Morgunblaðið - 25.09.2019, Qupperneq 32
Óseyrarbraut 12 | 220Hafnarfirði | Klettagörðum5 | 104 Reykjavík
Hafðu
samband
5680100
www.stolpigamar.is
Stólpi Gámar bjóða
gámalausnir fyrir
atvinnulífið
– til leigu eða sölu
Gámahús og salernishús frá
Containex,Algeco og Trimo
Færanleg starfsmannaðstaða frá EuroWagon.net
Gámar og vöruskemmur fráBOS
Vörulyftur fráMaber
Skemmur fráHallgruppen
StólpiGámar
fyrir atvinnulífið
þurrgámar
hitastýrðir gámar
geymslugámar
einangraðir gámar
fleti og tankgámar
gámarmeð hliðaropnun
Þeramínleikarinn Hekla Magn-
úsdóttir hlaut verðlaun fyrir bestu
frumsömdu kvikmyndatónlist á há-
tíð í Slóveníu um nýliðna helgi,
Festival Slovenskega Filma eða
Slóvensku kvikmyndahátíðinni.
Verðlaunin hlaut hún fyrir tónlist
við leikna kvikmynd sem heitir í
enskri þýðingu Chestnut Forest
Stories, eða Hnotskógarsögur.
Hlaut verðlaun á kvik-
myndahátíð í Slóveníu
MIÐVIKUDAGUR 25. SEPTEMBER 268. DAGUR ÁRSINS 2019
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 670 kr.
Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr.
PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr.
„Upplifunin var geggjuð og ég er
eiginlega bara í skýjunum.
Stemningin var mjög góð þegar
við gátum fagnað á vellinum en
einnig um kvöldið eins og fólk
hefur séð sem fylgir stórstjörn-
unum okkar á samskipta-
miðlum,“ segir Hlín Eiríks-
dóttir, leikmaður Vals, m.a. í
viðtali í blaðinu. »26
Hlín nánast í skýjunum
eftir Íslandsmótið
ÍÞRÓTTIR MENNING
Pétur Theódór Árnason skoraði 15
mörk í 22 leikjum fyrir Gróttu,
sem kom öllum á óvart og vann 1.
deildina í fótbolta í sumar. Grótta,
sem var nýliði í deildinni, fékk 43
stig, tveimur meira en Fjölnir, og
tapaði aðeins
þremur leikjum
allt tímabilið.
Pétur
hafði
skor-
að
eitt mark í 25
leikjum í 1. deild
fyrir tímabilið og er
því óhætt að
segja að hann
hafi heldur bet-
ur sprungið út í
sumar. »25
Draumatímabil hjá
Pétri og Gróttu
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Bolvísku hjónin Katrín Pálsdóttir og
Þorsteinn Másson og börn þeirra,
nær 12 ára gamlir tvíburar, Már
Óskar og Valdís Rós, eru sannkölluð
járnfjölskylda. Foreldrarnir hafa
keppt í hálfum járnkarli frá 2017 og
eru að búa sig undir næstu keppni,
sem verður í Svíþjóð næsta sumar.
Systkinin, sem æfa sund, eru komin
á bragðið eftir að hafa tekið þátt í
járnkeppni fyrir krakka í Indónesíu í
liðnum mánuði og stefna á að taka
aftur þátt í keppni á næsta ári.
Eftir að hafa verið með á minni
mótum hófst alvaran með þátttöku í
Landvættakeppninni 2016. „Ég
byrjaði á undan Þorsteini að keppa í
þríþraut en hann smitaðist fljót-
lega,“ rifjar Katrín upp. Þau kláruðu
þrjár fyrstu þrautirnar í Landvætt-
unum en vegna andláts í fjölskyld-
unni urðu þau frá að hverfa og náðu
ekki að ljúka síðustu þrautinni. „Þá
ákváðum við að snúa okkur að hálf-
um járnkarli,“ heldur hún áfram.
Hún bætir við að þau hafi reynt að
sameina ferðalög og keppni og þann-
ig hafi þau fundið nýjar slóðir á
hverju ári. „Flest fríin okkar snúast
um hreyfingu og það er gott að eiga
svona áhugamál.“
Keppniskona og krabbi
Katrín æfði sund og segist vera
mikil keppnismanneskja. Hún hafi
valið járnkarlinn í Indónesíu með
sigur í huga. Um þrem mánuðum
fyrir keppnina greindist hún óvænt
með lungnakrabbamein og þurfti að
fjarlægja hálft hægra lungað. Sú að-
gerð var sjö vikum fyrir mótið. „Ég
ákvað samt að fara í keppnina og
rúllaði í gegnum hana á þægilegum
hraða en náði engu að síður ágætum
árangri, fór þrautina á sex og hálfum
klukkutíma og varð í 10. sæti í mín-
um flokki.“ Þorsteinn varð í 24. sæti í
sínum flokki á fimm tímum og 24
mínútum og krakkarnir stóðu sig vel
í hlaupakeppni barnanna. „Þau
verða örugglega þríþrautarfólk enda
sagði Valdís Rós að hún ætlaði strax
að fara að æfa þríþraut.“
Í hálfum járnkarli er synt 1,9 km
vegalengd, hjólaðir 90 km og hlaupið
hálft maraþon eða um 21 km. Frum-
raun þeirra var í Járnkarlinum í
Hvalfirði 2017. Katrín segir að þrátt
fyrir að þau hafi ekki átt nauðsyn-
legan búnað eins og þríþrautarhjól
og fleira hafi þeim gengið mjög vel.
„Við vorum um sex tíma en ég lenti í
3. sæti í mínum flokki. Eftir það
fengum við boð um að taka þátt í
heimsmeistarakeppni í Slóvakíu ári
síðar. Okkur gekk mjög vel, þrátt
fyrir um og yfir 35 stiga hita,“ segir
Katrín, sem fór þrautina á samtals
fimm tímum og 21 mínútu og hafnaði
í 8. sæti. Þorsteinn fór á fimm tímum
og 34 mínútum.
Hjónin eru í þríþrautarfélagi
Hafnarfjarðar, 3SH, og hafa fengið
aðstoð þaðan við æfingar. „Fáir
stunda þríþraut hérna fyrir vestan
en fleiri eru að hugsa sér til hreyf-
ings sem er frábært,“ segir Katrín.
Hjónin stefna á æfingaferð til út-
landa í vetur og síðan er markmiðið
að ljúka keppni í járnkarli á góðum
tíma í Jönköping í vor. Katrín segir
að hún hafi ekki enn náð sér eftir að-
gerðina og því verði hún að vera
raunsæ. „Ég gef samt ekkert eftir og
stefni alltaf að því að ná góðu sæti.“
Á einu og hálfu
lunga í járnkarlinn
Járnkarlinn Katrín Pálsdóttir á fleygiferð á hjólinu í Indónesíu.
Sannkölluð járnfjölskylda í Bolungarvík undirbýr næstu keppni
Járnfjölskyldan Þorsteinn, Valdís Rós, Katrín og Már Óskar í Indónesíu.