Morgunblaðið - 21.10.2019, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 21.10.2019, Blaðsíða 26
26 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. OKTÓBER 2019 Grand Hótel Reykjavík Sigtún 38 | 105 Reykjavík | 514 8000 | info@grand.is | islandshotel.is VILLIBRÁÐARBRUNCH 3. nóvember 5.800 kr. á mann Börn 6-11 ára fá 50% afslátt 5 ára og yngri fá frítt Villibráðarhlaðborð 26. október 2. nóvember VILLIBRÁÐARHLAÐBORÐ VILLTA KOKKSINS Á GRAND HÓTEL 15.900 kr. á mann Pantaðu borð á islandshotel.is veitingar@grand.is eða í síma 514-8000 Úlfar Finnbjörnsson, yfirkokkur á Grand Hotel Reykjavík, reiðir fram 60 ómótstæðilega veislurétti úr úrvals villibráð UPPSELT HANDBOLTI Olísdeild kvenna Afturelding – HK ................................. 21:24 Fram – Stjarnan................................... 28:25 ÍBV – Haukar ....................................... 18:21 Staðan: Valur 5 5 0 0 143:101 10 Fram 5 4 0 1 143:105 8 Stjarnan 5 4 0 1 128:106 8 HK 5 2 1 2 128:130 5 KA/Þór 5 2 0 3 127:144 4 ÍBV 5 1 1 3 96:120 3 Haukar 5 1 0 4 107:128 2 Afturelding 5 0 0 5 83:121 0 Grill 66-deild kvenna HK U – ÍBV U ...................................... 18:31 Stjarnan U – Víkingur ......................... 32:26 Selfoss – Fjölnir.................................... 21:28 Meistaradeild karla A-RIÐILL: Barcelona – París SG.......................... 36:32  Aron Pálmarsson skoraði 4 mörk fyrir Barcelona.  Guðjón Valur Sigurðsson skoraði 4 mörk fyrir PSG. Zagreb – Pick Szeged......................... 21:26  Stefán Rafn lék ekki með Pick Szeged. Aalborg – Flensburg........................... 31:28  Janus Daði Smárason skoraði 7 mörk fyrir Aalborg en Ómar Ingi Magnússon er meiddur. Arnór Atlason er aðstoðarþjálfari liðsins. Celje Lasko – Elverum........................ 32:25  Sigvaldi Björn Guðjónsson skoraði 10 mörk fyrir Elverum. B-RIÐILL: Montpellier – Kiel................................ 30:33  Gísli Þorgeir Kristjánsson skoraði ekki fyrir Kiel. C-RIÐILL: Bidasoa – Sävehof ................................39:23  Ágúst Elí Björgvinsson varði 3 skot í marki Sävehof. D-RIÐILL: GOG – Kadetten................................... 35:30  Arnar Freyr Arnarsson skoraði 2 mörk fyrir GOG en Óðinn Þór Ríkharðsson ekk- ert. Viktor Gísli Hallgrímsson varði 7 skot í marki GOG. Kristianstad – Medvedi....................... 36:28  Teitur Örn Einarsson skoraði 6 mörk fyrir Kristianstad og Ólafur Andrés Guð- mundsson 5. Meistaradeild kvenna Esbjerg – Rostov-Don......................... 31:26  Rut Jónsdóttir skoraði 1 mark fyrir Es- bjerg. EHF-bikar kvenna 2. umferð, seinni leikur: Leverkusen – DVSC Schäffler .......... 31:34  Hildigunnur Einarsdóttir skoraði 1 mark fyrir Leverkusen.  Schäffler áfram, 69:58 samanlagt. Skuru – Zvezda Zvenigorod .............. 22:24  Eva Björk Davíðsdóttir skoraði ekki fyr- ir Skuru.  Zveda áfram, 53:44 samanlagt. HANDBOLTI Ívar Benediktsson Guðmundur Tómas Sigfússon Fram kom í veg fyrir að Stjarnan jafn- aði metin við Val í efsta sæti Olísdeild- ar kvenna á laugardaginn þegar Safa- mýrarliðið varð fyrst liða til þess að leggja Stjörnuna á leiktíðinni, 28:25, í Framhúsinu í 5. umferð deildarinnar. Leikurinn var afar kaflaskiptur og mikið var um einföld mistök og ljóst að bæði lið eiga talsvert inni enda stutt liðið á leiktíðina. Eftir góða byrjun Stjörnuliðsins skoraði Fram fimm mörk í röð og náði fjögurra marka for- skoti, sem Stjarnan svaraði með fjór- um mörkum í röð. Staðan í hálfleik var 14:13, Fram í vil. Stjarnan hóf síðari hálfleik var krafti og var í forystuhlutverki framan af. Brotalamir á sóknarleik Stjörn- unnar urðu þess valdandi að Fram- liðið sneri leiknum sér í hag upp úr miðjum síðari hálfleik. Forskotið gaf sterkt lið Fram ekki eftir. Brotalamirnar fólust í allt of mörg- um einföldum mistökum í sóknar- leiknum, sem varð þess valdandi að Fram-liðið fékk boltann oft á tíðum á silfurfati. Slík boð lét leikreynt lið Fram ekki framhjá sér fara. Karen Knútsdóttir var markahæst hjá Fram með 7 mörk. Steinunn Björnsdóttir var næst með 5. Þórey Anna Ásgeirsdóttir var besti leik- maður Stjörnunnar auk þess að vera sú markahæsta. Hún skoraði 10 mörk. Stefanía Theodórsdóttir, Elena Birgisdóttir og Karen Tinna Demian skoruðu þrisvar sinnum hver. Hildur Öder Einarsdóttir stóð lengst af í