Morgunblaðið - 10.09.2019, Síða 20

Morgunblaðið - 10.09.2019, Síða 20
20 MINNINGAR Félagsstarf eldri borgara Árskógar Smíðar, útskurður, pappamódel með leiðbeinanda kl. 9-16. Leikfimi með Hönnu kl. 9-9.45. Brids kl. 12.15. Bónusbíllinn, fer frá Árskógum 6-8 kl. 12.30. Handavinnuhópur kl. 12-16. Kóræfing, Kátir karlar kl. 12.45. MS fræðslu- og félagsstarf kl. 14-16. Opið fyrir inni- pútt og 18 holu útipúttvöll. Hádegismatur kl. 11.40-12.50. Kaffisala kl. 14.45-15.30. Heitt á könnunni, allir velkomnir. S. 535-2700. Áskirkja Spilum félagsvist í kvöld kl. 20 í Dal, neðra safnaðarheimili kirkjunnar. Allir velkomnir, Safnaðarfélag Áskirkju. Boðinn Leikfimi kl. 10.30. Fuglatálgun kl. 13. Brids og kanasta kl. 13. Bólstaðarhlíð 43 Opin handverksstofa kl. 9-16. Morgunleikfimi með Rás 1 kl. 9.45. Morgunkaffi kl. 10-10.30. Saumastofan; pokar o.fl. með leiðsögn kl. 10-11.30. Leikfimi kl. 13-12.40. Bónusrútan kemur kl. 14.40. Leshópur kl. 13. Opið kaffihús kl. 14.30-15.15. Bústaðakirkja Félagsstarf eldri borgara í Fossvogsprestakalli, Bústaðasókn og Grensássókn verður í safnaðarsal Bústaðakirkju og hefst miðvikudaginn 11. september. Samveran byrjar kl. 13 og er til kl 16, spil, föndur, framhaldssaga og kaffið góða hjá Sigurbjörgu. Hug- leiðing og bæn og Jónas Þórir verður við píanóið. Hólmfríður djákni sér um stundina. Allir hjartanlega velkomnir. Dalbraut 18-20 Félagsvist kl. 13.30. Fella og Hólakirkja Kyrrðarstund kl. 12, súpa og brauð á vægu verði eftir stundina. Vilborg frá Hjálparstarfi kirkjunnar er gestur okkar í dag. Verið hjartanlega velkomin í gott samfélag. Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Kaffi, spjall og blöðin við hring- borðið kl. 8.50. Myndlist með Margréti kl. 9-12. Thai chi kl. 9. Leikfimi kl. 10. Hádegismatur kl. 11.30. Myndlistarhópurinn Kríurnar kl. 13. Brids kl. 13. Sídegiskaffi kl. 14.30. Allir velkomnir óháð aldri. Nánari upplýsingar í síma 411-2790. Garðabær Gönguhópur frá Jónshúsi kl. 10. Bónusrúta fer frá Jóns- húsi kl. 14.45. Vatnsleikfimi kl. 7.30/15.15. Qi-gong í Sjálandi kl. 8.30. Liðstyrkur Ásgarði kl. 11.15. Karlaleikfimi Ásgarði kl. 12. Botsía í Ás- garði kl. 12.45. Línudans Sjálandi kl. 13.30/14.30. Gerðuberg 3-5 Opin handavinnustofa kl. 8.30-16. Keramik málun kl. 9-12. Leikfimi gönguhóps kl. 10-10.30. Gönguhópur um hverfið kl. 10.30. Leikfimi Maríu kl. 10.30-11.15. Jóga kl. 11-12. Glervinnustofa með leiðbeinanda kl. 13-16. Allir velkomnir. Grensáskirkja Á þriðjudögum er kyrrðar- og fyrirbænastund í Grensáskirkju kl. 12. Létt máltíð á eftir gegn vægu gjaldi og síðan samverustund sem endar með kaffi um kl. 14. Guðríðarkirkja. Félagstarf eldri borgara miðvikudaginn 12. septem- ber kl. 13.10. Fyrsta samvera félagsstarfsins nú í haust. Helgistund í kirkjunni, fyrirbænir, söngur. Síðan verður spjall og kynning á starfinu fram að áramótum. Kaffiveitingar kr. 700.- Hlökkum til að sjá ykkur, sr. Leifur, Hrönn og Lovísa. Prjónakvöld kl. 20 fyrsta samvera á þessu hausti, kaffisopi í boði. Gullsmári Myndlist kl. 9, botsía kl. 9.30, silfursmíði kl. 13, kanasta kl. 13, tréskurður kl. 13, leshópur kl. 20 (leshópur aðeins fyrsta þriðjudag hvers mánaðar). Hraunbær 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi kl. 9. Handavinna með leiðbeinanda kl. 9-11.30. Hádegismatur kl. 11.30. Bónusbíllinn kl. 12.15. Félagsvist kl. 13.15. Kaffi kl. 14.15. Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin frá kl. 8-16, blöðin og púsl liggja frammi. Morgunkaffi kl. 8.30-10.30, útvarpsleikfimi kl. 9.45 og hádegismatur kl. 11.30. Brids í handavinnustofu kl. 13, gönguferð um hverfið með Önnu kl. 13.30 og eftirmiðdagskaffi kl. 14.30. Korpúlfar Lagt af stað kl. 8.45 frá Borgum; Korpúlfum boðið í heim- sókn í Heilsuborg. Sjúkraþjálfari mun taka á móti hópnum og kynna starfsemina. Listmálun hefst með Marteini í BORGUM kl. 9 og frjáls postulínsmálun kl. 9.30. Botsía kl. 10 og 17 í Borgum. Leikfimishópur Korpúlfa í Egilshöll kl. 11 og spjallhópur í listasmiðju í Borgum kl. 13. Sundleikfimi í Grafarvogssundlaug kl. 13.30. Neskirkja Krossgötur kl. 13. Ferðasögur úr heimsreisu, Kristján Gíslasson heimhornaflakkari. Samfélag, fróðleikur, kaffi og kruðerí. Norðurbrún 1 Morgunkaffi kl. 8.30, trésmiðja kl. 9-12, trésmiðja kl. 9- 16, opin listasmiðja kl. 9-16, morgunleikfimi kl. 9.45, upplestur kl. 11, kaffihúsaferð kl. 14, Hugleiðslan kl. 15.30. Uppl. í s. 4112760. Samfélagshúsið Aflagranda 40 Opin vinnustofa kl. 9-12.30. Botsía kl. 10.15. Tálgað í tré kl. 13. Félagsvist kl. 13. Vatnslitun kl. 13 með leiðbeinanda, ókeypis. Bíó í miðrými kl. 13.15. Kaffi kl. 14.30-15.20. Seltjarnarnes Vatnsleikfimi sundlauginni kl. 7.10. Kaffispjall í krókn- um kl. 10.30. Kvennaleikfimi í Hreyfilandi kl. 11.30. Brids í Eiðismýri 30, kl. 13.30. Helgistund á Skólabraut kl. 13.30. Karlakaffi í safnaðar- heimili kirkjunnar kl. 14. Ath. Púttið í Risinu hefst þriðjudaginn 17. september. Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið kl. 10-16. Heitt á könn- unni kl. 10–11 og hægt er að líta í blöðin. Hádegismatur er kl. 11.30- 12.15, panta þarf matinn daginn áður. Bókabíllinn kemur kl. 13.15 og Bónusbíllinn kl. 14.40. Kaffi og meðlæti er til sölu kl. 14.30–15. Allir velkomnir. Síminn í Selinu er 568-2586. Stangarhylur 4, Skák kl. 13, allir velkomnir. Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar  Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum.  Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum.  Smíðum gestahús – margar útfærslur.  Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum.  Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Til sölu LOK Á POTTA HEITIRPOTTAR.IS HÖFÐABAKKA 1 SÍMI 777 2000 Bókhald NP Þjónusta Sé um liðveislu við bókhaldslausnir o.þ.h. Hafið samband í síma 831-8682. Byggingavörur Harðviður til húsabygginga Sjá nánar á www.vidur.is Vatnsklæðning, panill, pallaefni, parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð- viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía. Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf. Upplýsingar hjá Magnúsi í símum 660 0230 og 561 1122. Húsviðhald FLÍSALAGNIR - MÚRVERK FLOTUN - SANDSPARSL MÁLUN - TRÉVERK Ásamt öllu almennu viðhaldi fasteigna Áratuga reynsla og þekking skilar fagmennsku og gæðum Tímavinna eða tilboð Strúctor byggingaþjónusta ehf. S. 893 6994 Hreinsa þakrennur fyrir veturinn og tek að mér ýmis smærri verkefni. Uppl. í síma 847 8704 manninn@hotmail.com Vantar þig fagmann? FINNA.is Rað- og smáauglýsingar ✝ Eiríkur GunnarÓlafsson fædd- ist í Keflavík 15. janúar 1936, næst- elstur í tíu systkina hópi. Hann lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja 4. sept- ember 2019. Foreldrar hans voru Ólafur Ingi- bersson og Marta Eiríksdóttir sem eru bæði látin. Systkini Eiríks voru Ingiber sem er látinn, Stef- án, Sverrir, Jóhann, látinn, Hulda, Albert, Reynir, Hjördís og Ólafur Már Ólafsbörn. Eiríkur var kvæntur Hrafn- hildi Gunnarsdóttur en þau giftu sig á jóladag árið 1955. Börn þeirra urðu fjögur en aðeins þrjú þeirra lifðu og komust til fullorðinsára. Þau voru Ólafur Þór Eiríksson, f. 19.6. 1955, d. 6.7. 2014, fyrrverandi sambýlis- kona hans var Ólöf Anna Jóns- dóttir, synir þeirra Sveinn Sig- urður, Eiríkur Unnar og Daníel Hrafn. Ólafur Þór giftist seinna SvitlönuEiríksson. Ásgeir Eiríksson, f. 7.4. 1957, maki Ólöf Jónsdóttir, börn þeirra Berglind, Gunnar Þór og Jó- hannes Snorri. Marta Eiríksdóttir, f. 1.5. 1961, maki Friðrik Þór Frið- riksson, dóttir Mörtu er Hrafn- hildur Ása Karls- dóttir og Hafsteinn Þór er sonur Friðriks Þórs. Fjórða barn Ei- ríks og Hrafnhildar var stúlku- barn sem fæddist andvana 3.10. 1968. Barnabörn og barnabarna- börn eru nú 23 talsins. Eiríkur stundaði nám við Skógaskóla frá 1950-1952. Hann lauk námi frá Loftskeytaskól- anum og réðst svo til Flugmála- stjórnar Íslands þar sem hann starfaði sem rafeindavirki í 44 ár á Keflavíkurflugvelli. Jarðarförin fer fram frá Keflavíkurkirkju í dag, 10. september 2019, klukkan 13. Elsku elsku pabbi minn, þá ertu farinn heim á vit forfeðra þinna, heim til allra þeirra sem ég trúi að taki vel á móti þér. Farinn með alla frasana með þér, alla brandarana og kímnina. Elsku pabbi minn, svo góður kall, svo heiðarlegur, umhyggju- samur og hlýr. Barngóður afi. Traustur eiginmaður. Mikill hundavinur. Pabbi minn sem ég elskaði að hlæja með. En hann gat verið kaldhæðinn húmorinn hans pabba, eins og þegar hann spurði mig hvort ég kæmi ekki örugglega í jarðarförina hans en það gerði hann nokkrum sinnum með glettni. Svarið mitt var á sömu nótum, að ég væri ekki viss um hvort ég hefði tíma eða það færi eftir því hvaða veitingar yrðu í erfidrykkjunni. Svona gát- um við fíflast og meintum ekkert með þessum orðum, heldur vor- um bara að leika okkur, aðeins að kitla kímnigáfuna og ögra hvort öðru á góðlátlegan hátt. Pabbi minn var Keflvíkingur í húð og hár, hæfileikaríkur, flink- ur og klár, dulur en fullur af glettni, stríðni og leik. Frábær pabbi sem auðvelt var að líta upp til, hann gat allt og vissi allt, sér- staklega var hann veðurglöggur. Maður tók því ekkert mark á veðurfréttum heldur hringdi í pabba sem vissi nákvæmlega hvernig veðrið yrði. Það var í eðli hans að lesa í veðrið. Svona vil ég muna pabba minn, áður en hann veiktist af alzheimers sem rændi hann verksvitinu og gleðinni oft á tíðum. Þá var ekki alltaf auðvelt að umgangast elsku pabba minn. En það rofaði til í sumar þegar frábær umönn- un starfsfólks D-álmu deildar HSS hjálpaði honum að líða