Morgunblaðið - 25.09.2019, Qupperneq 6
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Þörf er á margvíslegum úrbótum
innan lögreglunnar á Íslandi, ekki
síst hvað snertir skipulag og svo
verkferla til að taka á spillingu.
Þetta er meðal niðurstaðna
skýrslu GRECO, ríkjahóps gegn
spillingu innan Evrópuráðsins, sem
kom út vorið 2018. Það var fjórða út-
tektin af því tagi síðan Ísland gerðist
aðili að GRECO árið 1999.
Fulltrúar GRECO komu til Ís-
lands í október 2017 og funduðu þá
m.a. með þáverandi dómsmálaráð-
herra, fulltrúum dómsmálaráðu-
neytisins og ríkislögreglustjóra.
Markmiðið var m.a. að meta
árangur aðgerða til að draga úr spill-
ingu meðal embættismanna í stjórn-
unarstöðum. „Það vekur sérstaka
eftirtekt í því samhengi að stýrihóp-
ur gegn spillingu, sem stjórnvöld
settu á fót 2014, skuli ekki hafa út-
fært kerfisbundnar aðgerðir eða
ofansækna stefnumótun til að stuðla
að heiðarlegum starfsháttum hjá
fulltrúum opinberra stofnana,“ skrif-
uðu skýrsluhöfundar m.a.
Almennt hafi fulltrúar GRECO
komið auga á misræmi milli siða-
reglna á blaði og starfshátta í raun.
Skortur á eftirlitsaðila
Varðandi lögregluna var bent á að
ýmsir kerfislægir þættir hömluðu
innleiðingu metnaðarfyllri aðgerða
til að tryggja góða starfshætti,
ásamt því að fela í sér vissa áhættu.
Setja þyrfti skýrari starfsreglur.
Athygli var vakin á því að í ís-
lenska stjórnkerfinu sé ekki sérstakt
embætti sem beri ábyrgð á eftirliti
með málum sem varða spillingu og
skylt misferli innan lögreglunnar.
„Á sama tíma hefur dómsmála-
ráðuneytið eftirlitshlutverk með lög-
reglunni og Landhelgisgæslunni og
er líka yfirvald embætta sem fara
með ákæruvald. Og þótt lögreglan
eigi að vera undir stjórnvaldi og
verkstjórn ríkislögreglustjóra fylgir
skipulag lögreglunnar í raun ekki
píramídaskipulagi heldur flatri
stjórn. Því heyra svæðisbundnu lög-
reglustjórarnir jafnt og ríkislög-
reglustjóri undir dómsmálaráð-
herra. Því fer sérhver þessara níu
lögreglustjóra með stjórn löggæslu í
daglegum störfum í sínu umdæmi,“
skrifuðu skýrsluhöfundar GRECO.
Á Íslandi eru níu lögregluembætti
en jafnframt starfa lögreglumenn
hjá héraðssaksóknara og hjá ríkis-
lögreglustjóra. Alls tæplega 700.
Skortir nauðsynlega fjarlægð
Þá hafi viðmælendur GRECO á
Íslandi lýst efasemdum um það
hvort lögreglumenn sem starfa dag-
lega með öðrum lögreglumönnum
hafi þá fjarlægð sem þarf til að vera
hlutlausir þegar meta þarf fram-
göngu starfssystkina sinna.
Telja fulltrúar GRECO ljóst að
heppilegra væri að stofna miðlægt
embætti fyrir ýmis innri mál sem
heyri undir ríkislögreglustjóra.
Samandregið telja fulltrúar
GRECO tilefni til að gera umbætur á
valdbrautinni innan lögreglunnar
með því að veita ríkislögreglustjóra
skýrt vald til að stýra og leiða innri
stefnumótun í orði og á borði.
Dæmdir fyrir brot í starfi
Bent er á að lögreglan og Land-
helgisgæslan séu meðal stofnana
sem njóta mests trausts á Íslandi.
Fjölmiðlar hafi ekki fjallað um
mörg deilumál þar sem heiðarleiki
lögreglumanna var dreginn í efa.
