Morgunblaðið - 10.02.2019, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 10.02.2019, Qupperneq 8
8 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. OKTÓBER 2019VIÐTAL En til framtíðar sjáum við tækifæri í því, ásamt Stellar Group, að vera með viðveru í þessum löndum þannig að þegar eitthvað kemur upp; áhugaverður leikmaður eða eitthvað slíkt, verði auðveldara fyrir okkur að taka þann slag við aðrar umboðsskrifstofur. Það hefði verið erfitt að gera það sem Total Football. En hugsunin er ekki sú að hrúga inn sænskum eða dönskum leikmönnum heldur að velja úr og eiga mögu- leika á að vera með í leiknum sem Stellar. Á móti eru einnig leikmenn Stellar hjá stóru lið- unum í Englandi sem ná ekki í gegn þar en gætu fundið sig betur á lægra stigi eins og Skandinav- íu eða jafnvel á Íslandi,“ segir Bjarki. „Þetta er gríðarlega mikið tækifæri fyrir okkur. Ef ég væri leikmaður væri þetta eins og að semja við Real Madrid. En þetta eru einnig gleðifréttir fyrir íslenskan fótbolta. Markmiðið er að fjölga leikmönnum í stærri deildum. Næsta kynslóð er sú sem við leggjum mesta áherslu á. Stærstur hluti starfsins hjá okkur er að finna næsta Eið Smára Guðjohnsen og næsta Gylfa Þór Sigurðsson án þess þó að vanmeta hversu flottan feril leikmaður eins og t.d. Kári Árnason átti sem spilaði erlendis um árabil. Við erum ekki síður að leita að slíkum leikmanni. En leiðin fyrir leikmenn er aftur á móti alltaf sú sama. Að fara út í akademíufótbolta eða sem leikmaður í gegnum meistaraflokk hér á landi til Skandinavíu eða í minni deildirnar á meginland- inu og þar áfram,“ segir Bjarki. Miðlar reynslu Bjarki er fyrrverandi atvinnumaður í knatt- spyrnu og segist hafa mikið fram að færa sem slíkur. Hann segist hafa lært af eigin mistökum og að í þeim birtist mestu verðmæti hans sem umboðsmanns auk reynslu hans úr viðskiptalíf- inu. „Ég var einu sinni leikmaður og sem slíkur gerði maður helling af mistökum. Ég tók rangar ákvarðanir hvað varðar meiðsli, óþolinmæði yfir litlum spilatíma snemma á atvinnumannsferl- inum, samskipti við þjálfara og stjórnendur klúbba og fleiri atriði sem skipta verulegu máli. Ég vildi nýta þekkingu mína og miðla henni áfram til leikmanna. Það getur verið dýrkeypt að taka ranga beygju og ætla sér að fara aftur á rétta braut. Þá er stundum betra að anda djúpt og tala við einhvern sem hefur upplifað þetta áð- ur og taka þannig betri ákvörðun en ella. Ég get sagt frá eigin reynslu að hlutir sem maður gerði á sínum tíma voru ekki alveg réttir og það hefði verið gott að hafa einhvern hlutlausan til þess að segja manni sannleikann og sparka í rassinn á manni. Maður sér það núna en sá það ekki þá. Það er mín köllun í þessu,“ segir Bjarki í samtali við blaðamann. „Áður en ég fór í þetta var ég einnig í alls kon- ar viðskiptum, vann með fólki, gerði samninga, og að stjórna rekstri yfir höfuð. Það segir sig sjálft að það nýtist alltaf. Áhuginn á viðskiptum og fótboltanum sameinast vel í þessu,“ segir Bjarki. Sérstakur markaður á Íslandi Rekstur umboðsmannaskrifstofa er nokkuð sérstakur í eðli sínu, sér í lagi í íslensku sam- hengi þar sem hann stendur og fellur með því hversu öfluga knattspyrnumenn íslenska þjóðin getur alið af sér, sem hefur reyndar gengið vel undanfarin ár þar sem karlalandsliðið hefur frá 2016 bæði farið á EM og HM. En íslenskar um- boðsmannaskrifstofur búa við annan veruleika en gengur og gerist annars staðar. Greiðslur ís- Þegar blaðamann bar að garði á Skólavörðustíg 14 var fyrsti maður til að heilsa honum Baldur Kristjánsson ljósmyndari, sem hefur deilt rými með umboðsmannaskrifstofunni Total Football undanfarin ár. Í hornherberginu á þessu sam- eiginlega rými situr Bjarki Gunnlaugsson við tölvuna með kveikt á Sky Sports fyrir framan sig, en skrifstofan skartar ýmsum djásnum á borð við gull- og silfurskó auk stórrar freyði- vínsflösku með áletruninni „Man of the Match“ og merki ensku úrvalsdeildarinnar prentuðu á. Á bak við hann er tafla þar sem hernaðar- leyndarmálin eru teiknuð upp, en þeir Bjarki, Magnús Agnar Magnússon og Arnór Guðjohn- sen stofnuðu umboðsmannaskrifstofuna árið 2011. Nú hafa þeir Bjarki og Magnús Agnar ákveðið að söðla um, en þeir gengu í síðustu viku til liðs Stellar Group, stærstu umboðs- mannaskrifstofu í heimi á vettvangi íþrótta, sem hefur leikmenn á borð við Gylfa Þór Sigurðsson, Aron Einar Gunnarsson, Jóhann Berg Guð- mundsson og Gareth Bale, leikmann Real Madrid, á sínum snærum, Aukið aðgengi að upplýsingum Þeir Bjarki og Magnús munu leiða Norður- landadeild skrifstofunnar, sem mun bera heitið Stellar Nordic, en viðræður við Stellar Group hafa átt sér