Morgunblaðið - 10.09.2019, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 10.09.2019, Qupperneq 22
22 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. SEPTEMBER 2019 Hólshraun 3, 220 Hafnarjörður · Símar 555 1810, 565 1810 · veislulist@veislulist.is · www.veislulist.is SKÚTAN Veitingar af öllum stærðum, hvort sem er í sal eða heimahúsi Nánar á veislulist.is Erfidrykkja 60 ára Sigursteinn ólst upp í Neðri- Hundadal í Dölum og á ættir þar að rekja langt aftur. Hann er bóndi í Neðri- Hundadal og er með sauðfjárbúskap. Sigur- steinn er formaður Búnaðarfélags Mið- dala. Maki: María G. Líndal, f. 1959, bóndi, skrifstofustjóri á Fellsenda hjúkrunar- heimili og rekur eigin bókhaldsþjónustu. Börn: Guðmundur Líndal, f. 1977, og Sigurdís Elísa Lilja, f. 1979. Barnabörnin eru sjö. Foreldrar: Hjörtur Einarsson, f. 1918, 2013, bóndi í Neðri-Hundadal, og Lilja Sveinsdóttir, f. 1925, d. 2016, kennari. Sigursteinn Hjartarson Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Einhver gæti gefið þér góð ráð varðandi fjármálin í dag. Hlustaðu vel. Ef þú getur komið böndum á fjármálin mun þér líða betur. 20. apríl - 20. maí  Naut Dagurinn hentar vel til hugleiðslu og ferða út í náttúruna. Þú ættir ekki að vera í kringum fólk sem þér líður ekki vel ná- lægt. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Þú átt ekki annars úrkosta en taka því sem að þér er rétt þessa dagana. Hlátur er allra meina bót. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Þú hefur í mörgu að snúast og skalt fá fólk í lið með þér til að leggja hönd á plóg. Kapp er best með forsjá og hafirðu það í huga fer allt vel. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Tilvalið er að snúa við blaðinu í dag hvað varðar heilsuna. Fjölskyldan hefur setið á hakanum, hvernig væri að gera eitthvað fyrir hana. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Hlustaðu á hjarta þitt því þar er svörin að finna. Umkringdu þig góðum vinum og segðu þeim hvað þú kannt vel að meta þá. 23. sept. - 22. okt.  Vog Ástarmálin ganga vel þessa dagana. Ekki vorkenna sjálfri/sjálfum þér. Það hafa það margir verra. Breyttu mótbyr í sigur. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Haltu fast utan um þína eigin buddu. Vertu vakandi fyrir því hversu miklu þú eyðir og ekki kaupa hluti sem þú hefur ekki efni á. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Þótt þér takist ekki að breyta skoðunum annarra er alveg öruggt að málflutningur þinn fellur í góðan jarðveg. Gerðu sömu kröfur til annarra og þú gerir til þín. 22. des. - 19. janúar Steingeit Þig langar mikið að hafa trú á á vissri manneskju en það styttist í að svo verði ekki mikið lengur ef hún sýnir ekki lit. Stutt ferðalag er í kortunum. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Maki þinn kemur þér á óvart. Þér verður hælt fyrir vel unnin verk og jafnvel er stöðuhækkun í vændum. 19. feb. - 20. mars Fiskar Reyndu að vera samningalipur en þú getur haft mikil áhrif um þessar mund- ir. Kapp er best með forsjá. umboðið á Íslandi var síðar formlega stofnað 17. júní 1970 af Páli og Elínu og voru þau einu starfsmennirnir þegar fyrstu bílarnir eru afhentir frá fyrirtækinu sem þá var til húsa á Ránargötu í Reykjavík. Síðar bætt- ust við starfsmenn bæði úr fjölskyld- unni og vinahópnum. Með mikilli Páli að kaupa fyrirtækið en þá gekk reksturinn erfiðlega og japanskir bílar ekki hátt skrifaðir hér á landi. Þau slá til, selja íbúð sína og bíl fyrir kaupunum og svo fór að Páll varð þjóðþekktur og ávallt kenndur við Toyota. P. Samúelsson ehf. Toyota- P áll Breiðdal Samúelsson fæddist 10. september 1929 í reisulegu timbur- húsi sem stóð við Tún- götu 1 á Siglufirði. Hann gekk fáein ár í barnaskóla Siglu- fjarðar og vann aukavinnu á síldar- plönunum og í ýmsu snatti í bænum enda líf og fjör á síldarárunum. En lífið var ekki alltaf auðvelt, 11 ára gamall hefur hann misst báða for- eldra sína. Móðuramma Páls, Mál- fríður Anna, býr á heimilinu og ann- ast fjölskylduna eftir bestu getu meðan hún lifði. Páll fer því ungur að heiman til vinnu og er m.a. sendur í sveit í Skagafjörð, bæði inni í Fljót- um sem og á Sauðanesi. Veturinn 1947-48 fer hann í hér- aðsskólann í Reykholti í Borgarfirði