Morgunblaðið - 25.09.2019, Page 19
MINNINGAR 19
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. SEPTEMBER 2019
Handan við fjöllin
heimabyggð mín er
hrjóstrugu fjörugrjóti
bundin
úr múgsins hruna-
dansi hugann þangað ber
því hjörtu sorgmædd tregi sker.
Brimströndin heima hlustar eftir
mér
hrollköldum nætur skugga vafin,
í móðurgleði brosir birta þegar fer
og bíður meðan dagur er.
(Helgi Sæmundsson)
Nú þegar afi Ástbjartur er
horfinn á braut er léttir að
hann skuli hafa fengið friðinn
sem hann þráði.
Samt er treginn til staðar.
Ástbjartur
Sæmundsson
✝ Ástbjartur Sæ-mundsson
fæddist 7. febrúar
1926. Hann lést 9.
ágúst 2019.
Útför Ástbjarts
fór fram í kyrrþey.
Ég trúi því þó að
hann hafi nú hald-
ið á nýjar slóðir, á
vit nýrra ævin-
týra, með öllum
sem hann saknaði.
Orðið sem helst
kemur upp í hug-
ann þegar ég
minnist afa míns
er nefnilega ævin-
týri. Því afi sagði
sögur af hjartans
lyst, þannig að löngu horfnir
atburðir urðu einhvern veginn
nýir í huga manns.Til dæmis
þegar hann hélt til sjós, ungur
að árum, ásamt Guðmundi
Vigfússyni, skipstjóra í Holti,
og fleiri hraustmennum úr
Eyjum. Einnig voru honum
minnisstæðir hermenn sem
hann kynntist kornungur í
vegavinnu fyrir austan og
voru honum góðir. Þegar afi
sagði sögur skipti nú kannski
ekki alltaf öllu þótt svolítið
væri kryddað á köflum, því
skáldaleyfi taka sér allir góðir
sögumenn.
Afi var sannkallað náttúru-
barn og leið einna best úti í fal-
legu veðri með Maggý sinni.
Að nýta það sem fékkst var
þeirra háttur og sóðaskap eða
sóun var ekki að finna í þeirra
orðabók. Afi og amma voru
miklir dýravinir og fengu
margir fuglar góða aðhlynn-
ingu í bílskúrnum við Álfhóls-
veginn. En stundum birtist
kærleikurinn með öðru móti.
Ég man þegar ég var lítill er
afi gekk um móa og endaði
þjáningar máva, sem einhverjir
höfðu gert að leik sínum að
skjóta og særa illa.
Eftir að amma lést snögg-
lega var afi á hálfgerðum hrak-
hólum í kerfinu áður en hann
eignaðist fallegt heimili á
Höfða, hjúkrunar- og dvalar-
heimili á Akranesi. Það sem
helst stendur upp úr frá þess-
um tíma er þó sú hlýja og vel-
vild sem honum var alltaf sýnd
og þakka ég fyrir það hér.
Einnig vil ég þakka Vegagerð-
inni fyrir að muna alltaf eftir
fyrrum aðalgjaldkera sínum,
þótt hann væri löngu, löngu
kominn á eftirlaun og fluttur á
Skagann.
Á Höfða leið afa mjög vel og
þar vildi hann helst alltaf vera.
Honum fannst þó gaman að
skreppa í bíltúr, en virtist allt-
af feginn að komast aftur heim.
Því þrátt fyrir að hafa verið
svona fyndinn og skemmtilegur
fannst honum líka stundum
gott að vera einn. En á meðan
afa entist heilsa þótti honum
líka mjög gaman að ræða við
fólk á staðnum um gömlu tím-
ana. Langar mig að þakka
starfsfólki og íbúum á Höfða af
öllu hjarta fyrir einstaka góð-
mennsku og hlýju. Þar átti afi
sannarlega griðastað.
Að lokum biðjum við feðg-
arnir og mamma og pabbi inni-
lega að heilsa í Sumarlandið.
Góða ferð, elsku afi, og takk
fyrir allt. Takk fyrir að vera
svona góður afi og langafi.
Fyrir stuðninginn, skilninginn,
gjafirnar og vináttuna. Fyrir
minningarnar. Fyrir ævintýrið.
Svo þegar ég loksins kem því í
verk að heimsækja Vestmanna-
eyjar, eins og við töluðum nú
um, þá verðið þið amma með í
för. Við sjáumst, einhvern tím-
ann. Í hjarta mínu geymi ég
þig.
Þinn dóttursonur,
Bjarki Þór.
Minningar
og andlát
Vefur þar sem er sameinað efni sem snýr að andlátum og útförum.
Þar eru birtar andláts-, útfarar- og þakkartilkynningar sem eru aðgengilegar öllum
en auk þess geta áskrifendur lesið minningargreinar á vefnum.
Á vefnum er að finna upplýsingar um þjónustuaðila sem aðstoða þegar andlát
ber að höndum og aðrar gagnlegar upplýsingar ætlaðar aðstandendum við fráfall ástvina.
www.mbl.is/andlát
Minningargreinar
Hægt er að lesa minningargreinar,
skrifa minningargrein ogæviágrip.
