Morgunblaðið - 25.09.2019, Page 18
18 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. SEPTEMBER 2019
✝ Árni Vilhjálms-son fæddist í
Bakkakoti, Rang-
árvallasýslu, 4. júlí
1941. Hann varð
bráðkvaddur á
heimili sínu 29.
ágúst 2019.
Foreldrar hans
voru Þórsteinunn
Stefánsdóttir hús-
freyja, f. 5. júlí
1919 á Eskifirði, d.
2. mars 1978, og Vilhjálmur
Pálsson bóndi, f. 1. júní 1900 á
Gaddastöðum, Rangárvalla-
sýslu, d. 4. maí 1961. Árni átti
einn albróður og tvö hálfsystk-
ini sammæðra.
Hinn 13. febrúar 1963 kvænt-
ist Árni Bryndísi Guðrúnu
Kristjánsdóttur, f. 22. október
1942, en þau skildu árið 1971.
Árni og Bryndís tóku aftur sam-
an árið 1992 og giftu sig 20.
febrúar 2018. Bryndís lést eftir
erfið og stutt veikindi 1. nóv-
ember 2018.
Börn Árna og Bryndísar: 1)
Kristjana Sólborg Árnadóttir, f.
15. jan. 1960, gift Kristjáni G.
Guðmundssyni, f. 2. okt. 1953,
dætur þeirra a) Bryndís Guð-
Ósk, f. 23. feb. 2000. 6) Pétur
Gunnar Þór Árnason, f. 25. maí
1970, giftur Ingibjörgu Kristínu
Þórarinsdóttur, f. 2. okt. 1982,
börn þeirra e) Bjarni Snæbjörn,
f. 17. sep. 1994, Guðný Magnea,
f. 7. sep. 2005, Rannveig Perla,
f. 30. jún. 2010. 7) Ástrós Hjálm-
týsdóttir, f. 30. október 1974,
gift Kristjáni Bjarnasyni, f. 12.
mars 1969, börn þeirra e) Alex-
ander, f. 2. maí 1996, Birta Líf,
f. 22. feb 2000, Ísabella Schöbel,
f. 11. ágú 2004, Hjálmtýr Daníel
Schöbel, f. 25. jan 2006, Kristján
Högni, f. 10. mar 1992, Lena
Rut, f. 28. mar. 2001.
Þegar Árni og Bryndís end-
urnýjuðu kynnin var Bryndís
orðin ekkja og átti hún eina
dóttur úr fyrra hjónabandi. Þá
átti Bryndís einnig soninn Svan
Gunnar Guðlaugsson, f. 1961.
Afkomendur Árna og Bryn-
dísar eru orðnir 37 talsins, 36
þeirra eru á lífi og eru dreifðir
víða um heimsbyggðina.
Fyrstu árin á vinnumarkaði
vann Árni við ýmis verka-
mannastörf, var á togurum en
lengst af vann hann sem verk-
stjóri hjá Bifreiðum og landbún-
aðarvélum.
Útför Árna fer fram frá
Fella- og Hólakirkju í Reykjavík
í dag, 25. september 2019, og
hefst athöfnin klukkan 15.
rún, f. 26. nóv.
1976, Magðalena
Margrét, f. 17. okt.
1979, Magnea
Freyja, f. 17. mars
1989. 2) Pétur
Gunnar Þór Árna-
son, f. 22. nóv.
1962, d. 12. maí
1969. 3) Guðlaug
Brynhildur Árna-
dóttir, f. 18. des.
1963, gift Jóni
Pálma Bernódussyni, f. 22. ágú.
1962, börn þeirra b) Jónína, f.
24. des. 1982, Kristján, f. 24.
nóv. 1990. 4) Vilhjálmur Árna-
son, f. 15. maí 1966, sambýlis-
kona Sigfríður G. Sigurjóns-
dóttir, f. 12. des. 1964, börn
þeirra c) Hjálmdís Ólöf, f. 2. maí
1988, Anna Margrét, f. 19. okt.
1992, Hafsteinn Árni, f. 14. apr.
1997, Björn Matthías, f. 21. nóv.
1999, Berglind Eir, f. 7. júl.
1986, Guðbjartur Gísli, f. 16. júl.
1988, Jón Hákon, f. 10. okt.
