Morgunblaðið - 10.09.2019, Page 26
26 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. SEPTEMBER 2019
mikið til sín taka á miðsvæðinu.
Willum var oftar en ekki miðpunkt-
urinn í sóknaruppbyggingu liðsins
og annan leikinn í röð skoraði hann
gott mark. Miðverðirnir Ari Leifsson
og Ísak Óli Ólafsson skiluðu hlut-
verkum sínum vel og skoruðu báðir
lagleg skallamörk. Alex Þór Hauks-
son, sem kom inn í liðið fyrir Daníel
Hafsteinsson, var sterkur á miðjunni
og á köntunum sköpuðu Jón Dagur
Þorsteinsson og Mikael Anderson
usla í vörn Armena með hraða sínum
og leikni. Eins og Willum skoraði
Jón Dagur einnig í leiknum á móti
Armenum. Þetta er spennandi lið
undir stjórn Arnars Þórs Viðars-
sonar og Eiðs Smára Guðjohnsen en
það mun virkilega reyna á það í
næsta mánuði þegar það sækir Svía
heim og tekur á móti Írum.
Strákarnir buðu upp á
flugeldasýningu í Víkinni
Ísland burstaði Armeníu 6:1 og fer afar vel af stað í undankeppni EM
Morgunblaðið/Eggert
Bestur Willum Þór Willumsson fagnar marki sínu í Víkinni, en hann var besti maður vallarins.
Í FOSSVOGI
Guðmundur Hilmarsson
gummih@mbl.is
Strákarnir okkar í U21 árs landslið-
inu buðu upp á flugeldasýningu í
blíðunni í Víkinni í gær þegar þeir
burstuðu Armena 6:1 í öðrum leik
sínum í undankeppni Evrópumóts-
ins. Ísland hefur þar með unnið báða
leiki sína í riðlinum og er komið í
toppsætið en þess ber þó að geta að
Svíar og Ítalir hefja ekki undan-
keppnina fyrr en í kvöld en þeir
verða ásamt Írum þau lið sem keppa
um efstu sætin ásamt vonandi Ís-
lendingum. Getumunurinn var aug-
ljós á liðunum en það tók þó íslenska
liðið hálftíma að brjóta ísinn. Það
gerði besti maður vallarins, Willum
Þór Willumsson, með laglegri koll-
spyrnu. Á tíu mínútna kafla gerði ís-
lenska liðið nánast út um leikinn, en
áður en fyrri hálfleikurinn var allur
bættu Ísak Óli Ólafsson og fyrirlið-
inn Jón Dagur Þorsteinsson við
tveimur mörkum.
Það var smá einbeitingarleysi og
værukærð yfir íslenska liðinu fyrsta
stundarfjórðunginn í seinni hálfleik
og Armenum tókst að minnka mun-
inn eftir mistök Patriks Gunnars-
sonar á milli stanganna. Eftir að Ar-
menar misstu mann út af með rautt
spjald á 71. mínútu setti íslenska lið-
ið á fulla ferð. Jónatan Ingi Jónsson
og Brynjólfur Darri komu ferskir
inn á og báðir skoruðu mark auk
þess sem Jónatan lagði upp eitt. Í
millitíðinni stangaði Ari Leifsson
boltann í slá og inn og fimm marka
sigur Íslendinga var staðreynd.
Markmiðið sem liðið setti sér fyrir
fyrstu tvo leikina náðist, en Ísland
vann Lúxemborg í Víkinni á föstu-
dagskvöldið 3:0.
Willum Þór öflugur
Eins og áður segir var Willum Þór
besti maður vallarins, en hann lét
1:0 Willum Þór Willumsson 30.
2:0 Ísak Óli Ólafsson 34.
3:0 Jón Dagur Þorsteinsson 40.
3:1 Karen Melkonyan 60.
4:1 Jónatan I. Jónsson 73.
5:1 Ari Leifsson 75.
6:1 Brynjólfur D.Willumsson 79.
I Gul spjöldÍsak Óli Ólafsson (Íslandi),
Erik Vardanyan, German Kurbas-
hyan, Hovhannes Nazaryan, Vah-
an Bichakhchyan (Armeníu)
ÍSLAND – ARMENÍA 6:1
I Rauð spjöldVahan Bichakhchyan (Armeníu)
Dómari: Igor Pajac frá Króatíu
Áhorfendur: 335.
MM
Willum Þór Willumsson
M
Ísak Óli Ólafsson
Jón Dagur Þorsteinsson
Alex Þór Hauksson
Mikael Anderson
Jónatan Ingi Jónsson
Lokakeppni HM karla í Kína
K-RIÐILL:
Tékkland – Grikkland...........................77:84
Bandaríkin – Brasilía ............................89:73
L-RIÐILL:
Dóminíska lýðveldið – Litháen ............55:74
Frakkland – Ástralía...........................98:100
O-RIÐILL:
Japan – Svartfjallaland.........................65:80
Tyrkland – Nýja-Sjáland..................101:102
P-RIÐILL:
Jórdanía – Senegal................................79:77
Þýskaland – Kanada .............................82:76
KÖRFUBOLTI
Grikkland missti af sæti í átta liða úrslitum heimsmeist-
aramóts karla í körfubolta, þrátt fyrir 84:77-sigur á
Tékklandi í lokaumferð milliriðla í Kína í gær. Grikkir
eru því á heimleið með stórstjörnuna Giannis Anteto-
kounmpo innanborðs. Tékkar komust hins vegar áfram
ásamt Bandaríkjamönnum, sem unnu Brasilíu 89:73 og
fengu fullt hús.
