Morgunblaðið - 25.09.2019, Side 18

Morgunblaðið - 25.09.2019, Side 18
18 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. SEPTEMBER 2019 ✝ Árni Vilhjálms-son fæddist í Bakkakoti, Rang- árvallasýslu, 4. júlí 1941. Hann varð bráðkvaddur á heimili sínu 29. ágúst 2019. Foreldrar hans voru Þórsteinunn Stefánsdóttir hús- freyja, f. 5. júlí 1919 á Eskifirði, d. 2. mars 1978, og Vilhjálmur Pálsson bóndi, f. 1. júní 1900 á Gaddastöðum, Rangárvalla- sýslu, d. 4. maí 1961. Árni átti einn albróður og tvö hálfsystk- ini sammæðra. Hinn 13. febrúar 1963 kvænt- ist Árni Bryndísi Guðrúnu Kristjánsdóttur, f. 22. október 1942, en þau skildu árið 1971. Árni og Bryndís tóku aftur sam- an árið 1992 og giftu sig 20. febrúar 2018. Bryndís lést eftir erfið og stutt veikindi 1. nóv- ember 2018. Börn Árna og Bryndísar: 1) Kristjana Sólborg Árnadóttir, f. 15. jan. 1960, gift Kristjáni G. Guðmundssyni, f. 2. okt. 1953, dætur þeirra a) Bryndís Guð- Ósk, f. 23. feb. 2000. 6) Pétur Gunnar Þór Árnason, f. 25. maí 1970, giftur Ingibjörgu Kristínu Þórarinsdóttur, f. 2. okt. 1982, börn þeirra e) Bjarni Snæbjörn, f. 17. sep. 1994, Guðný Magnea, f. 7. sep. 2005, Rannveig Perla, f. 30. jún. 2010. 7) Ástrós Hjálm- týsdóttir, f. 30. október 1974, gift Kristjáni Bjarnasyni, f. 12. mars 1969, börn þeirra e) Alex- ander, f. 2. maí 1996, Birta Líf, f. 22. feb 2000, Ísabella Schöbel, f. 11. ágú 2004, Hjálmtýr Daníel Schöbel, f. 25. jan 2006, Kristján Högni, f. 10. mar 1992, Lena Rut, f. 28. mar. 2001. Þegar Árni og Bryndís end- urnýjuðu kynnin var Bryndís orðin ekkja og átti hún eina dóttur úr fyrra hjónabandi. Þá átti Bryndís einnig soninn Svan Gunnar Guðlaugsson, f. 1961. Afkomendur Árna og Bryn- dísar eru orðnir 37 talsins, 36 þeirra eru á lífi og eru dreifðir víða um heimsbyggðina. Fyrstu árin á vinnumarkaði vann Árni við ýmis verka- mannastörf, var á togurum en lengst af vann hann sem verk- stjóri hjá Bifreiðum og landbún- aðarvélum. Útför Árna fer fram frá Fella- og Hólakirkju í Reykjavík í dag, 25. september 2019, og hefst athöfnin klukkan 15. rún, f. 26. nóv. 1976, Magðalena Margrét, f. 17. okt. 1979, Magnea Freyja, f. 17. mars 1989. 2) Pétur Gunnar Þór Árna- son, f. 22. nóv. 1962, d. 12. maí 1969. 3) Guðlaug Brynhildur Árna- dóttir, f. 18. des. 1963, gift Jóni Pálma Bernódussyni, f. 22. ágú. 1962, börn þeirra b) Jónína, f. 24. des. 1982, Kristján, f. 24. nóv. 1990. 4) Vilhjálmur Árna- son, f. 15. maí 1966, sambýlis- kona Sigfríður G. Sigurjóns- dóttir, f. 12. des. 1964, börn þeirra c) Hjálmdís Ólöf, f. 2. maí 1988, Anna Margrét, f. 19. okt. 1992, Hafsteinn Árni, f. 14. apr. 1997, Björn Matthías, f. 21. nóv. 1999, Berglind Eir, f. 7. júl. 1986, Guðbjartur Gísli, f. 16. júl. 1988, Jón Hákon, f. 10. okt. 2000. 