2000. 5) Kristján Sólberg Árna-
son, f. 27. ágú 1967, giftur Önnu
Kristínu Grettisdóttur, f. 11.
feb. 1971, börn þeirra d) Jóel
Grettir, f. 28. apr. 1990, Birkir
Þór, f. 18. jún. 1996, Sandra
Elsku Árni minn, það er skrítið
að sitja hérna úti á Spáni og skrifa
þessi kveðjuorð. Þú ætlaðir að
vera með mér og Didda hér á
Spáni, þú varst byrjaðar að und-
irbúa þig fyrir ferðina og láta þig
hlakka til. Tveimur dögum áður
en þú kvaddir fór ég með þér til
læknisins þar sem heilsan hafði
ekki alveg verið nógu góð. Þú vild-
ir fá grænt ljós frá lækninum áður
sem þú fékkst. Það sem við viss-
um ekki þá var að þú varst að und-
irbúa þig í annað ferðalag en með
okkur. Þú varst á leiðinni í
Draumalandið til mömmu og Pét-
urs heitins.
Ég man þegar þið mamma tók-
uð aftur saman eftir að ég missti
pabba, þú fluttir inn til mömmu
þegar ég flutti að heiman. Það
voru ekki allir hrifnir af því að þið
tækjuð saman og á þeim tíma
pældi ég lítið í því þar sem ég var
svo upptekin af að vera fullorðin
of snemma. Þið mamma áttuð
sögu saman frá fyrri tíma, áttuð
börn saman og voruð búin að upp-
lifa mikla sorg þegar þið misstuð
litla strákinn ykkar.
Ég man þegar mamma greind-
ist með krabbamein snemma á
árinu 2018, þá kom ekki annað til
greina en að þið létuð pússa ykkur
saman. Þú varst ekki alveg á því
en ég tók ekki annað í mál og
sagði að það væri það eina í stöð-
unni og þið fenguð litlu að ráða
um það. Ég hringdi í prestinn og
sagði að ég yrði að láta gifta
mömmu mína, þegar ég, þú og
mamma fórum á fund til prests-
ins, þá sá hann að mamma var
skráð ekkja í þjóðskrá og þú frá-
skilinn, hann bað því um nafn
fyrrverandi eiginkonu þinnar og
þegar ég nefndi við hann að það
væri mamma, þá skildi hann ekk-
ert í því og sagði: bíddu er hún
ekki ekkja? Það var mikið hlegið
að því og óhætt að segja að fjöl-
skyldumynstrið er flókið.
Það að þið tókuð saman aftur
var best fyrir ykkur og best fyrir
okkur systkinin. Mamma var
stóra ástin í lífi þínu og þú gerðir
allt fyrir hana. Þegar mamma
veiktist stóðst þú við hlið mömmu
og vékst ekki frá henni. Ég veit að
þú saknaðir hennar alltaf mikið.
Þú varst mér alltaf góður og
börnunum mínum líka. Þú varst
þeim góður afi og þau gátu alltaf
leitað til þín. Við áttum öll
ógleymanlegar stundir saman.
Hvort sem var á jólunum, ferða-
lögum, heima hjá þér og mömmu
eða hjá okkur.
Elsku Árni minn, við þökkum
þér allar samverustundirnar, um-
hyggjuna fyrir okkur og fjöl-
skyldunni allri og öllu heima.
Ástar- og saknaðarkveðjur,
Ástrós.
Elskulegi afi okkar, nú ertu bú-
inn að kveðja og kominn til ömmu.
Við erum þakklát fyrir tímann
sem við fengum að njóta með þér.
Við kveðjum þið með söknuði og
hugann fullan af ljúfum minning-
um.
Við elskum þig, sofðu rótt, afi
okkar.
Í bænum okkar, besti afi
biðjum fyrir þér
að Guð sem yfir öllu ræður,
allt sem veit og sér
leiði þig að ljóssins vegi
lát’ þig finna að,
engin sorg og enginn kvilli
á þar samastað.
Við biðjum þess í bænum okkar
bakvið lítil tár,
að Guð sem lífið gaf og slökkti
græði sorgarsár.
Við þökkum Guði gjafir allar
gleði og vinarfund
og hve mörg var ávallt með þér
ánægjunnar stund.
(Sigurður Hansen)
Alexander, Birta Líf, Ísa-
bella og Hjámtýr (Hjalli).
