Morgunblaðið - 23.10.2019, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. OKTÓBER 2019FRÉTTIR
Það er alltaf ögn erfiðara að reka
ferðaskrifstofu á Íslandi þegar viðr-
ar vel á sumrin. Þráinn hefur því ef-
laust óskað ögn fleiri rigningardaga
í sumar, enda var teflt djarft hjá
VITA með því að bjóða upp á tvær
vélar á viku til Alicante og Tenerife,
auk vikulegra ferða til Almería og
Kanaríeyja.
Hverjar eru helstu áskoranirnar í
rekstrinum þessi misserin?
Við erum mjög háð gengi krón-
unnar gagnvart bandaríkjadal og
evru. Við kaupum gistingu í evrum
og flug í dölum, en allur rekstrar-
kostnaður á skrifstofu er í krónum.
Það er því undirliggjandi gengis-
áhætta í rekstrinum sem maður þarf
stöðugt að vera á varðbergi fyrir.
Einnig hefur gengið mikil áhrif á út-
söluverðið en við erum þessa dagana
að auglýsa ferðir fyrir sumarið 2020.
Hver var síðasta ráðstefnan sem
þú sóttir?
Fór í vor á tæknisýningu í London
sem snýr eingöngu að ferðaþjónustu.
Það er margt að þróast og breytast í
bransanum og maður þarf að fylgj-
ast mjög vel með. En á endanum
snúast viðskiptin að sjálfsögðu um
verð, gæði og aðgang að vörunum
sem maður er að selja og markaðs-
setja.
Hvaða hugsuður hefur haft mest
áhrif á hvernig þú starfar?
Mér fannst mjög gaman að lesa
ævisögu Steves Jobs og það má
taka hann til fyrirmyndar um
margt í markaðssetningu. Honum
fannst t.a.m. það eiga að vera gam-
an að taka umbúðir af vörunum sem
maður kaupir, sem eykur einmitt
spenningin fyrir Apple-vörunum.
Hvernig heldurðu
þekkingu þinni við?
Ég fer á ráðstefnur um ferðamál
a.m.k. tvisvar á ári og einnig sæki
ég ýmsar ráðstefnur sem haldnar
eru hérlendis. Þessu til viðbótar les
ég greinar og fer á endurmennt-
unarnámskeið sem snúa mest að
kerfum og nýjum aðferðum.
Hugsarðu vel um líkamann?
Ég reyni að komast í ræktina
tvisvar eða þrisvar í viku en það
gengur ekki alltaf upp. Á sumrin
stunda ég golf af kappi og það er
lúmsk hreyfing enda gengur maður
yfir 10 km á 18 holu hring.
Hvað myndirðu læra ef þú fengir
að bæta við þig nýrri gráðu?
Ég myndi læra tölvugreind og
fræðast um fjórðu iðnbyltinguna
sem er að skella á okkur. Það gefur
okkur tækifæri á að þróa störfin
þannig að þau verði skemmtilegri
og að tölvurnar sjái meira um
venjubundna rútínu.
Hvaða kosti og galla sérðu við
rekstrarumhverfið?
Við erum á litlum markaði og
mjög háð genginu á íslensku krón-
unni sem getur sveiflast mjög mik-
ið á stuttum tíma. Það væri mun
einfaldara fyrir okkur ef við tækj-
um upp aðra mynt sem fleiri lönd
nota. Kostirnir við að selja sólar-
landaferðir til Íslendinga allt árið
er hve við erum einangruð á þess-
ari eyju og þurfum að búa við litla
birtu og langa vetur með rysj-
óttum veðrum. Farþegarnir okkar
eru því mjög hamingjusamir og
fullir eftirvæntingar að komast út
fyrir landsteinana og í hlýrra lofts-
lag.
SVIPMYND Þráinn Vigfússon framkvæmdastjóri VITA
Landanum þykir gott að kom-
ast úr skammdeginu í sólina
Morgunblaðið/Golli
NÁM: Cand. oecon. frá HÍ af endurskoðunarsviði 1995.