Annað firnasterkt Evrópulið situr eftir því Litháen
komst ekki áfram. Ástralía hefur unnið alla fimm leiki
sína og fór áfram ásamt Frökkum en liðin mættust í gær
og Ástralía sigraði 100:98.
8-liða úrslitin hefjast í dag þegar Argentína og Serbía
mætast annars vegar og Spánn og Pólland hins vegar. Síðari tveir leikir
átta liða úrslitanna eru spilaðir á miðvikudag og þá eigast við Bandaríkin
og Frakkland annars vegar og Ástralía og Tékkland hins vegar. Tékkar,
sem komnir eru í 8-liða úrslit á HM, máttu sætta sig við tap fyrir Íslandi í
undankeppninni fyrir HM í Laugardalshöllinni fyrir einu og hálfu ári,
76:75, eftir mikla spennu. sport@mbl.is
Antetokounmpo á heimleið
Giannis
Antetokounmpo
Elvar Örn Jónsson fór mikinn fyrir lið sitt Skjern þegar
liðið fékk Lemvig í heimsókn í dönsku úrvalsdeildinni í
handknattleik í gær. Leiknum lauk með 34:27-sigri Skjern
en Elvar Örn skoraði sjö mörk og var markahæstur. Þá
gaf Selfyssingurinn tvær stoðsendingar að auki, en Skjern
leiddi með fjórum mörkum í hálfleik, 18:14. Björgvin Páll
Gústafsson varði fimm skot í marki Skjern, en Patrekur
Jóhannesson þjálfarar liðið, sem er með 2 stig í áttunda
sæti deildarinnar eftir fyrstu tvo leiki sína.
Þráinn Orri Jónsson og liðsfélagar hans í Bjerringbro-
Silkeborg unnu stórsigur gegn SönderjyskE, 35:21. Þrá-
inn Orri komst ekki á blað en Arnar Birkir Hálfdánarson
skoraði eitt mark fyrir SönderjyskE. Sveinn Jóhannsson komst ekki á blað
hjá tapliði SönderjyskE.
Þá unnu Rut Jónsdóttir og liðsfélagar hennar í Esbjerg 23:19-útisigur
gegn Holstebro en Rut skoraði ekki í leiknum. bjarnih@mbl.is
Selfyssingurinn markahæstur
Elvar
Örn Jónsson
EM U21 karla
1-RIÐILL:
Ísland – Armenía.......................................6:1
Undankeppni EM karla 2020
C-RIÐILL:
Eistland – Holland ....................................0:4
Norður-Írland – Þýskaland......................0:2
Staðan:
Þýskaland 5 4 0 1 17:6 12
Norður-Írland 5 4 0 1 7:4 12
Holland 4 3 0 1 14:5 9
Hvíta-Rússland 5 1 0 4 3:10 3
Eistland 5 0 0 5 2:18 0
E-RIÐILL:
Aserbaídjan – Króatía ..............................1:1
Ungverjaland – Slóvakía ..........................1:2
Staðan:
Króatía 5 3 1 1 10:5 10
Slóvakía 5 3 0 2 9:7 9
Ungverjaland 5 3 0 2 7:6 9
Wales 4 2 0 2 4:4 6
Aserbaídsjan 5 0 1 4 5:13 1
G-RIÐILL:
Lettland – N-Makedónía..........................0:2
Pólland – Austurríki .................................0:0
Slóvenía – Ísrael ........................................3:2
Staðan:
Pólland 6 4 1 1 8:2 13
Slóvenía 6 3 2 1 12:5 11
Austurríki 6 3 1 2 13:6 10
Ísrael 6 2 2 2 11:11 8
N-Makedónía 6 2 2 2 8:8 8
Lettland 6 0 0 6 1:21 0
I-RIÐILL:
Rússland – Kasakstan ..............................1:0
San Marínó – Kýpur .................................0:4
Skotland – Belgía ......................................0:4
Staðan:
Belgía 6 6 0 0 19:1 18
Rússland 6 5 0 1 18:4 15
Kýpur 6 2 1 3 11:6 7
Kasakstan 6 2 1 3 8:9 7
Skotland 6 2 0 4 5:13 6
San Marínó 6 0 0 6 0:28 0
Svíþjóð
Växjö – Linköping ................................... 1:0
Anna Rakel Pétursdóttir lék allan leik-
inn með Linköping.
KNATTSPYRNA