Rifjað er upp að í nóvember 2015
hafi íslenskur lögreglumaður verið
dæmdur í tíu mánaða fangelsi fyrir
að eiga við hraðamælingu og þegið
greiðslur. Þá hafi lögreglumaður
verið dæmdur í 15 mánaða fangelsi í
apríl 2017 fyrir að selja trúnaðar-
upplýsingar til eiturlyfjasmyglara.
Vikið er að fundum fulltrúa
GRECO á Íslandi haustið 2017.
„Viðræðurnar í október 2017
leiddu í ljós viss kerfislæg vandamál
innan lögreglunnar og hættuna á
pólitískum afskiptum, sem gætu
reynst hindrun í að greina frá vissum
vandamálum, þar með talið er varða
heilindi í starfi,“ sagði þar m.a.
„Enn sem komið er er engin sér-
stök stefna til að koma í veg fyrir
spillingu innan lögreglunnar. Stjórn-
völd eru að ljúka stefnusmíði fyrir
lögregluna, sem varðar hlutverk
hennar í að tryggja öryggi almenn-
ings og koma í veg fyrir og takast á
við glæpi,“ sagði þar jafnframt.
Fyrirspurn varðandi þetta atriði
var send til dómsmálaráðuneytisins
sem vísaði til löggæsluáætlunar
dómsmálaráðherra fyrir 2019-23.
Skýrsluhöfundar segja það
ánægjuefni að til séu siðareglur fyrir
lögreglumenn. Án frekari leiðbein-
inga kunni hins vegar að vera óþarf-
lega erfitt fyrir lögreglumenn að til-
einka sér sumar þeirra í starfi.
„Til dæmis vísa siðareglur lög-
reglunnar til mútugreiðslna og spill-
ingar en það eru engar skilgreining-
ar, leiðbeiningar eða dæmi um hvað
heyrir undir þessi hugtök í raun.
Fjallað er um hagsmunaárekstra en
það sem leiðir af því er ekki alltaf
ljóst (hvað eigi að gera í vissum að-
stæðum, til dæmis að draga ákvörð-
un til baka eða greina frá aðstæðum)
… Síðast en ekki síst eru engir skýr-
ir verkferlar til staðar sem myndu
eiga við séu siðareglurnar brotnar.“
Geti veitt hlutlausa ráðgjöf
Með þetta í huga er mælst til þess
að íslensk stjórnvöld þurfi að koma á
vettvangi þar sem sérfræðingar, sem
séu ekki í daglegum samskiptum við
lögreglumenn, geti í trausti trúnaðar
veitt hlutlausa ráðgjöf varðandi heil-
indi lögreglumanna í starfi. Því sé
rétt að endurskoða siðareglurnar.
Þá er talið tilefni til að skerpa á
vinnureglum varðandi afhafnir lög-
reglumanna utan vinnu. Þá til dæmis
önnur störf. Loks er rifjað upp að í
ársbyrjun 2017 hafi nefnd um eftirlit
með lögreglu tekið til starfa á Íslandi
sem hafi það hlutverk að fást við um-
kvartanir og kærur sem beinast að
lögreglunni og starfsháttum hennar.
Nefndin hafi þó ekki rannsóknar-
heimildir.
Skoða þarf skipulag lögreglu
Fulltrúar ríkjahóps gegn spillingu innan Evrópuráðsins leggja til breytingar á skipulagi lögreglu
Núverandi fyrirkomulag sé óheppilegt hvað varðar viðbrögð við mögulegum brotum í starfi
Morgunblaðið/Golli
Lögreglustöðin við Hlemm Málefni lögreglunnar og ríkislögreglustjóra hafa verið til umræðu undanfarið.
Framlengdu frestinn
» GRECO óskaði viðbragða frá
íslenskum stjórnvöldum varð-
andi skýrsluna fyrir 30. sept-
ember 2019, þ.e. fyrir næst-
komandi mánudag.
