Morgunblaðið - 25.09.2019, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 25.09.2019, Qupperneq 24
24 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. SEPTEMBER 2019 Opið virka daga 10.00-18.15, laugardaga 11.00-14.00 | Gnoðarvogi 44, 104 Reykjavík | Sími 588 8686 Gómsætir og girnilegir réttir í fiskborði beint í ofninn Þorskhnakkar Glæný lúða Klausturbleikja Glæný línuýsa Nýlöguð humarsúpa ina litið var árangurinn mjög góður,“ sagði Ásdís, en hún og Martha Her- mannsdóttir búa að mikilli reynslu sem er dýrmæt því margar í leik- mannahópnum eru ungar að árum. „Þegar erum í stuði spilar liðið hrikalega góða vörn og við fáum helling af hraðaupphlaupum, meðal annars vegna þess að við erum með fljóta hornamenn. Sá leikstíll er mjög skemmtilegur. Leikur okkar breytist svolítið við að missa Sól- veigu en við erum alltaf að verða betur samstilltar. Liðið er ungt og við þekkjumst æ betur, ekki það að við Martha séum eitthvað voðalega ungar,“ sagði Ásdís og hló. Hefur áður unnið með Gunnari Ásdís varð bæði Íslands- og bikar- meistari með Stjörnunni um miðjan síðasta áratug. Hún lék auk þess í Noregi og var þá einmitt undir stjórn Gunnars Líndals Sigurðar- sonar sem tók við liði KA/Þórs í sumar. „Ég spilaði hjá honum í Stryn en liðið var þá í 2. deildinni. Gunnari gekk mjög vel í Noregi og var valinn þjálfari ársins 2015.“ Heimavöllurinn hefur oft reynst KA/Þór vel og Ásdís segir starfið í kringum liðið vera gott. „Stemningin er fín. Umgjörðin í kringum liðið er mjög góð og flott fólk sem stendur á bak við okkur í stjórninni. Við fórum til dæmis í æf- ingaferð til Danmerkur á undirbún- ingstímabilinu og var vel staðið að öllu í kringum það. Fólk mætir vel á leikina og áhorfendur styðja vel við bakið á okkur,“ sagði Ásdís Sig- urðardóttir, leikmaður KA/Þórs, í samtali við Morgunblaðið í gær. Forsendur til að gera enn betur Morgunblaðið/Árni Sæberg Reynsla Ásdís Sigurðardóttir á langan feril að baki og tók þátt í að tryggja Akureyrarliðinu fimmta sæti deildarinnar á síðasta tímabili.  Svipaður leikmannahópur hjá KA/ Þór  Tvær króatískar í hópnum Hulda Bryndís Tryggvadóttir Kolbrún Gígja Einarsdóttir Kristín A. Jóhannsdóttir Martha Hermannsdóttir Martina Corkovic Telma Lísa Elmarsdóttir Þjálfari: Gunnar Líndal Sigurðsson. Aðstoðarþjálfari: Sigþór Árni Heimisson. Árangur 2018-19: 5. sæti. Íslandsmeistari: Aldrei. Bikarmeistari: Aldrei.  KA/Þór tapaði 29:38 fyrir Fram á heimavelli í fyrstu umferð og 23:26 fyrir Stjörnunni á útivelli í 2. umferð. KA/Þór tekur næst á móti HK 4. október. MARKVERÐIR: Matea Lonac Ólöf Maren Bjarnadóttir Selma Sigurðard. Malmquist HORNAMENN: Ásdís Sigurðardóttir Katrín Vilhjálmsdóttir Rakel Sara Elvarsdóttir Svala Svavarsdóttir LÍNUMENN: Anna Þyrí Halldórsdóttir Ásdís Guðmundsdóttir Helga María Viðarsdóttir ÚTISPILARAR: Aldís Ásta Heimisdóttir Anna Marý Jónsdóttir Anna Valgerður Erlingsdóttir Lið KA/Þórs 2019-20 KOMNAR Kolbrún Gígja Einarsdóttir, úr barneignarfríi Martina Corkovic frá Cluj (Rúmeníu) Matea Lonac frá Stryn (Noregi) FARNAR Olgica Andrijasevic, óvíst Ólöf Marín Hlynsdóttir í ÍR Sólveig Lára Kristjánsdóttir í ÍR (barneignarfrí) Una Kara Vídalín Jónsdóttir, hætt Þóra Björk Stefánsdóttir, hætt Breytingar á liði KA/Þórs  Í liði KA/Þórs eru efnilegir leikmenn og reynsluboltar með.  