Örfá kveðjuorð um elsku mág
minn, Árna Vilhjálmsson, sem
lést aðfaranótt 29. ágúst síðastlið-
inn. Árni var búinn að vera lengi
hjartveikur og varð bráðkvaddur
á heimili sínu. Árni stundaði ýmis
störf, var á sjó, vann við pípulagn-
ir, á bílaklæðningarverkstæði Elf-
ars og síðan í mörg ár hjá B&L
sem verkstjóri. Árni var mjög dul-
ur maður og lét ekki mikið fyrir
sér fara en var mikið ljúfmenni.
Árni missti konu sína, Bryn-
dísi, 1. nóvember 2018 og stóð sig
eins og hetja í heilt ár í hennar
miklu veikindum. Árni og Dísa
systir mín voru afskaplega sam-
rýnd hjón og fóru í margar utan-
landsferðir. Þeim þótti mjög gam-
an að ferðast og við fórum þrjú
saman í eina ferð. Ég kom oft í
heimsókn til Árna og Dísu systur.
Það var yndislegt að koma í heim-
sókn til þeirra í kaffisopa og
spjalla um lífið og tilveruna, þá
var oft hlegið. Eftir að Dísa dó
hélt ég áfram að fara í morgun-
kaffi til Árna til að athuga hvernig
honum liði. Alltaf sagði hann að
það væri allt í lagi með sig en
hann var mjög einmana eftir lát
hennar. Ég kom til hans morg-
uninn áður en hann dó. Við rædd-
um um ferðina sem hann hlakkaði
mikið til að fara í. Hann ætlaði til
Alicante með krökkunum í sept-
ember en það fór á annan veg.
Hann fór í staðinn í sína hinstu
ferð og ég trúi að hann sé búinn að
hitta Dísu sína aftur.
Við munum sakna Árna og
Dísu sárt.
Bið ég góðan Guð að styrkja
börn Árna og Dísu og fjölskyldur
þeirra og votta þeim mínar inni-
legustu samúð.
Sólbjört (Sóla systir) og
fjölskylda.
Elsku afi minn, mikið er sárt að
kveðja þig, mér finnst þetta vera
allt svo óraunverulegt, fyrir 13
mánuðum komuð þið amma til
okkar í grillveislu hér í Grindavík.
En tveimur mánuðum síðar kveð-
ur hún okkur og mikið var það
sárt. Nú um 10 mánuðum seinna
kveður þú okkur.
Elsku afi, ég vil þakka þér fyrir
allt það sem þið amma gerðuð fyr-
ir okkur. Ég vil þakka ykkur fyrir
að leyfa mér að búa hjá ykkur í
þessa mánuði meðan ég var í skól-
anum og var ekki flutt til Grinda-
víkur, alla hundapössunina fyrir
snúllu okkar allra, og fyrir að hafa
verið tilbúin í sumar að þurrka
rennblaut fótboltafötin fyrir
langafastrákinn þinn.
Ég á eftir að sakna allra kaffi-
bollanna okkar saman þar sem við
sátum við eldhúsborðið og rædd-
um um allt sem var að gerast
hverju sinni.
Ég hlakkaði svo til að fara út
með þér og var það hræðilegt að
vita svo að þú kæmir daginn eftir
að ég færi heim. Ég er svo þakklát
fyrir að hafa hringt í þig deginum
áður en þú fórst og spjallað við
þig, ég var nefnilega næstum búin
að sækja hundinn og ætlaði bara
að hafa hann hér þangað til þú
næðir betri heilsu, þrátt fyrir að
vera með tvo hunda og kött en ég
vissi líka vel hversu einmana þú
varst eftir að amma fór og sorg-
mæddur.
Mér fannst þessi hugmynd frá-
bær, við yrðum með hann saman
og ég gæti tekið hann þegar þú
þyrftir og passað. Þú varst ekki
tilbúinn akkúrat þarna eins og
mig grunaði en þú slóst ekki
hendinni á móti og sagðir við mig
að ég yrði bara að taka hann þrátt
fyrir hunda og kött, þeir myndu
venjast þessu og hann myndi
skoða þetta seinna þegar heilsan
væri orðin betri.
