Morgunblaðið - 21.10.2019, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 21.10.2019, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. OKTÓBER 2019 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Bandarískiflugvéla-framleið- andinn Boeing hef- ur átt glæstan feril í framleiðslu far- sælla flugvéla. En svo kom Max-vélin með öllum þeim áföllum og vanda sem henni hafa fylgt og hefur farið langt með að eyðileggja ímynd Bo- eing sem áreiðanlegs framleið- anda. Helsti vandi Boeing nú er sennilega ekki sú staðreynd að tvær flugvélar hröpuðu með hörmulegum afleiðingum vegna galla í hönnun. Fólk veit að öll hönnun og allir hlutir geta bor- ið með sér galla og að engin mannanna verk eru hafin yfir vafa. Vandi Boeing um þessar mundir er hins vegar sá að svo virðist sem fyrirtækið hafi vitað af göllunum áður en vélarnar hröpuðu og að eftir að þær hröpuðu hafi fyrirtækið ekki gert allt til að komast til botns í málinu. Þvert á móti virðist sem upplýsingum sé haldið leynd- um. Nýjasta dæmið er upplýs- ingar sem komu fram fyrir helgi um að flugmenn sem próf- uðu vélarnar hafi lýst áhyggj- um fyrir þremur árum um að eitthvað væri að tækninni í þessum flugvélum sem verið var að setja á markað. Kannanir sýna að mjög fáir myndu óhikað fara um borð í þessar vélar fengju þær flugheimild nú. Viðbrögð fyrir- tækisins hafa með- al annars verið þau að setja af stað auglýsingaherferð til að sannfæra almenning um öryggi vélanna. En slíkar aug- lýsingar þjóna engum tilgangi ef almenningur skynjar að fyrirtækið er enn að reyna að fela það sem vitað var og það sem gerðist. Fólk þarf að geta treyst því að allt sé uppi á borð- um, að öryggið sé örugglega í fyrsta sæti og að vélarnar fari ekki á loft nema þeim megi treysta. Boeing hefur einnig brugðist við með því að velja annan en forstjórann til að gegna emb- ætti stjórnarformanns, en í bandarískum fyrirtækjum tíðk- ast gjarnan að þessi hlutverk séu á sömu hendi. Þessi breyt- ing er eflaust til bóta, en hænu- skref þegar svo alvarleg staða er uppi. Boeing þarf að hugsa um al- menning, farþega vélanna, en einnig um viðskiptavini sína, flugfélögin. Flugvélaframleið- andinn hefur skaðað mörg þeirra mikið og hann er ekki sá eini sem fær skelli á hlutabréfa- mörkuðum við ótíðindi af Max- vélunum. Boeing hefur enn ekki endurunnið traust almennings – og ætti það traust ekki skilið} Traustið vantar Það er ónotalegtað fylgjast með því hversu langt æstustu áhugamenn um ESB í eitt ríki, með Bretland innifalið, eru tilbúnir að ganga svo það tak- ist að eyðileggja ákvörðun þjóðarinnar um hið gagnstæða. Jafnvel þeir sem sóru og sárt við lögðu opinberlega að þeir myndu hlíta niðurstöðunni ráða ekki við sig. Magnþrunginn hræðsluáróður sem stjórn- málamenn og talsmenn op- inberra stofnana beittu til að tryggja hagfellda afstöðu hafði auðvitað sín áhrif en útganga var þó samþykkt með afgerandi meirihluta. Mervyn King, sem stýrði Englandsbanka með ágætum, fann að því í gær að útgangan skyldi hafa dregist úr öllu hófi. Það hefði verið mjög skaðlegt og m.a. komið í veg fyrir að stjórnvöld hefðu náð að bregðast við margvíslegum vanda í fjármálakerfinu. Þetta kom fram í ræðu hans á árs- fundi Alþjóða gjaldeyrissjóðs- ins í Washington, um sömu mundir og bankamenn, verð- bréfasalar og aðrir umsvifa- menn í fjármálheiminum bjuggu sig enn einu sinni undir aukinn fjármála- legan óróleika, óvissu og eyði- leggjandi sveiflur eftir að þingið í London flæktist enn fyrir staðfest- ingu á samningum Johnsons forsætis- ráðherra. King lávarður, eins og hann er nú, sagðist ekki í vafa um að mikill meirihluti þjóðarinnar vildi nú að málinu yrði lokið snarlega. Hann bætti því við að þófið um brexit tefði nauðsynlegt inngrip í þá mörgu neikvæðu þætti sem lykjust nú um heimsbúskapinn, svo að hætta væri á að hann kaffærð- ist í stöðnun og efnahagssam- drætti. Þófið og langvarandi óvissa um útgönguna væri skaðleg. Hann sagði brexit auðvitað vera þýðingarmikið fyrir Bret- land þótt efnahagslegu áhrifin væru ekki endilega meirihátt- ar. En