Morgunblaðið - 10.02.2019, Qupperneq 8
8 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. OKTÓBER 2019VIÐTAL
En til framtíðar sjáum við tækifæri í því, ásamt
Stellar Group, að vera með viðveru í þessum
löndum þannig að þegar eitthvað kemur upp;
áhugaverður leikmaður eða eitthvað slíkt, verði
auðveldara fyrir okkur að taka þann slag við
aðrar umboðsskrifstofur. Það hefði verið erfitt
að gera það sem Total Football. En hugsunin er
ekki sú að hrúga inn sænskum eða dönskum
leikmönnum heldur að velja úr og eiga mögu-
leika á að vera með í leiknum sem Stellar. Á
móti eru einnig leikmenn Stellar hjá stóru lið-
unum í Englandi sem ná ekki í gegn þar en gætu
fundið sig betur á lægra stigi eins og Skandinav-
íu eða jafnvel á Íslandi,“ segir Bjarki.
„Þetta er gríðarlega mikið tækifæri fyrir
okkur. Ef ég væri leikmaður væri þetta eins og
að semja við Real Madrid. En þetta eru einnig
gleðifréttir fyrir íslenskan fótbolta. Markmiðið
er að fjölga leikmönnum í stærri deildum.
Næsta kynslóð er sú sem við leggjum mesta
áherslu á. Stærstur hluti starfsins hjá okkur er
að finna næsta Eið Smára Guðjohnsen og næsta
Gylfa Þór Sigurðsson án þess þó að vanmeta
hversu flottan feril leikmaður eins og t.d. Kári
Árnason átti sem spilaði erlendis um árabil. Við
erum ekki síður að leita að slíkum leikmanni. En
leiðin fyrir leikmenn er aftur á móti alltaf sú
sama. Að fara út í akademíufótbolta eða sem
leikmaður í gegnum meistaraflokk hér á landi til
Skandinavíu eða í minni deildirnar á meginland-
inu og þar áfram,“ segir Bjarki.
Miðlar reynslu
Bjarki er fyrrverandi atvinnumaður í knatt-
spyrnu og segist hafa mikið fram að færa sem
slíkur. Hann segist hafa lært af eigin mistökum
og að í þeim birtist mestu verðmæti hans sem
umboðsmanns auk reynslu hans úr viðskiptalíf-
inu.
„Ég var einu sinni leikmaður og sem slíkur
gerði maður helling af mistökum. Ég tók rangar
ákvarðanir hvað varðar meiðsli, óþolinmæði yfir
litlum spilatíma snemma á atvinnumannsferl-
inum, samskipti við þjálfara og stjórnendur
klúbba og fleiri atriði sem skipta verulegu máli.
Ég vildi nýta þekkingu mína og miðla henni
áfram til leikmanna. Það getur verið dýrkeypt
að taka ranga beygju og ætla sér að fara aftur á
rétta braut. Þá er stundum betra að anda djúpt
og tala við einhvern sem hefur upplifað þetta áð-
ur og taka þannig betri ákvörðun en ella. Ég get
sagt frá eigin reynslu að hlutir sem maður gerði
á sínum tíma voru ekki alveg réttir og það hefði
verið gott að hafa einhvern hlutlausan til þess að
segja manni sannleikann og sparka í rassinn á
manni. Maður sér það núna en sá það ekki þá.
Það er mín köllun í þessu,“ segir Bjarki í samtali
við blaðamann.
„Áður en ég fór í þetta var ég einnig í alls kon-
ar viðskiptum, vann með fólki, gerði samninga,
og að stjórna rekstri yfir höfuð. Það segir sig
sjálft að það nýtist alltaf. Áhuginn á viðskiptum
og fótboltanum sameinast vel í þessu,“ segir
Bjarki.
