Morgunblaðið - 25.09.2019, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 25.09.2019, Blaðsíða 26
VALUR Kristján Jónsson kris@mbl.is Hin 19 ára gamla Hlín Eiríksdóttir átti stóran þátt í sigri Vals á Íslands- mótinu í knattspyrnu. Valur tryggði sér sigurinn sem kunnugt er síðasta laugardag með sigri á Keflavík 3:2 í lokaumferð Pepsí Max-deildarinnar. „Upplifunin var geggjuð og ég er eiginlega bara í skýjunum. Stemn- ingin var mjög góð þegar við gátum fagnað á vellinum en einnig um kvöldið eins og fólk hefur séð sem fylgir stórstjörnunum okkar á sam- skiptamiðlum. Ég held að öllum hafi verið létt vegna þess að Valsliðið hafði ekki unnið ógeðslega lengi og það var komin ákveðin pressa á okk- ur,“ sagði Hlín þegar Morgunblaðið hafði samband við hana í gær og segist hafa verið bjartsýn í byrjun sumars en hún hafi svo sem einnig verið bjartsýn árin á undan. „Ég hafði einnig góða tilfinningu fyrir síðasta sumri og sumrinu þar á undan. Með þennan leikmannahóp gerðum við að sjálfsögðu ráð fyrir því að vera í efri hlutanum. Því fylgir góð tilfinning að ná að skila því sem ætlast er til af okkur. Mér fannst við spila vel og úr varð góð liðsheild. Fyrir okkur var heppilegt að byrja mótið vel gegn frekar góðu liði (5:2-sigur gegn Þór/KA). Þá byggðist upp sjálfstraust hjá liðinu. Liðsheildin verður einnig betri með góðum úrslitum þótt yfirleitt sé tal- að um að árangur náist út af liðs- heild. Þetta er einhvers konar blanda.“ Þær eldri í liðinu sjá tvo leiki fram í tímann Hlín hefur lengi þótt efnileg en sprakk út í sumar. Skoraði flest mörk í deildinni ásamt Berglindi Björgu Þorvaldsdóttur og Elínu Mettu Jensen. Fékk Hlín 12 M fyrir frammistöðu sína í einkunnagjöf blaðsins eins og tekið var saman í blaðinu í gær. Auk þess tók Hlín þátt í báðum landsleikjunum í und- ankeppni EM og skoraði gegn Ung- verjalandi. Hún fann sig vel í Vals- liðinu í sumar sem lék á köflum leiftrandi sóknarbolta. „Það er gaman að spila með svona liði. Þær eldri eru svo sterkar í hausnum og alltaf búnar að hugsa tvo leiki fram í tímann. Á æfingum spilum við eiginlega alltaf með einni snertingu. Það er eiginlega magnað að sjá hvernig þær eldri gera það. Við erum lítið í því að negla bolt- anum fram og mjög skemmtilegur leikstíll að taka þátt í. Enda gekk okkur vel í sumar. Þær leikreyndu í liðinu gera mig klárlega að betri leikmanni.“ Langar alla leið Hlín segir það vissan áfanga að fá stórt hlutverk í mótsleikjum með landsliðinu eins og undankeppni EM. „Já það er það. Ég hafði tekið þátt í einhverjum leikjum í fyrra en núna finnst mér ég vera komin bet- ur inn í hópinn. Það er heiður fyrir mig og mér fannst ég spila ágætlega í þessum leikjum. Að vera valin í landsliðið er mjög hvetjandi og ég hef alltaf stefnt að því að komast í landsliðið,“ segir Hlín sem reiknar fastlega með því að reyna fyrir sér erlendis á einhverjum tímapunkti en hún er samningsbundin Val út tíma- bilið 2020. „Mig langar að fara alla leið í boltanum og reikna með því að leggja allt undir. Mig langar að spila erlendis og ná árangri með landsliðinu. Allt þetta klassíska sem örugglega mjög margar stelp- ur stefna að,“ sagði Hlín sem lokið hefur stúdentsprófi. „Ég mun ákveða á næstunni hvað ég geri í framhaldinu en það mun að hluta til ráðast af því sem ég geri í fótbolt- anum.“ Fjölskylduíþrótt Systir Hlínar, Málfríður Anna, varð einnig Íslandsmeistari með Val og kom við sögu í tólf leikjum. Þriðja systirin, Arna, leikur með HK/Víkingi en meiðsli settu svip á sumarið hjá henni. Móðir þeirra er Guðrún Sæmundsdóttir sem lék með Val og var fastamaður í lands- liðinu þegar það fór að láta að sér kveða á fyrri hluta tíunda áratug- arins með því að komast í 8-liða úr- slit EM. „Það er mikið rætt um boltann í fjölskyldunni en það er einnig ým- islegt annað rætt á heimilinu. Mamma fylgist mjög vel með og ég held að hún hafi verið stressuðust fyrir leiknum gegn Keflavík á laug- ardaginn,“ segir Hlín Eiríksdóttir. „Var komin ákveðin pressa á okkur“  Eftirminnilegt keppnistímabil fyrir Valskonuna ungu Hlín Eiríksdóttur Morgunblaðið/Hari Áfanga náð Hlín Eiríksdóttir fyrir miðju fagnar Íslandsmeistaratitlinum ásamt samherjum sínum. 