Morgunblaðið - 25.09.2019, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 25.09.2019, Qupperneq 28
28 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. SEPTEMBER 2019 Í blaðinu verður fjallað um tísku, förðun, snyrtingu, heilsu, fatnað, umhirðu húðarinnar, dekur og fleira. PÖNTUN AUGLÝSINGA: Til kl. 16 mánudaginn 30. sept. NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR: Katrín Theódórsdóttir Sími: 569 1105 kata@mbl.is –– Meira fyrir lesendur SÉRBLAÐ SMARTLAND BLAÐ Fylgir Morgunblaðinu föstudaginn 4. október Ragnhildur Þrastardóttir ragnhildur@mbl.is Tónskáldið tvítuga Gabríel Örn Ólafsson, sem helst gengur undir listamannsnafninu Gabríel Ólafs, hefur á skömmum tíma fengið tæp- lega eina og hálfa milljón spilana á streymisveitunni Spotify. Þá hlustar rúmlega hálf milljón manns á tónlist Gabríels á Spotify í mánuði hverj- um. Lagið sem um ræðir heitir „Staircase Sonata“, eða Stigagangs- sónata, og er það af nýútgefinni plötu Gabríels, Absent Minded. Gabríel er píanóleikari og hóf nám í píanóleik fimm ára gamall og fór að semja tólf ára gamall. „Þetta er náttúrulega mjög sérstök tilfinn- ing. Ég bjóst ekki við þessu og sér- staklega ekki svona góðum við- tökum á Spotify. Það getur oft verið erfitt að safna áheyrendahópi á Spotify,“ segir Gabríel um viðbrögð sín við viðtökum heimsbyggðar- innar. Spurður um ástæður vinsælda „Staircase Sonata“ segir Gabríel: „Maður getur í raun ekki haft áhrif á þessar spilanir en Spotify getur sjálft haft áhrif. Spotify er með deild sem velur lög inn á spilunar- lista og velur hvort það vill ýta lag- inu upp eða ekki. Það setti lagið inn á ellefu spilunarlista sem það stjórnar sem er frábært og það sýn- ir að fólk þar hefur greinilega fílað lagið.“ Vinsælasta lagið lán í óláni Lagið varð til, eins og fleiri góðar uppfinningar, út frá einskæru óhappi, að sögn Gabríels. „Ég vann að plötunni í fyrra í stúdíói sem er í kjallara. Einn daginn var brjálað veður í Kópavogi, Breiðholti og víð- ar. Það var svo mikil rigning að það flæddi inn í hús hjá fólki og það gerðist líka í stúdíóinu hjá mér. Þegar ég kom inn í stúdíó voru öll hljóðfærin mín, snúrur, hljóðnemar og fleira á bólakafi. Það var rosalegt áfall fyrir mig. Slökkviliðið keyrði á milli húsa og slökkviliðsmenn komu og báru píanóið mitt upp á stiga- gang. Þá hafði píanóið eiginlega verið á kafi í vatni. Þegar þetta var allt búið fór ég að spila á píanóið inni á stigagangi og ég fílaði hljóm- burðinn þar mjög vel. Þar samdi ég þetta lag og ákvað að nefna stykkið „Staircase Sonata“.“ Gabríel útskrifaðist frá Mennta- skólanum við Hamrahlíð árið 2017 en á meðan hann var nemandi þar vann hann bæði lagasmíðakeppni skólans og lék frumsamið lag á píanó í skemmtiatriði skólans í Gettu betur á RÚV. Þannig upp- götvaði breska útgáfufyrirtækið One Little Indian Gabríel, sem skrifaði undir útgáfusamning hjá fyrirtækinu í fyrra. One Little Indi- an hefur gefið út tónlist eftir fleiri íslenska tónlistarmenn, til dæmis Björk, Ásgeir Trausta og Emilíönu Torrini. Fagnar því að vera fjarhuga Titillag plötunnar, „Absent Minded“, samdi Gabríel þegar hann var 14 ára, en það er einmitt sama lag og færði honum sigur í laga- smíðakeppni Menntaskólans við Hamrahlíð. „Platan heitir Absent Minded því ég hef alltaf verið sagður frekar annars hugar. Á þessari plötu er ég í raun að fagna því að ég sé annars hugar, frekar en að horfa á það sem eitthvað neikvætt að láta sig dreyma og leyfa huganum að reika. Innblásturinn að lögunum er ótrú- lega mismunandi. Hann er mjög persónulegur,“ segir Gabríel, sem sækir gjarnan innblástur í kvik- myndir og kvikmyndatónlist. „Þetta er í raun kvikmyndatónlist fyrir ein- hverja kvikmynd sem er ekki til.“ Gabríel tekur lagið „Cyclist Waltz“ sem dæmi. „Innblásturinn í því lagi kemur frá plakati sem ég er með inni í stúdíói. Það er frönsk auglýsing fyrir hjól án keðju. Hjól- reiðamaðurinn er með yfirvara- skegg og mér fannst hann áhuga- verður náungi svo ég ákvað að semja svona þema fyrir hann eins og oft er gert í kvikmyndum, þá eru stundum samin þemu fyrir hvern karakter.