor Goði Erlingsson; c) Adam Andri Erlingsson, móðir þeirra Hrafnhildur Erlingsdóttir Dengsi var svo lánsamur að hitta Þóru Sigríði Jónsdóttur, f. 24.12. 1934, Tótu, fyrir 21 ári síðan og hófu þau sambúð á Garðaflöt og svo á Sautjánda- júnítorgi í Garðabæ. Hennar synir eru: Jón Magnús, Ólafur Þórður og Rúdolf Grétar, tengdabörn, sjö ömmubörn og tíu langömmubörn. Dengsi ólst upp í Ársól á Akranesi og vann lengst af hjá HB og co. sem netagerðameist- ari og verkstjóri til ársins 1998 en þá flutti hann suður og vann í nokkrum deildum Húsasmiðj- unnar til starfsloka. Dengsi var mikill handverks- maður og liggja handverk hans víða um Akranes. Hann átti ým- is áhugamál, stundaði golf og módelsmíði ásamt að því að mála listaverk. Útför Dengsa frá Ársól fer fram frá Akraneskirkju í dag, 10. september 2019, og hefst at- höfnin klukkan 13. Hallur Karl, Kol- finna Sigurbjörg og Móeiður Oddný; b) Lilja Gunnars- dóttir, maki Gísli Karlsson, börn: Ró- bert Leó og Styrm- ir; c) Sigríður Lína Daníelsdóttir; d) Harpa Rós Daníels- dóttir, kærasti Ás- þór Loki Rúnars- son. 2. Lovísa Vil- helmína, f. 27. júní 1960, hennar maður Sigurður Halldórsson. Börn a) Aðalheiður Sigurðar- dóttir, maki Gunnar Freyr Gunnarsson, börn: Malín Erna og Tómas Andri; b) Halldór Jón Sigurðsson, maki Hera Birgis- dóttir, börn: Hrafnhildur Kara, Hilmar Rafn og Heiða Lovísa; c) Aron Örn Sigurðsson, börn: Lovísa Rós og Alexander Darri, móðir þeirra Kristjana Ósk Traustadóttir; d) Konráð Freyr Sigurðsson. 3. Jón Bjarni Jóns- son, f. 10. nóvember 1961, hans kona Þórunnbjörg Sigurðar- dóttir. Börn a) Eva Björg Jóns- dóttir, kærasti Kristinn Geir Guðnason; b) Sædís Björk Jóns- dóttir; c) Sóley Jónsdóttir, and- vana fædd; d) Birta Jónsdóttir, Í dag er komin kveðjustund, elsku pabbi. Þú varst mikill bar- áttumaður og ætlaðir að vinna þennan bardaga og verða 107 ára. En eftir að þú komst á heima- slóðir síðustu dagana fylgdi því mikil sátt og sálin var tilbúin til að grípa í englavængina sem biðu eftir að hefja flugið á vit forfeðr- anna inn í eilífðina. Nú sit ég hér og held í heitu hönd þína, minningarnar þeyta manni aftur á bak til daga æsk- unnar og pabbi stendur þar fremstur í ljómanum, yngstur af sínum systkinum, lítill strákur sem lék sér með það sem fannst í móunum og bjó sér til leikföng úr því sem til féll. Þarna byrjuðu hæfileikar hans að mótast, hug- myndaflæðið blómstrar og hann var aldrei iðjulaus, hann verður alltaf að hafa eitthvað að gera. Hann spilaði bolta með knatt- spyrnufélagi Kára, var í skátun- um og fór um Skagann á nýja hjólinu sínu. Pabbi byrjaði snemma að vinna og vann mörg störf innan HB og co. Ég man eft- ir pabba í Haraldarbúð þar sem hann stóð brosmildur fyrir innan búðarborðið með hvítu svuntuna og afgreiddi brúna og hvíta krem- kexið. Það var mikill akkur í að hafa pabba í vinnu því hann gat einfaldlega allt og leysti störf sín 100%. Vinnan hans við sjóinn var hans líf og yndi, hann stagaði í veiðinetin, þreif þau og kom þeim í bátana, málaði bátana, málaði frystihúsin, skapaði listaverk utan á og inn í húsin, pantaði það sem vantaði til út- gerðar, bólstraði húsgögn, hannaði merki fyrir félög, smíð- aði sér tvö einbýlishús, allt handa okkur. Við vorum hans stærsta happdrætti. Við vorum umvafin kærleika og kraftinum frá sjó og fjalli, pabba og mömmu. Svo hurfum við út í heiminn með gott vega- nesti frá pabba og mömmu og stækkuðum ættartréð. Svo misstum við mömmu. Pabbi fór aldrei í launkofa með hve hann var virkilega stoltur og heppinn með allan hópinn sinn, hann vildi alltaf fullvissa sig að allt væri í góðu lagi og allir hefðu það gott. Pabbi var traustur maður, hann lá ekki á skoðunum sínum ef honum mislíkaði eitthvað, en þó var alltaf stutt í glettnina og blik í augum þegar hann horfir yfir all- an hópinn sinn. Það má segja að líf pabba hafi verið tvískipt, fjölskyldulífið á Skaganum og seinni árin í Garða- bænum með Tótu. Seinni árin einkenndust af dansi og ferðalögum, Ítalía, París, Spánn, garðyrkja, módelskipa- smíði, mála myndir og skapa. Pabbi var einstaklega laginn, útsjónarsamur, listrænn og hefur átt lífshlaup með öllu inniföldu. Ég sit hér enn og held í köldu hönd þína sem hefur verið þinn töfrasproti og þú skilur eftir þig slóð minjagripa í öllum formum. Ég kyssi þig á kinn og segi „ég elska þig pabbi minn.