Morgunblaðið - 10.02.2019, Page 1
VILL BREYTA ÚRGANGI ÍVERÐMÆTITÆKNI OG SÁLFRÆÐI
Hauslaus vélrænn hundur iðnaðarmönnum til aðstoðar. 4
Hugbúnaður getur verið lykillinn
að því að stuðla með betri hætti að
andlegri heilsu starfsmanna. 6
VIÐSKIPTA
4
Berglind Rán Ólafsdóttir hjá ON, sem gekk nýlega til
liðs við lúðrasveit, segir mörg tækifæri felast í því að
stefna að hringrásarhagkerfinu.
MIÐVIKUDAGUR 2. OKTÓBER 2019
Skuldabréfaeigendur með nýtt fé
Áætlun nýrra forsvarsmanna fasteignasjóðsins GAMMA: No-
vus, sem lækkaði metið eigið fé sitt úr um 3,9 milljörðum króna
niður í 40 milljónir króna á mánudag, felur meðal annars í sér
að skuldabréfaeigendur sem keyptu í skuldabréfaútboði fast-
eignafélagsins Upphafs, sem er að fullu í eigu GAMMA: Novus,
í maí sl., komi með nýtt fé inn í félagið til að bæta stöðu þess.
Nafnvirði útgáfunnar í maí var 2,7 milljarðar króna, en um það
bil 20 aðilar keyptu í því útboði.
Máni Atlason nýráðinn framkvæmdastjóri GAMMA Capital
Management hf., sem er í eigu Kviku banka, segir í samtali við
ViðskiptaMoggann að fjárfestarnir hafi nokkra daga til að meta
hvort þeir taki þátt í nýju skuldabréfaútboði. „Upphaf er núna í
framkvæmdafasa og ljóst að fyrri áætlanir um fjárþörf vegna
framkvæmdanna standast ekki. Það er því nauðsynlegt að fá
inn nýtt fé, annars stoppa allar framkvæmdir. Vinna við öflun
fjármagns er langt komin. Það eru mikil verðmæti inni í félag-
inu og við teljum okkur hafa lagt fram trúverðuga áætlun sem
er líkleg til að verja verðmæti skuldabréfaeigenda en það er
ljóst að kröfuhafar Upphafs þurfa að vinna með okkur að lausn
málsins,“ segir Máni. Fundur kröfuhafa hefur verið boðaður og
verður haldinn í næstu viku.
Eins og kom fram í máli Sigurðar Viðarssonar, forstjóra TM,
í frétt í Morgunblaðinu í gær, var stöðunni [stöðu Upphafs] lýst
sem „allt annarri“, eins og Sigurður orðaði það, þegar skulda-
bréfin voru seld í maí. Sagðist hann halda að skuldabréfa-
eigendur myndu vilja skoða málið vel. TM var einn fjárfesta í
því útboði.
Máni segir að nýtt teymi hafi komið inn í GAMMA í júlí og
hann sjálfur um helgina. Hann geti því ekki svarað til um
skuldabréfaútboðið í maí sl. „Við komum að sjóðnum nýlega.
Allur okkar fókus er á að upplýsa fjárfesta um stöðu mála og að
verja verðmæti eigna sjóðsins.“
Að sögn Mána eru helstu ástæður á miklum mun á mati á
virði eigin fjár sjóðsins endurmat á endursöluvirði og kostn-
aðarhækkanir. „Svo beitum við annarri aðferð við að meta fjár-
magnskostnað en fyrri umsjónarmenn sjóðsins gerðu.“
Gamma: Anglia lækkar einnig mikið
Auk GAMMA: Novus hefur gengi annars fagfjárfestasjóðs
GAMMA, GAMMA: Anglia verið fært úr 105 í 55. Þannig hefur
virði hans lækkað úr jafnvirði 2,6 milljörðum króna í tæpan 1,5
milljarð króna. „Okkar ráðgjafar eru í Bretlandi núna að fara í
saumana á því verkefni einnig,“ segir Máni.