Sérstakur markaður á Íslandi
Rekstur umboðsmannaskrifstofa er nokkuð
sérstakur í eðli sínu, sér í lagi í íslensku sam-
hengi þar sem hann stendur og fellur með því
hversu öfluga knattspyrnumenn íslenska þjóðin
getur alið af sér, sem hefur reyndar gengið vel
undanfarin ár þar sem karlalandsliðið hefur frá
2016 bæði farið á EM og HM. En íslenskar um-
boðsmannaskrifstofur búa við annan veruleika
en gengur og gerist annars staðar. Greiðslur ís-
Þegar blaðamann bar að garði á Skólavörðustíg
14 var fyrsti maður til að heilsa honum Baldur
Kristjánsson ljósmyndari, sem hefur deilt rými
með umboðsmannaskrifstofunni Total Football
undanfarin ár. Í hornherberginu á þessu sam-
eiginlega rými situr Bjarki Gunnlaugsson við
tölvuna með kveikt á Sky Sports fyrir framan
sig, en skrifstofan skartar ýmsum djásnum á
borð við gull- og silfurskó auk stórrar freyði-
vínsflösku með áletruninni „Man of the Match“
og merki ensku úrvalsdeildarinnar prentuðu á.
Á bak við hann er tafla þar sem hernaðar-
leyndarmálin eru teiknuð upp, en þeir Bjarki,
Magnús Agnar Magnússon og Arnór Guðjohn-
sen stofnuðu umboðsmannaskrifstofuna árið
2011. Nú hafa þeir Bjarki og Magnús Agnar
ákveðið að söðla um, en þeir gengu í síðustu viku
til liðs Stellar Group, stærstu umboðs-
mannaskrifstofu í heimi á vettvangi íþrótta, sem
hefur leikmenn á borð við Gylfa Þór Sigurðsson,
Aron Einar Gunnarsson, Jóhann Berg Guð-
mundsson og Gareth Bale, leikmann Real
Madrid, á sínum snærum,
Aukið aðgengi að upplýsingum
Þeir Bjarki og Magnús munu leiða Norður-
landadeild skrifstofunnar, sem mun bera heitið
Stellar Nordic, en viðræður við Stellar Group
hafa átt sér stað í nokkurn tíma. Að sögn Bjarka
má lýsa umboðsmennsku sem þjónustustarfi,
þjónustu við leikmenn, þar sem aðgengi að upp-
lýsingum er auðvitað gríðarlega mikilvægt.
„Og það stækkar gríðarlega við þessa breyt-
ingu. Tengslanetið stækkar og leikmenn ættu
nú að geta treyst því að þeir séu alltaf að fá
bestu samningana sem völ er á í hvaða landi sem
er,“ segir Bjarki. Þeir félagar hafa um 40 leik-
menn á sínum snærum sem spila erlendis en
inni í þeirri tölu eru bæði yngri leikmenn, frá 16-
19 ára, og eldri leikmenn.
„Okkur langar til þess að fylgja þessum
strákum alla leið. Ekki að byrja með þeim ung-
um og taka skref A og B en sleppa skrefi C þeg-
ar þeir eru komnir á hærra stig. Þá verður áreit-
ið við þá meira og menn hvísla að þeim alls
konar gylliboðum sem eru ekkert endilega sönn
og rétt. Nú ættum við að geta tryggt að við
séum nógu stórir til þess að fara með þá alla
leið. Maður vill að leikmenn taki ákvarðanir út
frá bestu mögulegu upplýsingum og með þess-
ari breytingu ætti ekki í raun að vera hægt að
segja að við séum ekki nógu stórir,“ segir
Bjarki.
„Stellar Group hefur verið til í töluverðan
tíma. Jonathan Barnett, David Lockwood og
David Manasseh eru heilarnir á bak við þetta.
Þeir hafa tugi starfsmanna og þetta er í raun
allt annað vinnuumhverfi,“ segir Bjarki og nefn-
ir stærðarhagkvæmnina sem fylgir því að vera
hluti af Stellar Group og hvernig umboðsmenn
samstæðunnar hjálpast til við að fylgjast með
leikmönnum annarra umboðsmanna innan
hennar. „Það er líka stór ástæða fyrir því að við
tókum skrefið að semja við Stellar Group frem-
ur en aðra. Þar eru allir saman í þessu frekar en
að vinna hver í sínu horni,“ segir Bjarki.