STÖRF: Kynnisferðir ehf., fjármálastjóri, 1996-2004 og fram-
kvæmdastjóri 2004-2007. Iceland Travel og Feria (VITA), fjár-
málastjóri 2009-2019 og framkvæmdastjóri frá 2019.
ÁHUGAMÁL: Ég skellti mér í golfið fyrir nokkrum árum og líklega
er það orðið mitt helsta áhugamál í dag. Í gegnum árin hef ég
mikið teflt, og þá sérstaklega á yngri árum. Ég er í skákklúbbi
sem kemur saman einu sinni í mánuði. Einnig hef ég mjög gam-
an af ferðalögum, bæði innanlands og utan, sem endurspeglast í
þeim störfum sem ég hef tekið að mér.
FJÖLSKYLDUHAGIR: Kvæntur Svövu Liv Edgarsdóttur mat-
vælafræðingi og saman eigum við þrjá uppkomna syni og eitt
barnabarn.
HIN HLIÐIN
FLÍKIN
Eins og lesendur ættu að vita
hyggst athafnamaðurinn Richard
Branson senn bjóða upp á farþega-
flug út í geim. Prófanir á geim-
flaugum Virgin Galactic hafa gengið
prýðilega og þess verður varla langt
að bíða að sterkefnaðir ævin-
týramenn og -konur geti svifið um í
þyngdarleysi hátt uppi á himnum.
En það gengur ekki að vera í
hvaða gallabuxum og flíspeysu sem
er þegar haldið er af stað í þannig
ferðalag. Hafa því Virgin Galactic og
íþróttafataframleiðandinn Under
Armour tekið höndum saman og þró-
að geim-galla.
Um er að ræða undirlag, samfest-
ing og stígvél, og hefur þessi heil-
klæðnaður verið hannaður gagngert
með þarfir geimferðalanga í huga.
Efnið lagar sig að lögun líkamans,
andar vel og viðheldur þægilegum
hita og verður hver flík sérnsiðin fyr-
ir hvern geimfara.
Ekki fylgir sögunni hvort almenn-
ingi á jörðu niðri muni standa til
boða að eignast eitthvað svipað, en
telja verður næsta víst að þeir sem á
annað borð komast í flug út í geim
muni freistast til að klæðast flíkinni
sem oftast eftir lendingu. ai@mbl.is
Geimgalli
Bransons
Blár samfestingurinn er mjög
framúrstefnulegur í útliti.
GRÆJAN
Hann þykir engum öðrum líkur, Phantom-hátalarinn frá
franska framleiðandanum Devialet. Hann er frístand-
andi, nýtur sín að margra mati best á miðju stofu-
gólfi, lítur út eins og hylkið innan úr risastóru
Kinder-eggi og beinir hljóðinu í allar áttir. Er há-
talarinn líka heilmikið tækniundur enda smíðaður
úr nærri því 1.000 pörtum og liggja meira en 100
einkaleyfi á bak við hönnunina.
Gallinn við Phantom þykir helst hvað hátalarinn
er stór og er núna komin á markað minni útgáfa:
Phantom Rector.
Hljóðgæðin ættu að vera hér um bil þau sömu, en
útlitið hefur lítið breyst og ætti að vera auðveldara að
koma Phantom Reactor fyrir á venjulegu heimili eða
hæfilega stórri hornskrifstofu. Þá er skelin fáanleg
máluð biksvört, eða í klassíska hvíta litnum.
Velja má um tvenns konar útfærslu: 600W og 900W, eftir því hve mikið fólk vill gera nágrönnunum lífið leitt
með tónlistarspiluninni. Vitaskuld má tengja Phantom Reactor við alls kyns önnur tæki yfir blátannarteng-
ingu.
Á Bandaríkjamarkaði kostar græjan um 1.090 dali. ai@mbl.is
Phantom smækkaður og litaður í svörtu
Svarti liturinn fer honum vel,
en gamli stóri Phantom var
aðeins fáanlegur í hvítu.
Eins og svo margir góðir menn
smitaðist Þráinn af golf-
bakteríunni og fær ágætis
hreyfingu á gangi á milli hola.