Morgunblaðið - 10.09.2019, Page 28

Morgunblaðið - 10.09.2019, Page 28
28 MENNING MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. SEPTEMBER 2019 SÉRBLAÐ –– Meira fyrir lesendur NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR: Katrín Theódórsdóttir Sími: 569 1105 kata@mbl.is Heimili & hönnun fylgir Morgunblaðinu föstudaginn 27. september Skoðuð verða húsgögn og innréttingar, skrautmunir og fylgihlutir fyrir heimilið, litir og lýsing ásamt mörgu öðru. PÖNTUN AUGLÝSINGA: Til mánudagins 23. september. Íslenzka óperan endurfrum-sýndi vinsælustu (og aðmargra haldi beztu) klassískugamanóperu allra tíma sl. laugardag við fullfermi gesta. Nú – í fyrsta skipti á þessari öld – í Þjóðleik- húsinu. Áður hafði maður séð upp- færslu Íslensku óperunnar (ÍÓ) á sama verki í þáverandi húsnæði hennar í Gamla bíói 2004. S.s. í smærri umgjörð þar sem bauðst t.a.m. ekki notkun hringekju á sviði, sem óhætt má segja að hafi verið full- nýtt að þessu sinni. Meðal annarra nýjunga má nefna óvenjumargar frumraunir ungra söngvara, er stóðu sig undantekn- ingarlítið vel. Fyrir utan meira sjón- rænt „sprell“ en áður hefur sézt í hér- lendri óperuuppfærslu, þar sem nánast allar persónur verksins voru á fleygiferð um sviðið frá upphafi til enda, þrátt fyrir á stundum eldkrefj- andi aríur (en samt oftast án þess að blása úr nös!) Það má svo bollaleggja um til- ganginn. Á með slíku flaumósa flóa- sprikli að ná betur til forsenduminni yngri kynslóða í neyzluhelsi markaðs- væðingar á öld augans, þar sem tor- sýnilegri skilaboð tónlistarinnar sjálfrar mæta afgangi? Ræður nú tízkukall tímans – og kannski líka beinhörð arðsemisjónarmið, í beinni samkeppni við offramboð skyndi- afþreyingar? Hvað sem því líður verður allavega að hrósa einsöngvurum og kór kvöldsins fyrir að standa betur undir kröfum Mozarts en vænta mætti við þessar orkufreku viðbótarkvaðir stjórnenda leiks og sviðshreyfinga, enda stundum nánast á mörkum hins mögulega. Má reyndar stórefast um að fyrri tíma óperustjörnur á við Caruso og Flagstad hefðu látið bjóða sér annað eins! En nú er öldin önnur. Eins og gefur að skilja um jafn al- þekkta óperu beinist athyglin ekki sízt að frammistöðu einstakra ein- söngvara, líkt og að afrekum frjáls- íþróttamanna í ólympískum leik- vangsgreinum. En þá vandast málið – meður því að í mínum eyrum stóð að þessu sinni varla nokkur verulega fram úr samherjum að músíklegri túlkun og færni; allra sízt með af- stæðri hliðsjón af aldri og reynslu. Óneitanlega er spurning hvort auð- veldara hefði verið að skilja á milli söngvaranna í sýnu ,hlédrægari‘ sviðsframkomu, samfara auknum fókus á tónrænt inntak á kostnað ytri leiktilþrifa. En í heild sá ég lítinn sem engan afgerandi mun. Öll hlutverkin voru í dágóðum höndum, og þyrfti að leita að algerum smáatriðum til að gera upp á milli hvers og eins. Einmitt þetta var kannski hið mest sláandi við þessa frumsýningu. Ótrú- lega góð og fjölbreytt túlkun allra, þrátt fyrir á köflum ómældar auka- kröfur til leikrænna (og líkamlegra) tilþrifa. Mér er fyrirmunað