Morgunblaðið - 25.09.2019, Qupperneq 15
15
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. SEPTEMBER 2019
Undirbúningur Í dag hefst sýningin Sjávarútvegur 2019 í Laugardalshöll og stendur hún yfir fram á föstudag. Á henni verður hægt að kynna sér nýjungar í vörum og starfi tengdu sjávarútvegi.
Eggert
Ég hef oft spurt
sjálfan mig en ekki síð-
ur samherja mína
spurningarinnar sem
varpað er fram í fyr-
irsögn þessa pistils.
Kerfið eða báknið lifir
ágætu lífi. Stundum
fallast manni hendur í
baráttunni við að koma
böndum á kerfið sem á
sér marga bandamenn
innan þings og utan.
Svarið við spurningunni liggur
ekki fyrir en það eru vísbendingar
um að meiri líkur séu á því en
nokkru sinni á síðustu árum, að
svarið sé já (a.m.k. að hluta). Vís-
bendingarnar eru þrjár en rökin
fyrir nauðsynlegum uppskurði eru
fjölmörg, enda ekki hjá því komist ef
við ætlum að bæta lífskjör alls al-
mennings, efnahags- og félagslega.
Það útheimtir þrautseigju að
stofna fyrirtæki. Fjármögnun er oft
þröskuldur en ekki alltaf sá erfiðasti
eða sá hæsti. Á mörgum sviðum at-
vinnulífsins er svo flókið og tíma-
frekt að afla sér tilskilinna leyfa að
margir gefast hreinlega upp á
hlaupum milli stofnana og eftirlits-
aðila. Engu er líkara en það sé erf-
iðara og vandasamara að uppfylla
kröfur ríkis og sveitarfélaga en að
sinna þörfum viðskiptavina. Marg-
slungið og íþyngjandi eftirlitskerfi í
landbúnaði hamlar framþróun.
Strangari kröfur til íslenskra bænda
en í helstu viðskiptalöndum halda
uppi matarverði og draga úr sam-
keppnishæfni íslenskra mat-
vælaframleiðenda. Litli
fiskverkandinn sem
byggt hefur upp traust
viðskiptasambönd í
öðrum löndum, með
viðskiptavini sem eru
ánægðir með gæðin og
greiða hæsta verð, þarf
að standa undir mörg
hundruð þúsund króna
kostnaði á ári vegna
heimsókna opinberra
eftirlitsmanna. Hvergi
í ríkjum OECD er
reglubyrði þjón-
ustugreina þyngri en á Íslandi.
Ígildi tveggja
mánaða afborgunar
Ég hef áður vitnað til skýrslu sem
Hagfræðistofnun Háskóla Íslands
vann fyrir forsætisráðuneytið árið
2004 um beinan kostnað fyrirtækja
við að framfylgja eftirlitsreglum.
Niðurstaðan: Beinn kostnaður er um
15 milljarðar króna á ári miðað við
verðlag í ágúst á þessu ári. Tekið var
fram að líklega væri um vanmat að
ræða, þar sem ekki var tekið mið af
öllum eftirlitsreglum á öllum svið-
um.
Frá því að Hagfræðistofnun vann
skýrsluna hefur sigið á ógæfuhlið-
ina; reglum hefur fjölgað, þær hert-
ar og eftirlit hins opinbera verið
aukið. Með hliðsjón af vanmati Hag-
fræðistofnunar og þróuninni síðustu
fimmtán ár er óhætt að ætla að
beinn kostnaður fyrirtækja við að
framfylgja eftirlitsreglum sé ekki
undir 25 milljörðum króna á ári. Þá
er óbeinn kostnaður ekki talinn.
Þessi kostnaður er borinn af fyr-
irtækjunum sjálfum í formi minni
arðsemi, af ríkissjóði í formi lægri
tekna af tekjuskatti, af starfs-
mönnum þar sem bolmagn fyrir-
tækjanna til að greiða hærri laun er
skert og síðast en ekki síst af neyt-
endum í formi hærra vöruverðs og
lakari þjónustu.
Auðvitað er nauðsynlegt að í gildi
séu ákveðnar leikreglur til að
tryggja eðlilega og sanngjarna sam-
keppni, koma í veg fyrir misnotkun
og tryggja öryggi starfsmanna jafnt
sem neytenda. Og ekki verður hjá
því komist að eftirlit sé með að
reglum sé fylgt. En að eftirlitskerfið
sé orðið svo umfangsmikið að það
sogi til sín ígildi nær 280 þúsund
króna frá hverri fjögurra manna
fjölskyldu, bendir til að við séum á
villigötum. Þessi fjárhæð jafngildir
liðlega tveimur mánaðarlegum af-
borgunum af 25 milljóna króna
óverðtryggðu húsnæðisláni til 40
ára.