bet- ur með bættri lyfjagjöf og betri skilningi okkar aðstandenda á sjúkdómnum. Þá opnaðist aftur kærleiksgáttin á milli mín og elsku pabba míns, sem mér þótti svo vænt um. Það var gott að fá að kveðja pabba minn á fallegan hátt, að eiga aftur með honum góðar stundir undir lokin. Ég samgleðst með honum núna og veit að hann er á góðum stað, laus við allar blekkingar heilans, þar sem sálin hans fær að fljúga hærra. Þar sem gleði og hlátur ríkir, endalaus ham- ingja vil ég trúa. Ég brosi þegar ég minnist elsku pabba með þakklæti fyrir allt sem ég fékk að upplifa með honum, bæði súrt og sætt, allt þetta kenndi mér. Það síðasta sem ég hvíslaði í eyra hans var takk fyrir lífið, elsku pabbi minn. Takk fyrir að vera svona góður pabbi. Hjarta mitt er einnig fullt af kærleika og þakklæti til allra þeirra sem önnuðust pabba á Heilbrigðis- stofnun Suðurnesja, einstakt starfsfólk sem á skilið fálkaorð- una. Elsku mamma mín var líka ótrúleg eins og alltaf. Þessi klettur í lífi okkar hinna, hvernig hún hjúkraði honum heima fyrir og einnig eftir eigið hjartaáfall í sumar. Mögnuð hún mamma mín. Þessi dásamlega eldri kynslóð sem er smátt og smátt að hverfa af sjónarsviðinu hefur kennt okkur svo margt. Að gefast ekki upp, að halda áfram og vera sterk í lífsins ólgusjó. Guð blessi fallega minningu pabba míns og umvefji hann englagleði og hlátri í himnaríki. Ég veit að ég á eftir að sakna þín. Hlakka til þegar við hittumst aftur og mun brosa þegar ég minnist þín, elsku kall- inn. Og pabbi … Láttu þig dreyma eða segðu annan brand- ara! Marta Eiríksdóttir. Elsku besti afi minn. Frá því ég man eftir mér hef ég alltaf verið mikil afastelpa. Þú átt sérstakan sess í hjarta mínu og munt alltaf eiga. Ég er þakk- lát fyrir allar góðu minningarnar sem ég á um þig. Ég var alltaf litla barnið í þínum augum þó að ég væri orðin fullorðin. Þú vildir passa upp á að ég hefði það gott. Við höfum alltaf verið svo góðir vinir og átt einstakt samband. Það var gaman að grínast með þér og þú hafðir alltaf áhuga á að vita hvað væri að frétta af mér og Boga. Síðustu árin sastu mikið í hægindastólnum þínum og það var notalegt að sitja hjá þér og spjalla saman. Ég var heppin að alast upp í sama bæ og þið amma og naut ég oft samvista við ykkur. Það var alltaf notalegt í Háholti 5 og við brölluðum ýmislegt saman þar. Ég man alltaf eftir því þeg- ar við gerðum lítið snjóhús í garðinum ykkar og settum síðan kerti inn í það, mér fannst það töfrum líkast. Þú varst líka alltaf til í eitthvert glens og sast stillt- ur í stól eitt skiptið án þess að segja orð á meðan ég setti rúll- urnar hennar ömmu í hárið á þér og þóttist dekra við þig eins og á snyrtistofu. Þær voru ófáar sumarbú- staðaferðirnar með þér og ömmu. Þú varst svo duglegur að vinna uppi í bústað, alltaf úti að brasa og leggja net í vatnið. Ég fékk oft að hjálpa til við vinnuna en fannst frekar erfitt að sjá lif- andi silunga í netinu. Þú leyfðir mér stundum að sleppa lifandi fiski aftur út í vatnið. Þú sóttir oft vinnubílinn þinn á leiðinni heim úr sveitinni og alltaf sat ég með þér í vinnubíln- um heim til Keflavíkur og amma keyrði hinn bílinn. Þú baðst mig um að syngja