Morgunblaðið - 10.02.2019, Side 11

Morgunblaðið - 10.02.2019, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. OKTÓBER 2019 11 Síðustu árgangar makríls eru metnir stórir og góð nýliðun, en óvissa í stofnmatinu er hins vegar veruleg og gögn misvísandi. Í kolmunna hefur nýliðun verið léleg síðustu þrjú ár og viðbúið að stofn- inn minnki. Í síld hafa flestir ár- gangar verið lé- legir í mörg, ár, en að sögn Guð- mundar Óskars- sonar, fiskifræð- ings á Hafrann- sóknastofnun og formanns vinnu- nefndar ICES sem fjallar um þessa stofna, lofar árgangurinn frá 2016 mjög góðu. Mikið af þriggja ára síld „Smám saman hefur þessum gömlu einstaklingum í síldarstofn- inum, sem borið hafa uppi veiðina, farið fækkandi,“ segir Guðmundur. „Núna sjáum við hins vegar stóran árgang frá 2016 vera að koma upp í norðanverðu Noregshafi og sérstak- lega í Barentshafi. Við höfum aldrei mælt eins mikið af þriggja ára síld í Barentshafi eins og gert var í maí síð- astliðnum. Reikna má með þessum árgangi í veiðina að einhverju leyti á næsta ári, en síðan af meiri krafti 2021. Það er auðvitað óvissa um stærð þessa árgangs og stofnmatið tekur til dæmis lítið tillit til hans ennþá.“ Guðmundur segir að makrílstofn- inn hafi verið metinn stærri með hverju árinu, nýliðun hafi verið góð og sterkir árgangar séu að koma inn. Hins vegar sé talsverð óvissa í stofn- matinu og gögn misvísandi. Þannig séu niðurstöður fjölþjóðlegs eggja- leiðangurs í vor og einnig 2016 langt fyrir neðan stofnmatið. Niðurstöður sumarleiðangurs Íslendinga, Norð- manna og Færeyinga í ár hafi hins vegar sýnt hæstu mælingu frá upp- hafi þessa verkefnis. Í fyrrnefndum eggjaleiðangri varð vart við hrygningu makríls í íslenskri lögsögu suður og suðaustur af land- inu. Egg fundust víða, en þéttleiki var ekki mikill. Meginhrygning makríls er í Biskajaflóa og vestur af Bret- landseyjum. Þrátt fyrir talsverða veiði umfram ráðgjöf síðustu ár eru þessir þrír stofnar stórir. Ekki er í gildi sam- komulag um stjórnun veiða úr þess- um stofnum og hefur afli verið tals- vert umfram ráðgjöf síðustu ár, t.d. 4-42% í síld og 16-66% í kolmunna. Í norsk-íslenskri síld ráðleggur ICES að afli ársins 2020 verði ekki meiri en 526 þúsund tonn. Ráðgjöf yf- irstandandi árs var 589 þúsund tonn og er því um að ræða 11% lækkun í tillögum ráðsins um afla næsta árs. Ástæða þess er fyrst og fremst að stofninn er enn á niðurleið eftir slaka nýliðun um árabil. Áætlað er að heild- arafli ársins 2019 verði um 774 þús- und tonn, sem er 31% umfram ráð- gjöf. Í makríl leggur ICES til að afli árs- ins 2020 verði ekki meiri en 922 þús- und tonn. Ráðgjöf yfirstandandi árs var 770 þúsund tonn og er því um að ræða tæplega 20% aukningu í til- lögum ráðsins um afla næsta árs. Hins vegar er áætlað að heildaraflinn 2019 verði um 835 þúsund tonn eða rúm 9% umfram ráðgjöf. Sterkir árgangar Samkvæmt stofnmati stækkaði hrygningarstofn makríls frá 2007, náði hámarki 2014, en hefur farið minnkandi síðan. Frá aldamótum hefur nýliðun að jafnaði