Morgunblaðið - 25.09.2019, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 25.09.2019, Blaðsíða 4
BAKSVIÐ Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Förgun bíla hefur aukist mjög undan- farin ár. Met var slegið á síðasta ári og miðað við þróunina það sem af er þessu ári verður förgunin svipuð eða jafnvel meiri. Meðalaldur bílaflotans er samt rúm 12 ár, sem framkvæmda- stjóri Bílgreinasambandsins telur að sé tveimur árum of mikið. Hvetur María Jóna Magnúsdóttir fram- kvæmdastjóri til þess að skilagjald fyrir bíla verði hækkað til að mynda raunverulegan hvata til endurnýjun- ar. Fyrstu átta mánuði ársins var 7.869 bílum fargað, eða 984 bílum á mánuði að meðaltali. Er það heldur meira en á sama tímabili á síðasta ári, þegar 967 bílum var fargað á mánuði. Allt árið í fyrra var fargað 11.392 bíl- um, sem var mikil aukning frá árun- um á undan, eins og sést á meðfylgj- andi töflu. Ólafur Kjartansson, framkvæmdastjóri Úrvinnslusjóðs, áætlaði í byrjun árs að alls yrði um 11 þúsund bílum fargað í ár. Ekki er ljóst hver niðurstaðan verður. Síðustu ár hafa verið seldir 18-21 þúsund nýir bílar á ári. Er því inn- streymi nýrra bíla til landsins nærri tvöfalt meira en það magn sem fer aftur út úr landinu sem brotamálmur. Þyrftu að yngjast um tvö ár Meðalaldur þeirra bíla sem fargað hefur verið síðustu þrjú árin er um 17 ár. Er þetta um þremur árum hærri aldur en var á árunum 2007 til 2010. Þess má geta að bilið er mjög mikið því eitthvað er um að nýlegir bílar eyðileggist í umferðaróhöppum og í förgun koma síðan 30 ára gamlir bílar eða jafnvel eldri. María Jóna bendir á að þetta sé hár aldur og bætir því við að endurnýjun hafi ekki verið næg. Þannig sé meðal- aldur bílaflotans rúm 12 ár, sem sé með því hæsta í Evrópu. Telur hún að meðalaldurinn þyrfti að vera í kring- um 10 ár ef vel ætti að vera. „Við þurf- um því að spýta í lófana og auka förg- un til að hraða endurnýjun bílaflotans. Þegar eðlilegum hluta flotans er fargað kaupa eigendurnir væntanlega nýrri bíla og einhverjir kaupa nýja bíla og þannig rúllar þetta áfram,“ segir María. Hún vekur athygli á markmiðum stjórnvalda í loftslagsmálum þar sem stefnt er að auknu hlutfalli rafbíla og annarra vistvænna ökutækja og að losun frá vegasamgöngum minnki um 35%. Hún segir einnig að enn sé mikil þróun í vélum sem nýta jarðefnaelds- neyti, sem dragi mjög úr losun gróðurhúsalofttegunda. Gjörbreyting hafi orðið á þessu síðustu 10 árin. Endurnýjun bílaflotans sé því mikil- væg til að draga úr losun, spara elds- neytisnotkun og auka um leið öryggi bílanna með betri öryggisbúnaði. 100 þúsund króna skilagjald? Úrvinnslusjóður greiðir skráðum eiganda bíls sem farið er með til förg- unar og afskráningar 20 þúsund króna skilagjald. Gjaldið hefur ekki hækkað undanfarin ár og því lækkað að raungildi. Bílgreinasambandið hef- ur lagt til að gjaldið verði hækkað en á sama tíma opnað fyrir þann mögu- leika að endurgreiðslan verði notuð sem inneign við kaup á nýrri bíl. María Jóna segir að Bílgreinasam- bandið hafi ekki lagt til ákveðna tölu en hún telur að 100 þúsund krónur gætu verið nærri lagi. Þá yrði kominn hvati til endurnýjunar. Ólafur Kjartansson segir að á sín- um tíma hafi verið miðað við að förg- unargjaldið gæti staðið undir kostn- aði við að koma óökufærum bíl á réttan stað, og kannski ríflega það, með sama hætti og skilagjald fyrir flöskur og dósir. Hann tekur fram að gjaldið hafi ekki verið hugsað sem hvati til endurnýjunar á bílaflotanum. Segir Ólafur að rætt hafi verið um að hækka skilagjaldið til að það fylgi verðlagi, en til þess þurfi að breyta lögum. Hins vegar hafi ekki verið um- ræða um að breyta forsendum gjalds- ins, það er að segja að hækka það svo mikið að það gæti orðið hvati til endurnýjunar. Skilagjald bíla er fjármagnað með úrvinnslugjaldi sem innheimt er með bifreiðaskattinum tvisvar á ári. Gjald- ið er 700 krónur á ári. Ólafur segir að þetta gjald þurfi að hækka mikið ef það eigi að standa undir margföldun skilagjalds. Skilagjald hvetji til endurnýjunar  Aldrei hefur jafnmörgum bílum verið fargað og í ár  Samt hefur meðalaldur bílaflotans hækkað  Bílgreinasambandið vill margfalda skilagjald  Tilgangurinn er að hraða endurnýjun flotans Fjöldi ökutækja sem fóru til förgunar 2007 til 2019 Fjöldi Meðalaldur (ár) Heimild: Úrvinnslusjóður 12.000 11.000 10.000 9.000 8.000 7.000 6.000 5.000 4.000 3.000 2.000 1.000 0 20 19 18 17 16 15 14 13 12 11 10 2007 2008 2009 2010 2011 2012 2013 2014 2015 2016 2017 2018 2019 7.997 8.338 5.077 2.990 2.802 3.973 4.463 5.245 6.063 6.527 9.483 11.392 7.8697.737 Heildarfjöldi Fjöldi í jan.