Liðið hefur misst góðan markmann og sína aðalskyttu. Fróðlegt er að sjá hvernig það verður leyst.  Ógnarsterkur heimavöllur sem skilar alltaf einhverjum stigum.  Áhugavert: Að sjá hvort þær ná að fylgja eftir góðum árangri á síðasta ári. Guðríður Guðjónsdóttir um lið KA/Þórs Eitt ogannað  Knattspyrnukonan Stefanía Ragnarsdóttir er eftirsótt af Fylki. Miðjumaðurinn lék 14 leiki með Fylki í deild og bikar í sumar á lánssamn- ingi frá Val. Hún sneri aftur til Vals 1. ágúst en kom aðeins einu sinni við sögu út tímabilið.  Enska knattspyrnufélagið Man- chester United birti í gær ársreikn- ing sinn fyrir síðasta fjárhagsár en þar kom fram að tekjur félagsins hefðu verið rúmar 627 milljónir punda. Það er met hjá félaginu en hagnaður á fjárhagsárinu nam um 50 milljónum punda. Ed Woodward stjórnarformaður United sagði við breska fjölmiðla að markmið félags- ins væri eftir sem áður að byggja upp frábært knattspyrnulið og vinna titla en gengi liðsins hefur verið undir væntingum undanfarin ár.  Cloé Lacasse, kanadíska knatt- spyrnukonan sem fékk íslenskan rík- isborgararétt í sumar, hefur farið vel af stað með SL Benfica í Portúgal en þangað fór hún frá ÍBV í byrjun ágúst. SL Benfica hefur rótburstað mótherja sína í fyrstu tveimur um- ferðunum, sérstaklega A-Dos- Francos í fyrstu umferð en þá skor- aði Cloé fimm mörk í 24:0-sigri. Hún lék síðan allan leikinn gegn Ov- arense í annarri umferð en skoraði ekki í 7:0-sigri liðsins. KA/ÞÓR Kristján Jónsson kris@mbl.is Ásdís Sigurðardóttir, einn reyndasti leikmaður KA/Þórs, er bjartsýn fyr- ir veturinn í Olísdeildinni í hand- knattaleik eftir fínan árangur í fyrra. „Við viljum alltaf gera betur. Við misstum Sólveigu (Láru Kristjáns- dóttur) en það kemur alltaf maður í manns stað. Við fengum króatískar stelpur til okkar, markvörð og skyttu, auk þess sem það urðu þjálf- araskipti. Við höfum allt til þess að gera betur en í fyrra þótt við höfum ekki farið nógu vel af stað í deildinni. En við mættum mjög sterkum liðum í fyrstu leikjunum. Mannskapurinn og viljinn er til staðar,“ sagði Ásdís, en Sólveig Lára var næstmarkahæst hjá KA/Þór á síðasta tímabili. Mart- ina Corkovic getur leikið allar stöð- urnar fyrir utan og ætti því að reyn- ast liðinu vel. „Hún er ekki dæmigerð hávaxin skytta en ætti að nýtast okkur mjög vel. Þessar erlendu falla mjög vel inn í hópinn hjá okkur og eru frá- bærar persónur.“ Markmiðin náðust að mestu Lið KA/Þórs hefur sótt í sig veðrið undanfarin ár. Liðið fór í undan- úrslit í bikarnum árið 2018 og var þá í b-deildinni. Sem nýliði í efstu deild síðasta vetur hafnaði liðið í 5. sæti. „Í fyrra var markmiðið að halda liðinu uppi í efstu deild og komast í bikarhelgina. Okkur gekk mjög vel og þá bættum við markmiði sem var að komast í úrslitakeppnina. Á heild-

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.