verið góð og allir árgangar síðan 2011 eru metnir yfir meðalstærð. Nú eru tveir stærstu árgangar tímaraðarinnar, frá 2016 og 2017, að ganga inn í hrygn- ingar- og veiðistofninn og er það með- al ástæðna fyrir aukningu í ráðgjöf. Makríll hefur gengið á Íslandsmið í fæðuleit yfir sumarmánuðina í ríflega áratug. Niðurstöður fyrrnefnds tog- leiðangurs í NA-Atlantshafi síðast- liðin sumur benda til að minna magn af makríl hafið verið innan íslenskrar lögsögu árin 2018-2019 samanborið við árin 2012-2017. Á hafsvæðinu öllu mældist hins vegar meira af makríl í sumar en áður. Minnkandi stofn Í kolmunna leggur ICES til að afli ársins 2020 verði ekki meiri en 1,161 milljón tonn. Ráðgjöf fyrir árið 2019 var mjög svipuð, eða 1,14 milljón tonn, en gert er ráð fyrir að aflinn á árinu verði um 1,44 milljón tonn, 26% umfram ráðgjöf. Talið er að stofninn muni líklega minnka næstu árin og að sama skapi muni aflamark lækka þegar litlu árgangarnir frá 2016-2018 koma að fullu inn í veiðistofninn. Bætt við í makríl, samdráttur í síld Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Aukning í makríl um 20%, lítil breyting í kolmunna en 11% samdráttur í norsk- íslenskri síld eru megin- niðurstöður í ráðgjöf Al- þjóðahafrannsóknaráðsins (ICES) fyrir næsta ár. Afli hefur verið umfram ráðgjöf síðustu ár. Ljósmynd/Þorgeir Baldursson Aflaskipið Börkur, en uppsjávarskipin eru þessa dagana á síldveiðum fyrir austan land, síðan tekur kolmunninn við. Afurðaverð á markaði 1. október 2019, meðalverð, kr./kg Þorskur, óslægður 408,57 Þorskur, slægður 532,98 Ýsa, óslægð 289,79 Ýsa, slægð 279,08 Ufsi, óslægður 152,46 Ufsi, slægður 173,63 Gullkarfi 290,35 Blálanga, óslægð 239,79 Langa, óslægð 236,04 Langa, slægð 241,01 Keila, óslægð 94,38 Keila, slægð 135,78 Steinbítur, óslægður 236,35 Steinbítur, slægður 375,20 Skötuselur, slægður 397,57 Grálúða, slægð 472,68 Skarkoli, slægður 369,18 Þykkvalúra, slægð 625,95 Langlúra, óslægð 242,00 Bleikja, flök 1.600,63 Hlýri, óslægður 233,81 Hlýri, slægður 281,24 Lúða, óslægð 545,00 Lúða, slægð 578,76 Lýsa, óslægð 92,31 Skata, óslægð 19,00 Stóra brosma, óslægð 13,00 Stórkjafta, slægð 73,83 Undirmálsýsa, óslægð 182,78 Undirmálsýsa, slægð 182,94 Undirmálsþorskur, óslægður 220,07 Undirmálsþorskur, slægður 243,00 Veiðar á þeim uppsjávarteg- undum sem ICES gaf út ráðgjöf fyrir í gær eru meðal helstu stoða í íslenskum sjávarútvegi. Ekki liggja fyrir samningar á milli strand- ríkja um stjórnun veiðanna og þetta ár ákvað Kristján Þór Júl- íusson, sjávarútvegsráðherra, eft- irfarandi heildarkvóta Íslendinga í þessum tegundum: Norsk-ísl. síld 102.174 tonn. Makríll: 140 þúsund tonn. Kolmunni: 241.000 tonn. Mikill afli upp- sjávarskipa Guðmundur Óskarsson Suðurlandsbraut 6, 108 Rvk | S. 419 9000 | info@handafl.is | handafl.is VANTAR ÞIG STARFSFÓLK? Við útvegum hæfa starfskrafta í flestar greinar atvinnulífsins Traust og fagleg starfsmannaveita sem þjónað hefur íslenskum fyrirtækjum í áraraðir Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.