Morgunblaðið - 10.09.2019, Page 32
Fyrstu tónleikar vetrarins í Tíbrá,
tónleikaröð Salarins, fara fram í
kvöld kl. 19.30. Strokkvartettinn
Siggi mun þá flytja strengjakvart-
etta eftir fimm kventónskáld, þær
Kaiju Saariaho, Fanny Mendels-
sohn, Karólínu Eiríksdóttur, Sofiu
Gubaidulina og verk eftir Arngerði
Maríu Árnadóttur verður frum-
flutt.
Terra Memoria
með Sigga í Tíbrá
ÞRIÐJUDAGUR 10. SEPTEMBER 253. DAGUR ÁRSINS 2019
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 670 kr.
Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr.
PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr.
Valur fer vel af stað í úrvalsdeild
karla í handknattleik, Olísdeildinni,
en liðið vann sex marka sigur gegn
Fram í fyrstu umferð deildarinnar í
Origo-höllinni á Hlíðarenda í gær.
Leiknum lauk með 20:14-sigri Vals
en staðan í hálfleik var 10:7, Vals-
mönnum í vil. Val er spáð góðu
gengi í vetur en Fram er spáð í
neðri hluta deildarinnar. »27
Öruggt hjá Val gegn
Fram í Reykjavíkurslag
ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM
Nýsjálendingurinn Betsy Hassett er
leikmaður umferðarinnar hjá
Morgunblaðinu í
Pepsí-deild
kvenna. Hassett
lék vel fyrir KR í
4:0 stórsigri á
Þór/KA og með
frammistöðu sinni
að undanförnu hafa
KR-ingar forð-
að sér frá
bullandi bar-
áttu um að
halda sæti sínu í
deildinni. Í það
virtist stefna fyrir
nokkrum vikum.
Topplið Vals á þrjá
fulltrúa í liði um-
ferðarinnar. »24
Hassett er leikmaður
16. umferðar
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Réttarhelgin er skemmtilegasti
tími ársins hér í sveitinni. Anna-
samir dagar en líka ánægjulegir
samfundir við skemmtilegt fólk, sem
jafnvel kemur langt að til þess að
upplifa þá einstöku stemningu sem
fylgir göngum, réttum og fjárragi,“
segir Gunnhildur Gylfadóttir, bóndi
á Steindyrum í Svarfaðardal.
Kona með talstöð
Síðastliðinn föstudag voru
gangnasvæði í vestanverðum daln-
um smöluð, en það var árla morguns
sem mannskapurinn lagði á bratt-
ann í fjárleit.
Farið var um hlíðar og upp á
brúnir, en niðri á vegi stóð Gunn-
hildur gangnastjóri með talstöðina
og beindi fólki á réttu slóðina.
Nokkuð af fénu var þegar komið úr
högunum niður í byggð, svo aðeins
þurfti að draga nokkra tugi fjár í
dilka í réttinni við bæinn Urðir.
Féð var hins vegar mun fleira í
Tungurétt, sem er aðalrétt Svarf-
dæla. Þær voru á sunnudaginn.
Réttarstörfum lauk seinnipartinn og
eftir það gerði fólk sér glaðan dag.
Margir fóru á bæi og fengu sér
hressingu og að Steindyrum komu
rúmlega 100 manns í mat.
Hangikjöt og geitalæri
„Hér var á borðum kálfalæri,
hangikjöt, nautatunga, geitalæri og
hrátt reykt kiðalæri, svo eitthvað sé
nefnt. Á sumum bæjum er kjötsúpa
á boðstólum svo að fjölbreytnin er
ráðandi. Réttarballið var svo í
Höfða, sem er lítið samkomuhús hér
í dalnum okkar. Siglfirðingarnir
Stulli og Dúi sáu um fjörið eins og
undanfarin ár. Fólk dansaði fram á
nótt og sumir eru enn ekki komnir á
fætur,“ sagði Gunnhildur þegar hún
ræddi við Morgunblaðið um há-
degisbil í gær. Þau Hjálmar Her-
bertsson hafa lengi búið á Stein-
dyrum; eru með um 100 fjár en
kúabúskapur og mjólkurframleiðsla
eru þó í aðalhlutverki.
Vegan vekur ugg
Nú þegar réttastörfum er lokið er
næsta mál að koma fé í slátrun. „Við
teljum okkur nokkuð vel sett í ár, því
skilaverð afurðastöðvanna hefur
verið hækkað nokkuð milli ára; hjá
Norðlenska um rúmlega 10%,“ segir
Gunnhildur, sem er formaður Bún-
aðarsambands Eyjafjarðar. Þekkir
því vel til mála í landbúnaði og er
sjálf afdráttarlaus í skoðunum og
málflutningi:
„Í umræðu meðal bænda í dag ber
hátt þessa undarlegu stefnu Reykja-
víkurborgar að veganvæða skólana
og draga úr neyslu á kjöti. Þetta
vegur ugg, bændur hljóta að spyrja
sig hvaða áhrif sú stefnubreyting al-
mennt hefur á neyslumenningu
þjóðarinnar – enda getur þetta haft
mikil áhrif á landbúnaðinn. Svo höf-
um við auðvitað líka ákveðnar
áhyggjur af innflutningi á hráu kjöti
sem nú stendur til að heimila. En
auðvitað erum við ekki að velta okk-
ur mikið upp úr þessum ósköpum
núna um réttardagana; hér í Svarf-
aðardal var um helgina fullt af kátu
og glöðu fólki, sem tók þátt í göng-
um og réttastússi sem í eðli sínu er
hátíð.“
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Bóndi Gunnhildur úti á mörkinni með sjónaukann sem er ómissandi við
smalastörf. Buff að hætti forseta Íslands er þægilegt að hafa á höfði.
Gangnastjóri á Steindyrum
Skemmtileg réttarhelgi í Svarfaðardal að baki Einstök
stemning ríkti í sveitinni 100 manns komu í matarboðið
Kindur Féð þykir koma vænt úr
högunum eftir sumarbeitina.
*Heppinn áskrifandi fær að velja á milli
Corolla Hatchback, Corolla Touring Sports
og Corolla Sedan; þriggja glæsilegra Hybrid-
bíla með 1,8 lítra vél í Active-útfærslu.
ÍS
LE
N
SK
A/
SI
A.
IS
/M
O
R
92
31
6
08
/1
9
ÁENDANUM
VELURÞÚ
COROLLU
HEPPINN
ÁSKRIFANDI
verður dreginn út 16. október.
Allir áskrifendurMorgunblaðsins
erumeð í leiknum. Hérmá sjá
valkostina sem einn af áskrif-
endum okkar fær að velja um
þegar hann fær að gjöf nýja
og glæsilega Toyota Corolla.*
Fylgstumeð.