þýðing útgöngu á ESB væru mjög ofmetin og hvað þá á veröldina alla. Á meðan út- gönguverkinu væri ekki lokið næðist ekki að taka á varasöm- um veikleikum efnahagslífsins, svo sem litlum sparnaði, veikri fjármögnun eftirlaunakerfisins og innviðum þjóðfélagsins. Sú vanræksla er skaðleg. Mervyn King gagn- rýndi hversu langt væri gengið í að tefja útgöngu úr ESB} Skaðræðisverk S jálfstæðisflokkurinn náði lágpunkti árið 2013 þegar landsfundur sam- þykkti ályktun um að Evrópusam- bandinu yrði gert að loka upplýs- ingaskrifstofu sinni hér á landi. Aldrei áður hafði flokkurinn snúist gegn því að almenningur fengi greiðan aðgang að upplýs- ingum, enda var tjáningar- og skoðanafrelsi lengi vel samofið stefnu flokksins. Nú skyldi þekkingu, frjálslyndi og umburðarlyndi úthýst. Dæmin frá Bretlandi og Bandaríkjunum sýna hve hættulegt það er þegar vanþekkingin tekur völdin og herjar á frelsið. Skýrsla starfshóps utanríkisráðherra um EES-samninginn upplýsir hve mikilvæg auka- aðild Íslands að Evrópusambandinu hefur ver- ið okkur undanfarinn aldarfjórðung. Þar kem- ur fram að með samningunum opnaðist frelsinu ný braut hér á landi. Breytingarnar hafa verið svo róttæk- ar að vandséð er að það þjóni „nokkrum tilgangi að hverfa til veraldar sem var þegar breytingar eru jafnróttækar og hér er lýst“. Greinileg pilla til andstæðinga samstarfsins innan ríkisstjórnarflokkanna og í Miðflokknum. Markmið hópsins var að draga fram staðreyndir og láta lesendur sjálfa gera upp hug sinn. Rökrétt niðurstaða af lestri skýrslunnar er að líta á þann hag sem þjóðin hefur haft af aukaaðildinni og semja svo um fulla Evrópuaðild á jafnréttisgrunni. Nýlegar deilur um orkupakkann svo- nefnda sýna hve mikilvægt er að vel upplýstir Íslendingar sitji við borðið þar sem ákvarðanirnar eru teknar en þiggi ekki bara brauðmola sem af því hrynja. Flokkur forsætisráðherra gekk til skamms tíma lengst íslenskra flokka í andstöðunni við þátttöku Íslands í alþjóðasamstarfi. Því ber að fagna þegar ráðherrann lýsir nú ánægju með aukaðildina að Evrópusambandinu sem hafi stuðlað að „velmegun, nýsköpun, samkeppnis- hæfni og almennri velsæld og gegni lykil- hlutverki við að framfylgja ströngum kröfum í félagsmálum, neytendamálum og umhverfis- málum“. Allt satt og rétt. Í skýrslunni kemur fram að „stæðu Íslend- ingar utan lagasamstarfsins á EES-vettvangi og ætluðu að starfa í krafti heimasmíðaðra reglna yrði mikil hætta á einangrun, stöðnun og afturför í þjóðlífinu öllu. Á það einkum við á sviði efnahags- og atvinnulífs og þeim sviðum þar sem tæknivæðing hefur haft hvað mest áhrif“. Þetta kallast á við orð Bjarna Benediktssonar eldri árið 1969: „Ef menn vilja einangrun, þá verða þeir að taka af- leiðingum hennar og reyna þá hvorki gagnvart sjálfum sér né öðrum að hræsna með því, að þeir séu hinir mestu framfaramenn. Þeir eru þvert á móti menn afturhalds og úrtölu.“ Innan EES njóta Íslendingar hvorki aðildar að tolla- bandalagi og myntsamstarfi, né þátttöku í landbúnaðar-, byggða- og sjávarútvegsmálum. Með fullri Evrópuaðild myndi landið eflast á þessum sviðum og frelsi aukast. Göngum því alla leið, þjóðinni til heilla. Benedikt Jóhannesson Pistill Full Evrópuaðild væri heillaspor Höfundur er stærðfræðingur og stofnandi Viðreisnar. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen SVIÐSLJÓS Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Boðaðar eru viðamiklarbreytingar á stjórn-skipulagi sjúkrahúsa ogannarra heilbrigðisstofn- ana í frumvarpsdrögum heilbrigð- isráðherra, sem birtust á samráðs- gátt, en þær eiga að falla að ný- samþykktri heilbrigðissstefnu. Leggja á niður læknaráð og hjúkr- unarráð en í stað þeirra á að koma fagráð með fulltrúum allra fagstétta á stofnununum. Mjög skiptar skoð- anir og gagnrýni á tillögurnar koma fram í umsögnum samtaka lækna og hjúkrunarfræðinga o.fl. við drögin. „Læknaráð Landspítala álítur að boðaðar breytingar á stjórnun spítalans séu á ýmsan hátt slæmar og miði að því að skilgreind ábyrgð þjón- ustu verði öll á höndum eins aðila – forstjóra,“ segir í umsögn ráðsins. Bendir ráðið m.a. á að það hafi um langt árabil komið að mörgum erf- iðum málum sem snerta þjónustu við sjúklinga og lagt stjórn Landspít- alans lið þegar áhyggjur hafi vaknað um gæði þjónustunnar og aðstæður starfsfólks. „Læknaráð telur að það muni hvorki þjóna hagsmunum sjúk- linga né starfi spítalans verði rödd læknaráðs þögguð niður með þessum hætti.