Morgunblaðið - 23.10.2019, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 23.10.2019, Blaðsíða 9
Morgunblaðið/Hari Kringlunnar, en þessi starfsstöð er opin frá kl. 8- 23,“ segir Sigurjón. Auk vefsíðunnar hefur Kringlan sett upp staf- ræna skjái í húsnæðinu þar sem m.a. er hægt að leita að staðsetningu verslana og þjónustu í hús- inu. Þá var Kringluappið tekið í notkun í sumar, sem að sögn Sigurjóns mun til framtíðar verða nokkurs konar hollustuapp (e. loyalty) en í dag er það eins konar upplýsingaveita um húsið þar sem m.a. er hægt að fá yfirlit yfir þau tilboð sem eru í boði í Kringlunni frá degi til dags. Ná til yngri kynslóða Eins og segir í upphafi er Stafrænu Kringlunni ætlað að ná til yngri markhópa sem hafa öðruvísi neysluvenjur en eldri kynslóðir. „Auðvitað vitum við að neysluvenjur yngri kyn- slóða eru öðruvísi. Þær eru minna uppteknar af þessum efnislegu gæðum og eru meira í upplifun og heilsutengdri afþreyingu. En allt er þetta engu að síður vara og við erum að þróa okkur í þá átt að geta komið til móts við þessar kröfur líka. Það er einnig liður í breyttum áherslum þeirra sem reka verslunarmiðstöðvar, þegar kemur að markaðs- málum líka, að gera þær að meiri upplifunarstað þar sem fólk getur komið saman og tilgangurinn er að upplifa. En svo ertu kominn inn á þetta svæði sem verslunarmiðstöðin er. Rannsóknir okkar sýna að þegar fólk er komið í hús nýta 85% þess þá vöru eða þjónustu sem er til staðar í hús- inu,“ segir Sigurjón og nefnir að auki dæmi um það hvernig Kringlan hefur upp á síðkastið aukið áherslu á fjölbreyttari þjónustu. „Það er ljóst að verslunarmiðstöðvar í heim- inum eru að taka umtalsverðum breytingum þar sem aukin áhersla er lögð á heilsutengda þjón- ustu. Hér í Kringlunni erum við til dæmis búin að opna Sjúkraþjálfun Íslands sem var áður í Orku- húsinu. Búið er að leggja þriðju hæðina í norður- enda hússins undir þá starfsemi. Þar er einnig kírópraktórastöð og fleiri þjónustuaðilar sem eru í heilsutengdri þjónustu. Öll hæðin hefur tekið um- breytingu og þetta er liður í því að draga fólk í húsið með ólíkum þjónustuleiðum. Í maí síðast- liðnum bættum við einnig við veitingageirann hjá okkur þegar við opnuðum mathöll, Kringlutorgið, en auðvitað er Stjörnutorgið í raun og veru fyrsta mathöllin þó að það hafi ekki haft það heiti á sín- um tíma,“ segir Sigurjón. Velta jókst hjá verslunum Kringlunnar á síð- asta ári. Gestum Kringlunnar hefur það sem af er ári fækkað um 1% en í fyrra voru þeir fimm millj- ónir. „En við sjáum hins vegar að þessi vaxandi samkeppni á markaðnum tekur í. Um það er ekki spurt. Það er slegist um kúnnann,“ segir Sigurjón. Krefjandi tími Rekstur verslunarmiðstöðva úti um allan heim hefur átt undir högg að sækja í sinni upprunalegu mynd og verið krefjandi síðastliðin ár og segja margir að eðli þeirra sé að breytast. Sigurjón lítur ekki á netverslun sem ógn við hefðbundna verslun heldur áskorun til þess að gera betur. „Verslun mun ekki líða undir lok. Þar sem fólk er, þar er verslað. En verslunarhegðun fólks er að breytast og við erum að koma til móts við það með staðbundinni verslun sem tileinkar sér nýjungar og stafræna þróun. Það er styrkleiki í þessu og mun trúlega skilja á milli feigs og ófeigs í verslun. Þeir sem fylgjast með tileinka sér þróunina, inn- leiða hana hjá sér og munu á endanum standa uppi sem sigurvegarar,“ segir Sigurjón. Spurður hvort um sögulegan tíma sé að ræða kveður Sigurjón já við, en mörg þúsund versl- unum