Morgunblaðið - 25.09.2019, Page 24
24 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. SEPTEMBER 2019
Opið virka daga 10.00-18.15, laugardaga 11.00-14.00 | Gnoðarvogi 44, 104 Reykjavík | Sími 588 8686
Gómsætir og girnilegir réttir
í fiskborði beint í ofninn
Þorskhnakkar
Glæný lúða
Klausturbleikja
Glæný línuýsa
Nýlöguð
humarsúpa
ina litið var árangurinn mjög góður,“
sagði Ásdís, en hún og Martha Her-
mannsdóttir búa að mikilli reynslu
sem er dýrmæt því margar í leik-
mannahópnum eru ungar að árum.
„Þegar erum í stuði spilar liðið
hrikalega góða vörn og við fáum
helling af hraðaupphlaupum, meðal
annars vegna þess að við erum með
fljóta hornamenn. Sá leikstíll er
mjög skemmtilegur. Leikur okkar
breytist svolítið við að missa Sól-
veigu en við erum alltaf að verða
betur samstilltar. Liðið er ungt og
við þekkjumst æ betur, ekki það að
við Martha séum eitthvað voðalega
ungar,“ sagði Ásdís og hló.
Hefur áður unnið með Gunnari
Ásdís varð bæði Íslands- og bikar-
meistari með Stjörnunni um miðjan
síðasta áratug. Hún lék auk þess í
Noregi og var þá einmitt undir
stjórn Gunnars Líndals Sigurðar-
sonar sem tók við liði KA/Þórs í
sumar.
„Ég spilaði hjá honum í Stryn en
liðið var þá í 2. deildinni. Gunnari
gekk mjög vel í Noregi og var valinn
þjálfari ársins 2015.“
Heimavöllurinn hefur oft reynst
KA/Þór vel og Ásdís segir starfið í
kringum liðið vera gott.
„Stemningin er fín. Umgjörðin í
kringum liðið er mjög góð og flott
fólk sem stendur á bak við okkur í
stjórninni. Við fórum til dæmis í æf-
ingaferð til Danmerkur á undirbún-
ingstímabilinu og var vel staðið að
öllu í kringum það. Fólk mætir vel á
leikina og áhorfendur styðja vel við
bakið á okkur,“ sagði Ásdís Sig-
urðardóttir, leikmaður KA/Þórs, í
samtali við Morgunblaðið í gær.
Forsendur
til að gera
enn betur
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Reynsla Ásdís Sigurðardóttir á langan feril að baki og tók þátt í að tryggja
Akureyrarliðinu fimmta sæti deildarinnar á síðasta tímabili.
Svipaður leikmannahópur hjá KA/
Þór Tvær króatískar í hópnum
Hulda Bryndís Tryggvadóttir
Kolbrún Gígja Einarsdóttir
Kristín A. Jóhannsdóttir
Martha Hermannsdóttir
Martina Corkovic
Telma Lísa Elmarsdóttir
Þjálfari: Gunnar Líndal
Sigurðsson.
Aðstoðarþjálfari: Sigþór Árni
Heimisson.
Árangur 2018-19: 5. sæti.
Íslandsmeistari: Aldrei.
Bikarmeistari: Aldrei.
KA/Þór tapaði 29:38 fyrir Fram
á heimavelli í fyrstu umferð og
23:26 fyrir Stjörnunni á útivelli í
2. umferð. KA/Þór tekur næst á
móti HK 4. október.
MARKVERÐIR:
Matea Lonac
Ólöf Maren Bjarnadóttir
Selma Sigurðard. Malmquist
HORNAMENN:
Ásdís Sigurðardóttir
Katrín Vilhjálmsdóttir
Rakel Sara Elvarsdóttir
Svala Svavarsdóttir
LÍNUMENN:
Anna Þyrí Halldórsdóttir
Ásdís Guðmundsdóttir
Helga María Viðarsdóttir
ÚTISPILARAR:
Aldís Ásta Heimisdóttir
Anna Marý Jónsdóttir
Anna Valgerður Erlingsdóttir
Lið KA/Þórs 2019-20
KOMNAR
Kolbrún Gígja Einarsdóttir,
úr barneignarfríi
Martina Corkovic frá Cluj
(Rúmeníu)
Matea Lonac frá Stryn (Noregi)
FARNAR
Olgica Andrijasevic, óvíst
Ólöf Marín Hlynsdóttir í ÍR
Sólveig Lára Kristjánsdóttir í ÍR
(barneignarfrí)
Una Kara Vídalín Jónsdóttir, hætt
Þóra Björk Stefánsdóttir, hætt
Breytingar á liði KA/Þórs
Í liði KA/Þórs eru efnilegir leikmenn og
reynsluboltar með.