“ Hjúkrunarráð Landspítalans fagnar hugmyndum um aukna þver- faglega samvinnu en bendir á að framkvæmdastjóri hjúkrunar og hjúkrunarráð gegni leiðtogahlutverki í hjúkrun. „Nauðsynlegt er að leið- togar hjúkrunar séu sýnilegir og að hlutverk þeirra sé skýrt.“ Þverfagleg teymisvinna verði ekki efld „með því að þagga niður í einstökum fag- stéttum“. Læknafélag Íslands lýsir mikilli andstöðu við frumvarpsdrögin, telur þau illa unnin og gagnrýnir að ekkert samráð hafi verið haft við gerð þeirra. „LÍ telur að faglega ábyrgð á læknisfræðilegri starfsemi heilbrigð- isstofnunar geti enginn annar en læknir borið.“ Læknaráð Landspítala gagn- rýnir m.a. að ekki verði „lengur skylt að hafa framkvæmdastjóra lækninga og framkvæmdastjóra hjúkrunar við heilbrigðisstofnanir heldur komi í þeirra stað einn eða fleiri fagstjórar sem beri ábyrgð á faglegri þjónustu stofnunar gagnvart forstjóra. Það er með öllu óljóst hvaða fag viðkomandi fagstjórar eigi að standa fyrir og hvaða kröfur þeir þurfi að uppfylla til þess að bera ábyrgð á faglegri þjón- ustu. Ekki er tekið fram hver verður ábyrgðaraðili læknisþjónustu við- komandi stofnunar enda er engin krafa um læknismenntaðan fagstjóra í nýjum lögum. Einnig er fjarlægð grein úr lögum sem kveður á um að yfirlæknar sérgreina/deilda skuli bera faglega ábyrgð á þeirri læknis- þjónustu sem undir þá heyrir. Þann- ig má segja að læknisfræðileg ábyrgð á meðferð sjúklinga á heilbrigðisstofnunum sé algjörlega óskilgreind í nýjum lögum,“ segir í umsögn þess. Fleiri félög og samtök lækna taka í sama streng og segja mjög óráðlegt að leggja niður læknaráð og stöðu framkvæmdastjóra lækninga og yfirlækna við heilbrigðisstofnanir. Gagnrýna tillögur um breytta yfirstjórn Morgunblaðið/Ásdís Skurðaðgerð Lagt er til að læknaráð og hjúkrunarráð verði lögð niður en í staðinn komi ráð fagstétta heilbrigðisstarfsmanna, forstjóra til ráðgjafar. Sú tillaga að læknaráð og hjúkrunarráð sjúkrahúsa verði lögð niður er mjög umdeild. Er hún rökstudd með því að eitt af markmiðum heilbrigðis- stefnunnar sé að heilbrigðisþjónusta skuli einkennast af teymisvinnu starfsstétta og samstarfi á milli stofnana. „Ákvæði í gildandi lögum um skipan læknaráðs sem leita beri til um ákvarðanir varðandi læknisþjón- ustu og hjúkrunarráðs varðandi hjúkrunarþjónustu samræmist ekki því markmiði heilbrigðisstefnunnar. Með þeim breytingum sem frumvarpið leggur til er leitast við að allar starfsstéttir leysi sín mál í samvinnu hver við aðra, enda sé markmiðið að sjúklingar fái sem besta þjónustu. Í því samhengi þykir rétt að læknaráð og hjúkrunarráð verði lögð niður en í stað þeirra komi ráð allra fagstétta heilbrigðisstarfsmanna innan heil- brigðisstofnana forstjóra til ráðgjafar,“ segir í skýringum um þetta. Ráðin verði lögð niður TEYMISVINNA STÉTTANNA Forstjóra færð mikil völd 16 yfirlæknar og prófessorar í prófessoraráði Landspítala segja í sameiginlegri umsögn að afmarka verði vald forstjóra heilbrigðisstofn- unar við að sinna eingöngu því hlut- verki að taka ákvarðanir um stjórnun og starfsmannahald. Eftir samein- ingu sjúkrahúsanna í Reykjaravík ár- ið 2000 hafi orðið sú grundvall- arbreyting að öll stjórnunarábyrgð hafi verið færð í hendur fram- kvæmdastjórnar og forstjóra og fag- stéttirnar á Landspítalanum síðan þá ekki haft neina beina aðkomu að yf- irstjórn spítalans. Öll ákvarðanataka og ábyrgð hafi verið færð í hendur forstjóra. „Undirrituð hafa ekki vitn- eskju um að nokkrum forstjóra eða framkvæmdastjórn sé falið svo marg- þætt og valdamikið hlutverk á há- skólasjúkrahúsum í nágrannalöndum okkar,“ segja þau ennfremur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.