Morgunblaðið - 25.09.2019, Page 1
M I Ð V I K U D A G U R 2 5. S E P T E M B E R 2 0 1 9
Stofnað 1913 225. tölublað 107. árgangur
NÝTT WOW Í
LOFTIÐ Á
NÆSTUNNI
NÆSTUM 2
MILLJÓNIR
SPILANA
MILLJARÐA-
SAMNINGAR Í
RÚSSLANDI
GABRÍEL ÓLAFS, 28 200 MÍLUR 40 SÍÐURVIÐSKIPTAMOGGINN
Guðni Einarsson
Baldur Arnarson
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dóms-
málaráðherra segir til skoðunar að
sameina embætti Ríkislögreglustjóra
og Lögreglu höfuðborgarsvæðisins.
Hún setti af stað vinnu í ráðuneytinu í
síðustu viku varðandi skipulag lög-
reglunnar og miðar vinnunni vel. Ás-
laug sagði það hafa áður komið fram
að núverandi skipulag væri svolítið
„komið á endastöð“. Ráðherrann
leggur áherslu á það stefnumið „að
lögreglan í landinu verði í vaxandi
mæli rekin sem ein samhent heild,
óháð því hvernig yfirstjórn hennar
verður háttað“. Þetta kom fram í
bréfi ráðherrans til lögreglunnar sl.
föstudag. Á næstu dögum verður haft
nánara samráð við viðtakendur bréfs-
ins. Ráðherrann sér fyrir sér að
breytingarnar verði í skrefum. „Við
getum tekið fyrstu skrefin mjög
hratt,“ sagði hún í samtali í gær-
kvöldi.
Fulltrúar GRECO, ríkjahóps gegn
spillingu innan Evrópuráðsins, telja
rétt að taka skipulag lögreglunnar á
Íslandi til endurskoðunar. Meðal ann-
ars starfi níu lögreglustjórar á Íslandi
sjálfstætt þótt þeir eigi að heyra und-
ir ríkislögreglustjóra.
Þetta er meðal þess sem kom fram
í síðustu skýrslu GRECO en hún
byggðist m.a. á samtölum við dóms-
málaráðherra, fulltrúa dómsmála-
ráðuneytis og ríkislögreglustjóra.
Lýstu þessir aðilar því sem betur
mætti fara í núverandi skipulagi.
Þá bentu fulltrúar GRECO á að
bæta þyrfti verkferla til að takast á
við spillingu innan lögreglunnar.
Jafnframt þyrfti að skýra reglur er
vörðuðu aukastörf lögreglumanna og
mögulega hagsmunaárekstra.
Málefni ríkislögreglustjóra hafa
verið til umræðu að undanförnu, þá
ekki síst í kjölfar viðtals við Harald
Johannessen í Morgunblaðinu. Taldi
hann brýnt að endurskipuleggja lög-
regluna og fækka lögregluembætt-
um. Með því mætti hagræða og bjóða
borgurunum betri löggæslu.
Úrbóta þörf hjá lögreglu
Til skoðunar er að sameina embætti Ríkislögreglustjóra og LRH Fulltrúar
ríkjahóps gegn spillingu telja rétt að endurskoða skipulag íslensku lögreglunnar
MMálefni lögreglu »2 & 6
Morgunblaðið/Eggert
Húsgögn Magnús og Júlíana opn-
uðu NORR11 hér á landi árið 2014.
