Morgunblaðið - 23.10.2019, Side 11

Morgunblaðið - 23.10.2019, Side 11
Á komandi árum má reikna með miklum breytingum á umbúðavali út- flytjenda ferskra sjávarafurða. Til þessa hafa íslenskir seljendur reitt sig á frauðplastskassa, enda sterk- byggðir, léttir og veita góða hita- einangrun; en markaðurinn kallar á annars konar lausnir. Frauðplastið er ekki nógu umhverfisvænn kostur, ekki er að því hlaupið að urða það eða endurvinna, og greinin öll vill gjarnan leggja sitt af mörkum til að draga úr plastmengun. Fjallað verður um þróun umbúða- mála, áskoranir og lausnir í málstofu á Sjávarútvegsráðstefnunni í nóv- ember. Umsjónarmaður málstof- unnar er Sigurjón Arason, yfirverk- fræðingur hjá Matís og prófessor við Háskóla Íslands. Hann segir áskoranirnar af ýmsum toga, og umbúðaframleiðendur séu að leita ýmissa leiða til að finna lausn á vandanum. „Bæði vilja seljendur og kaupendur sjávarafurða taka þátt í að minnka kolefnisspor flutninga og gera flutninga á fiski eins umhverfis- væna og unnt er, en á sama tíma má ekki fórna gæðum hráefnisins. Nýjar tegundir pakkninga gætu verið gerð- ar úr efnum sem auðveldara er að endurvinna, eða mögulega að skipt verði yfir í pakkningar sem væri hægt að nota aftur og aftur svipað og gert er við fiskkör í íslenskum sjávar- útvegi,“ segir Sigurjón og bætir því við að mögulega mætti líka leysa vandann með því að finna betri leiðir til að endurvinna frauðplast. Að þróa umbúðir með alla kosti frauðplastskassa verður allt annað en auðvelt. Frauðplast er, þrátt fyrir alla ókostina, mikið undraefni. „Frauð- plastið heldur varma mjög vel frá vörunni og varnar þannig skemmd- um á fiskinum ef t.d. bretti með fisk- pakkningum þarf að standa úti undir beru lofti á góðviðrisdegi á leið sinni á áfangastað. Það væri ef til vill hægt að einangra stök bretti með öðrum hætti, s.s. með því að láta duga að klæða hverja stæðu að utan, frekar en að nota marga þykka frauðplasts- kassa, en sú leið myndi ekki henta miðað við hvernig við sendum fisk nú til dags með flugi,“ útskýrir Sigurjón. „Er sá háttur hafður á að stafla köss- unum, einum í einu, í fragtrými far- þegaflugvéla og þurfa kassarnir þá bæði að vera sterkbyggðir og þola mikið hnjask, og hver og einn þeirra verður að hafa nægilega góða ein- angrun.“ Pappi hefur sína veikleika Þegar eru nokkrir útflytjendur farnir að gera tilraunir með nýjar gerðir umbúða og þannig var sagt frá því í sérblaði Morgunblaðsins um sjávarútvegsmál í september að hjá Kassagerðinni má núna fá vatnshelda og sterka pappakassa sem eiga að geta komið í stað frauðplastsumbúða. Kom þar fram að svo miklar framfar- ir hafi orðið í flutningi á fiski, þar sem hnjask er í lágmarki og hægt að hafa fiskinn í hitastýrðu umhverfi allt á áfangastað, að það geti oft dugað að nota umbúðir með minna einangr- unargildi og styrk en dæmigerður frauðplastskassi. „Helsti veikleiki umbúða úr pappír er að um leið og einhver raki berst úr fiskinum í papp- ann þá minnkar styrkur efnisins stór- lega en það má leysa m.a. með því að vaxhúða pappírinn eða hafa fiskinn í þunnum vatnsþéttum plastumbúðum þegar hann er settur ofan í pappa- kassa.