5) Kristján Sólberg Árna- son, f. 27. ágú 1967, giftur Önnu Kristínu Grettisdóttur, f. 11. feb. 1971, börn þeirra d) Jóel Grettir, f. 28. apr. 1990, Birkir Þór, f. 18. jún. 1996, Sandra Elsku Árni minn, það er skrítið að sitja hérna úti á Spáni og skrifa þessi kveðjuorð. Þú ætlaðir að vera með mér og Didda hér á Spáni, þú varst byrjaðar að und- irbúa þig fyrir ferðina og láta þig hlakka til. Tveimur dögum áður en þú kvaddir fór ég með þér til læknisins þar sem heilsan hafði ekki alveg verið nógu góð. Þú vild- ir fá grænt ljós frá lækninum áður sem þú fékkst. Það sem við viss- um ekki þá var að þú varst að und- irbúa þig í annað ferðalag en með okkur. Þú varst á leiðinni í Draumalandið til mömmu og Pét- urs heitins. Ég man þegar þið mamma tók- uð aftur saman eftir að ég missti pabba, þú fluttir inn til mömmu þegar ég flutti að heiman. Það voru ekki allir hrifnir af því að þið tækjuð saman og á þeim tíma pældi ég lítið í því þar sem ég var svo upptekin af að vera fullorðin of snemma. Þið mamma áttuð sögu saman frá fyrri tíma, áttuð börn saman og voruð búin að upp- lifa mikla sorg þegar þið misstuð litla strákinn ykkar. Ég man þegar mamma greind- ist með krabbamein snemma á árinu 2018, þá kom ekki annað til greina en að þið létuð pússa ykkur saman. Þú varst ekki alveg á því en ég tók ekki annað í mál og sagði að það væri það eina í stöð- unni og þið fenguð litlu að ráða um það. Ég hringdi í prestinn og sagði að ég yrði að láta gifta mömmu mína, þegar ég, þú og mamma fórum á fund til prests- ins, þá sá hann að mamma var skráð ekkja í þjóðskrá og þú frá- skilinn, hann bað því um nafn fyrrverandi eiginkonu þinnar og þegar ég nefndi við hann að það væri mamma, þá skildi hann ekk- ert í því og sagði: bíddu er hún ekki ekkja? Það var mikið hlegið að því og óhætt að segja að fjöl- skyldumynstrið er flókið. Það að þið tókuð saman aftur var best fyrir ykkur og best fyrir okkur systkinin. Mamma var stóra ástin í lífi þínu og þú gerðir allt fyrir hana. Þegar mamma veiktist stóðst þú við hlið mömmu og vékst ekki frá henni. Ég veit að þú saknaðir hennar alltaf mikið. Þú varst mér alltaf góður og börnunum mínum líka. Þú varst þeim góður afi og þau gátu alltaf leitað til þín. Við áttum öll ógleymanlegar stundir saman. Hvort sem var á jólunum, ferða- lögum, heima hjá þér og mömmu eða hjá okkur. Elsku Árni minn, við þökkum þér allar samverustundirnar, um- hyggjuna fyrir okkur og fjöl- skyldunni allri og öllu heima. Ástar- og saknaðarkveðjur, Ástrós. Elskulegi afi okkar, nú ertu bú- inn að kveðja og kominn til ömmu. Við erum þakklát fyrir tímann sem við fengum að njóta með þér. Við kveðjum þið með söknuði og hugann fullan af ljúfum minning- um. Við elskum þig, sofðu rótt, afi okkar. Í bænum okkar, besti afi biðjum fyrir þér að Guð sem yfir öllu ræður, allt sem veit og sér leiði þig að ljóssins vegi lát’ þig finna að, engin sorg og enginn kvilli á þar samastað. Við biðjum þess í bænum okkar bakvið lítil tár, að Guð sem lífið gaf og slökkti græði sorgarsár. Við þökkum Guði gjafir allar gleði og vinarfund og hve mörg var ávallt með þér ánægjunnar stund. (Sigurður Hansen) Alexander, Birta Líf, Ísa- bella og Hjámtýr (Hjalli). Örfá kveðjuorð um elsku mág minn, Árna Vilhjálmsson, sem lést aðfaranótt 29. ágúst síðastlið- inn. Árni var búinn að vera lengi hjartveikur og varð bráðkvaddur á heimili