Morgunblaðið - 25.09.2019, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. SEPTEMBER 2019
Einstakur möguleiki á að fá einkafund með talsmanni EBK, Anders Ingemann Jensen, um
uppsetningu á EBK sumarhúsum á Íslandi. Á fundinum verður farið yfir byggingarferlið, kost-
naðaráætlanir og allt það sem viðkemur því, að fá nýtt EBK sumarhús byggt á íslandi.
Fimmtudaginn 26. sept. og föstudaginn 27. sept. 2019 – Báða dagana frá kl. 10-17
Fundarstaður og stund: Stepp ehf., Ármúla 32, 108 Reykjavík
Nauðsynlegt er að panta fundartíma gegnum netfangið aj@ebk.dk, í síma +45 4020 3238 eða
á vefnum ebk-hus.is. Anders talar dönsku og ensku.
EBK HUSE A/S hefur meira en 43 ára reynslu í uppsetningu á sumarhúsum,
þar sem dönsk hönnun og gæði eru í fyrrirúmi. EBK hús eru meðal hinna
leiðandi á markaðinum með 4 deildum í Danmörku, 3 í Þýskalandi, 1 í Noregi
og 1 í Svíþjóð. Við höfum líka margra ára reynslu í að byggja á Íslandi, í
Þýskalandi, Færeyjum, Svíþjóð og Noregi.
Bókið fund með EBK í Reykjavík, sérsniðin að ykkar óskum
EBK HUSE A/S, Skovsøvej 15, DK-4200 Slagelse
Anders Ingemann Jensen, Sími +45 4020 3238, Netfang: aj@ebk.dk
19
28
6
Hefur þú hug á að byggja nýtt sumarhús?
WWW.EBK-HUS.IS
DÖNSK HÖNNUN
OG ARKITEKTÚR
Marta Guðjónsdóttir, borg-arfulltrúi Sjálfstæðisflokks-
ins, skrifaði grein hér í blaðið og
færði rök fyrir því að ófremdar-
ástandið í umferðarmálum í borg-
inni væri ekki eitt-
hvað sem gerst
hefði fyrir mistök
heldur afleiðing
skipulegra aðgerða
meirihlutans.
Marta nefndisem dæmi tíu
ára samgöngu-
samning sem borgin gerði við ríkið
árið 2012 þar sem borgin afsalaði
sér einum milljarði á ári í stofn-
brautaframkvæmdir og olli algeru
framkvæmdastoppi. Í staðinn hafi
fénu verið dælt í strætó án þess að
það hafi haft nokkur áhrif á notkun
þess samgöngumáta.
Hún nefndi einnig að meirihlut-inn hefði alltaf verið andvígur
Sundabraut „sem þó hefur verið
talin ein allra arðbærasta vega-
framkvæmd sem ráðist yrði í hér á
landi og myndi létta mjög á umferð-
arþunga um Ártúnsbrekku, Höfða-
bakka og Gullinbrú.“
Þá nefndi Marta að tillögu sjálf-stæðismanna um sveigj-
anlegan starfstíma stofnana og
skóla til að draga úr álagstoppum
hefði verið hafnað og að meirihlut-
inn hefði einnig fellt tillögu um
snjallvæðingu umferðarljósastýr-
ingar, sem talið væri að gæti skilað
mikilli styttingu biðtíma og miklum
fjárhagslegum ábata.
Við þetta bættist að nú ætti aðbjóða upp á svokallaða borg-
arlínu, sem enginn vissi hvað
merkti, og ætti ekki að koma til
fullra framkvæmda fyrr en árið
2040. Að auki teldi ráðgjafarfyr-
irtækið sem vann að henni að hún
mundi ekki leysa umferðarvand-
ann.
Marta
Guðjónsdóttir
Umferðarvandinn
er ekki mistök
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Upp úr kjaraviðræðum BSRB við
ríkið slitnaði í gær. Formaður BSRB
hefur boðað samningseiningar
bandalagsins til fundar í dag, sam-
kvæmt tilkynningu. Þar er vitnað í
Sonju Ýri Þorbergsdóttur, formann
BSRB, sem sagði viðræðurnar ekk-
ert hafa þokast áfram undanfarið og
því yrði gerð sú tillaga á fundinum í
dag að vísa deilunni til ríkissátta-
semjara.
Fulltrúar ríkisins lögðu fram til-
lögu að lausn kjaradeilunnar í gær
sem BSRB telur algjörlega óað-
gengilega. Að sögn Sonju var tilboð
ríkisins í raun það sama og samn-
inganefndin lagði upp með við upp-
haf kjaraviðræðna í vor. Hún sagði
að formaður samninganefndarinnar
hefði sagt á fundinum að nefndin
hefði ekki umboð til að ganga lengra.
Aðallega er deilt um kröfu BSRB
um styttingu vinnuvikunnar í 35
stundir án kjaraskerðingar, með
meiri styttingu fyrir vaktavinnufólk.
Í tilboði ríkisins var miðað áfram við
40 stunda vinnuviku en opnað á
möguleika á að samið yrði um að
stytta vinnuvikuna á einstökum
vinnustöðum með því að sleppa kaffi-
tímum.
Ekki er hægt að undirbúa aðgerð-
ir nema ríkissáttasemjari hafi áður
reynt að miðla málum. Sonja sagði
að ef undirbúa þyrfti aðgerðir til að
fylgja kröfunum eftir þá yrði það
gert. gudni@mbl.is
BSRB hyggst vísa til sáttasemjara
Upp úr viðræðum við ríkið slitnaði í
gær Tilboð ríkisins sagt óaðgengilegt
Morgunblaðið/Eggert
BSRB Sonja Ýr formaður segir við-
ræður ekkert hafa þokast áfram.
Guðni Einarsson
Jón Pétur Jónsson
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
handtók í gær karlmann sem lög-
reglumenn höfðu veitt eftirför á
Vesturlandsvegi. Lögreglan á Vest-
urlandi veitti bifreið mannsins fyrst
athygli þar sem hann sást aka á
miklum hraða við Hvalfjarðargöng
og í átt til Reykjavíkur.
Fram kemur í tilkynningu frá
lögreglu að lögreglan á
höfuðborgarsvæðinu hafi brugðist
við beiðni lögreglunnar á Vest-
urlandi um aðstoð rétt fyrir hádeg-
ið í gær. Að sögn lögreglu virti
ökumaðurinn ekki ítrekuð stöðv-
unarmerki lögreglu og var hann
talinn valda mikilli hættu, enda var
bifreiðin mæld á rúmlega 200 km/
klst hraða þegar mest var.
Loksins tókst að stöðva bifreið-
ina í Mosfellsbæ en þar var lögð
naglamotta í veg fyrir hana. Þar
veittist ökumaðurinn að lög-
reglumönnum og var hann hand-
tekinn.
Málið er í rannsókn og ekki
hægt að veita frekari upplýsingar
um það að svo stöddu, að því er
lögreglan greindi frá í gær.
Ók á rúmlega
200 km hraða
Naglamotta notuð til að stöðva bíl
Lögregluaðgerð Naglamotta var breidd á veginn til að stoppa bílinn.