“ Þá hafa litið dagsins ljós kassar úr pappír sem eru einangraðir með ull sem fellur til t.d. við fataframleiðslu, og sumir framleiðendur þróa umbúð- ir úr nokkurs konar bylgjuplasti sem hafa bæði þann eiginleika að hægt er að flytja pakkningarnar flatar, og plastið sem þær eru gerðar úr getur verið auðveldara í endurvinnslu en frauðplast. Sigurjón minnir á að sama hvaða efni verði fyrir valinu þurfi þau að hæfa matvælaframleiðslu, og ef t.d. einangrandi efni má ekki komast í snertingu við matvæli verði að vernda fiskinn þeim mun betur. „Er skemmst að minnast þess að pólívínil- klóríð (PVC) var á sínum tíma notað í plastumbúðir utan um fisk, þar til kom í ljós að efnið gat smitast inn í fiskholdið.“ Notkun endurnýtanlegra umbúða, s.s. einhvers konar minni útgáfu af þeim plastkörum sem í dag eru notuð til að geyma fiskinn um borð í skipum og flytja hann innanlands, væri líka umhverfisvæn lausn. „En þá koma upp vandamál s.s. við þrif og hrein- læti, og eins við flutninga á tómum umbúðum frá kaupendum aftur til seljenda.“ Halda í hefðir Svo mun það ekki ganga þrauta- laust fyrir sig að taka nýjar umbúðir í notkun enda hefur reynslan sýnt að sumir kaupendur sjávarafurða eru mjög íhaldssamir og styggjast jafnvel við það eitt að seljandi breyti um lit á umbúðum. Sú hefð hefur skapast að umbúðirnar veita kaupendum vissu um gæðin og þannig leiti þeir sumir vísbendinga, eins og hvort allur ís er bráðnaður eða hvort kælimottan hef- ur slaknað, til að meta hratt og vel hvort varan hafi verið flutt við rétt skilyrði. „Þetta hefur t.d. torveldað útflutning á ofurkældum fiski, þar sem ekki er þörf á að hafa ís með fisk- inum enda búið að setja nógu mikinn kulda í flakið, en kaupendur verða hissa þegar þeir opna pakkninguna og sjá engin merki um ís. Hafa út- flytjendur því brugðið á það ráð að setja nokkra ísmola með í hverja öskju,“ segir Sigurjón. Erfitt að leysa frauðplastið af hólmi Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Framleiðendur leita að pakkningum sem eru sterkar, einangra vel og eru um leið umhverfisvænar. Vatnsvarinn pappír, ull, og endurnýtanlegar umbúðir eru meðal þess sem kemur til skoðunar. Kristinn Ingvarsson Markaðurinn kallar eftir umhverfisvænni umbúðum en á það má ekki slá af kröfum um styrk og einangrunargetu. Morgunblaðið/Golli Frauðplast er mikið undraefni að sögn Sigurjóns, þrátt fyrir ókostina. MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. OKTÓBER 2019 11 Afurðaverð á markaði 21. október 2019, meðalverð, kr./kg Þorskur, óslægður 403,11 Þorskur, slægður 425,85 Ýsa, óslægð 289,07 Ýsa, slægð 266,84 Ufsi, óslægður 155,97 Ufsi, slægður 184,53 Djúpkarfi 216,00 Gullkarfi 230,94 Blálanga, óslægð 257,77 Blálanga, slægð 220,66 Langa, óslægð 255,51 Langa, slægð 220,73 Keila, óslægð 110,89 Keila, slægð 150,36 Steinbítur, óslægður 148,43 Steinbítur, slægður 508,99 Skötuselur, slægður 561,85 Grálúða, slægð 476,51 Skarkoli, slægður 380,73 Þykkvalúra, slægð 484,82 Langlúra, óslægð 220,00 Hlýri, óslægður 309,00 Hlýri, slægður 453,70 Lúða, slægð 614,98 Lýsa, óslægð 108,30 Lýsa, slægð 119,00 Sandhverfa, slægð 847,00 Stórkjafta, slægð 311,50 Undirmálsýsa, óslægð 150,41 Undirmálsýsa, slægð 122,42 Undirmálsþorskur, óslægður 221,19 Undirmálsþorskur, slægður 261,29 Miðhrauni 13 - Garðabæ - Sími 555-6444 - www.maras.is YANMAR Aðalvélar 9 - 6200 hö. Mynd: Landhelgisgæslan Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.