stað í nokkurn tíma. Að sögn Bjarka má lýsa umboðsmennsku sem þjónustustarfi, þjónustu við leikmenn, þar sem aðgengi að upp- lýsingum er auðvitað gríðarlega mikilvægt. „Og það stækkar gríðarlega við þessa breyt- ingu. Tengslanetið stækkar og leikmenn ættu nú að geta treyst því að þeir séu alltaf að fá bestu samningana sem völ er á í hvaða landi sem er,“ segir Bjarki. Þeir félagar hafa um 40 leik- menn á sínum snærum sem spila erlendis en inni í þeirri tölu eru bæði yngri leikmenn, frá 16- 19 ára, og eldri leikmenn. „Okkur langar til þess að fylgja þessum strákum alla leið. Ekki að byrja með þeim ung- um og taka skref A og B en sleppa skrefi C þeg- ar þeir eru komnir á hærra stig. Þá verður áreit- ið við þá meira og menn hvísla að þeim alls konar gylliboðum sem eru ekkert endilega sönn og rétt. Nú ættum við að geta tryggt að við séum nógu stórir til þess að fara með þá alla leið. Maður vill að leikmenn taki ákvarðanir út frá bestu mögulegu upplýsingum og með þess- ari breytingu ætti ekki í raun að vera hægt að segja að við séum ekki nógu stórir,“ segir Bjarki. „Stellar Group hefur verið til í töluverðan tíma. Jonathan Barnett, David Lockwood og David Manasseh eru heilarnir á bak við þetta. Þeir hafa tugi starfsmanna og þetta er í raun allt annað vinnuumhverfi,“ segir Bjarki og nefn- ir stærðarhagkvæmnina sem fylgir því að vera hluti af Stellar Group og hvernig umboðsmenn samstæðunnar hjálpast til við að fylgjast með leikmönnum annarra umboðsmanna innan hennar. „Það er líka stór ástæða fyrir því að við tókum skrefið að semja við Stellar Group frem- ur en aðra. Þar eru allir saman í þessu frekar en að vinna hver í sínu horni,“ segir Bjarki. Eins og fyrr segir munu þeir Bjarki og Magn- ús reka Norðurlandadeild Stellar Group og í því felast möguleg vaxtartækifæri. „Hugmyndin er að vera sýnilegri með Stellar sem vörumerki. Það er ekkert því til fyrirstöðu að við reynum líka að ná til bestu leikmannanna í Danmörku og Svíþjóð, þó að í grunninn séum við að færa okkur til fyrir íslensku leikmennina. Við viljum alltaf standa okkur gagnvart þeim. Vilja fylgja leikmönnu Pétur Hreinsson peturh@mbl.is Samningur knattspyrnuumboðsmannanna Bjarka Gunnlaugssonar og Magnúsar Agnars Magnússonar við Stellar Group, stærstu umboðs- mannaskrifstofu í heimi á sviði íþróttanna, felur í sér umfangsmeira tengslanet og meira aðgengi að upplýsingum og er þar af leiðandi traust- vekjandi fyrir íslenska knattspyrnumenn sem vilja freista þess að spreyta sig á erlendri grundu að sögn Bjarka. Tröllasögur, sér í lagi úr enskum fjölmiðlum, draga ekki upp fallega mynd af starfi umboðs- mannsins. BBC hafði það eftir Gianni Infantino, forseta FIFA, að hann hefði áhyggjur af þeim miklu fjárhæðum sem flæddu út út knattspyrnuheiminum. Að sögn Bjarka endurspegla þessar lýsingar á engan hátt starfsemi eða gildi Stellar Group. „Eins og í öllum starfsgreinum er misjafn sauðurinn í þessari grein. Maður upplifir stundum að umboðsmenn séu lægstir í fæðukeðjunni. Ég er náttúrlega algjörlega á móti því hvernig þetta hefur fengið að viðgang- ast víða erlendis. Það á ekki rétt á sér. Fyrir mér er þetta bara vinna sem þú átt hlutdeild í sem fer eftir því hversu vel gengur. Þetta á ekki að snúast um umboðsmanninn, að hann eigi að taka stóra sneið af kökunni. Það er eitthvað rangt við það. Það er alltaf verið að reyna að finna leiðir til þess að stöðva þessa þróun en það er erfitt. Umboðsmenn eiga fyrst og fremst að gæta hagsmuna leikmanna. En ef félögin eru farin að búa til leikreglurnar stendur leik- maðurinn fremur berskjaldaður eftir,“ segir Bjarki og nefnir einfalt dæmi um mikilvægi um- boðsmannsins. „Ef við förum með leikmann til Þýskalands eða Englands sem dæmi vitum við nákvæmlega hvers konar samning hann getur fengið. Ef hann væri ekki með umboðs- mann gæti það farið svo að hann mætti til félagsins og áttaði sig á því á fyrsta degi að hann væri langlaunalægsti leikmaður liðsins. Þetta er ýkt dæmi en segir samt ákveðna sögu. Þú þarf alltaf að hafa einhvern málsvara eða viðmið þegar þú ert að semja um kaup og kjör.“ Bjarki segir starf umboðsmannsins einnig snúið því við samningsborðið séu þrír aðilar; leik- maðurinn, félagið sem kaupir og félagið sem selur. „Við viljum að sjálfsögðu eiga í góðum samskiptum við þá alla svo við séum ekki að tjalda til einnar nætur. Þessir þrír aðilar eru eðli málsins samkvæmt allir að hugsa um sig og við þurfum að passa upp á að þetta springi ekki í loft upp. Þetta er sá hluti starfs okkar sem ég tel að sé hvað vanmetnastur.“ Tröllasögur endurspegla ekki starfsemi

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.