-ágúst Meðalaldur 16,917,0 14,713,9 4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. SEPTEMBER 2019 V ð f á 2024 SLT L iðLé t t ingur Austurvegur 69 - 800 Selfoss // Lónsbakk i - 601 Akureyr i // Sólvangi 5 - 700 Egilsstaðir Sími 480 0400 // jotunn@jotunn.is // www.jotunn.is er r 3.190.000 án vsk. www.hitataekni.is | S: 5886070 | Smiðjuvegur 10 | 200 Kópavogi HITABLÁSARAR ertu tilbúin í veturinn? Þegar aðeins það besta kemur til greina Nokkur fyrirtæki á höfuðborg- arsvæðinu taka við bílum til förgunar og sveitarfélög í sam- vinnu við fyrirtæki úti á landi. Vaka er stórtækust. Daníel Ein- arsson framkvæmdastjóri segir að bílar séu sóttir á höfuðborg- arsvæðið, fólki að kostnaðar- lausu. Hann segir að leggja þurfi töluverða vinnu í bílana, losa eldsneyti og olíu af þeim og fjarlægja rafgeyma og dekk. Úrvinnslusjóður greiðir 6.300 kr. upp í þá vinnu. Daníel segir að aðaltekjurnar af þessari starfsemi komi frá sölu á bíl- flökunum í brotamálmvinnslu hjá Hringrás en greitt er kíló- verð fyrir járnið. Málmurinn er síðan fluttur úr landi. Fá tekjur af málminum BÍLAR Í BROTAJÁRN Átta sóttu um embætti dómara við Hæstarétt Íslands, en eitt embætti var laust til umsóknar samkvæmt auglýsingu sem birt var 6. sept- ember, en þeir Markús Sigur- björnsson og Viðar Már Matthías- son munu láta af störfum 1. október. Fimm umsækjendanna eru dómarar við Landsrétt. Umsækjendurnir eru þau Aðal- heiður Jóhannsdóttir, prófessor við lagadeild Háskóla Íslands, Aðal- steinn E. Jónasson, dómari við Landsrétt, Ása Ólafsdóttir, prófess- or við lagadeild Háskóla Íslands, Davíð Þór Björgvinsson, dómari við Landsrétt, Guðni Á. Haraldsson lögmaður, Ingveldur Einarsdóttir, dómari við Landsrétt, Oddný Mjöll Arnardóttir, dómari við Landsrétt, og Sigurður Tómas Magnússon, dómari við Landsrétt. Skipað verður í embættið hið fyrsta. Átta sóttu um stöðu í Hæstarétti Íslands Guðni Einarsson Ragnhildur Þrastardóttir Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar hefur fengið mál níu ára gamallar stúlku sem brotið var á á skólatíma fyrr í þessum mánuði inn á borð til sín og leggst nú yfir það hvernig sé best að bregðast við. Engin ákvörðun hefur verið tekin um hert eftirlit í skólum borgar- innar. Helgi Grímsson, sviðsstjóri skóla- og frí- stundasviðs, segir að Íslendingar hafi til þessa ekki verið hlynntir lokuðum grunnskólum. „Ís- lendingar vilja hafa skólana opna, meiri sveigj- anleika og frelsi en tíðkast erlendis,“ segir Helgi. Hann segir umræðu um það hvernig eigi að haga þessum málum í gangi en samtalið sé stærra en margir geri sér grein fyrir. „Þetta er samtal sem við þurfum sífellt að vera vak- andi fyrir og stór samfélagsleg umræða sem varðar foreldra, börnin og aðra aðila,“ segir Helgi. „Foreldrar sem hafa verið með börn í skól- um erlendis kannast við það að þar eru skólar gjarnan læstir þar til skólinn er opnaður og ör- yggislæsingar á öllum hurðum svo enginn komist inn án þess að gera grein fyrir sér,“ segir Helgi. Hérlendis er staðan önnur. Að mati Helga er mikilvægast að starfsfólk sé á verði en umgengnisreglur um skólana gera ráð fyrir því að utanaðkomandi aðilar geri grein fyrir sér á skrifstofu skólans. Vilja herða eftirlit við skóla Fulltrúar Sjálfstæðisflokks lögðu til á fundi skóla- og frístundaráðs í gær að eftirlit við grunn- og leikskóla í borginni verði endur- skoðað sem og allir öryggisferlar. Starfsmenn og kennarar verði auðkenndir t.d. með nafn- spjaldi til að tryggja betur öryggi nemenda. Eins er lagt til að kannaðir verði kostir þess að koma upp öryggismyndavélum við skólana og að þeim skólum sem þess óska standi slíkur búnaður til boða. Í greinargerð með tillögunni kemur fram að brýnt sé að tryggja betur öryggi skólabarna, hvort heldur er í skólahúsnæði eða á skólalóð- um og er vitnað til atviksins í Austurbæjar- skóla í því sambandi. Þá er bent á að öryggis- myndavélar séu við innganga og lóðir sumra skóla og hafi þegar sannað gildi sitt. Engin ákvörðun um hert eftirlit í skólum  Íslendingar vilja hafa skólana opna, segir sviðsstjóri skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.