að skilja hvernig slíkt er hægt – en það gerð- ist! Kórinn var hér nokkru fyrir- ferðarminni en í ýmsum öðrum óp- erum, en náði samt fullum hæðum fyrri sýninga ÍÓ að krafti og sveigjan- leika. Og hljómsveitin – burtséð frá stakri ósamtekt í blábyrjun – hélzt glampandi glæsileg allt til enda í lif- andi samstillingu við einsönginn und- ir greinilega vökulli stjórn Bjarna Frímanns neðan úr gryfju. Sú samstilling var vitaskuld einnig sviðsnánd Þjóðleikhússins að þakka. Ólíkt gímaldi Eldborgar var heyrðin hér mun „intímari“. Söngvarar gátu leyft sér veikari söng þá við átti en í hinu mikla tónkvikuhólfi Hörpu og stjórnandinn haft beint augna- samband við jafnvel fjærst stöddu persónur. Og áhorfendur gátu fylgzt með hverju fótmáli í öllum bægsla- ganginum, sem verður varla sagt um öftustu sæti Eldborgar. Það var engin spurning. Hér átti Fígaró heima! Hitt er svo annað mál hvernig sjaldkomull gestur Þjóðleikhúss upp- lifði vægast sagt naumt fótaplássið milli sætaraða, ekki sízt í samanburði við glerkistuna við höfnina, og vakti það illan skyndigrun um að þrengt hefði verið frá upphaflegri hönnun í hagvaxtarskyni. Minna mál hefði svo verið að tryggja auðlæsari söngtexta á skjám með því að einfalda uppskrúfaða orðaröð þýðandans. Þótt kunni að hafa tekið mið af sönghæfni (virðingarvert í sjálfu sér) varð það hins vegar aðeins til að gera óperu- gestum lífið leitt á þeim ofsahraða sem flaug um fjalir. Að því slepptu má engu að síður óska flytjendum og ÍÓ til hamingju með í flesta staði vel heppnaða frum- sýningu, er mun án efa laða marga að góðu gamni næstu kvöldin. Fígaró á fleygiferð Ljósmynd/Jóhanna Ólafsdóttir Dágott Óska má flytjendum og ÍÓ til hamingju með í flesta staði vel heppnaða frumsýningu, segir m.a. í gagnrýni. Þjóðleikhúsið Brúðkaup Fígarós bbbmn Brúðkaup Fígarós (Le nozze di Figaro) K492 eftir W.A. Mozart. Líbrettó: Lorenzo Da Ponte. Leikstjórn: John Ramster. Hljómsveitarstjóri: Bjarni Frímann Bjarnason. Leikmynd og bún- ingar: Bridget Kimak. Lýsing: Halldór Örn Óskarsson. Sviðshreyfingar: Katrín Gunnarsdóttir. Ísl. skjátextaþýðing: Karl Jóhann Bjarnason. Kór og hljómsveit ÍÓ (kórstj.: Magnús Ragnarsson, konsert- meistari: Nicola Lolli). Söngvarar: Andrey Zhilikhovsky Bar. (greifinn), Eyrún Unnarsdóttir S (greifynjan), Andri Björn Róbertsson B (Fígaró), Þóra Einarsdóttir S (Súsanna), Karín Björg Torbjörnsdóttir S (Cherubino), Davíð Ólafsson B (dr. Bartolo), Hanna Dóra Sturludóttir MS (Marcellina), Sveinn Dúa Hjörleifsson T (Don Basilio), Eyjólf- ur Eyjólfsson T (Don Curzio), Valdimar Hilmarsson B (Antonio), Harpa Ósk Björnsdóttir S (Barbarina) og Sigur- bjartur Sturla Atlason (Zanni). Frum- sýning á Stóra sviði Þjóðleikhússins laugardaginn 6. september 2019. RÍKARÐUR Ö. PÁLSSON TÓNLIST Orgelkvartettinn Apparat hélt í gær upp á 20 ára afmæli sitt en hinn 9. september árið 1999 hélt kvartettinn sína fyrstu tónleika í Tjarnarbíói á vegum Tilraunaeld- hússins og Jazzhátíðar Reykjavík- ur. Hann var þá skipaður Herði Bragasyni, Jóhanni Jóhannssyni, Sighvati