Eins og fyrr segir munu þeir Bjarki og Magn-
ús reka Norðurlandadeild Stellar Group og í því
felast möguleg vaxtartækifæri.
„Hugmyndin er að vera sýnilegri með Stellar
sem vörumerki. Það er ekkert því til fyrirstöðu
að við reynum líka að ná til bestu leikmannanna
í Danmörku og Svíþjóð, þó að í grunninn séum
við að færa okkur til fyrir íslensku leikmennina.
Við viljum alltaf standa okkur gagnvart þeim.
Vilja fylgja leikmönnu
Pétur Hreinsson
peturh@mbl.is
Samningur knattspyrnuumboðsmannanna Bjarka Gunnlaugssonar og
Magnúsar Agnars Magnússonar við Stellar Group, stærstu umboðs-
mannaskrifstofu í heimi á sviði íþróttanna, felur í sér umfangsmeira
tengslanet og meira aðgengi að upplýsingum og er þar af leiðandi traust-
vekjandi fyrir íslenska knattspyrnumenn sem vilja freista þess að spreyta
sig á erlendri grundu að sögn Bjarka.
Tröllasögur, sér í lagi úr enskum fjölmiðlum, draga ekki upp fallega mynd af starfi umboðs-
mannsins. BBC hafði það eftir Gianni Infantino, forseta FIFA, að hann hefði áhyggjur af þeim
miklu fjárhæðum sem flæddu út út knattspyrnuheiminum. Að sögn Bjarka endurspegla
þessar lýsingar á engan hátt starfsemi eða gildi Stellar Group. „Eins og í öllum starfsgreinum
er misjafn sauðurinn í þessari grein. Maður upplifir stundum að umboðsmenn séu lægstir í
fæðukeðjunni. Ég er náttúrlega algjörlega á móti því hvernig þetta hefur fengið að viðgang-
ast víða erlendis. Það á ekki rétt á sér. Fyrir mér er þetta bara vinna sem þú átt hlutdeild í sem
fer eftir því hversu vel gengur. Þetta á ekki að snúast um umboðsmanninn, að hann eigi að
taka stóra sneið af kökunni. Það er eitthvað rangt við það. Það er alltaf verið að reyna að
finna leiðir til þess að stöðva þessa þróun en það er erfitt. Umboðsmenn eiga fyrst og fremst
að gæta hagsmuna leikmanna. En ef félögin eru farin að búa til leikreglurnar stendur leik-
maðurinn fremur berskjaldaður eftir,“ segir Bjarki og nefnir einfalt dæmi um mikilvægi um-
boðsmannsins. „Ef við förum með leikmann til Þýskalands eða Englands sem dæmi vitum
við nákvæmlega hvers konar samning hann getur fengið. Ef hann væri ekki með umboðs-
mann gæti það farið svo að hann mætti til félagsins og áttaði sig á því á fyrsta degi að hann
væri langlaunalægsti leikmaður liðsins. Þetta er ýkt dæmi en segir samt ákveðna sögu. Þú
þarf alltaf að hafa einhvern málsvara eða viðmið þegar þú ert að semja um kaup og kjör.“
Bjarki segir starf umboðsmannsins einnig snúið því við samningsborðið séu þrír aðilar; leik-
maðurinn, félagið sem kaupir og félagið sem selur. „Við viljum að sjálfsögðu eiga í góðum
samskiptum við þá alla svo við séum ekki að tjalda til einnar nætur. Þessir þrír aðilar eru eðli
málsins samkvæmt allir að hugsa um sig og við þurfum að passa upp á að þetta springi ekki í
loft upp. Þetta er sá hluti starfs okkar sem ég tel að sé hvað vanmetnastur.“
Tröllasögur endurspegla ekki starfsemi