sínu. Árni stundaði ýmis störf, var á sjó, vann við pípulagn- ir, á bílaklæðningarverkstæði Elf- ars og síðan í mörg ár hjá B&L sem verkstjóri. Árni var mjög dul- ur maður og lét ekki mikið fyrir sér fara en var mikið ljúfmenni. Árni missti konu sína, Bryn- dísi, 1. nóvember 2018 og stóð sig eins og hetja í heilt ár í hennar miklu veikindum. Árni og Dísa systir mín voru afskaplega sam- rýnd hjón og fóru í margar utan- landsferðir. Þeim þótti mjög gam- an að ferðast og við fórum þrjú saman í eina ferð. Ég kom oft í heimsókn til Árna og Dísu systur. Það var yndislegt að koma í heim- sókn til þeirra í kaffisopa og spjalla um lífið og tilveruna, þá var oft hlegið. Eftir að Dísa dó hélt ég áfram að fara í morgun- kaffi til Árna til að athuga hvernig honum liði. Alltaf sagði hann að það væri allt í lagi með sig en hann var mjög einmana eftir lát hennar. Ég kom til hans morg- uninn áður en hann dó. Við rædd- um um ferðina sem hann hlakkaði mikið til að fara í. Hann ætlaði til Alicante með krökkunum í sept- ember en það fór á annan veg. Hann fór í staðinn í sína hinstu ferð og ég trúi að hann sé búinn að hitta Dísu sína aftur. Við munum sakna Árna og Dísu sárt. Bið ég góðan Guð að styrkja börn Árna og Dísu og fjölskyldur þeirra og votta þeim mínar inni- legustu samúð. Sólbjört (Sóla systir) og fjölskylda. Elsku afi minn, mikið er sárt að kveðja þig, mér finnst þetta vera allt svo óraunverulegt, fyrir 13 mánuðum komuð þið amma til okkar í grillveislu hér í Grindavík. En tveimur mánuðum síðar kveð- ur hún okkur og mikið var það sárt. Nú um 10 mánuðum seinna kveður þú okkur. Elsku afi, ég vil þakka þér fyrir allt það sem þið amma gerðuð fyr- ir okkur. Ég vil þakka ykkur fyrir að leyfa mér að búa hjá ykkur í þessa mánuði meðan ég var í skól- anum og var ekki flutt til Grinda- víkur, alla hundapössunina fyrir snúllu okkar allra, og fyrir að hafa verið tilbúin í sumar að þurrka rennblaut fótboltafötin fyrir langafastrákinn þinn. Ég á eftir að sakna allra kaffi- bollanna okkar saman þar sem við sátum við eldhúsborðið og rædd- um um allt sem var að gerast hverju sinni. Ég hlakkaði svo til að fara út með þér og var það hræðilegt að vita svo að þú kæmir daginn eftir að ég færi heim. Ég er svo þakklát fyrir að hafa hringt í þig deginum áður en þú fórst og spjallað við þig, ég var nefnilega næstum búin að sækja hundinn og ætlaði bara að hafa hann hér þangað til þú næðir betri heilsu, þrátt fyrir að vera með tvo hunda og kött en ég vissi líka vel hversu einmana þú varst eftir að amma fór og sorg- mæddur. Mér fannst þessi hugmynd frá- bær, við yrðum með hann saman og ég gæti tekið hann þegar þú þyrftir og passað. Þú varst ekki tilbúinn akkúrat þarna eins og mig grunaði en þú slóst ekki hendinni á móti og sagðir við mig að ég yrði bara að taka hann þrátt fyrir hunda og kött, þeir myndu venjast þessu og hann myndi skoða þetta seinna þegar heilsan væri orðin betri. Það verður skrítið að geta ekki kíkt til þín eða boðið þér í Ikea í mat fyrir jólin, elsku afi minn. Við komum til með að minnast