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Fjárfestar sem keyptu skuldabréf fasteigna-
félagsins Upphafs, sem er í eigu fasteigna-
sjóðsins GAMMA: Novus, funda með
GAMMA í næstu viku.
Morgunblaðið/RAX
Fasteignasjóðirnir GAMMA: Anglia og GAMMA: Novus eiga í
fjárhagsvanda, en unnið er að lausn málsins.
EUR/ISK
2.4.‘19 1.10.‘19
145
140
135
130
125
135,95
135,4
Úrvalsvísitalan
2.200
2.100
2.000
1.900
1.800
1.700
1.600
2.4.‘19 1.10.‘19
1.936,43 1.924,22
„Hér er ekki atvinnumennska og við
höfum ekki beint Ísland sem heima-
markað eins og flest önnur lönd
hafa,“ segir knattspyrnuumboðs-
maðurinn Bjarki Gunnlaugsson sem
hefur ásamt Magnúsi Agnari Magn-
ússyni starfað undir merkjum Total
Football undanfarin ár, en tilkynnt
var í síðustu viku að þeir félagar
hefðu samið við stærstu umboðs-
mannaskrifstofu í heimi á sviði
íþrótta, Stellar Group. Í ítarlegu við-
tali á miðopnu ViðskiptaMoggans í
dag er fjallað um starf knattspyrnu-
umboðsmanna hér á landi, en ís-
lenskar umboðsmannaskrifstofur
búa við annan veruleika en gengur
og gerist annars staðar fyrir þær
sakir að hér er ekki atvinnumanna-
deild. Greiðslur íslenskra félaga til
umboðsskrifstofa, innlendra sem er-
lendra, námu fimm milljónum króna
frá apríl 2017 til apríl 2018. Er það
sáralítið í samanburði við Dan-
mörku, svo dæmi sé tekið, en
greiðslur danskra knattspyrnuliða
til umboðsskrifstofa námu 66 millj-
ónum danskra króna, um 1,2 millj-
örðum króna árið 2018. „Veltan á
markaðnum er mjög óveruleg hérna
heima. Við tökum aðeins eitthvað
fyrir ef leikmaður er að koma frá út-
löndum. Þetta er nokkuð sem við
byrjuðum að gera á síðustu tveimur
árum. Þá eru kannski þrjú til fjögur
lið að berjast um leikmanninn og það
getur verið mikil vinna á bak við það
fyrir okkur. Íslensku liðin eru að
borga erlendum umboðsmönnum
fyrir sömu vinnu og ég sé ekki af
hverju við ættum að gefa þá vinnu,“
segir Bjarki í samtali við
ViðskiptaMoggann.
Hafa ekki Ísland sem heimamarkað
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Bjarki Gunnlaugsson, umboðs-
maður hjá Stellar Group.
Bjarki og Magnús sömdu
við umboðsmannaskrif-
stofuna Stellar Group.
8
Endurskoðun • Skattur • Ráðgjöf www.grantthornton.is
Grant Thornton endurskoðun ehf. er íslenskt aðildarfélag Grant Thornton International Ltd., sem er eitt af fremstu alþjóðlegu samtökum sjálfstæðra endurskoðunar og ráðgjafarfyrirtækja. Grant Thornton
endurskoðun ehf. sérhæfir sig í að aðstoða rekstraraðila við að nýta tækifæri til vaxtar og bættrar afkomu með skilvirkri ráðgjöf. Framsýnn hópur starfsmanna, undir stjórn eigenda, sem ávallt eru aðgengilegir
viðskiptavinum, nýta þekkingu og reynslu sína til að greina flókin málefni og finna lausnir fyrir viðskiptavini sína, hvort sem það eru einkarekin, skráð félög eða opinberar stofnanir. Yfir 35.000 starfsmenn Grant
Thornton fyrirtækja í meira en 100 þjóðlöndum, leggja metnað sinn í að vinna að hag viðskiptavina, samstarfsmanna og samfélagsins sem þeir starfa í.
Endurskoðun | Skattur | Ráðgjöf
Ernst & Young ehf. Borgartúni 30, 105 Reykjavík
ey.is
Alþjóðleg þekking - persónuleg þjónusta