Það verður skrítið að geta ekki
kíkt til þín eða boðið þér í Ikea í
mat fyrir jólin, elsku afi minn. Við
komum til með að minnast þín
með hlýju og þakklæti fyrir allar
þær minningar sem við eigum og
geymum við þær í hjarta okkar
þar til við hittumst á ný. Guð
geymi þig, elsku afi okkar, við
kveðjum þig með söknuði en vit-
um að nú ertu kominn til ömmu og
þið farin í ykkar ferðalag saman á
ný
Magðalena (Lena),
Guðni, Elma Rún, Frey-
þór Már og Freyja.
Árni Vilhjálmsson
Sálm. 16.1-2
biblian.is
Varðveit mig, Guð,
því að hjá þér leita
ég hælis. Ég segi
við Drottin: „Þú ert
Drottinn minn, ég
á engin gæði nema
þig.”
Frímann & hálfdán
Útfararþjónusta
Frímann
897 2468
Hálfdán
898 5765
Ólöf
898 3075
Sími: 565 9775
www.uth.is
uth@uth.is
Cadillac 2017
Ástkær faðir minn, bróðir og frændi,
GÍSLI ÞÓRÐARSON
viðskiptafræðingur,
Norðurbrún 1, Reykjavík,
lést á heimili sínu fimmtudaginn
12. september. Útförin fer fram frá
Kópavogskirkju fimmtudaginn 26. september klukkan 15.
Þórður Gíslason
Halldóra Þórðardóttir
og frændsystkin
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og tengdaamma,
AUÐBJÖRG HLÍN PÁLSDÓTTIR,
Kambastíg 6, Sauðárkróki,
lést á heimili sínu laugardaginn
14. september. Útförin fer fram frá
Sauðárkrókskirkju fimmtudaginn 26. september klukkan 14.
Árni Indriðason
Kári Heiðar Árnason Margrét Helgadóttir
Hlynur Freyr Árnason
Thelma Rut, Þröstur, Viktor og Gunnhildur Dís.
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir
og afi,
INGIMAR STEINDÓR GUÐMUNDSSON
bóndi,
Uppsölum í Miðfirði,
lést á Heilbrigðisstofnun Hvammstanga
fimmtudaginn 19. september.
Útförin fer fram frá Melstaðarkirkju föstudaginn 27. september
klukkan 15.
Elínbjörg Kristjánsdóttir
Guðmundur H. Ingimarsson Helena M. Áskelsdóttir
Kristján V. Ingimarsson
Guðrún P. Ingimarsdóttir Sturlaugur V. Guðnason
Guðjón E. Ingimarsson Júlía Káradóttir
og barnabörn
Elskuleg móðir okkar,
RUTH GUÐMUNDSDÓTTIR,
er látin.
Jarðsungið verður föstudaginn
27. september klukkan 13 frá Fríkirkjunni í
Hafnarfirði. Blóm og kransar eru afþakkaðir.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á að styrkja
minningarsjóð Fríkirkjunnar í Hafnarfirði.
Guðmundur Ólafsson Eygló Kristín Gunnarsdóttir
Guðrún Ólafsdóttir Newman
Elín Ólafsdóttir Baldvin Kristinsson
Arnlaugur Ólafsson Erla Björg Garðarsdóttir
og fjölskyldur
Ástkær og hugulsöm eiginkona mín, móðir
og systir okkar kæra,
JÓFRÍÐUR GUÐMUNDSDÓTTIR,
Löngumýri 26, Garðabæ,
lést á Landspítalanum fimmtudaginn
19. september. Útför hennar fer fram
frá Vídalínskirkju miðvikudaginn 2. október klukkan 11.
Davíð G. Sverrisson Röed
Hulda Rún Davíðsdóttir Röed
Hrefna Halldórsdóttir
Arndís Guðmundsdóttir Sigurður Rúnar Gunnarsson
Hrafnhildur Guðmundsdóttir Jóhannes Kristleifsson
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi
og langafi,
GRÍMUR H. LEIFSSON
rafvirkjameistari,
lést á Landspítalanum, Fossvogi,
23. september.
Úförin fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík föstudaginn
4. október klukkan 13.
Emil Grímsson Rikke Elkjær Knudsen
Leifur Grímsson Elsa Hrönn Reynisdóttir
Sigríður Sif Grímsdóttir Árni Arnórsson
barnabörn og barnabarnabörn