Hafið bláa hafið alla Reykjanesbrautina, þú hafð- ir svo gaman af söng. Ég man þegar ég sat í bílnum, horfði út á hafið og söng fyrir þig sama lag- ið aftur og aftur. Það er ein uppáhalds minningin mín. Þú hefur alltaf hvatt mig áfram og fylgdist vel með hvern- ig mér gekk í skólanum. Þegar ég vissi ekki alveg hvað ég vildi læra eftir stúdentinn hvattir þú mig til að læra hjúkrun. Þú sagð- ir að þá gæti ég hjúkrað þér þeg- ar þú værir orðinn gamall og las- inn. Ég ákvað að læra hjúkrun og sé ekki eftir því en þú ert hluti af ástæðunni fyrir því vali, elsku afi minn. Eftir að ég sagði þér að ég væri ófrísk á þessu ári pældirðu mikið í bumbunni og spurðir allt- af um hana. Þú sagðir mér að fara varlega með magann, sem ég hef að sjálfsögðu alltaf gert. Það var svo gaman að sýna þér sónarmyndirnar, þér fannst þetta ótrúleg tækni og hafðir svo gaman af að sjá litla krílið á mynd. Ég bjóst við að þú myndir lifa að sjá þegar krílið væri kom- ið í heiminn en ég veit að þú munt vaka yfir því og fylgjast með frá öðrum stað. Þú kvaddir okkur á friðsælan og fallegan hátt og þó að ég muni sakna þín veit ég að þér líður betur núna. Ég sé þig fyrir mér með vel sykrað kaffi í hönd að spjalla við ættingja þína og vini sem eru fallnir frá. Ég veit að þú vakir yfir okkur öllum og litla barninu í bumb- unni minni. Hvíldu í guðs friði. Þangað til við hittumst næst, elska þig elsku afi minn, Hrafnhildur Ása Karlsdóttir. Hann Eiríkur Óla Ingibers er búinn að kveðja okkur allt of snöggt. Ég átti ekki vona á því að hann væri á förum þegar ég heimsótti hann á sjúkrahúsið í ágúst. Við Eiríkur vorum búnir að vera félagar og vinir í næst- um 80 ár. Þegar við vorum að alast upp þá voru um 200 m á milli heimila okkar. Ég man enn eftir því þeg- ar við urðum vinir átta ára gaml- ir, ég var þá í öðrum bekk hjá Guðlaugu á Framnesi og þá kom Eiríkur í bekkinn því hann þurfti ekki að fara í fyrsta bekk, þar sem hann var bæði læs og skrif- andi þegar hann kom í skólann í fyrsta skiptið. Á fyrsta degi hófst vináttan okkar því hann var settur á stól við sama borð og ég. Eftir barnaskóla fórum við saman á Skógarskóla og vorum þar í tvo vetur. Eftir skólagöngu þá unn- um við saman í fiski á vetrum en á sumrin fór ég á síldaveiðar. Þegar við stofnuðum fjöl- skyldur okkar og komum yfir okkur húsnæði þá losnaði sam- bandið um tíma. En það kom saman á ný þegar Eiríkur og Hrafnhildur byggðu sér hús á Háholti en við Malla á Langholti, þá vorum við aftur orðnir ná- grannar. Við ferðuðumst mikið saman gegnum árin, ótal Spánarferðir en siglingin í Karabíska hafinu og sigling í ám og skurðum í Englandi eru ógleymanlegar. Síðar á ævinni bjuggum við hvor sínum megin við höfnina í Kefla- vík. Það má segja að við höfum verið með augun hvor á öðrum alla ævi. Á öllum þessum árum urðum við aldrei ósáttir hvor við annan. Við Malla erum afar þakklát fyrir þessa löngu og góðu vináttu alla tíð. Við viljum votta Hrafnhildi og fjölskyldu hennar okkar dýpstu samúð. Guðjón (Gaui) og Marín (Malla). Eiríkur Gunnar Ólafsson MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. SEPTEMBER 2019

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.