en ekki er til peningur til frekara náms þar svo hann kemur aftur norður á Siglufjörð. Fer síðar í Iðn- skólann á Siglufirði og eftir stutt nám þar liggur leiðin suður til Reykjavíkur með viðkomu á Skaga- strönd þar sem hann bætir við sig meiraprófsskírteini til að geta ekið fólksflutningabílum meðal annars. Páll kemst í vinnu hjá stórfyrir- tækinu Íslenskum fiski hf. sem er í eigu Vigfúsar Friðjónssonar fjöl- skylduvinar og velgjörðarmanns. Hjá honum lærði hann viðskipti auk þess að sitja einn vetur verslunar- nám samhliða vinnunni sem og ýmis námskeið bæði í Reykjavík og Lond- on. Páll stofnar ásamt tengdaföður sínum félagið B. Sigurðsson sf. sem seldi fisk til Danmerkur og flutti inn marmelaði, baunir og krydd og ýmsa matvöru. Síðar fékk félagið umboð fyrir innflutning á plastkössum frá framleiðandanum Superfoss Embal- lage. Voru þeir brautryðjendur í inn- flutningi og sölu á þessum plastköss- um sem breytti miklu í fiskvinnslu á Íslandi. Toyota á Íslandi Það var snemma sem áhugi fyrir bílum vaknaði og voru Páll og tengdafaðir hans Bogi hluthafar í Japönsku bifreiðasölunni hf. og unnu þau Páll og Elín hjá fyrirtækinu og sáu um rekstur þess um tíma. Svo fór að undir lok 7. áratugarins bauðst eljusemi og framtíðarsýn byggðu þau hjónin, ásamt fjölskyldu og sam- starfsfólki, upp eitt af stærstu fyrir- tækjum landsins sem varð þekkt fyr- ir nýjungar í markaðs- og starfsmannamálum. Samhliða rekstri Toyota-umboðsins komu þau að stofnun Lexus-umboðsins, Arctic Trucks á Íslandi og í Noregi sem og vinnuvélaumboðsins Kraftvéla. Árið 2005 má segja að Páll og Elín ákveði að skila ævistarfi sínu áfram til nýrra aðila og næstu kynslóðar til frekari uppbyggingar þegar þau selja fyrir- tækin. Framtíðarsýn og framkvæmda- gleði hafa einkennt Pál í öllu hans starfi, hafa þar skógrækt og um- hverfisvernd af ýmsum toga skipt hann mestu máli. Einnig hefur hann stutt með mikilli ánægju margskonar menningarverkefni víða um land, þó hvað mest sennilega í sínum gamla heimabæ Siglufirði. Páll er mikill íþróttamaður og æfði ungur að árum hlaup og var lang- hlaupið hans besta grein. Skíðin hef- ur hann stundað alla tíð og nýtur þess að vera til fjalla bæði hér heima og víða í Ölpum Evrópu og laxveiði hefur hann stundað í áratugi. Enn- fremur hefur Páll verið í hinum merka leikfimihópi Valdimars Örn- ólfssonar sem æfði saman um margra ára skeið í íþróttasal Há- skóla Íslands. Samhliða vinnu hefur hann fundið tíma til að taka þátt í félagsstörfum, hér áður fyrr með Skíðafélagi Reykjavíkur en sennilega fyrst og fremst með Skógræktarfélagi Ís- lands. Páll var sæmdur riddara- krossinum 17. júní 2005 fyrir framlag sitt til viðskiptalífs og menningar. Í dag er skógræktunin honum mest hugleikin og þá helst í landi þeirra Elínar í Biskupstungum þar sem þau hafa byggt upp sitt annað heimili. Fjölskylda Eiginkona Páls er Elín Sigrún Jó- hannesdóttir, f. 11.5. 1934, versl- unarmaður og húsmóðir. Foreldrar: Móðir hennar var Sigurlaug Auður Eggertsdóttir f. 9.6. 1914, d. 23.7. 2012, frá Vindheimum í Skagafirði. Uppeldisfaðir Elínar var Bogi Óskar Páll Samúelsson verslunarmaður – 90 ára Hjónin Elín og Páll gengu í hjónaband fyrir rúmum 58 árum. Byggði upp Toyota á Íslandi Að sinna ræktinni Páll ásamt Björgvini Eggertssyni og Sigurjóni Kristinssyni. Ingimunda Guðrún Þorvaldsdóttir (alltaf kölluð Munda), Grænumörk 2 Selfossi, er 90 ára í dag. Munda er ættuð frá Ströndum í Stein- grímsfirði. Hún á sex börn, 15 barna- börn og 21 langömmubarn. Hún verður heima á afmælisdaginn. Árnað heilla 90 ára afmæli 40 ára Þórhildur er Akureyringur en býr í Reykjavík. Hún er orku- og umhverfis- verkfræðingur frá Tækniháskólanum í Þrándheimi og er með doktorspróf í kolefnis- jöfnuðum byggingum frá sama skóla. Þórhildur er framkvæmdastjóri hjá Grænni byggð. Hún er varaformaður Landverndar. Maki: Egil Ferkingstad, f. 1979, töl- fræðingur hjá Decode. Börn: Tvíburarnir Óðinn og Elma, f. 2009. Foreldrar: Kristján Baldursson, f. 1945, byggingatæknifræðingur, og Þórey Ey- þórsdóttir, f. 1943, sálfræðingur og lista- kona. Þau eru búsett í Vesturbænum. Þórhildur Fjóla Kristjánsdóttir Til hamingju með daginn

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.