Þjónustuskrá
Listi yfir aðila og fyrirtæki sem aðstoða
þegar andlár ber að höndum.
Gagnlegar upplýsingar
Upplýsingar og gátlisti fyrir
aðstandendum við fráfall ástvina
Nýr minningarvefur á mbl.is
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, dóttir, stjúpdóttir, systir
og stjúpsystir,
ELÍN MAGNADÓTTIR,
lést á Landspítalanum 20. september.
Útför fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík
þriðjudaginn 1. október klukkan 13.
Tryggvi Egilsson
Valgerður Tryggvadóttir Björgvin Ragnar Hjálmarsson
Þórdís Tryggvadóttir
Magni Guðmundsson Halldóra Anna Þorvaldsdóttir
Ingibjörg Magnadóttir Marteinn Þór Sigurðarson
Rakel Marteinsdóttir Hrafnkell Ívarsson
Petra Marteinsdóttir
Þorvaldur Ingvarsson Rúna Alexandersdóttir
Kristín Ingvarsdóttir Guðmundur Thoroddsen
Sveinn Ingvarsson Valdís Ásta Aðalsteinsdóttir
Örn Hauksteinn Ingólfsson Ásdís Arna Björnsdóttir
Haustið 1958, fyr-
ir sextíu og einu ári,
lét ég gamlan draum
rætast og fór í Hús-
mæðraskólann á Laugalandi í
Eyjafirði. Þar sem ég var ein á
ferð var ég mjög ánægð þegar ég
komst að því að tvær stelpur sem
sátu fyrir aftan mig í rútunni,
Sonný og Rósa Ragnarsdóttir,
voru á leið í sama skóla. Þetta
voru fyrstu kynni mín af Sonný og
lögðu þau grunn að ævilangri vin-
áttu. Í skólanum lentum við allar
þrjár í sama herbergi ásamt Ellu,
en þær voru allar af Suðurnesj-
um. Þó að við værum fjórar í her-
bergi var aldrei rifist. Við Sonný
vorum á sama tíma í helgarfríum
og þá var oft farið á ball á Ak-
ureyri.
Veturinn eftir að við útskrifuð-
umst fórum við Sonný til Vest-
mannaeyja til að vinna í mötu-
neyti enda fullnuma úr
húsmæðraskóla. Ekki fannst okk-
ur námið nýtast vel en við unnum
mjög mikið enda voru margir í
Sólveig Guðný
Gunnarsdóttir
✝ Sólveig GuðnýGunnarsdóttir
fæddist 26. október
1939. Hún lést 6.
september 2019.
Útför Sólveigar
fór fram 16. sept-
ember 2019.
mat. Ég man vel
hvað Sonnýju fannst
Ora-fiskibollur með
tómatsósu góðar.
Í Eyjum vorum
við saman allan sól-
arhringinn, bjugg-
um í litlu herbergi
og sváfum í kojum.
Þegar vertíðinni
lauk keyptum við
okkur eins stóla hjá
pabba Sonnýjar sem
rak húsgagnaverslun og minn
gegnir ennþá hlutverki sínu.
Ég kom oft til Sonnýjar og for-
eldra hennar á Hafnargötuna í
Keflavík á þessum árum og alltaf
var tekið hlýlega á móti mér. Í
rúma fjóra áratugi höfum við hist
einu sinni í mánuði ásamt öðrum
stelpum úr húsmæðraskólanum.
Ég minnist Sonnýjar með
söknuði og þökk fyrir góða vin-
áttu.
Hver minning dýrmæt perla að liðnum
lífsins degi,
hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka
hér.
Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem
gleymist eigi,
og gæfa var það öllum, er fengu að
kynnast þér.
(Ingibjörg Sigurðardóttir)
Valborg Guðmundsdóttir
(Vallý).
Elsku Svana
okkar. Við viljum
þakka þér fyrir all-
ar góðu stundirn-
ar, stuðninginn og kærleikann
sem þú alltaf veittir okkur. Við
vorum svo óendanlega heppin
að hafa þig sem þriðju ömmu
Ólöf Svana
Samúelsdóttir
✝ Ólöf SvanaSamúelsdóttir
fæddist 9. maí
1944. Hún lést 6.
september 2019.
Útför Svönu fór
fram 16. september
2019.
okkar og erum þér
ævinlega þakklát
fyrir að sjá um
okkur og elska sem
þín eigin. Þú varst
dásamleg fyrir-
mynd sem við
munum alltaf líta
upp til og muna í
gegnum líf okkar.
Við elskum þig og
söknum þín enda-
laust.
Þín,
Kristín Hekla, Andrea,
Össur Anton og Örvar
Gauti.
Morgunblaðið birtir minningargreinar
endurgjaldslaust alla útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í
hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“
valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina
www.mbl.is/sendagrein
Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin
að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á
föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein ber-
ist áður en skilafrestur rennur út.
Minningargreinar