Morgunblaðið - 10.02.2019, Side 6

Morgunblaðið - 10.02.2019, Side 6
6 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. OKTÓBER 2019FRÉTTIR Aldrei hafa verið fleiri meðlimir í viðskiptaklúbbi Morgunblaðsins, Kompaníi, heldur en í fyrra, en klúbburinn stendur þessa dagana fyrir markaðsráðstefnu, níunda árið í röð, þar sem Morgunblaðið býður völdum fyrirtækjum ár hvert. Í ár er lögð áhersla á það hvernig hámarka megi árangur og auka sölu með skipulögðum og sýnilegum auglýs- ingum. Aðalfyrirlesari ráðstefn- unnar er Craig McNerlin, sem hefur í mörg ár starfað við það að byggja upp öflug sölu- og markaðsteymi, m.a. hjá Michelin Tyres. Að sögn Silju Jóhannesdóttur, markaðs- stjóra söludeildar Árvakurs, greindi McNerlin frá fróðlegum niður- stöðum úr rannsóknum sem snúa að vörumerkjum og vörumerkjavitund „sem sýna það raunar að hefð- bundnir fréttafjölmiðlar eru það sem almenningur treystir best á og að þeir séu best til þess fallnir að byggja upp vöruverki og vöru- merkjavitund,“ segir Silja. Morgunblaðið/Eggert Fyrirlestur Mcnerlin var vel sóttur en ráðstefnan stendur yfir til 3. október. Metfjöldi meðlima hjá Kompaníi í fyrra Allir sem mætt hafa í vinnuna illa fyrir kallaðir vita hversu miklu máli andleg vellíðan skiptir fyrir afköst og starfsánægju. Ekki er nóg með það, heldur þarf að gæta þess að kulnun nái ekki að skjóta rótum og smám saman spilla bæði andlegri og líkamlegri heilsu, allt þar til stoðirnar bresta með einum eða öðrum hætti. Sigrún Þóra Sveinsdóttir segir hægara sagt en gert fyrir bæði stjórnendur og almenna starfsmenn að koma auga á einkenni andlegra vandamála á vinnustað, en til mikils sé að vinna að geta dregið upp sem gleggsta mynd af andlegri heilsu vinnustaðarins. „Það sem gerir þetta vandamál svo erfitt viðeignar er hvað andleg líðan fólks getur verið ósýnileg, og erfiðleikarnir koma ekki í ljós fyrr en þeir eru orðnir mun erfiðari við að eiga og fólk hreinlega dettur úr starfi.“ Sigrún, sem er klínískur sálfræð- ingur, setti sprotafyrirtækið Pro- ency á laggirnar með manni sínum Stefni Húna Kristjánssyni verk- fræðingi. Í stuttu máli notar Pro- ency háþróaðan hugbúnað til að hjálpa fyrirtækjum og stofnunum að meta og bæta andlega heilsu starfsfólks, og nýtir til þess m.a. gervigreind og viðurkenndar sálfræðilegar aðferðir. Verkefnið tók þátt í Startup Reykjavík og munu prófanir á hugbúnaðinum hefjast innan skamms. Inngrip fyrr Hugmyndin kviknaði hjá Sigrúnu þegar hún starfaði sem lögreglusál- fræðingur og sá hve miklu það gat breytt að bregðast fyrr við and- legum veikindum starfsfólks, og vandræðum á borð við kulnun, dep- urð og streitu. Á sama tíma kom Stefnir, sem þá var í námi við Tækniháskólann í Stokkhólmi, auga á hvernig hagnýta mætti tæknina með viðurkenndum sálfræðilegum aðferðum. „Með því að sjá sem fyrst að tekið er að halla undan fæti má grípa inn í og bæta andlega heilsu fólks áður en það verður að stóru vandamáli sem haft getur slæmar afleiðingar bæði fyrir ein- staklinginn sjálfan og fyrir vinnu- staðinn.“ Hugbúnaður Proency virkar þannig að hver og einn starfsmaður fær endrum og sinnum meldingu um að svara nokkrum spurningum á sínu persónulega vefsvæði, sem nálgast má úr hvaða tölvu eða snjallsíma sem er. „Við byrjum á meðallöngum spurningalista en eft- ir það koma styttri spurningalistar til að fylgjast með líðan fólks frá einu tímabili til annars. Spurning- arnar byggja á stöðluðum sál- fræðilegum spurningalistum og leita m.a. að einkennum depurðar og kvíða, en skima líka eftir já- kvæðum breytum eins og bjart- sýni,“ útskýrir Sigrún. Gervigreind metur svörin og sendir starfsmanni ábendingu ef eitthvað bendir til að hann hefði gott af að ræða málin við fagaðila. „Stjórnendur fá ekki að vita neitt um svör einstakra starfsmanna, og þannig er gengið frá hugbúnaðinum að meira að segja við sem sköffum þjónustuna höfum enga leið til að nálgast svörin. Aftur á móti geta stjórnendur fengið niðurstöður fyr- ir stærri hópa, s.s. allan vinnustað- inn eða tilteknar deildir þar sem þá vinna a.m.k. tíu manns.“ Virkar hópeflið? Sigrún leggur á það áherslu að stíga þurfi varlega til jarðar enda vinnur Proency með viðkvæmar heilsufarsupplýsingar. „En með því að sjá þróunina hjá tíu manna hópi, sem gæti t.d. verið tiltekin deild, má koma auga á hættumerkin og mögulega grípa til aðgerða hja við- komandi deild.“ Með hugbúnaðinum má ekki að- eins koma fyrr auga á möguleg vandamál, heldur líka byrja að greina með nákvæmum hætti hvað það er í vinnuumhverfinu sem getur valdið því að andleg líðan starfs- manna versnar eða skánar. „Ætti t.d. að vera hægt að sjá það svart á hvítu ef átaksverkefni eins og hóp- efli og námskeið skila tilætluðum árangri.“ Mikið er í húfi og bendir Sigrún á að hjá Íslendingum á aldrinum 18-40 ára séu geðraskanir helsta ástæðan fyrir örorku, en með því að greina einkenni röskunar fyrr og veita fólki þann stuðning sem það þarf mætti mögulega forða því að andlegir kvillar nái svo alvarlegu stigi að skerði getu fólks til að taka eðlilegan þátt í samfélagi og vinnu- markaði. „Þá má vísa í greiningu sem gerð var á vegum alþjóðlega endurskoðunarfyrirtækisins Delo- itte, sem sýndi að verkefni sem fólst í andlegri heilsueflingu yfir netið skilaði fimm dala ávinningi fyrir hvern dal sem settur var í efl- inguna,“ segir hún en auk þess að greina andlega líðan starfsfólks býður Proency upp á upplýsingar og æfingar sem eiga að hjálpa fólki að halda góðri andlegri heilsu. Vakta andlega heilsu starfs- fólks með gervigreind Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Sprotinn Proency þróar hugbúnað sem m.a. hjálp- ar stjórnendum að koma fyrr auga á merki um and- leg vandamál og vanlíðan. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Stefnir Kristjánsson og Sigrún Þóra Sveinsdóttir vilja nýta gervigreind við að uppgötva andleg vandamál.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.