Það er því til mikils að vinna að
einfalda allt reglukerfið, skera kerf-
ið upp – minnka báknið eins og
margir myndu segja.
Vísbendingarnar þrjár
En hverjar eru vísbendingarnar
um að vonir séu til að kerfið verði
loks skorið upp, þó að ekki væri
nema að hluta til
Vísbending 1: Í stjórnarsáttmála
ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur
er því lofað að gert verði átak „í ein-
földun regluverks í þágu atvinnulífs
og almennings“. Um leið er því lýst
yfir að ríkisstjórnin leggi „áherslu á
að stjórnsýsla sé skilvirk og réttlát“.
Vísbending 2: Flokksráðsfundur
Sjálfstæðisflokksins (14. september)
ítrekaði stefnu flokksins og tók af öll
tvímæli um að þingmenn og ráð-
herrar flokksins skuli vinna að því að
regluverk atvinnulífsins sé einfalt og
sanngjarnt. Sameina eigi eftirlits-
aðila, útvista verkefnum og einfalda
regluverk. Þannig styrkist „sam-
keppnishæfni íslenskra fyrirtækja,
verð til neytenda getur lækkað, svig-
rúm til hærri launa eykst og stuðlað
er að aukinni hagkvæmni, framleiðni
og skilvirkni í atvinnulífinu“.
Vísbending 3: Þingmálaskrá rík-
isstjórnarinnar. Ráðherrar Sjálf-
stæðisflokksins hafa kynnt áform
um lagafrumvörp sem miða að því að
grisja lagaskóginn og einfalda reglu-
verk.
Í október mun Þórdís Kolbrún
Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-,
iðnaðar- og nýsköpunarráðherra,
leggja fram frumvarp um breyt-
ingar á samkeppnislögum. Mark-
miðið er að auka skilvirkni og stuðla
að aukinni og sanngjarnri sam-
keppni á mörkuðum með hagsmuni
neytenda og atvinnulífsins að leið-
arljósi. Í sama mánuði ætlar Þórdís
Kolbrún að leggja fram frumvarp
varðandi leyfisveitingar – einfalda
regluverkið og leyfisveitingar. Iðn-
aðarleyfi og verslunarleyfi verða
m.a. felld niður sem og ýmis úrelt
lög. Þetta er fyrsti áfangi í aðgerð-
aráætlun um einföldun regluverks á
málefnasviði ráðherrans.
Kristján Þór Júlíusson, sjávar-
útvegs- og landbúnaðarráðherra,
hefur ákveðið að leggja fram frum-
varp til einföldunar regluverks í
komandi mánuði. Lögum verður
breytt í því skyni að einfalda reglu-
verk sem gildir um matvælakeðjuna
auk þess sem breytingunum er ætl-
að að stuðla að samræmdara og skil-
virkara eftirlitskerfi. Þá er með
frumvarpinu einnig lagt til að Fram-
leiðnisjóður landbúnaðarins og
AVS-rannsóknarsjóður í sjávar-
útvegi verði sameinaðir og við taki
nýr sjóður á breiðari grunni undir
heitinu Matvælasjóður.
Í febrúar á næsta ári ætlar Krist-
ján Þór að halda áfram með verkið.
Þá verða kynntar breytingar á ýms-
um lögum til einföldunar regluverks
á sviði sjávarútvegs og landbúnaðar.
Bjarni Benediktsson, fjármála- og
efnahagsráðherra, mun í byrjun
næsta árs leggja fram frumvarp um
brottfall ýmissa laga. Hann ætlar að
grisja lagaskóginn. Frumvarpið fel-
ur í sér brottfall hátt í 40 lagabálka
sem eiga ekki lengur við sökum
breyttra aðstæðna eða vegna þess
að ráðstafanirnar sem lögin kváðu á
um eru um garð gengnar.
Vísbendingarnar þrjár gefa mér
góðar vonir um að loks verði hafist
handa við nauðsynlegt verk, en það
er langur vegur frá að verið sé að
koma þeim böndum á kerfið að þau
geti ekki brostið. En þetta eru skref
í rétta átt.
Eftir Óla Björn
Kárason » Að eftirlitskerfið sé
orðið svo umfangs-
mikið að það sogi til sín
nær 280 þúsund krónur
frá hverri fjölskyldu
bendir til að við séum
á villigötum.
Óli Björn Kárason
Höfundur er alþingismaður
Sjálfstæðisflokksins.
Verður kerfið skorið upp?