Liðið hefur misst góðan markmann og sína
aðalskyttu. Fróðlegt er að sjá hvernig það
verður leyst.
Ógnarsterkur heimavöllur sem skilar alltaf
einhverjum stigum.
Áhugavert: Að sjá hvort þær ná að fylgja eftir
góðum árangri á síðasta ári.
Guðríður Guðjónsdóttir
um lið KA/Þórs
Eitt
ogannað
Knattspyrnukonan Stefanía
Ragnarsdóttir er eftirsótt af Fylki.
Miðjumaðurinn lék 14 leiki með Fylki
í deild og bikar í sumar á lánssamn-
ingi frá Val. Hún sneri aftur til Vals
1. ágúst en kom aðeins einu sinni við
sögu út tímabilið.
Enska knattspyrnufélagið Man-
chester United birti í gær ársreikn-
ing sinn fyrir síðasta fjárhagsár en
þar kom fram að tekjur félagsins
hefðu verið rúmar 627 milljónir
punda. Það er met hjá félaginu en
hagnaður á fjárhagsárinu nam um
50 milljónum punda. Ed Woodward
stjórnarformaður United sagði við
breska fjölmiðla að markmið félags-
ins væri eftir sem áður að byggja
upp frábært knattspyrnulið og vinna
titla en gengi liðsins hefur verið
undir væntingum undanfarin ár.
Cloé Lacasse, kanadíska knatt-
spyrnukonan sem fékk íslenskan rík-
isborgararétt í sumar, hefur farið vel
af stað með SL Benfica í Portúgal en
þangað fór hún frá ÍBV í byrjun
ágúst. SL Benfica hefur rótburstað
mótherja sína í fyrstu tveimur um-
ferðunum, sérstaklega A-Dos-
Francos í fyrstu umferð en þá skor-
aði Cloé fimm mörk í
24:0-sigri. Hún lék
síðan allan
leikinn
gegn Ov-
arense í
annarri
umferð en
skoraði ekki í
7:0-sigri
liðsins.
KA/ÞÓR
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Ásdís Sigurðardóttir, einn reyndasti
leikmaður KA/Þórs, er bjartsýn fyr-
ir veturinn í Olísdeildinni í hand-
knattaleik eftir fínan árangur í
fyrra.
„Við viljum alltaf gera betur. Við
misstum Sólveigu (Láru Kristjáns-
dóttur) en það kemur alltaf maður í
manns stað. Við fengum króatískar
stelpur til okkar, markvörð og
skyttu, auk þess sem það urðu þjálf-
araskipti. Við höfum allt til þess að
gera betur en í fyrra þótt við höfum
ekki farið nógu vel af stað í deildinni.
En við mættum mjög sterkum liðum
í fyrstu leikjunum. Mannskapurinn
og viljinn er til staðar,“ sagði Ásdís,
en Sólveig Lára var næstmarkahæst
hjá KA/Þór á síðasta tímabili. Mart-
ina Corkovic getur leikið allar stöð-
urnar fyrir utan og ætti því að reyn-
ast liðinu vel.
„Hún er ekki dæmigerð hávaxin
skytta en ætti að nýtast okkur mjög
vel. Þessar erlendu falla mjög vel
inn í hópinn hjá okkur og eru frá-
bærar persónur.“
Markmiðin náðust að mestu
Lið KA/Þórs hefur sótt í sig veðrið
undanfarin ár. Liðið fór í undan-
úrslit í bikarnum árið 2018 og var þá
í b-deildinni. Sem nýliði í efstu deild
síðasta vetur hafnaði liðið í 5. sæti.
„Í fyrra var markmiðið að halda
liðinu uppi í efstu deild og komast í
bikarhelgina. Okkur gekk mjög vel
og þá bættum við markmiði sem var
að komast í úrslitakeppnina. Á heild-