» Þær upplýsingar fengust frá
dómsmálaráðuneytinu að boð
hefði komið frá GRECO um að
frestur yrði framlengdur til
loka þessa árs, án þess að eftir
því hefði verið leitað.
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. SEPTEMBER 2019
DRAUMAEIGN Á SPÁNI
Nánar á www.spanareignir.is
ÞÚ ERT Í ÖRUGGUMHÖNDUMHJÁ OKKUR
Aðalheiður Karlsdóttir
Löggiltur fasteignasali
adalheidur@spanareignir.is
Sími 893 2495
Ármúla 4-6, Reykjavík
Karl Bernburg
Viðskiptafræðingur
karl@spanareignir.is
Sími 777 4277
Ármúla 4-6, Reykjavík
•Glæsilegar íbúðir í lyftuhúsi
• Jarðhæð með sér garði
•Miðhæðir með stórum svölum
•Efsta hæð með sér þaksvölum
og heitum potti
• 3 svefnherbergi – 2 baðherbergi
• Flottur sundlaugargarður
• Líkamsræktaraðstaða
• Leiksvæði fyrir börnin
•Göngufæri á veitingastaði og
í verslanir
• Stutt á strönd og í golf
Verð frá 23.300.000 Ikr.
(169.900 Evrur, gengi 1Evra=137Ikr)
Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001
Villamartin / La Zenia
Hjörtur J. Guðmundsson
hjortur@mbl.is
Rannsókn ríkissaksóknara á
meintum leka á viðkvæmu trún-
aðarskjali lögreglunnar, sem rataði
í hendur verjanda í svonefndu
EuroMarket-máli, var hætt 3. júlí í
sumar án þess að upplýst væri
hver hefði gerst sekur um að leka
skjalinu.
„Rannsókn málsins var hætt/
lokið þann 3. júlí sl. án þess að
upplýst væri hver hefði framið ætl-
að þagnarskyldubrot,“ segir í
skriflegu svari Sigríðar J. Frið-
jónsdóttur ríkissaksóknara við fyr-
irspurn frá mbl.is.
EuroMarket-málið kom upp í
desember 2017 og snýst um meint
fjársvik, peningaþvætti og
fíkniefnainnflutning hingað til
lands.
Pólsk hjón ákærð fyrir þvætti
Fjallað var um það í gær að hér-
aðssaksóknari hefði ákært pólsk
hjón vegna rúmlega 60 milljóna
króna peningaþvættis en ákæran
er hluti EuroMarket-málsins sem
er ein umfangsmesta rannsókn
lögreglu hér á landi á skipulagðri
glæpastarfsemi og hefur verið
unnið að rannsókninni í samstarfi
við evrópsk lögregluyfirvöld.
Samkvæmt frétt Ríkisútvarpsins
í október á síðasta ári kom fyrst
upp grunur um að verjandi meints
höfuðpaurs í EuroMarket-málinu
hefði skjalið undir höndum um
áramótin 2017/2018 og hann síðan
endanlega fengist staðfestur þegar
verjandinn, Steinbergur Finn-
bogason, hefði lagt það fram fyrir
dómi um vorið eftir.
Skjalið er minnisblað þar sem
talin eru upp ýmis sakamál sem
lögreglan hefur haft meintan höf-
uðpaur grunaðan um að tengjast
undanfarin ár.
Steinbergur taldi minnisblaðið
sýna að skjólstæðingur hans hefði
fengið óeðlilega meðferð hjá lög-
reglunni.
Reynt var að fá Steinberg til
þess að upplýsa hver hefði komið
skjalinu með úrskurði dómara í
byrjun febrúar en án árangurs.
Fjögur embætti hafa komið að
rannsókn EuroMarket-málsins og
höfðu aðgang að minnisblaðinu;
lögreglan á höfuðborgarsvæðinu,
lögreglan á Suðurnesjum, ríkislög-
reglustjóri og tollstjóri.
Tókst ekki að upp-
lýsa meintan leka
Rannsókn málsins hætt 3. júlí