Ómari Kristinssyni og Úlfi Eldjárn og bættist síðar við trommuleikarinn Þorvaldur Gröndal en árið 2001 tók Arnar Geir Ómarsson við af honum sem trymbill. Jóhann hætti í hljóm- sveitinni árið 2016 en hann lést í fyrra. Hljómsveitin hefur gefið út tvær breiðskífur, annars vegar Apparat Organ Quartet árið 2002 og Pólýfóníu árið 2010. Hún hef- ur einnig gefið út plötu með endurhljóðblöndunum, Pólifóníu Remixes árið 2012. Hljómsveitin hefur komið fram víða bæði hér á landi og erlendis og í tilefni af afmælinu í gær sendi hún frá sér nýtt lag, „Alfa partý“, sem kemur út á vegum danska tónlsitarútgáfufyrirtæk- isins Crunchy Frog. Er það fyrsta útgáfa hljómveitarinnar í heil sjö ár og er laginu lýst í tilkynningu sem laufléttum samkvæmissmelli og að honum fylgi nýtt dansspor sem kvartettinn hafi verið að þróa. Dans þessi verður kynntur tónleikagestum í Danmörku á næstunni þar sem Apparat mun koma fram á tónleikum í Kaup- mannahöfn um næstu helgi, 13. september, á tónleikastaðnum Alice og degi síðar, 14. septem- ber, í Pumpehuset. Fyrsta lag tvítugs Appa- rats í sjö ár Apparat Hljómsveitin Apparat, frá vinstri Arnar, Hörður, Sighvatur og Úlfur. Tónlistarborgin Reykjavík er nýj- asti meðlimur í alþjóðlegu tengsla- neti tónlistarborga, Music Cities Network (MCN), ásamt Bergen og Manchester, að því er fram kemur í tilkynningu. Í MCN eru níu borgir: Berlín, Hamborg, Sydney, Man- chester, Groningen, Nantes, Árós- ar, Bergen og Reykjavík. Markmið netsins er að stuðla að samtali og samstarfi tónlistarfólks, fagaðila og menningar- og menntastofnana þvert á tónlistarborgir, vinna að rannsóknum og miðla þekkingu og reynslu, auk þess að rýna í og miðla hugmyndum er varða tónlistar- stefnu borga svo þátttökuborg- irnar geti lært af fyrirmyndum og þannig orðið enn betri tónlistar- borgir. „Þátt- taka Reykjavík- ur í Music Cities Network mun án efa styrkja Reykjavík sem tónlistarborg auk þess sem tónlistarfólk, fagfólk í tónlist og mennta- og menningar- stofnanir í tónlist munu njóta góðs af,“ segir í tilkynningu. Þann 19. september nk. mun Teitur Magnússon leika á Reeper- bahn-hátíðinni á sérstöku MCN- kvöldi. Í tengslaneti tónlistarborga Teitur Magnússon Gerður Kristný hlýtur lofsam- legan dóm á danska vefnum Nordjyske fyrir ljóðabálk sinn Sálumessu. Segir gagn- rýnandi að þegar horft sé til helstu þungavigtar- manna í ljóðlist samtímans sé enginn vafi á því að Gerður sé þeirra á meðal. Bók hennar hlýtur fullt hús stjarna, sex af sex mögulegum. Níunda ljóðabók Gerðar, Heimskaut, er væntanleg. Gerður Kristný Gerður þunga- vigtarljóðskáld Myndlistar- maðurinn Guð- mundur Ármann opnaði sýningu á nýjum vatns- litamyndum í sal Íslenskrar graf- íkur í Hafnarhús- inu, Tryggva- götu 17, um helgina. Sýn- ingin heitir Litað vatn og er myndefnið sótt í landslag á Tröllaskaga. Allar eru myndirnar málaðar úti undi berum himni. Guð- mundur á að baki langan feril sem myndlistarmaður og -kennari. Guðmundur Ármann Guðmundur sýnir Litað vatn hjá ÍG

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.