Morgunblaðið - 21.10.2019, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 21.10.2019, Blaðsíða 1
Þeir þustu um gólfið og tókust á loft, Ýmir Darri Hreinsson og Einar Ingi Jóhannsson, þegar þeir sóttu hvor að öðrum í viðureign sinni um helgina. Voru þeir á meðal þeirra fjölmörgu sem beittu sínum bestu brögðum þegar skylminga- mót fór fram í Baldurshaga í Laugardal. Morgunblaðið/Hari Beittu sínum bestu brögðum M Á N U D A G U R 2 1. O K T Ó B E R 2 0 1 9 Stofnað 1913  247. tölublað  107. árgangur  GLÓDÍS PERLA SVÍÞJÓÐAR- MEISTARI KRISTNIBOÐ Í 90 ÁR KÆRLEIKURINN ER EINFALDASTA LAUSNIN HEILSUGÆSLA OG SKÓLASTARF 4 ÓTTASLEGNIR ORKAR 29SPILAR ALLTAF 27 Landspítalinn » Ráðast þarf í miklar sparn- aðaraðgerðir á Landspítal- anum vegna hallareksturs. » Rekstur verður skorinn niður um tæpan milljarð í ár og 2,5 milljarða á næsta ári. Fleiri tugir rúma eru lokaðir á Land- spítalanum vegna skorts á hjúkrun- arfræðingum, að sögn Páls Matt- híassonar forstjóra. „Spítalinn þurfti að bregðast við neyðarástandi í mönnun og réðst í tilraunaverkefni þar sem skýr gögn sýndu að það vantaði fólk svo sjúklingum gæti stafað hætta af,“ sagði Páll. Hann sagði að þetta hefði snúið að hjúkrun í vaktavinnu. Um var að ræða klasa verkefna og eitt þeirra var Heklu- verkefnið. Í því fólust álagsgreiðslur til hjúkrunarfræðinga. Til stendur að leggja það af. Unnið er að því að innleiða jafn- launavottun á Landspítala lögum samkvæmt. Páll sagði að heildar- kostnaður við jafnlaunavottunina fram að þessu væri orðinn um 30 milljónir króna, en ekki 320 milljónir eins og haldið hefur verið fram. Pétur Magnússon, formaður Sam- taka í velferðarþjónustu og nefndar- maður í ráðgjafarnefnd Landspítala, sagði að í ljósi fjárhagsstöðu spítal- ans væri ekki óeðlilegt að stjórnend- ur færu vel yfir það hvað væri kjarnastarfsemi og hvað hliðarverk- efni sem spítalinn ætti e.t.v. ekki að sinna heldur fá aðra til að gera. Álagsgreiðslur verða aflagðar  30 milljónir í jafnlaunavottun Landspítala  Skilgreina þarf kjarnastarfsemi M30 milljónir … »2 Þorsteinn Ásgrímsson thorsteinn@mbl.is Betri vöktun hefði átt að vera í stjórnkerfinu og ljóst er að stjórn- völd létu úrbótavinnu í tengslum við fyrstu úttekt FATF, alþjóðlegs starfshóps um aðgerðir gegn pen- ingaþvætti og fjármögnun hryðju- verka, sitja á hakanum frá árinu 2006 fram til ársins 2018. Þetta segir Katrín Jakobsdóttir forsætisráð- herra í viðtali, sem birtist í lengri út- gáfu á mbl.is, um að Ísland hafi fyrir helgi verið sett á gráan lista FATF. Eftir að önnur úttekt starfshóps- ins var birt í apríl í fyrra segir Katrín að það hafi komið á borð ríkisstjórn- arinnar og mikil vinna hafi verið sett í gang af stjórnvöldum, en málið var á borði dómsmálaráðuneytisins. Spurð hvort hún muni eftir að málið hafi komið á borð ríkis- stjórnarinnar sem hún sat í sem menntamálaráðherra á árunum 2009-2013 segir Katrín að hún muni ekki til þess. „En ég dreg þá ályktun þegar skýrslan kemur árið 2018 að þetta hafi setið á hakanum, einmitt vegna þess að við vorum í höftum,“ segir hún og vísar þar til fjármagns- haftanna. Óstöðugleiki hafði sitt að segja Katrín segir að tvennar kosning- ar, árin 2016 og 2017, og óstöðugleiki í stjórnmálum hafi líklega haft sitt að segja um að málið hafi ekki verið framar á borði stjórnvalda. „Það hefur ötullega verið unnið að málinu síðan það kom fyrst á borð ríkis- stjórnarinnar [árið 2018], en það hefði átt að vera betri vöktun í stjórnkerfinu,“ segir hún og bætir við: „Það má ljóst vera að betur hefði mátt halda á spilunum.“ FATF gerði fyrstu úttekt sína á Íslandi árið 2006. Var þá lýst yfir áhyggjum af stöðu mála hér á landi og í kjölfarið var brugðist við með nokkrum lagafrumvörpum og því að koma upp peningaþvættisskrifstofu ríkislögreglustjóra. Eftir fjármála- hrunið virðist lítið hafa gerst í þess- um efnum, því í apríl 2018 skilaði FATF ofannefndri úttekt þar sem niðurstaðan var svört. Ingvar Örn Ingvarsson, fram- kvæmdastjóri almannatengslastof- unnar Cohn og Wolfe á Íslandi, telur að grái listinn muni loða við orðspor stjórnsýslu Íslands löngu eftir að landið fer af listanum. Skorti „betri vöktun í stjórnkerfinu“  „Það má ljóst vera að betur hefði mátt halda á spilunum,“ segir forsætisráðherra vegna gráa listans MTil marks um »12  Læknar og hjúkrunarfræðingar gagnrýna tillögur um að leggja niður læknaráð og hjúkrunarráð á heilbrigðisstofnunum sem fram koma í frumvarpsdrögum heil- brigðisráðherra um heilbrigðis- þjónustu. Í stað þeirra eiga að koma fagráð fulltrúa allra fagstétta sem verði forstjóra til ráðuneytis. Gagnrýnt er í um- sögnum að kveða eigi raddir læknaráðs og einstakra fagstétta niður. Læknaráð Landspítalans segir boðaðar breytingar á ýmsan hátt slæmar. »14 Ekki verði þaggað niður í fagstéttum „Borgaryfirvöld eru enn og aftur að ganga of hart fram í því að hindra að- gang ferðamanna að borginni,“ segir Kristófer Oliversson, formaður FHG, Fyrirtækja í hótel og gistiþjónustu, í samtali við Morgunblaðið vegna ákvörðunar um að halda safnstæði fyrir rútur við Hverfisgötu lokuðu eftir að framkvæmdum þar lýkur. Kristófer bendir á að meðalaldur ferðamanna fari hækkandi og því sé það ekki í lagi að gera þeim að klöngrast með föggur sínar langar leiðir. ,,Okkar áhyggjur eru skortur- inn á gestrisni sem þetta endur- speglar, “ segir hann og bætir við: „Núna þegar kólnar aðeins yfir ferða- þjónustunni er enn og aftur dregið úr þjónustunni við gestina.“ »4 Morgunblaðið/Eggert Ferðafólk Nauðsynlegt er að vera vel búinn við komuna til landsins. Borgaryfir- völd gangi of hart fram

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.