Magnús Berg Magnússon tók við for-
stjórastöðunni hjá skandinavíska
hönnunarhúsgagnafyrirtækinu
NORR11 árið 2017. Fyrirtækið selur
vörur sínar í 40 löndum en stefnir á
Bandaríkjamarkað. „Stefnan er á
næstu árum að ráða sölufólk inn á
Bandaríkjamarkað og vonandi koma
upp vöruhúsi og vera með söluskrif-
stofur þar. Það er náttúrlega gríðar-
lega kostnaðarsamt að gera þetta
rétt, að ráða rétta fólkið frá byrjun og
setja þetta rétt upp,“ segir Magnús í
ítarlegu viðtali á miðopnu Viðskipta-
Moggans í dag. Fyrirtækið leitar nú
að fjárfestum til að leiða þá uppbygg-
ingu en verði af því má í raun segja að
hringnum hjá Magnúsi og Júlíönu Sól
Sigurbjörnsdóttur, konu hans, sem
opnaði verslun NORR11 hér á landi
ásamt Magnúsi, verði lokað. Upphaf-
lega gerðu þau hjónin, er þau bjuggu í
New York, viðskiptaáætlun með það í
huga að opna verslun NORR11 vest-
anhafs. Stofnendur fyrirtækisins
töldu þá að í ljósi ungs aldurs
NORR11 væri það ekki reiðubúið fyr-
ir svo stórt skref og sköluðu þá niður
viðskiptaáætlunina fyrir Íslands-
markað. »ViðskiptaMogginn
Stefna á Bandaríkjamarkað
NORR11 leitar fjárfesta fyrir uppbyggingu vestanhafs
Stærsti gámakrani landsins, Straumur, og hæsta mannvirki
höfuðborgarsvæðisins gnæfir yfir flutningaskipin við hafn-
arbakkann. Nýi gámakraninn var tekinn í notkun í ágúst síð-
astliðnum. Hann er hluti af uppbyggingu Eimskips í höfninni
og getur þjónað stærri skipum og er mun afkastameiri en for-
veri hans, Jaki, sem var tekinn í notkun 1984.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Vörur streyma inn
og út um Sundahöfn
„Hin „nýja stétt“ yfirmanna á Efl-
ingu tamdi sér þann stjórnunarstíl
að þeir sem andmæltu þeim eða
reyndu að leiðbeina þeim féllu þegar
í stað í ónáð. Annaðhvort var að
hlýða yfirmönnum í einu og öllu eða
taka pokann sinn,“ skrifar Þráinn
Hallgrímsson, fyrrverandi skrif-
stofustjóri Eflingar, í aðsendri grein.
Hann segir að starfsmenn sem urðu
fyrir þessari framkomu hafi haft
langa reynslu og víðtæka þekkingu
af starfi fyrir félagið.
Þráinn segir að Sólveig Anna
Jónsdóttir, formaður Eflingar, hafi
tilkynnt það á fjölmennum starfs-
mannafundi í maí 2018 að honum
yrði vikið úr starfi skrifstofustjóra.
Þá hafði hann starfað í hálfan fjórða
áratug fyrir verkalýðshreyfinguna.
Hann segir að forystumenn Eflingar
hagi sér eins og verstu atvinnurek-
endur. „Mál fjögurra starfsmanna
eru nú í meðferð lögmanna sem
starfsmenn hafa þurft að útvega sér
til að verja hagsmuni sína. Þá eru
einnig fleiri starfsmenn í langtíma-
fjarvistum sem hafa hrakist burt af
vinnustaðnum vegna framkomu
stjórnenda.“ »16
Þeir sem andmæla
forystunni falla í ónáð
Fyrstu átta mánuði ársins var
tæplega 7.900 bílum fargað, eða
984 bílum að meðaltali á mánuði.
Það er heldur meira en sömu
mánuði í fyrra. Allt árið í fyrra
var tæplega 11.400 bílum fargað
sem er mikil fjölgun frá árunum
þar á undan. Búast má við að
svipað mörgum bílum verði farg-
að í ár.
Skráður eigandi fær 20 þúsund
krónur fyrir bíl sem er afhentur
til förgunar og afskráður. Gjaldið
hefur ekki breyst í mörg ár.
Bílgreinasambandið vill hækka
gjaldið umtalsvert til þess að
skapa hvata til hraðari endurnýj-
unar bílaflotans sem sambandið
telur að sé a.m.k. tveimur árum
of gamall. »4
Tæplega 1.000 bíl-
um fargað á mánuði