þín með hlýju og þakklæti fyrir allar þær minningar sem við eigum og geymum við þær í hjarta okkar þar til við hittumst á ný. Guð geymi þig, elsku afi okkar, við kveðjum þig með söknuði en vit- um að nú ertu kominn til ömmu og þið farin í ykkar ferðalag saman á ný Magðalena (Lena), Guðni, Elma Rún, Frey- þór Már og Freyja. Árni Vilhjálmsson Sálm. 16.1-2 biblian.is Varðveit mig, Guð, því að hjá þér leita ég hælis. Ég segi við Drottin: „Þú ert Drottinn minn, ég á engin gæði nema þig.” Frímann & hálfdán Útfararþjónusta Frímann 897 2468 Hálfdán 898 5765 Ólöf 898 3075 Sími: 565 9775 www.uth.is uth@uth.is Cadillac 2017 Ástkær faðir minn, bróðir og frændi, GÍSLI ÞÓRÐARSON viðskiptafræðingur, Norðurbrún 1, Reykjavík, lést á heimili sínu fimmtudaginn 12. september. Útförin fer fram frá Kópavogskirkju fimmtudaginn 26. september klukkan 15. Þórður Gíslason Halldóra Þórðardóttir og frændsystkin Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og tengdaamma, AUÐBJÖRG HLÍN PÁLSDÓTTIR, Kambastíg 6, Sauðárkróki, lést á heimili sínu laugardaginn 14. september. Útförin fer fram frá Sauðárkrókskirkju fimmtudaginn 26. september klukkan 14. Árni Indriðason Kári Heiðar Árnason Margrét Helgadóttir Hlynur Freyr Árnason Thelma Rut, Þröstur, Viktor og Gunnhildur Dís. Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, INGIMAR STEINDÓR GUÐMUNDSSON bóndi, Uppsölum í Miðfirði, lést á Heilbrigðisstofnun Hvammstanga fimmtudaginn 19. september. Útförin fer fram frá Melstaðarkirkju föstudaginn 27. september klukkan 15. Elínbjörg Kristjánsdóttir Guðmundur H. Ingimarsson Helena M. Áskelsdóttir Kristján V. Ingimarsson Guðrún P. Ingimarsdóttir Sturlaugur V. Guðnason Guðjón E. Ingimarsson Júlía Káradóttir og barnabörn Elskuleg móðir okkar, RUTH GUÐMUNDSDÓTTIR, er látin. Jarðsungið verður föstudaginn 27. september klukkan 13 frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði. Blóm og kransar eru afþakkaðir. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á að styrkja minningarsjóð Fríkirkjunnar í Hafnarfirði. Guðmundur Ólafsson Eygló Kristín Gunnarsdóttir Guðrún Ólafsdóttir Newman Elín Ólafsdóttir Baldvin Kristinsson Arnlaugur Ólafsson Erla Björg Garðarsdóttir og fjölskyldur Ástkær og hugulsöm eiginkona mín, móðir og systir okkar kæra, JÓFRÍÐUR GUÐMUNDSDÓTTIR, Löngumýri 26, Garðabæ, lést á Landspítalanum fimmtudaginn 19. september. Útför hennar fer fram frá Vídalínskirkju miðvikudaginn 2. október klukkan 11. Davíð G. Sverrisson Röed Hulda Rún Davíðsdóttir Röed Hrefna Halldórsdóttir Arndís Guðmundsdóttir Sigurður Rúnar Gunnarsson Hrafnhildur Guðmundsdóttir Jóhannes Kristleifsson Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, GRÍMUR H. LEIFSSON rafvirkjameistari, lést á Landspítalanum, Fossvogi, 23. september. Úförin fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík föstudaginn 4. október klukkan 13. Emil Grímsson Rikke Elkjær Knudsen Leifur Grímsson Elsa Hrönn Reynisdóttir Sigríður Sif Grímsdóttir Árni Arnórsson barnabörn og barnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.