“ „Ég líka,“ segir þú. „Já ég veit að þú hefur nú alltaf elskað þig,“ segi ég og við horfumst í augu og þú brosir og við skiljum hvort annað, kveðjan var fyrir fullt og allt. Ég er svo stolt og þakklát fyrir þig, pabbi minn, takk fyrir allt og allt. Bið að heilsa mömmu. Elsku Tóta mín, þú ert gull að manni, okkar samvera einkennist af þinni góðu nærveru og þínu stóra hjarta, takk fyrir allt sem þú hefur verið pabba. Lovísa og fjölskylda. Nánast alla mína grunnskóla- göngu var ég sótt af appelsínugul- um kindabíl og mér skutlað í skól- ann svo ég þyrfti ekki að ganga fáeina metra í kuldanum. Það var afi minn sem hugsaði svo vel um mig og restina af barnabörnunum því hann var einfaldlega um- hyggjusamur og einstakur maður. Afi minn var jafnframt mikill listamaður og það var fátt sem hann gat ekki græjað í höndunum. Hann málaði listaverk, setti sam- an módelskip, smíðaði, teppalagði, eldaði og bara nefndu það – afi gerði það af nákvæmni og alúð. Afi minn var líka hláturmildur og skemmti hann sér betur yfir Tomma og Jenna en við öll barna- börnin til samans. Hann hló smit- andi hlátri sem dásamlegt var að vera í kringum. Svo var hann íþróttamaður mikill, bæði liðtæk- ur á dansgólfinu og margverð- launaður golfari. Já, afi minn var hæfileikaríkur með eindæmum og hefur gert mig afar stolta í gegnum tíðina. Ekki hefur honum þó tekist að arfleiða mig að allri þessari handlagni og listrænu hæfileikum. Ég gæti hins vegar hafa erft eitthvað af hans óbilandi þörf fyrir að skreyta hús- ið hátt og lágt með jólaljósum fyr- ir jólin. Elsku afi minn, allar þessu dýr- mætu minningar varðveitast að eilífu og um hver jól mun ég bæta við einni seríu í safnið og brosa til þín út í eilífðina. Þú varst góður og kærleiksríkur afi og langafi og við erum þakklát fyrir allar stundirn- ar okkar saman. Hvíl í friði elsku afi Dengsi, minning þín mun alltaf lifa. Ástarkveðja, Aðalheiður Sigurðardóttir. Jón Bjarni Jónsson MINNINGAR 19 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. SEPTEMBER 2019 ✝ Árvök Krist- jánsdóttir fæddist í Fremraseli í Hró- arstungu 10. sept- ember 1954. Hún lést á Sjúkrahúsinu á Akureyri 25. ágúst 2019. Foreldrar henn- ar voru Ingunn Þorvarðardóttir, f. 1922, d. 2000, og Kristján Ein- arsson, f. 1921, d. 2005. Systkini Árvakar: 1) Krist- björg, f. 1946; maki Stefán Sig- urðsson. Þau eignuðust þrjú börn. 2) Guðfinna, f. 1948; maki Kristján Magnússon. Þau eign- Vilhjálmur Þ. Snædal. Þau eiga fjögur börn. Einnig ólst sonur Ástu, Haukur Arnar Árnason, upp hjá foreldrum Árvakar en hann á þrjú börn með fyrrver- andi eiginkonu sinni, Svein- björgu Harðardóttur. Sonur Árvakar er Kristján Svanur Eymundsson, f. 2. september 1994. Árvök ólst upp hjá foreldr- um sínum í Fremraseli. Árið 1966 flutti fjölskyldan að Þórðarstöðum í Fnjóskadal. Þar bjó Árvök til vors 1979 þegar hún fluttist til Akur- eyrar þar sem hún bjó æ síðan. Árvök lauk landsprófi frá Laugaskóla í Reykjadal og síð- ar sjúkraliðanámi á Akureyri og starfaði við sitt fag meðan heilsan leyfði. Útför Árvakar fer fram frá Akureyrarkirkju í dag, 10. september 2019, klukkan 13.30. uðust þrjú börn. 3) Þorvarður, f. 1950, d. 1988. Fyrri kona, Sigríður K. Þórhallsdóttir. Þau eignuðust þrjú börn. Seinni kona, Auður Garðars- dóttir og eignuðust þau eina dóttur. 