“ Listamennirnir 18-22 árs Þó að Gabríel hafi samið, útsett og hljóðritað plötuna sjálfur er ekki þar með sagt að verkefnið sé ein- staklingsverkefni. „Einungis ungir Íslendingar spila með mér á þessari plötu og þeir eru allir vinir mínir, Andri Ólafsson úr Moses Hightower spilar reyndar á bassa en að honum frátöldum eru allir sem spila á plötunni á aldrinum 18 til 22 ára.“ Gabríel nefnir sérstaklega Ragn- heiði Ingunni Jóhannsdóttur, sem er 18 gömul. Hún spilaði alla helstu fiðlukaflana á plötunni. Fleiri hljóð- færaleikarar sem skapa plötuna með Gabríel eru þau Sólrún Ylfa Ingimarsdóttir, Sólveig Vaka Eyþórsdóttir, Anna Elísabet Sigurðardóttir, Rögnvaldur Borg- þórsson, Magnús Jóhann Ragn- arsson, Svanhildur Lóa Bergsveins- dóttir og Hjörtur Páll Eggertsson, sem Gabríel segir stórkostlegan einleikara. Bergur Þórisson, annar ungur Íslendingur, var upptöku- stjóri plötunnar. Gabríel er strax farinn að vinna að næstu plötu.„Ég er mjög spennt- ur fyrir henni. Maður lærir mikið á fyrstu plötunni, sérstaklega ef mað- ur reynir að gera allt sjálfur. Ég er eiginlega búinn að semja allt efni á hana og mun bráðlega hefja upp- tökur. Svo horfi ég líka fram á að fara að spila í Evrópu í kringum tónlistarhátíðina Iceland Airwaves svo ég er núna að vinna að því að skapa gott tónleikasett,“ segir Gabríel, sem spilar einmitt á Ice- land Airwaves í nóvember. Absent Minded er aðgengileg á helstu streymisveitum en einnig kemur hún út á vínyl og geisla- diskum. Kvikmyndatónlist án kvikmyndar  Hinn tvítugi Gabríel Ólafs á góðri leið með að fá tvær milljónir spilana á lagið „Staircase Sonata“  Gaf nýverið út fyrstu plötu sína, sem hefur fengið góðar viðtökur  Hóf nám í píanóleik fimm ára Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Vinsæll Gabríel hefur nú þegar getið sér gott orð í tónlistarheiminum. Yfir milljón manns hlustar á hann í mánuði hverjum á Spotify. Á plötu sinni Absent Minded fagnar hann því að hann sé annars hugar, að eigin sögn. Moldóvski bari- tónsöngvarinn Andrey Zhili- khovskíj og hljómsveitar- stjórinn Bjarni Frímann Bjarn- ason koma sam- an á tónleikum í Norðurljósum í Hörpu í kvöld kl. 20. Munu þeir flytja úrval sönglaga eftir tónskáldin Sergei Rachmaninoff og Pjotr Tsjajkovskíj. Zhilikhovskíj heimsækir nú Ísland í annað sinn en hann fer þessa dagana með hlutverk greif- ans í uppfærslu Íslensku óper- unnar á Brúðkaupi Fígarós í Þjóðleikhúsinu. Hann fór með tiltilhlutverkið í uppfærslu Íslensku óperunnar á Évgení Onegin fyrir þremur árum eftir að hafa sungið það í Bolshoj-leik- húsinu í Moskvu. Söngvarinn hefur á síðustu misserum sungið í stærstu óperu- húsum víða um Evrópu og heldur frá Íslandi á svið Metropolitan- óperunnar í New York þar sem hann mun syngja í fyrsta sinn í La Boheme. Bjarni Frímann hljómsveitar- stjóri er tónlistarstjóri Íslensku óperunnar auk þess að gegna stöðu aðstoðarhljómsveitarstjóra Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Zhilikhovskíj og Bjarni á kvöldtónleikum Andrey Zhilikhovskíj Háskóla- tónleikar hefjast á ný í dag eftir sumarfrí og á þeim fyrstu, sem fram fara á Litla torgi Háskóla- torgs í Háskóla Íslands kl. 12.30, flytur þjóðlaga- sextett Ásgeirs Ásgeirssonar ís- lensk þjóðlög í útsetningum með austrænum áhrifum. Sextettinn skipa Ásgeir Ásgeirs- son, sem leikur á ýmis strengja- hljóðfæri, Haukur Gröndal á klar- ínett, Matti Kallio á harmóníku, Þorgrímur Jónsson á kontrabassa, Erik Qvick á slagverk og Sigríður Thorlacius sem syngur. Á tónleikunum hljóma íslensk þjóðlög, sum vel þekkt, önnur síður, að því er fram kemur í tilkynningu. Leikin verða lög af einleiksplötum Ásgeirs, Two sides of Europe og Travelling through cultures en á þeim má finna nýja kafla við íslensk þjóðlög sem Ásgeir samdi og útsetti með austrænan hljóðheim í huga og í samstarfi við Borislav Zgurovski frá Búlgaríu og Yurdal Tokcan frá Tyrklandi. Aðgangur að tónleik- unum er ókeypis. Íslensk þjóðlög með austrænum blæ Ásgeir Ásgeirsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.