í verslunarmiðstöðvum í Bandaríkjunum hefur til dæmis verið lokað einungis á þessu ári og hefur þróuninni verið lýst sem stórkostlegum smásöluhamförum þar í landi (e. retail apoca- lypse). Boða breytingar „Þetta er mjög krefjandi tími. Þessi þróun hef- ur átt sér stað, sérstaklega í Bandaríkjunum, á svokölluðum jaðarsvæðum. Verslunarmiðstöðvar inni í borgum, þar sem aðgengi að almennings- samgöngum er gott og svo framvegis, munu þróast og lifa af en hin svokallaða áfangastað- arverslun (e. destination shopping) hefur verið að gefa eftir. Aðgengi skiptir máli og við erum hérna stödd á stærstu gatnamótum Íslands. En húsið þarf að þróast og taka breytingum og við þurfum að koma til móts við breyttar kröfur við- skiptavina. Það þarf að tileinka sér tæknina og innleiða hana við þá starfsemi sem er þegar til staðar. Það er ekki verið að boða endalok versl- unarmiðstöðva. En það er aftur á móti verið að boða breytingar. Þú þarft að þróast með til þess að daga ekki uppi og deyja,“ segir Sigurjón, sem segir reksturinn nú um stundir almennt ganga vel. „En við erum að takast á við breytta tíma. Margir segja að á næstu 10 árum verði meiri þró- un og breyting í verslun en á síðustu 50 árum. Þar spilar þessi stafræna umbreyting og mikil tækniþróun auðvitað stórt hlutverk. Ég hef tengst Kringlunni frá árinu 1987, þegar ég byrjaði sem sölumaður um jól í Herragarðinum. Svo varð ég kaupmaður og í framhaldinu framkvæmdastjóri. Þannig að ég hef fylgst með þróun Kringlunnar og veit að breytingarnar í verslun hafa aldrei ver- ið eins stórstíga og á síðustu tveimur til þremur árum ef frá er talin opnun Kringlunnar á sínum tíma, sem var algjör straumhvörf,“ segir Sigurjón. r breytingar MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. OKTÓBER 2019 9VIÐTAL Ferðamenn eru aðeins um 10% gesta Kringlunnar, sem hætti í vor að gera út ferðir frá miðbænum upp í Kringlu á klukkutímafresti þar sem kostnaður við það á hvern mann var ekki réttlætanlegur að sögn Sigurjóns. Segir hann að því fjármagni sé betur varið með því að nýta það til þess að ná til ferðamanna með öðrum hætti. „Kringlan er náttúrlega fyrst og fremst rekin á forsendum þeirra sem búsettir eru á Íslandi alla jafna,“ segir Sigurjón. Og þar skiptir jólaverslun miklu máli, en desember er í ákveðnum vöruflokkum, t.d. gjafavöru, margfalt stærri en hefðbundnir mánuðir á árinu. En jólasalan hefur þó aðeins dreifst að sögn Sigurjóns. „Nóvember er í sumum tilfellum orðinn svipað sterkur og desember, þannig að jólaverslunin er að dreifast mikið. Er það hluti af þessum breyttu verslunarháttum. Menn eru að nýta sér innflutta markaðsviðburði, svo sem Svarta föstudaga (e. Black Friday) og netverslunarm- ánudaga (e. Cyber Monday). Við eigum einnig okkar eigin viðburð: Miðnætursprengj- una og SOS neyðarhnappinn sem vann nýlega til þjónustuverðlauna hjá ICSC, alþjóð- legum samtökum verslunarmiðstöðva. Þar aðstoðuðum við yfir 1.000 manns á þremur síðustu dögunum fyrir jól við að finna jólagjafir sem þvældust fyrir fólki. Þar gat fólk í gegnum Messenger klukkað okkur og beðið um aðstoð,“ segir Sigurjón og nefnir að verðlaunin séu mjög eftirsóknarverð. „Meðal annars vegna þess að samtökin eru alþjóðlegt fagráð verslunarmiðstöðva með yfir 55 þúsund meðlimi í 90 löndum. Kringlan hefur áður hlotið verðlaun samtakanna, árið 2012 fyrir Miðnætursprengju og árið 2014 fyrir leikinn Kringlukröss.“ Jólasalan dreifist meira

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.