marki Stjörnunnar og varði 10 skot. Hafdís Renötudóttir varði 13 skot í marki Fram, þar af níu í fyrri hálfleik. Fyrsti sigur Hauka Leikmenn Hauka sóttu fyrstu stig sín á laugardaginn þegar liðið sigldi til og frá Vestmannaeyjum. Gestirnir höfðu yfirhöndina mestallan tímann og unnu að lokum 18:21 sigur. Sara Odden skoraði 8 mörk í leiknum, öll í fyrstu 10 skotum sínum, hún lék einnig frábær- lega varnarlega. Hún hafði átt erfitt uppdráttar í fyrstu þremur leikjum sín- um þar sem hún hafði skorað 6 mörk úr 31 skoti, en í fyrri hálfleik skoraði hún sex mörk úr 8 skotum. Frábær leikur Söru gerði gæfu- muninn fyrir Haukana, sem spiluðu frábærlega varnarlega og keyrðu grimmt í bakið á leikmönnum ÍBV eftir tapaða bolta en heimaliðið tapaði boltanum 18 sinnum í leiknum. 13 tap- aðir boltar Haukakvenna voru ekki vandamál í leiknum en liðið þarf að fækka þeim ætli það sér að sækja stig í næstu leikjum. Í næstu þremur leikjum ÍBV spilar liðið við Val, KA/Þór og Aftureldingu. Liðið verður að fá í það minnsta fjög- ur stig út úr þeim leikjum en með spilamennsku líkt og á laugardaginn verða stigin líklega engin. Haukakon- ur eiga Aftureldingu í næsta leik og geta komið sér í þægilega stöðu fyrir miðri deild með sigri, í næstu þremur umferðum á eftir spila Haukar við bestu þrjú liðin og því er erfitt að ætl- ast til þess að þær fái stig þar.  HK vann 24:21-útisigur á Aftur- eldingu. Ágústa Huld Gunnarsdóttir var markahæst HK-inga með sjö mörk en Elva Arinbjarnar var næst með fjögur. Markahæst allra var hins vegar Anamaria Gugic í liði Aftureld- ingar, en hún skoraði átta mörk. Fram nýtti brotalamir Stjörnunnar  Stjarnan tapaði fyrstu stigum sínum  Haukar fögnuðu fyrsta sigri sínum Morgunblaðið/Hari Markahæst Karen Knútsdóttir er hér að skora eitt af sjö mörkum sínum. Safamýri, Olísdeild kvenna, laugar- daginn 19. október 2019. Gangur leiksins: 1:2, 3:4, 8:7, 11:7, 11:11, 14:13, 14:15, 17:17, 19:18, 24:20, 27:23, 28:25. Mörk Fram: Karen Knútsdóttir 7/1, Steinunn Björnsdóttir 5, Þórey Rósa Stefánsdóttir 4, Hildur Þorgeirs- dóttir 4, Ragnheiður Júlíusdóttir 3, Kristún Steinþórsdóttir 3, Unnur Ómarsdóttir 1, Perla Ruth Alberts- dóttir 1. Varin skot: Hafdís Renötudóttir 13, Fram – Stjarnan 28:25 Katrín Ósk Magnúsdóttir 1. Utan vallar: 4 mínútur. Mörk Stjörnunnar: Þórey Anna Ás- geirsdóttir 10/3, Stefanía Theodórs- dóttir 3, Karen Tinna Demian 3, Elena Birgisdóttir 3, Dagný Huld Birgisdóttir 2, Rakel Dögg Braga- dóttir 2, Þórhildur Gunnarsdóttir 1, Sigrún Ása Ásgrímsdóttir 1. Varin skot: Hildur Öder Einarsdóttir 10, Klaudia Powaga 2. Utan vallar: 4 mínútur. Áhorfendur: 242. Íslendingaliðið Aalesund tryggði sér í gær sæti í norsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu þegar liðið vann 1:0-sigur gegn Tromsdalen. Þegar þrjár umferðir eru eftir er Aalesund með 11 stiga forskot á Sandefjord en Aalesund hefur aðeins tapað einum af 27 leikjum sínum í deildinni. Aron Elís Þrándarson og Daníel Leó Grétarsson léku báðir allan tímann fyrir Aalesund, Davíð Kristján Ólafs- son var ónotaður varamaður en Hólmbert Aron Frið- jónsson gat ekki leikið með liðinu vegna meiðsla. Íslendingaliðin Sandefjord og Start berjast um að fylgja Aalesund upp en Sandefjord er þremur stigum á undan Start. Tvö efstu liðin komast upp en liðin í sætum 3-6 fara í umspil. Sandefjord sigraði Notodden 3:0. Viðar Ari Jónsson lék allan tímann fyrir Sandefjörd en Emil Pálsson lék síðustu 20 mínúturnar. Start varð að láta sér lynda markalaust jafntefli. Aron Sigurðarson lék allan tímann með Start en hann er markahæsti leikmaður liðsins á tíma- bilinu með 13 mörk. Þjálfari liðsins er Jóhannes Þór Harðarson. gummih@mbl.is Aalesund komið upp Daníel Leó Grétarsson Bandaríkjamaðurinn Justin Thom- as fagnaði sigri á CJ Cup-mótinu á PGA-mótaröðinni í golfi sem lauk í S-Kóreu í gær. Þetta var í annað sinn á þremur árum sem Thomas fer með sigur af hólmi á þessu móti en hann endaði á 20 höggum undir pari. Nýsjálendingurinn Danny Lee hafnaði í öðru sæti, tveimur högg- um á eftir Thomas, og þeir Hideki Matsuyama, Gary Woodland og Cameron Smith komu næstir, fimm höggum á eftir sigurvegaranum. gummih@mbl.is Thomas fagnaði sigri AFP Sigurvegari Justin Thomas fagnar sigrinum á mótinu í S-Kóreu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.