Morgunblaðið - 23.10.2019, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. OKTÓBER 2019
Smáratorgi 1, 201 Kóp., s. 588 6090, vl@verkfaeralagerinn.is
Vefverslunin alltaf opinwww.listverslun.is
Verkfæralagerinn
Mán.-fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-18:30, lau. kl. 10-18, sun. kl. 12-17
Kolibri trönur
í miklu úrvali, gæða-
vara á góðu verði
Kolibri penslar
Handgerðir þýskir penslar
í hæsta gæðaflokki
á afar hagstæðu verði
Ennþá meira úrval af
listavörum
WorkPlus
Strigar frá kr. 195
AF 200 MÍLUM Á MBL.IS
Kanadíska CBC-fréttastöðin hefur eftir starfsmönnum Northern Har-
vest Sea Farms, í eigu norska fiskeldisrisans Mowi, að allt að 1,8 millj-
ónir fiska sem vega allt að 4,5 kíló hafi drepist í ágúst og september
sl. í 72 kvíum. Ástæðan sé of hlýr sjór í Fortune-flóa. Heildarmagn er
talið vera um 1.800 tonn.
Gerry Byrne, sjávarútvegsráðherra Nýfundnalands og Labrador í
Kanada, ákvað síðastliðinn föstudag að afturkalla tímabundið öll fisk-
eldisleyfi Northern Harvest Sea Farms (NHSF) fyrir brot á reglu-
gerðum og vegna dauða fleiri fiska en fiskeldisstöðvar fyrirtækisins
greindu frá upphaflega.
Mowi hefur enn ekki gefið upp hversu margir atlantshafslaxar dóu
í kvíum NSHF. Kafarateymi starfar við hreinsun kvíanna og stendur
yfir frekari rannsókn á umfangi atviksins.
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Hlýnun sjávar getur haft slæm áhrif á laxeldi.
Hlýr sjór veldur laxa-
dauða í milljónatali
Spurður um þá ákvörðun að tækni-
væða vinnslulínur Brims, sem stendur
fyrir dyrum á næsta ári, segir Guð-
mundur Krist-
jánsson að um sé
að ræða umfangs-
mikla framtíðar-
fjárfestingu og
þetta hafi verið
stór ákvörðun fyr-
ir félagið. „Við er-
um búin að taka
ákvörðun um að
við ætlum að
standast samkeppni við erlendar fisk-
vinnslur sem hafa verið að kaupa mik-
ið magn á fiskmörkuðum. Kambur er
með eina línu. Við munum setja þrjár
nýjar línur upp úti á Granda. Þetta
verður eitt fullkomnasta fiskvinnslu-
hús í heimi.“
Þá sé markmiðið að fiskvinnsla
Brims verði hagkvæmari og arðbær-
ari með nýjum vinnslulínum, enda
muni það leiða af sér betri nýtingu
fisksins og tryggja verðmætari afurð
auk þess sem tæknivæðingin muni
fækka störfum. Á móti kemur að
starfsmenn ættu að hafa aukið starfs-
öryggi.
Guðmundur telur líklegt að ein af
ástæðum þess að eigendur Kambs hafi
viljað selja félagið sé að ekki hafi tekist
að kaupa nægilegt magn á fiskmörk-
uðum eins og þeir ætluðu sér á þessu
ári. Spurður hvort það sé vegna skorts
á fiskmörkuðunum segir hann svo
ekki vera. „Það er ekki beint skortur.
Erlendar fiskvinnslur sem eru að
kaupa fisk bjóða gríðarlega hátt verð
fyrir og fiskurinn er unninn í Evrópu-
sambandinu í allt öðru rekstrar-
umhverfi en hér á Íslandi. Eina svarið
við því er að vera vel skipulagðir, með
gott starfsfólk og með mikla tækni.“
Vinnsla háð nægu hráefni
Hins vegar bendir hann á að á sama
tíma og tæknivæðing sé leið til þess að
auka samkeppnishæfni íslenskrar
fiskvinnslu krefjist tæknivædd fisk-
vinnsla nægilegs framboðs af fiski svo
hún skili árangri. „Það er ekki hægt að
reka svona tæknivæddar fiskvinnslur
sem kosta mikla fjármuni nema með
öruggu aðgengi að hráefni og þá í
miklu magni. Þess vegna hafa margar
fiskvinnslur án útgerðar hætt starf-
semi enda hafa þær ekki getað tryggt
sér hráefni og þar af leiðandi ekki get-
að afhent vörurnar með áreiðanlegum
hætti eins og markaðurinn krefst.“
Forstjórinn segir það einnig hafa
verið hvata til að kaupa félögin tvö að
Brim hafi stefnt að því um tíma að
styrkja stöðu sína í þorskaflaheim-
ildum. Fiskvinnslunni Kambi fylgir
tvö þúsund tonna krókaaflamark, að
mestu í þorski, og 850 tonn fylgja Grá-
brók, einnig að mestu í þorski. Þetta
leiðir til þess að sögn Guðmundar að
Brim fer yfir lögbundið kvótaþak í
krókaaflamarki, en lögum samkvæmt
hefur fyrirtækið sex mánuði til að gera
ráðstafanir sem koma félaginu undir
það þak. Guðmundur segir þegar
liggja fyrir áætlanir um hvernig félag-
ið leysi þann vanda og uppfylli skilyrði
laga.
Segir gagnrýni á viðskipti
tengdra aðila eðlilega
Grábrók hefur verið að fullu í eigu
Hjálmars Kristjánssonar, bróður Guð-
mundar, og hefur hann farið með 39%
eignarhlut í Kambi. Inntur álits á
gagnrýni vegna viðskipta við aðila sem
eru skyldir honum segir Guðmundur
eðlilegt að spurt sé um þann þátt. „En
Brim er skráð félag í Kauphöll og þeg-
ar svona samningar eru gerðir eru
þeir gerðir með fyrirvara um áreiðan-
leikakönnun og samþykki stjórnar,
þar sitja fulltrúar hluthafa í félaginu.
Þeir fara yfir forsendur samnings og
meta kosti viðskiptanna fyrir hluthafa
Brims. Brim hefur alltaf lagt á það
þunga áherslu að í slíkum viðskiptum
sé farið að settum lögum og reglum og
gætt að armslengdarsjónarmiðum í
einu og öllu. Það er ekkert bannað að
eiga viðskipti við tengda aðila, en það
verður að gera þetta rétt og það er
eðlileg krafa markaðarins.“
Hann segir jafnframt ekki rétt eins
og hefur verið ýjað að í umfjöllun fjöl-
miðla um viðskiptin að hann sjálfur sé
kaupandi. „Það er Brim sem kaupir
þetta.“
Gunnlaugur Snær Ólafsson
gso@mbl.is
Guðmundur Kristjánsson,
forstjóri Brims, segir há-
tækni hugsanlega einu leið
Íslendinga til þess að
standast alþjóðlega sam-
keppni og halda fiskvinnslu
í landinu.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Forstjóri Brims segir nýjar fiskvinnslulínur félagsins munu auka sjálfvirkni og fækka störfum en að bættur rekstrargrundvöllur muni auka starfsöryggi.
Guðmundur
Kristjánsson
Fækka störfum en auka starfsöryggi