4) Einar, f. 1955; maki Solveig D. Guðmundsdóttir. Þau eiga þrjú börn. 5) Ársæll, f. 1959; maki er Dóra Kristjáns- dóttir. Þau eiga þrjú börn. 6) Heiðrún, f. 1962. Fóstursystir Árvakar er Ásta Sigurðardóttir, f. 1945; maki skírð því. Ég vissi þó ekki hvernig hún tæki því og kjarkurinn var nú ekki meiri en svo að ég fékk mömmu til að ræða það við fóstur- systur sína hvort hún væri til í að deila nafninu sínu. Það var auð- sótt mál og dóttir mín ber nafnið stolt – nú sú eina í víðri veröld eft- ir því sem við best vitum. Árvöku frænku þótti vænt um að fylgjast með nöfnu sinni, og síðar bróður hennar, vaxa og dafna. Hún kom oft til okkar á nokkurra ára bili en heimsóknun- um fækkaði þegar heilsunni hrak- aði. Um síðustu jól brá í fyrsta sinn út af þeirri hefð að hún kæmi Þá er hún Árvök frænka mín farin frá okkur. Langt fyrir aldur fram, en þó í aðra röndina ef til vill södd lífdaga. Það er sannar- lega ekki heiglum hent að búa stöðugt við heilsuleysi og van- líðan. Ég á óljósar minningar um Ár- vöku frá því að ég var lítil stúlka en ég var svo lánsöm að fá að kynnast henni betur þegar ég var orðin fullorðin. Þegar ég átti von á mínu fyrsta barni, sem ég vissi að væri stúlka, vildi ég gjarnan gefa dóttur minni þetta fallega og sér- staka nafn sem engin kona hafði borið áður en hún frænka mín var í mat til okkar annan í jólum, en þá lá hún inni á spítala. Rjúpurnar kúrðu rólegar í frystinum og biðu þess að færi gæfist til að elda þá hefðbundnu jólamáltíð – og sem betur fer fengum við að njóta þeirrar stundar saman. En um næstu jól verður skarð fyrir skildi annan dag jóla. Ég vona heitt og innilega að hún frænka mín elskuleg hafi við andlátið öðlast allt það sem hún trúði og treysti á. Megi guðinn hennar taka vel á móti henni og leiða hana inn í himnaríki – það er svo sannarlega verðskuldað. Urður Snædal. Árvök Kristjánsdóttir Virðing, reynsla & þjónusta Allan sólarhringinn 571 8222 Svafar: 82o 3939 Hermann: 82o 3938 Ingibjörg: 82o 3937 www.kvedja.is svafar & hermann Faðir minn og bróðir, JÓN SVEINSSON, lést á hjúkrunarheimilinu Fellsenda föstudaginn 30. ágúst. Útförin fer fram frá Akraneskirkju fimmtudaginn 12. september klukkan 13. Blóm og kransar afþakkaðir, en þeim sem vilja minnast hans er bent á hjúkrunarheimilið Fellsenda, kt. 520169-6019, banki 0312-26-839. Halldór Páll Jónsson Ásta Svanhvít Sindradóttir Eiríkur Sveinsson Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug við andlát móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, KRISTRÚNAR AÐALBJARGAR GUÐJÓNSDÓTTUR frá Gröf, Grenivík. Sérstakar þakkir fá starfsmenn dvalarheimilisins Grenilundar Grenivík og LSH við Hringbraut og Hafblikssystur fá þakkir fyrir hjálp og stuðning. Guðjón Indriðason Sigríður Indriðadóttir og fjölskyldur Móðir mín, KOLBRÚN ÞORLÁKSDÓTTIR frá Skálum á Langanesi, sem lést þriðjudaginn 27. ágúst, verður jarðsungin frá Fossvogskapellu föstudaginn 13. september klukkan 13. Einar Þór Rafnsson Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát elskulegs eiginmanns, föður, tengdaföður, afa og langafa, GUÐMUNDAR SNORRA INGIMARSSONAR. Innilegar þakkir fær starfsfólk blóðlækningadeildar 11 G á Landspítala fyrir góða umönnun. Kolbrún Finnsdóttir Áslaug Snorradóttir Ingimar Guðmundsson Arna Björk Kristinsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Elskulegur eiginmaður, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, ÞÓRÐUR HARALDSSON húsgagnabólstrari, lést á heimili sínu föstudaginn 6. september. Halla Sigríður Þorvaldsdóttir Þorvaldur Þórðarson Þorbjörn Helgi Þórðarson Margrét Elín Þórðardóttir tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn Morgunblaðið birtir minning- argreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vin- samlega beðnir að nota innsendi- kerfi blaðsins. Smellt á Morgun- blaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minn- ingargrein,“ valinn úr felliglugg- anum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður grein- in að hafa borist eigi síðar en á há- degi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein ber- ist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri grein- ar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna. Myndir | Hafi mynd birst í tilkynn- ingu er hún sjálfkrafa notuð með minningargrein nema beðið sé um annað. Ef nota á nýja mynd skal senda hana með æviágripi í inn- sendikerfinu. Hafi æviágrip þegar verið sent er ráðlegt að senda myndina á netfangið minn- ing@mbl.is og láta umsjónarmenn minningargreina vita. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.