26 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. SEPTEMBER 2019 DUXIANA Reykjavik | Ármuli 10 | Reykjavik | +354 5 68 99 50 | www.duxiana.is GÆÐI OG ÞÆGINDI SÍÐAN 1926 DUX 8008 – UNDRAVERÐUR SVEIGJANLEIKI Háþróuð tækni, alvöru handverk, strangar prófanir og vandlega valin efni tryggja góðan nætursvefn og passa upp á að líkaminn fái góða hvíld þegar þú þarf mest á því að halda. England Deildabikarinn, 32 liða úrslit: Sheffield Wednesday – Everton ............ 0:2  Gylfi Þór Sigurðsson lék síðustu 14 mín- úturnar með Everton. Arsenal – Nottingham Forest................. 4:0 Colchester – Tottenham .......................... 0:0  Colchester áfram í vítakeppni, 4:3. Crawley Town – Stoke............................. 1:1  Crawley áfram í vítakeppni, 5:3 Luton – Leicester..................................... 0:4 Portsmouth – Southampton .................... 0:4 Preston – Manchester City ..................... 0:3 Watford – Swansea .................................. 2:1 Frakkland Dijon – Marseille...................................... 0:0  Rúnar Alex Rúnarsson var varamark- maður Dijon. Ítalía Hellas Verona – Udinese ......................... 0:0 Brescia – Juventus ................................... 1:2 Staða efstu liða: Juventus 5 4 1 0 9:5 13 Inter Mílanó 4 4 0 0 9:1 12 Napoli 4 3 0 1 13:8 9 Roma 4 2 2 0 10:7 8 Lazio 4 2 1 1 7:3 7 Atalanta 4 2 1 1 9:8 7 B-deild: Ascoli – Spezia ......................................... 3:0  Sveinn Aron Guðjohnsen var allan tím- ann á bekknum hjá Spezia. Spánn Real Valladolid – Granada....................... 1:1 Real Betis – Levante................................ 3:1 Barcelona – Villarreal .............................. 2:1 Staðan: Granada 6 3 2 1 12:6 11 Athletic Bilbao 5 3 2 0 6:1 11 Real Madrid 5 3 2 0 10:6 11 Barcelona 6 3 1 2 14:10 10 Real Sociedad 5 3 1 1 7:4 10 Sevilla 5 3 1 1 5:2 10 Atlético Madrid 5 3 1 1 5:4 10 Villarreal 6 2 2 2 13:10 8 Real Betis 6 2 2 2 9:10 8 Osasuna 5 1 4 0 4:3 7 Levante 6 2 1 3 7:8 7 Getafe 5 1 3 1 7:6 6 Real Valladolid 6 1 3 2 5:8 6 Valencia 5 1 2 2 6:8 5 Alavés 5 1 2 2 2:4 5 Celta Vigo 5 1 2 2 3:6 5 Mallorca 5 1 1 3 4:8 4 Espanyol 5 1 1 3 3:9 4 Eibar 5 0 2 3 4:7 2 Leganés 5 0 1 4 2:8 1 KNATTSPYRNA HANDBOLTI Spánn Valladolid – Barcelona ....................... 27:39  Aron Pálmarsson lék ekki með Barce- lona.  Efstu lið: Barcelona 8, Cuenca 6, La Rioja 4, Bidasoa 4, Nava 4, Ademar León 4. Tottenham féll gríðarlega óvænt úr leik gegn D-deildarliði Colchester í enska deildabikarnum í fótbolta í gærkvöldi. Tottenham var 75% með boltann í venjulegum leiktíma en tókst þrátt fyrir það ekki að skora. Eftir markalausan leik réðust úr- slitin í vítakeppni. Þar hafði Col- chester betur, 4:3. Colchester sló Crystal Palace úr leik í síðustu um- ferð, einnig í vítakeppni. Arsenal vann sannfærandi 5:0- heimasigur á B-deildarliði Nott- ingham Forest á heimavelli. Hinn 18 ára gamli Gabriel Martinelli skoraði tvö mörk. Manchester City vann þægilegan 3:0-sigur á Preston úr B-deildinni og Gylfi Þór Sigurðsson lék síðustu 14 mínúturnar í 2:0-útisigri Ever- ton gegn Sheffield Wednesday úr B-deildinni. Átta leikir eru á dag- skrá í keppninni í kvöld þegar þriðju umferð lýkur. Tottenham mjög óvænt úr leik í deildabikarnum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.